Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Page 14
14 ___________MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 Menning______________________________________________________________________________________________________________________py Umsjón: Silja Adaisteinsdóttir silja@dv.is Tog og þel Ég veit ekki hvaða skilyrði innsetning þarf aö uppfylla til að standa undir nafni, eða hvort einungis yfirlýstir framúrstefnumenn i mynd- list megi flokka verk sín undir innsetningar. En ef átt er við heildræna mótun sýningarrým- is út frá fyrir fram gefnum forsendum, form- rænum og hugmyndalegum, þá er vart hægt að hugsa sér áhrifameiri innsetningu en þá sem Anna Þóra Karlsdóttir hefur nú komið fyrir í Ásmundarsal við Freyjugötu. í sýningarsalnum á efri hæðinni svífa nokkrar óregluiega lagaðar úllarvoðir hátt yfir höfðum okkar og minna ýmist á risastóra húðflipa, flæjur með ívafi mýrarrauða eða rifrildi af grænum torfþökum. Fíngerða, allt að því pastelkennda liti sína skapar listakonan með lituðum hálfgegnsæjum grisjum sem kembdar hafa verið saman við þel og síðan hertar með aðferðum sem ég kann ekki að nefna. Allar eru voðirnar eilitið um- komulausar að sjá, eins og slitnar úr sínu upp- runalega samhengi. Grisjurnar ýta undir þá tilfinningu áhorfand- ans að hann sé staddur í einhvers konar neyð- armóttöku, þar sem sjálf náttúran hefur orðið fyrir skakkafollum, jafnvel óbætanlegu tjóni, og það standi upp á hann að bæta skaðann með einhverju móti. Heiti sýningarinnar, „Rjóður", er því vænt- anlega margrætt, vísar til þess skjóls sem nátt- úran veitir okkur, til eyðunnar sem skapast þegar hún er rudd eða höggvin og „skellunnar" sem myndast í skilningi okkar og skynjun þeg- ar náttúran hverfur, svo vitnað sé í sýningar- skrá. ... og gerir okkur heil I gryfjunni á neðri hæð er annar - og ekki áhrifaminni - hluti þessarar innsetningar þar sem listakonan hefur hengt upp níu samfellur úr togi og grófum flóka sem hún nefnir „Boli“. Hér Tónlist Myndlist fær ullin að halda sínum upprunalegu litum, áferð og öðrum eiginleikum, og fyrir tilstilli þyngdaraflsins og ísaums myndar hún ílanga „boli“ eða sekki víðs vegar í rýminu; ósjálfrátt verður áhorfanda hugsað til mjúkra og goðsagna- kenndra rýmisverka Magdaleu Abakanowicz eða Nancy Graves. Tilfmningin sem hér er særð fram er allt ann- ars eðlis en í efri sal. Okkur býðst að ganga inn í og verða hluti af „heilli" og „ósárri" náttúru, náttúru sem umlykur, vermir, nærir og gerir okkur heil. Það þarf ekki að fara í grafgötur um viðhorf listakonunnar til fyrirhugaðra virkjunar- framkvæmda á hálendi landsins. Til þessa hefur islenska ullin verið stórlega vanmetinn efniviður meðal islenskra þrívíddar- listamanna, hvort sem um er að kenna einokun handverksmanna á henni eða einhverju öðru. Mig grunar að margir listamenn telji ógjörning að virkja ullina til hugmyndafræðilegrar útlist- unar á nýju og stafrænu árþúsundi. í framhaldi af þessari sýningu Önnu Þóru og hugmyndum sem hún viðrar í verkum sínum komast kollegar hennar tæpast hjá því að taka ullina til gagngerr- ar endurskoðunar. Aðalsteinn Ingólfsson Sýningin stendur til 17.11. Listasafn ASÍ viö Freyjugötu er opiö kl. 14-18 alla daga nema mán. mm Djöfullinn kemur fagnandi „Eyjatónlist" var yflrskrift tón- leika í 15:15 serítmni á Litla sviði Borgarleikhússins