Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Qupperneq 25
49
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2002_________________
DV Tilvera
• S k em mt anir
á gamlárskvöld
•Sálin á Broadwav
Það ver&ur enginn svikinn af gamlárskvöldi
meö Sálinni og ættu skemmtanafíklar að huga
að Broadway þetta árið. Allir velkomnir sem
náð hafa 20 árum en miðaverð er 2.500
krónur.
■Gullfoss og Gevsir á
Vegamótum
Plötusnúðarnir Gullfoss og Geysir trylla lýðinn,
1.600 kr. inn og 22 ára aldurstakmark.
■Hip hop á Þórscafé
Forgotten Lores, Bent & 7berg, O.N.E., DJ
Rampage og DJ Paranoya koma fram ásamt
DJ Elvari, DJ Tryggva og DJ O Prime sem spila
Drum’n'bass. Miðaverð er 2.500 krónur og
aldurstakmarkið er 20 ár.
■Hugarástand á Flauel
DJ Frimann og DJ Arnar koma fram auk gesta.
í hliðarherbergi veröa DJ Grétar og DJ Birkir.
Miðaverð er 1.500 krónur og 20 ára
aldurstakmark.
■Studmenn á Nasa
Hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn,
skemmtir á Nasa, miöaverö er 2.500 krónur
og aldurstakmark er 22 ár.
■Land og svnir á Gauknum
Hinir stórskemmtilegu Land og synir sjá um
fjörið á Gauknum. 20 ára aldurstakmark og
miðaverö er 1.500 krónur.
■Jagúar á Grand Rokk
Fönksjúklingarnir í Jagúar eru skriðnir undan
feldi og blása í heriúðra á Grand Rokk. Þetta
er ávísun á gott kvöld. Miðaverð er 2.000
krónur og aldurstakmark 20 ár.
■Sixties á Kaffi Reykjavík
Brjáluð stemning væntanlega, 1.500 krónur
inn og 20 ára aldurstakmark.
■Plötusnúðar á Prikinu
DJ Kári, DJ Magic og DJ Rampage leiða hóp
plötusnúða í áramótagleðinni á Prikinu. Frítt er
inn og aldurstakmark er 20 ár.
■Hunang á Plavers
Gleöisveitin Hunang skemmtir á Players fyrir
litlar 1.500 krónur fyrir þá sem náð hafa
tvítugsaldri.
•Skemmtanir
á nýárskvöld
■Millarnir______________________í
Leikhúskjallaranum
Það er boöið upp á Gala-kvöldverð í
Þjóðleikhúskjallaranum á nýársdag, Bogomil
Font, Páll Óskar og Milljónamæringarnir spila.
Miðaverð er 15.000 krónur en 3.000 ef þú
ferð bara á dansleikinn. 20 ára
aldurstakmark.
■ Lúdó og Stefán á Broadwav
Dansleikur Islensku óperunnar er á Broadway,
kór ásamt Sinfoníuhljómsveit Islands.
Hljómsveit Lúdó og Stefáns. Miðaverð er
9.900 ásamt kvöldverði, aldurstakmark 20 ár.
■Pops. Piddú og Raggi á
Sögu
Pops spila á Hótel Sögu ásamt Diddú og
Ragga Bjarna. Miöaverð er 2.900 og
aldurstakmark 20 ár.
■Hótel Borg
Óskar Guðjónsson og Davíð Þór Jónsson spila
á meðan kokkteill er borinn fram. Lamúr spilar
undir matnum ásamt öðrum uppákomum,
Bigband Samma í Jagúar spilar fyrir dansi.
Miðaverð er 22.000 með mat og víni.
■Apparat...Organ Quartet á
Grand Rokk
Hin stórskemmtilega hljómsveit Apparat
Organ Quartet fagnar nýju ári með
hljómleikum á Grand Rokk í kvöld ásamt
Rassa prump. Miðaverð er 1.000 krónur og
hefjast tónleikarnir um klukkan 22.30.
Krossgáta
Lárétt: 1 land,
4 blekking, 7 dragspil,
8 for, 10 slæmt, 12 hár,
13 fljótir, 14 barefli,
15 leyfi, 16 litla,
18 kát, 21 ausa,
22 steintegund,
23 kaup.
Lóðrétt: 1 viljugur,
2 ofha, 3 ræsi,
4 ómerkileg, 5 fálka,
6 glöð, 9 rólegum,
11 tré, 16 barði,
17 hæðir, 19 óvissu,
20 málmur.
Lausn neðst á síðunni.
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Uppgangur Indverja á skáksviðinu
hefur vakið verðskuldaða athygli.
Vishy Anand hefur verið 1 fremstu
röð nú í um 2 áratugi og nú fylgir
fjöldinn í kjölfarið. Eins og t.d. þessi
unga stúlka, Humpy Koneru, sem er
aðeins 15 ára en hefur samt stór-
meistaratitil karla. Hún deildi efsta
sæti mótsins ásamt kínversku
stúlkuni Zhao Xue sem er aðeins 17
ára en sú kínverska varð aðeins
hærri að stigum. Hér hefur hvítur lít-
ið frumkvæði nema frípeðið á a-lín-
imni sem sú indverska mjakar upp i
borð og tryggir sér sigur.
