Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Síða 25
49 MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2002_________________ DV Tilvera • S k em mt anir á gamlárskvöld •Sálin á Broadwav Það ver&ur enginn svikinn af gamlárskvöldi meö Sálinni og ættu skemmtanafíklar að huga að Broadway þetta árið. Allir velkomnir sem náð hafa 20 árum en miðaverð er 2.500 krónur. ■Gullfoss og Gevsir á Vegamótum Plötusnúðarnir Gullfoss og Geysir trylla lýðinn, 1.600 kr. inn og 22 ára aldurstakmark. ■Hip hop á Þórscafé Forgotten Lores, Bent & 7berg, O.N.E., DJ Rampage og DJ Paranoya koma fram ásamt DJ Elvari, DJ Tryggva og DJ O Prime sem spila Drum’n'bass. Miðaverð er 2.500 krónur og aldurstakmarkið er 20 ár. ■Hugarástand á Flauel DJ Frimann og DJ Arnar koma fram auk gesta. í hliðarherbergi veröa DJ Grétar og DJ Birkir. Miðaverð er 1.500 krónur og 20 ára aldurstakmark. ■Studmenn á Nasa Hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, skemmtir á Nasa, miöaverö er 2.500 krónur og aldurstakmark er 22 ár. ■Land og svnir á Gauknum Hinir stórskemmtilegu Land og synir sjá um fjörið á Gauknum. 20 ára aldurstakmark og miðaverö er 1.500 krónur. ■Jagúar á Grand Rokk Fönksjúklingarnir í Jagúar eru skriðnir undan feldi og blása í heriúðra á Grand Rokk. Þetta er ávísun á gott kvöld. Miðaverð er 2.000 krónur og aldurstakmark 20 ár. ■Sixties á Kaffi Reykjavík Brjáluð stemning væntanlega, 1.500 krónur inn og 20 ára aldurstakmark. ■Plötusnúðar á Prikinu DJ Kári, DJ Magic og DJ Rampage leiða hóp plötusnúða í áramótagleðinni á Prikinu. Frítt er inn og aldurstakmark er 20 ár. ■Hunang á Plavers Gleöisveitin Hunang skemmtir á Players fyrir litlar 1.500 krónur fyrir þá sem náð hafa tvítugsaldri. •Skemmtanir á nýárskvöld ■Millarnir______________________í Leikhúskjallaranum Það er boöið upp á Gala-kvöldverð í Þjóðleikhúskjallaranum á nýársdag, Bogomil Font, Páll Óskar og Milljónamæringarnir spila. Miðaverð er 15.000 krónur en 3.000 ef þú ferð bara á dansleikinn. 20 ára aldurstakmark. ■ Lúdó og Stefán á Broadwav Dansleikur Islensku óperunnar er á Broadway, kór ásamt Sinfoníuhljómsveit Islands. Hljómsveit Lúdó og Stefáns. Miðaverð er 9.900 ásamt kvöldverði, aldurstakmark 20 ár. ■Pops. Piddú og Raggi á Sögu Pops spila á Hótel Sögu ásamt Diddú og Ragga Bjarna. Miöaverð er 2.900 og aldurstakmark 20 ár. ■Hótel Borg Óskar Guðjónsson og Davíð Þór Jónsson spila á meðan kokkteill er borinn fram. Lamúr spilar undir matnum ásamt öðrum uppákomum, Bigband Samma í Jagúar spilar fyrir dansi. Miðaverð er 22.000 með mat og víni. ■Apparat...Organ Quartet á Grand Rokk Hin stórskemmtilega hljómsveit Apparat Organ Quartet fagnar nýju ári með hljómleikum á Grand Rokk í kvöld ásamt Rassa prump. Miðaverð er 1.000 krónur og hefjast tónleikarnir um klukkan 22.30. Krossgáta Lárétt: 1 land, 4 blekking, 7 dragspil, 8 for, 10 slæmt, 12 hár, 13 fljótir, 14 barefli, 15 leyfi, 16 litla, 18 kát, 21 ausa, 22 steintegund, 23 kaup. Lóðrétt: 1 viljugur, 2 ofha, 3 ræsi, 4 ómerkileg, 5 fálka, 6 glöð, 9 rólegum, 11 tré, 16 barði, 17 hæðir, 19 óvissu, 20 málmur. Lausn neðst á síðunni. Skák Umsjón: Sævar Bjarnason Uppgangur Indverja á skáksviðinu hefur vakið verðskuldaða athygli. Vishy Anand hefur verið 1 fremstu röð nú í um 2 áratugi og nú fylgir fjöldinn í kjölfarið. Eins og t.d. þessi unga stúlka, Humpy Koneru, sem er aðeins 15 ára en hefur samt stór- meistaratitil karla. Hún deildi efsta sæti mótsins ásamt kínversku stúlkuni Zhao Xue sem er aðeins 17 ára en sú kínverska varð aðeins hærri að stigum. Hér hefur hvítur lít- ið frumkvæði nema frípeðið á a-lín- imni sem sú indverska mjakar upp i borð og tryggir sér sigur. Hvítt: Humpy Koneru (2484). Svart: S. Milliet (2164). Heimsmeistarakeppni unglinga, stúlknaflokkur. Goa, Indiandi (13), 20.12. 