Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 4- 25 V DV M agasm Skrífar á kortin. Geröur G. Bjarklind á kunnugtegum slóöum í hljóðveri i Útvarpshúsinu og með föndriö á borðum. Magasín-myndir kö Ger&ur G. Bjarklind föndrar á þularvaktinni: „Þegar rólegt er á kvöldvöktum í þularstofunni gríp ég oft í svona fóndur. Mér fmnst þetta í raun mannbætandi og óskaplega skemmtilegt," sagði Gerður G. Bjarklind útvarpsþula í samtali við DV-Magasín. Með heymartól- in á eyrum vaktar hún hvert orð og tón sem fer út á öldur ljós- vakans úr Ríkisútvarpinu í Efsta- leiti. En grípur síðan í handavinn- una milli kynninga „Ég fer stundum í prentsmiðj- unar og kaupi kartonpappír sem starfsfólk sker og sníður fyrir mig. Síðan tek ég gömul kort og klippi þau niður, lími kannski myndim- ar af þeim á nýju kortin og svona leik ég mér. Líklega er ég að búa til einhver 60 til 70 kort fyrir hver jól og engin tvö eru eins,“ segir Gerður. Hún kveðst grípa í margvíslegt fondur annað, svo sem að búa til lítil sæt hreindýr úr pípuhreinsur- um og engla úr gömlum undirkjól- um. Allt sé þetta til að auka á jólastemninguna en hjá þulum Ríkisútvarpsins byrji hún hins vegar ekki fyrr en á Þorláksmessu þegar jólakveðjumar frægu eru lesnar. -sbs 50 ára afmæli á Brákarborg: Hér eru afbragðsbörn „Það eru kátir og skemmtiiegir krakkar hér í Heimahverfmu og þetta er góður leikskóli," segir Ingibjörg Karlsdóttir, matráðskona á Brákarborg, í samtali við DV-Magasín. Haldið var upp á fimmtíu ára afmæli skólans í síð- ustu viku og mætti þangað fjöldi góðra gesta. Ungir og gamlir; fyrrum nem- endur skólans sem og starfsfólk ffá fyrri tímum, foreldrar og eins fulltrúar Reykjavíkurborgar, svo einhverjir séu nefndir. Alls komu um 200 manns á staðinn og margir tóku hraustlega undir þegar tekinn var söngur skólans; Allir eru vinir á Brákarborg. Það eru orð með rentu...því hér eru afbragðsböm. Þannig hefur þetta líka alla tíð verið í þessu hverfi," segir Ingibjörg. Á leikskólanum eru sextíu nemendur i þrem- ur deildum. í tOefni afmælisins fékk skólinn einnig góðar gjafir, eins og til að mynda sjónvarpstæki og vídeó. Einnig bar margs konar tónlistaratriði hátt á afmæl- ishátíðinni, svo sem blokkflautuleikur Helgu Aðalheiðar Jónsdóttur, kennara við skólann, og Sigrúnar Tómadóttur, eins nemanda hennar. -sbs Kátir krakkar - og allir meö kórónu. Blásiö í blokkflautu. Helga Aðalheiður Jónsdóttir tónlistarkennari er fjær - og nær er Sigrún Tómasdóttir, nemandi hennar. Morgunhrollvekjur Stormskers á Stöð 2 eru hér allar samkomnar ásamt fjölmörgum öðrum gráglettnum pistlum hans og meinlegum blaðagreinum síðustu 12 ára. Alls 42 talsins. Efnið er fjölbreytt: Svika- miðlar og aðrir gjaldmiðlar, íþróttamennska, sardínur í olíu í boði Satans Husseins, sílikonur í fegurðar- og megurðarsamkeppnum, íslenskt endur- vinnslupopp, kirkjuræk(s)ni, jólasveinn fyrir herrétt, verðlagning, hárlagning, kistulagning, súlustaðirnir, Omega-megabeibin o.fl. Um 200 Ijósmyndir eru ekki í bókinni. Ómissandi á hvert sambýli. Osomi bin Laden: „Ég bókstaflega sprakk við lestur þessarar bókar. Hún kveikti virkilega í mér. Bók sem enginn heilbrigður hryðjuverkamaður getur látið framhjá sér fara." Ásthór í Friði 2%: „Frábær bók. Við lestur hennar rak ég upp mjög stór útstæð augu." D. Oddsson: „Sverrir er með bláar hendur á kápumyndinni og það kann ég vel að meta. Svo er hann blátt áfram blár í framan líka og ég kann vel við allt sem er og verður blátt áfram. Reyndar finnst mér að það mætti vera meira blátt í myndinni, því ég er mjög hrifinn af bláum myndum. Ég, sem blámaður, er samt alveg hæstánægður með þessa bók. Verð að lesa hana við tækifæri." B. Mortens: „Szchvakalega szchkemmtileg szchrudda. Ég szchegi og szchrifa szchrudda: S-Z-C-H-R-U-L-S-D-A." Ó.R. Grí(m)s: „Ég og kærastan mín kíktum í hana saman í rúminu og ég verð að segja að hún var mjög góð. Bókin var sömuleiðis ágæt." G. Bush: „Nú væri gott að kunna að lesa." Menn og málning - sími: 562 3992 - Dreifing: JPV útgáfa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.