síðastliðinn laugardag. Flutt var tónlist frá Bretlandseyjum, Færeyjum og ís- landi og hófst efhisskráin á því að Sigurður Halldórsson sellóleikari lék Passacagliu frá árinu 1982 eftir enska tónskáldið William Walton. Var túlkun hans á þessari frisk- legu tónsmíð lífleg og lipur, stíg- andin hnitmiðuð og heildarmynd- in skýr, og var atriðið skemmtileg byrjun á tónleikunum. Næst flutti Ólafur Kjartan Sig- urðarson baríton ásamt Sigurði og Daníel Þorsteinssyni píanóleikara fjögur lög eftir færeyska tónskáld- ið Pauli í Sandagerði. Var söngur Ólafs einkar fallegur, greina mátti alls konar tilfinningar í næmri túlkun hans án þess að neitt væri yfirdrifið, og tæknilega var frammistaðan fullkomin. Ekki síðri var hljóðfæraleikurinn sem var ákaflega vandaður og skapaði áhrifamikla „impressíóníska" stemningu. Var útkoman magnað- ur skáldskapur sem unaður var að hlýða á. Ólafur söng einnig tvö skosk þjóðlög við ljóð Robert Bums, hið fyrra segir frá því er Djöfullinn kemur í bæinn til að taka með sér „skattmann" og mun vera í eitt af fáum skiptum sem sá vondi kemur fagnandi. Lagið var í útsetningu Robin McEw- Ólafur Kjartan Siguröarson Jónas Sen an, en ekki Greina mátti alls konar tilfinningar í næmri túikun hans ... varð ráðið af mannsgaman______ ___________________________________ ___________ Ypsilon á einföldum stað tónleikaskránni hver útsetti hið síðara, 0 my luv is like a red red rose. Bæði lögin voru glæsilega sungin af Ólafi og sömuleiðis var píanóleikur Daníels hinn vandað- asti. Sellóleikur Sigurðar var hins vegar nokkuð ónákvæmur í seinna laginu, þó annað á tónleik- unum hafi gengið eins og í sögu hjá honum. Hann var t.d. í ágætu formi í þremur aríettum Kristi- ans Blak, þó hugsanlega hefði meiri snerpa átt betur við í hin- um fyrstu tveimur. I síðustu arí- ettunni, sem er sú ljóðrænasta, fékk sellóið að syngja af hjartans lyst, og þar var Sigurður á heima- velli. Eitt besta atriði tónleikanna var útsetningar Hafliða Hallgrímsson- ar á sex þjóðlögum frá árinu 1973, en Ólafur Kjartan kynnti hvert stef á undan með því að spfla það á langspil. Setti það útsetningamar í sögulegt samhengi og kom vel út. Hér var sellóleikur Sigurðar prýði- lega útfæröur þó inntónun í Grát- andi kem ég nú hafi ekki alltaf ver- ið fyllflega örugg. Hin lögin voru frábærlega leikin, bæði af sefló- og píanóleikara, og var túlkun þeirra svo innOeg að það var eins og mað- ur væri kominn aftur í tímann að hlýða á tónlistina í dimmum torf- bæ. í stuttu máli voru þetta athygl- isverðir tónleikar og kærkomin hvOdarstund eftir erOsama viku. Það er æðimörg hugsun að setja saman bók. Og beyglar heOann. Einna skrýtnast samt að taka við bókinni, sjá hana fyrsta sinni útkomna. Halda laust um hana, snúa henni eins varfæmislega og bami manns nýfæddu, dást og brosa inn í sálina, klökkna næstum og vita sem er að þetta er bókin manns, afkvæmið, útkoman... Að gefa út bók er að gefa hluta af sjálfum sér. Opna sig. Og eigin bók er opnuð ofur rólega eins og blandist þar saman efl og kvíði, já ofboðlítið þunglyndi um að prentunin hafl mistekist. Og að yfirsjónir hafi ekki sést. Draga andann djúpt og leggjast aftur í þungan stól og fletta skjálfandi fingrum hverri síðunni af annarri og búast viö vfllum og sannfærast um að þær séu þama ein- hvers staðar. Finna samt enga. Skrýtið. Loka bókinni laust en byrja svo