Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2002, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2002
DV
Tilvera
21
*.
Joe Mantegna 55 ára
Hinn ágæti leikari Joe
Mantegna á afmæli í dag.
Mantegna var lengi sviðs-
leikari áður en hann sneri
sér að kvikmyndum. Hans
fyrsta hlutverk var í söng-
leiknum Hárinu (1969). Það er þó sam-
vinna hans og leikskáldsins David
Mamet í nokkrum leikritum sem báru
hróður hans víða og það var Mamet
sem fékk honum fyrsta stóra hlut-
verkið í kvikmynd, House of Games
(1987). Áður hafði hann eingöngu ver-
ið í aukahlutverkum. Hefur frægð
hans farið vaxandi á undanförnum
árum. Eiginkona Mantegna heitir Ar-
lene Vrhel og eiga þau tvær dætur.
Gildir fyrir fímmtudaginn 14. nóvember
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.):
I Þú ert mjög samvinnu-
' þýður um þessar
mundir og ættir að
forðast að samþykkja
hvað sem er. Ekki láta ómerkilegt
mál spilla annars ágætum degi.
Fiskarnlr (19, febr.-20. mars):
DNú er rétti tíminn til að
hrinda nýjum hugmynd-
um í framkvæmd og líta
opnum huga á aðstæður.
Þú ert f góðu jafhvægi og þér liður f
alla staði vel um þessar mundir.
Hrúturinn (21. mars-19. april):
> Mál þín taka skyndi-
'legum stakkaskiptum
og staða þín á vinnu-
markaðnum batnar
til mikilii muna. Viðræður sem
þú tekur þátt í reynast gagnlegar.
Nautlð (20. apríl-20. maí):
Það verður ekki auð-
velt að fylgja fyrirfram
ákveðnum áætlunum
og raunar ættir þú
ekki að reyna það að svo stöddu.
Happatölur þinar eru 4, 16 og 27.
Iyíþummlr (21, maí-21, iúní);
Þú hefur mikið að
/^^■gera um þessar mund-
I ir og nýtur þess fram í
fmgurgóma. Þú munt
uppskera árangur erfiðis þíns.
Happatölur þínar eru 5,17 og 29.
Krabblnn (22. iúní-22. íúií>:
Þú veltir þér einum of
■ mikið upp úr vandamál-
' um þínum eða einhvers
____ þér nákomins. Ef þér
tekst að hvíla þig einhvem hluta
dagsins gengur allt miklu betur.
UÓnlð (23. lúlí- 22. áeúst);
. Þú ert í fremur erfiðu
1 skapi í dag og ættir því
að forðast að tala mikið
við fólk sem ekki þekkir
þig og þín fyluköst vel. Vináttusam-
band gengxu í gegnum erfitt timabil.
Mevlan (23. éeúst-22. sept.):
Tilhneiging þín til að
gagnrýna fólk auðveld-
\\^l*ar þér ekki að eignast
^ F vini eða að halda þeim
sem fyrir eru. Sýndu þolinmæði
hvað sem á dynur.
Vogln (23. sent.-?3. okt.l:
J Notaðu hvert tækifæri
Oy til þess að komast upp
\ f úr hefðbundnu fari.
r f Lifið er til þess að láta
sér líða vel en ekki bara strita og
strita.
Sporðdreklnn (24. okt.-2l. nóv.):
[Þú ert eitthvað óviss
varðandi einhverja hug-
^mynd sem þú þarft að
taka afstöðu til. Leitaðu
ráða hjá fóíki sem þú treystir, það
kann að hjálpa þér aö taka ákvörðun.
Bogmaðurlnn (??. nóv.-21. des.):
|Einhver hætta virðist
Fá að félagar þínir lendi
upp á kant og þú gætir
dregist inn í deilur.
Gættu þess vel að segja ekkert
sem þú gætir séð eftir.
Stelngeltln (22. des.-19. ian.):
Eitthvað sem þú gerir á
að þér finnst hefðbund-
inn hátt leiðir til þess
að þú kemst í sambönd
sem þig óaði ekki fyrir. Gríptu gæs-
ina á meðan hún gefst.
Bíógagnrýni
Laugarásbíó/Sambíóin - The Tuxedo -yý ^
Njósnari í sparifötum
Sif
Gunnarsdöttir
skrifar gagnrýrti
um kvikmyndir.
Sigurlína
Davíðsdóttir
lektor í uppeldis- og
menntunarfræði við HÍ
Sigurlína Davíðsdóttir, lektor í
uppeldis- og menntunarfræði við
HÍ, Fannafold 103, Reykjavík, er sex-
tug í dag.