Hvítt: Humpy Koneru (2484).
Svart: S. Milliet (2164).
Heimsmeistarakeppni unglinga,
stúlknaflokkur.
Goa, Indiandi (13), 20.12. 2002.
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. e3 c6 4. c4
a6 5. b3 Bg4 6. Rbd2 e6 7. Bd3
Rbd7 8. Bb2 Bd6 9. 0-0 0-0 10. Dc2
Db8 11. a4 a5 12. Bc3 Bh5 13. Hfbl
Dc7 14. c5 Be7 15. b4 axb4 16.
Hxb4 b6 17. cxb6 Rxb6 18. Hbbl
Rbd7 19. Ha2 Bg6 20. Bxg6 hxg6
21. Hab2 Hfb8 22. Hxb8+ Hxb8 23.
a5 c5 24. Hxb8+ Rxb8 25. dxc5
Dxc5 26. Rb3 Dc7 27. Db2 Rc6 28.
Rfd4 Ra7 29. Rd2 Rd7 30. g3 Bf6
31. Db4 Be5 32. Bb2 Bf6 (Stöðu-
myndin) 33. R2b3 e5 34. Rf3 Rc6 35.
Db5 Dd6 36. a6 d4 37. exd4 exd4
38. Db7 Dd5 39. a7 1-0.
Lausn á krossgátu__________________
•ttfl OZ ‘Bja 61 ‘ese il ‘ojs 91 ‘iijjai n
‘uiruæA 6 ‘)B5i 9 ‘iba s ‘nhlIIHS P ‘flejjnQiu g ‘euo z ‘snj 1 ijjajQOTj
'urmi gg ‘Bdo ZZ ‘jjais iz ‘jxoj 8Í ‘bbuis 91 ‘tjj si
‘kJtti H ‘jijo 8i ‘fln zi ‘Jlfl 01 ‘QBas 8 ‘Bkiflu i ‘5flAS þ ‘uojj 1 :jjajBq
Dagfari_________________________________________
Samfélagslega
þroskaheftir
Um helgina kom fram á frétta-
vefjum að lögregla hefði staðið í
stappi við að hafa upp á pörupilt-
um sem geröu sér það til skemmt-
unar að skjóta upp flugeldum í
leyfisleysi og banni. Töldu svo-
kallaðir góðborgarar þetta koma
við kaun sín og raska ró sinni.
Fyrir hátíðar var síðan greint frá
því að Húseigendafélagið hefði í
nokkrum tilvikum, venju sam-
kvæmt fyrir jól, þurft að koma
með málamiðlanir í þrætumálum
vegna jólaskreytinga. Nú er ég svo
einfaldur að mér finnst beinlínis
fáránlegt að einhver geri sér rellu
út af því þótt krakkar skjóti upp
rakettum á síðustu dögum árs.
Þetta er nokkuð sem tilheyrir.
Sömuleiðis er kjánalegt að gera
mál úr því hvort ljósaskreytingar
fólksins í næstu íbúð séu fallegar
eða ekki - eða láta þær fara í
taugarnar á sér. Það sem hér að
framan er nefnt og raunar fleira
til er vel innan hreppamarka al-
menns velsæmis. Er þá ekki ofsög-
um sagt að þeir sem láta til dæm-
is jólaskreytingar fara í taugarnar
á sér séu samfélagslega þroska-
heftir og afdalafólk í hugsun. Ung
meyja sem býr í blokkinni minni
bankaði upp á um daginn og
spurði hvort mér væri að meina-
lausu þótt hún héldi partí sem
myndi standa svona fram að
miðnótt. Kannski yrði einhver há-
vaði en það yrði reynt að halda
öllu í skikki. Auðvitað var allt í
góðu með gleðskapinn af minni
hálfu; mín einasta ósk var sú að
fólk skemmti sér vel. Enda hefur
teitið víst verið til þess haldið.
Það er óskaplega mikilvægt að við
mætum breytni fólksins í kring-
um okkur af umburðarlyndi og
forum ekki á límingunum gagn-
vart saklausum prakkarastrikum.
Annars verður tilveran svo ævin-
týralega leiðinleg aö það hálfa
væri gjörsamlega nóg.
Gleðilegt ár.
Siguröur Bogi
Sævarsson
blaöamaður
Myndasögur
©KFS/Distr.Bulls
&
Já vinir. ÉG er Sigurbjöm Ein-
areson biskup og mig langar
til að segja nokkur orð fyrir
elskulega vinl mína í Píranav!
L klúbbnum... A \r
MynJuð f?ið ekki vilja
ganga í þennan góða fé-
lagsskap góðra leiðtoga
og gera samfélagi okkar
gott? . Pi -
Af hverju er
hann með
alskegg?
* Pað er ekki bara vinna og*
^ engin skemmtun. Hjá þeim
Póker,
mataöor,
tölvuleikir..
er góð koníak&stofa með
kasliskáp og drykkjum,
^ billjardborð... xr