aftur. Leita að því sem mann langar ekki að fmna, en leita samt og leita lengi. Fóma hádegismat og síðdegiskaífi, jafnvel kvöldmat. Leita og vita fyrir víst að manni yfirsést. Sofna loks i djúpum stól og dreyma orðabrengl, ritvOlur og ypsflon á einfoldum stað. Fara um á flugi svefnsins mflli línanna og rekast á rangar kommur og klénar skiptingar. Vakna og vita sem er að orðin standa. Verða ekki máð. Og lifa mann. -SER Áhrifavaldar Hveijir em áhrifavaldar leikhús- fólks? Hver hefur áhrif á listamenn og hvemig? Fmmmælendur á fyrsta leik- húsmálafúndi vetrarins í Borgarleik- húsinu kl. 20 í kvöld segja frá áhrifa- völdum sínum, svara spumingum og taka þátt í umræðum. Frummælendur eru: EgOl Heiðar Anton Pálsson leik- stjóri, HaOdóra Geirharðsdóttir, leikari og leikstjóri, Stefán Baldursson, leik- hússtjóri og leikstjóri, og ÞórhOdur Þorleifsdóttir leikstjóri. Úr lausu lofti Þriðju tónleikarnir i-----------1 í hádegistónleikaröð íslensku óperunnar á haustmisseri verða á morgun kl. 12.15. Yf- irskrift tónleikanna er Úr lausu lofti og söngvarar að þessu sinni eru þau Sess- elja Kristjánsdóttir messósópran og Jó- hann Friðgeir Valdimarsson tenór sem bæði voru fastráðin að íslensku óper- unni í ágúst sl. Við píanóiö verður Cli- ve Pollard. Á efnisskránni er tónlist eftir amer- íska sönglaga- og söngleikjahöfunda og aðra sem sömdu í þeim anda. Meðal annars má þar heyra lög sem Frank Sinatra gerði ódauðleg á sínum tíma. Tónleikamir standa í um 40 mínút- ur. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Hægt verður að kaupa samlokur fyrir eða eft- ir tónleika, svo enginn ætti að þurfa að fara svangur úr Óperunni. Ljósmyndir og hönnun Leifúr Þorsteinsson, ljósmyndari og kennari við LHÍ, kynnir eigin verk og sýnir ljósmyndir í Opna Listaháskólan- um í dag kl.12.30 í LHÍ, Laugamesi, stofu 024. Leifur rak eigin ljósmynda- stofu um árabO þar sem hann fékkst aðaUega við auglýsinga- og iðnaðarljós- myndun. Á miðvikudaginn á sama tíma flytur Guðmundur Oddur Magnússon, pró- fessor við LHI, fyrirlestur um stöðu hönnunar á Breflandi í LHÍ í Skipholti, stofu 113. Hann segir frá ferð tfl breskra hönnunarfyrirtækja og fjallar um hönnunarmessumar í 100% design og Designersblock. Hönnunarsaga Fyrirlestraröð um íslenska hönn- unarsögu 1860-1960 hefst á fimmtu- daginn í fyrirlestarsal LHÍ, Skipholti 1. TímabOið hefst meö brautryðj- endastarfi Sigurðar Guðmundssonar (1833-1874) og síðan verður þátttaka íslendinga í heimssýningum reifuð, iðnsýningar á íslandi kynntar og hlutverk íslenskra iðnaðarmanna, myndlistarmanna og arkitekta í hönnun 20. aldar skoðað í samhengi við rótgrónar hefðir og módemisma. Lýkur með umtjöUun um hönnunar- tilraunir sjötta áratugarins, þegar norræn hönnun öðlaðist alþjóðlega viðurkenningu. Kennari er Amdís S. Ámadóttir, mnanhússhönnuður og bókasafnsfræðingur. Leiktúlkun Námskeið í leiktúlkun hefst í LeOflistardeOd LHÍ, Sölvhólsgötu 13, í dag. Markmiðið er að opna heim sviðs- og leOrtúlkunar. Fjallað verður um það hvemig leikarar nálgast nýtt hlutverk. Rannsakað verð- ur mismunandi göngulag og hreyfing- ar, talsmáti og kækir, svo eitthvað sé nefnt. Aðaláhersla verður lögð á vinnu með ehdeik að eigin vali eða valinn í samráði við kennarann. Einnig verða spunaæfingar og senur. Kennari er Þór Tulinius leikari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.