Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2002, Blaðsíða 1
NANARI UMFJOLLUN Á BLS. 6 í DAG NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 10 í DAG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT TILBOÐ 14.995 Verö áður 16.995 S.B.D. Sætúni 4 • Sími 562-6066 VETRARDEKK JltlUUESTUIIE Smur- bón og ilekkja|)jónuslan Jón Steinar Gunnlaugsson um prófkjör Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi: \ Niðurstaðan ómarktæk Skuggi bin Ladens hvílir yfir Kabúl Skuggi hryðjuverkaforingjans Osama bin Ladens hvíldi í morg- un yfir eins árs afmæli frelsunar Kabúl, höfuðborgar Afganistans, úr klóm talibanastjórnarinnar. Hljóðupptaka sem arabíska sjón- varpsstöðin al-Jazeera spilaði í gær er að öllum líkindum verk bin Ladens. Þar ber hann lof á hryðjuverk sem nýlega hafa verið framin, svo sem sprengjutilræðið á Balí og árásina á franska olíu- skipið undan ströndum Jemens. Ekki hefur tekist að klófesta bin Laden þrátt fyrir umfangs- mikla leit í meira en ár. Hún gerði allt best „Ef marka má fréttir af fram- kvæmd prófkjörsins virðist vera komið fram, að utankjörfundarat- kvæðagreiðsla hafi farið fram án þess að vera á auglýstum kjörstöð- um, á þann hátt að þeir sem höfðu kjörgögn undir höndum hafi farið með þau til manna. Þetta er nóg til þess að álykta sem svo að fram- kvæmd prófkjörsins virðist vera fjarri þvi að uppfylla eðlilegar reglur,“ segir Jón Steinar Gunn- laugsson lögmaður um hið um- deilda prófkjör Sjálfstæðisflokks- ins i Norðvesturkjördæmi. Jón Steinar hefur mikla reynslu af framkvæmd kosninga, var m.a. formaður yfir- kjörstjómar í Reykjavík við síðustu alþing- iskosningar og gegnir þeirri stöðu nú í Reykjavíkur- kjördæmi norð- ur. Hann segir að svo virðist sem grundvallarreglur hafi verið brotnar. „Þegar hlutlaus kosning á að fara fram þá keyra menn ekki með kjörseöla til manna i því skyni að fá þá til að taka þátt í Jón Steinar Gunnlaugsson. prófkjörinu. Þetta er slíkt þverbrot á framkvæmd prófkjörs að öll nið- urstaða í því er ómarktæk," segir Jón Steinar og telur réttast að end- urtaka prófkjörið. „Það er mín skoðun að ef menn ætla að viðhafa prófkjör til að ákveða framboðslista í þessu kjör- dæmi hljóti það að verða nýtt próf- kjör, sem yrði framkvæmt eftir öll- um eðlilegum reglum. Þetta próf- kjör virðist ekki uppfylla neinar kröfur til þess að geta ákveðið uppstillingu á þessum framboðs- lista.“ Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæö- isflokksins í kjördæminu kemur saman til fundar í dag. Samkvæmt prófkjörsreglum skal hún fjalla um ágreining varðandi prófkjör, en komi upp ágreiningur innan stjómar kjördæmisráðsins má skjóta málinu til miðstjómar Sjálf- stæðisflokksins, sem þá fellir end- anlegan úrskurð. Miðstjómin er skipuð tuttugu og sjö fulltrúum. Sturla Böðvarsson á sæti í mið- stjóminni, einn þeirra sem urðu í fimm efstu sætum í prófkjörinu. -ÓTG Förum áfram ef við spilum af eðlilegri getu 27 MINNINGARTÓNLEIKAR UM ELLY VILHJÁLMS: GUÐMUNDUR HRAFNKELSSON: fire$tonc(j) HARÐKORNADEKK ■ FRAKKAR VITA NUNA HVAÐ SAGA ER. BLS. 14 DAGBLAÐIÐ VISIR 261. TBL. - 92. ARG. - MIÐVIKUDAGUR 13. NOVEMBER 2002 VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.