2002. 1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. e3 c6 4. c4 a6 5. b3 Bg4 6. Rbd2 e6 7. Bd3 Rbd7 8. Bb2 Bd6 9. 0-0 0-0 10. Dc2 Db8 11. a4 a5 12. Bc3 Bh5 13. Hfbl Dc7 14. c5 Be7 15. b4 axb4 16. Hxb4 b6 17. cxb6 Rxb6 18. Hbbl Rbd7 19. Ha2 Bg6 20. Bxg6 hxg6 21. Hab2 Hfb8 22. Hxb8+ Hxb8 23. a5 c5 24. Hxb8+ Rxb8 25. dxc5 Dxc5 26. Rb3 Dc7 27. Db2 Rc6 28. Rfd4 Ra7 29. Rd2 Rd7 30. g3 Bf6 31. Db4 Be5 32. Bb2 Bf6 (Stöðu- myndin) 33. R2b3 e5 34. Rf3 Rc6 35. Db5 Dd6 36. a6 d4 37. exd4 exd4 38. Db7 Dd5 39. a7 1-0. Lausn á krossgátu__________________ •ttfl OZ ‘Bja 61 ‘ese il ‘ojs 91 ‘iijjai n ‘uiruæA 6 ‘)B5i 9 ‘iba s ‘nhlIIHS P ‘flejjnQiu g ‘euo z ‘snj 1 ijjajQOTj 'urmi gg ‘Bdo ZZ ‘jjais iz ‘jxoj 8Í ‘bbuis 91 ‘tjj si ‘kJtti H ‘jijo 8i ‘fln zi ‘Jlfl 01 ‘QBas 8 ‘Bkiflu i ‘5flAS þ ‘uojj 1 :jjajBq Dagfari_________________________________________ Samfélagslega þroskaheftir Um helgina kom fram á frétta- vefjum að lögregla hefði staðið í stappi við að hafa upp á pörupilt- um sem geröu sér það til skemmt- unar að skjóta upp flugeldum í leyfisleysi og banni. Töldu svo- kallaðir góðborgarar þetta koma við kaun sín og raska ró sinni. Fyrir hátíðar var síðan greint frá því að Húseigendafélagið hefði í nokkrum tilvikum, venju sam- kvæmt fyrir jól, þurft að koma með málamiðlanir í þrætumálum vegna jólaskreytinga. Nú er ég svo einfaldur að mér finnst beinlínis fáránlegt að einhver geri sér rellu út af því þótt krakkar skjóti upp rakettum á síðustu dögum árs. Þetta er nokkuð sem tilheyrir. Sömuleiðis er kjánalegt að gera mál úr því hvort ljósaskreytingar fólksins í næstu íbúð séu fallegar eða ekki - eða láta þær fara í taugarnar á sér. Það sem hér að framan er nefnt og raunar fleira til er vel innan hreppamarka al- menns velsæmis. Er þá ekki ofsög- um sagt að þeir sem láta til dæm- is jólaskreytingar fara í taugarnar á sér séu samfélagslega þroska- heftir og afdalafólk í hugsun. Ung meyja sem býr í blokkinni minni bankaði upp á um daginn og spurði hvort mér væri að meina- lausu þótt hún héldi partí sem myndi standa svona fram að miðnótt. Kannski yrði einhver há- vaði en það yrði reynt að halda öllu í skikki. Auðvitað var allt í góðu með gleðskapinn af minni hálfu; mín einasta ósk var sú að fólk skemmti sér vel. Enda hefur teitið víst verið til þess haldið. Það er óskaplega mikilvægt að við mætum breytni fólksins í kring- um okkur af umburðarlyndi og forum ekki á límingunum gagn- vart saklausum prakkarastrikum. Annars verður tilveran svo ævin- týralega leiðinleg aö það hálfa væri gjörsamlega nóg. Gleðilegt ár. Siguröur Bogi Sævarsson blaöamaður Myndasögur ©KFS/Distr.Bulls & Já vinir. ÉG er Sigurbjöm Ein- areson biskup og mig langar til að segja nokkur orð fyrir elskulega vinl mína í Píranav! L klúbbnum... A \r MynJuð f?ið ekki vilja ganga í þennan góða fé- lagsskap góðra leiðtoga og gera samfélagi okkar gott? . Pi - Af hverju er hann með alskegg? * Pað er ekki bara vinna og* ^ engin skemmtun. Hjá þeim Póker, mataöor, tölvuleikir.. er góð koníak&stofa með kasliskáp og drykkjum, ^ billjardborð... xr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.