Starfsferill
Sigurlína fæddist að Sellátrum í
Tálknafirði og ólst upp í Tálkna-
firði. Hún lauk verslunarprófi frá
VÍ 1961, stúdentsprófi frá FV á
Akranesi 1987, BA-prófi í sálfræði
frá HÍ 1991, MA-prófi í sálfræði frá
Loyola University Chicago 1993 og
Ph.D.-prófi frá sama skóla 1998.
Sigurlína var fulltrúi hjá Al-
mannavömum rikisins 1973-80, ráð-
gjafi hjá SÁÁ, Staðarfelli, 1980-83,
leiðbeinandi við Laugaskóla, Dala-
sýslu, 1983-88, og er lektor við Há-
skóla íslands frá 1998.
Sigurlína hefur auk þess verið
sjónvarpsþula við Ríkissjónvarpið,
skyndihjálparkennari hjá Bifreiða-
eftirliti ríkisins, ráðgjafi í Krýsuvík
o.fl. Hún starfaði hjá Krýsuvíkur-
samtökunum- með -hléum frá stofn-
un þeirra 1986 og er formaður sam-
taka frá 1997.
Sigurlína var búsett í Reykjavík
að mestu frá 1958-80, í Dalasýslu
1980-88, í Reykjavík 1988-91,
Chicago í Bandaríkjunum við nám
1991-95 og eftir það í Reykjavík.
Fjölskylda
Sigurlína giftist 20.4.1981 Ragnari
Inga Aðalsteinssyni, f. 15.1.1944, að-
júnkt við KHÍ. Hann er sonur Ingi-
bjargar Jónsdóttur og
Aðalsteins Jónssonar,
bænda að Vaðbrekku
i Hrafnkelsdal.
Böm Sigurlínu eru
Ingibjörg Tómasdótt-
ir, f. 4.7. 1961, hjúkr-
unardeildarstjóri í
Reykjavík, gift Þór-
ami Kjartanssyni og
eiga þau þrjú böm en
tvö þeirra eru á lífi;
Arndis Tómasdóttir,
f. 23.8. 1962, inn-
heimtustjóri í Reykja-
vík, gift Þorvaldi
Guðlaugssyni og eiga
þau tvö börn;Tómas
Tómasson, f. 28.12.
1966, óperusöngvari í Brussel,
kvæntur Lubu Tómasson og eiga
þau eitt fósturbarn auk þess sem
hann á þrjú böm frá fyrra hjóna-
bandi; Davíð Ingi Ragnarsson, f.
18.1.1983, nemi í Reykjavík.
Stjúpsonur Sigurlínu er Aðal-
steinn Ingi Ragnarsson, fr lir7rT974,
verkamaður.
Alsystkini Sigurlínu eru Guðný
Davíðsdóttir, f. 13.2.1944, verslunar-
kona í Reykjavík; Höskuldur Dav-
íðsson, f. 1.1.1948, byggingaverktaki
í Kristiansand í Noregi; Hreggviður
Davíðsson, f. 8.2.1953, framkvæmda-
stjóri í Kristiansand í Noregi.
Hálfsystkini Sigurlínu, sam-
mæðra, em Ingimar Einar Ólafsson,
f. 6.2. 1936, búsettur í Reykjavík;
Guðjóna Ólafsdóttir, f. 6.3. 1937,
starfskona á öldrunardeild í Reykja-
vík; Gunnbjörn Ólafsson, f. 18.3.
1938, sjómaður og bensínafgreiðslu-
maður í Reykjavík; Ólöf Ólafsdóttir,
f. 18.7. 1939, verslunarkona í Kópa-
vogi.
Hálfsystkini Sigurlínu, samfeöra,
eru Benedikt Ðavíðsson, £ 3.6.-1927r
trésmiður í Kópavogi; Ólafur Ólafs-
son, f. 7.8. 1929, sjómaöur í Sand-
gerði; Davíð J. Davíðsson, f. 21.3.
.1933, sundlaugarvörður í Kópavogi.
Foreldrar Sigurlínu: Davíð Dav-
íðsson og Guðrún G. Einarsdóttir,
bændur á Sellátrum í Tálknafirði.
Sigurlína tekur á móti gestum í
Safnaðarheimili Fríkirkjunnar,
Laufásvegi 13, kl. 17.00-19.00 á af-
mælisdaginn.
Jackie Chan leikur leigubílstjór-
ann Jimmy Tong sem ber litla virö-
ingu fyrir hraðatakmörkunum. Svo
hratt og örugglega ekur hann gulum
leigubílnum sínum að hann er feng-
inn til aö vinna fyrir eins konar
bondgæja, Clark Devlin (Jason Isa-
acs), sem er svalur og vel tækjum
búinn. Besta græjan hans eru el-
egant smókingfót sem eru eins og
fundin upp af bræðrunum Grimm
því að sá sem í þeim er getur gert
allt frá því að hlaupa á 200 km
hraða og vinna 12 fileflda, vopnaða
karlmenn í slagsmálum til þess að
dansa og syngja eins og James
Brown - hann hefði verið heppinn
og glaður sá karlsson sem hefði ver-
ið í slíkum kvöldklæðnaöi við að
koma tröllum fyrir kattarnef.
Skemmst er frá því að segja að Devl-
in slasast í bardaga við hlaupabretti
(!) og bílstjórinn Jimmy (karlsson)
þarf að klæðast kvöldklæðnaði
heldra fólksins (verður ígildi prins)
og bjarga heiminum í leiðinni. En
sá sem er að reyna að eyðileggja
heiminn í kvikmyndinni Tuxedo er
hinn slæmi Diedrich Banning
(Ritchie Coster), maður sem hefur
atvinnu af því að setja vatn á flösk-
ur og vill eitra öll vatnsból veraldar
nema sitt eigið svo að allir i heimin-
um þurfi að kaupa vatnið hans. Sem
sagt þá er söguþráðurinn ekki upp á
marga fiska.
Jackie Chan var dressaður upp til
að verða arftaki Bruce Lee í Kung-
Fu kvikmyndum en í stað þess að
herma eftir meistaranum hannaði
harm alveg nýja tegund kvikmynda:
kung-fu-kómedíur. Hann hefur
skrifað, leikstýrt, framleitt og leikið
í mörgum gifurlega vinsælum Hong-
kong myndum en ferill hans í
Hollywood hefur ekki verið jafn
glæstur. Hann fór fyrst til
Hollywood snemma á níunda ára-
tugnum og tók að sér nokkur
vafasöm verkefni en sneri aftur til
Hong Kong í áratug. Á síðustu árum
hefur hann leikið í nokkrum
Hollywood-smellum eins og Rush
Hour og Shanghai Noon en flestar
Hollywood-myndir hans gera mun
meira út á húmorinn en ótrúlega
bardagafærni Chans. Sömu sögu má
segja með The Tuxedo, þar er grín-
ið alltaf mikilvægara en spennan og
bardagaatriði eru fá og frekar
ómerkileg, sum meira að segja
tölvugræjuð - þannig að í raun
hefði hver sem er annar getað tekið
þetta að sér.
Chan gerir samt vel og heldur
myndinni uppi með finni kómískri
tæmingu. Aðrir leikarar eru mest
upp á punt og ekki allir standa sig í
því. Hinn stórgóði Peter Stormare
er afleitur í illa skrifuðu hlutverki
galins vísindamanns og Ritchie
Coster ósköp lítið óttalegur með af-
leitu hugmyndina sína um vatns-
bólin (hvað voru handritshöfund-
amir að hugsa - hvaö með dýrin -
eiga þau líka að kaupa vatn á flösk-
um?). Jason Isaacs var ágætur í
hlutverki hins bondlega Devlins en
hin sykursæta Jennifer Love Hewitt
sannaði einu sinni enn í hlutverki
aðstoðarmanns Chans að hún ræð-
ur ekki við leikarastarfið. Þó verður
að segja eins og er að það er ómögu-
legt annað en hlæja dátt annað veif-
ið og ef það er nóg þá ætti ekkert að
aftra ykkur. En virkilegir aðdáend-
ur Chans ættu ef til vill frekar aö
finna gamla Hong Kong-mynd á
einni af betri myndbandaleigum
bæjarins.
Lelkstjórl: Kevin Donovan. Handrlt: Mich-
ael J. Wilson og Michael Leeson. Kvlk-
myndataka: Stephen F. Windon. Tónlist:
John Debney, Christophe Beck. Aðallelk-
arar: Jackie Chan, Jennifer Love Hewitt,
Jason Isaacs, Debi Mazar, Ritchie Coster
og Peter Stormare.
Nissan Terrano II 2,4, bsk.
Skr. 7/01, ek. 43 þus.
Verð kr. 2280 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
SUZUKI BILAR Hf
Skeifunni 17, simi 568-5100
Galloper 2,5 diesel sjsk.
Skr. 9/99, ek. 78 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk.
Skr. 7/97, ek. 51 þús.
Verð kr. 690 þus.
Suzuki Swift GLS 3dr. bsk.
Skr. 9/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 750 þus.
Suzuki Vitara JLX, 5d., bsk.
Skr. 6/00, ek. 59 þús.
Verð kr. 1380 þús.
Suzuki Vitara JLX Exce,
ssk. Skr. 10/98, ek. 46 þús.
Verð kr. 1255 þús.
Suzuki Vitara V-6, ssk.
Skr. 10/97, ek. 85 þús.
Verð kr. 1290 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/02, ek. 13 þús.
Verð kr. 1480 þús.
VW Polo Comfortline bsk.
Skr. 7/01, ek. 33 þús.
Verð kr. 1080 þús.
-4.
T'