Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 2003 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plótugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Kraftaverkið í Eyjum Gosiö sem hófst í Vestmannaeyj- um fyrir réttum þrjátíu árum var einn stærsti atburöur liðinnar ald- ar og raunar í samanlagöri sögu is- lensku þjóöarinnar. Eldgos eru órjúfanlegur þáttur sögu okkar, ógnarleg og oft undanfari hallæra en geta um leið veriö falleg í hrika- leik sínum, tákn þeirra krafta sem búa í iðrum fósturjaröarinnar. í Vestmannaeyjum stóöu menn skyndilega frammi fyrir skelfilegustu ógninni, eldgosi í byggö. Þótt eignatjónið yröi gífurlegt og röskun íbúanna mikil gengur það kraftaverki næst aö ekki varð manntjón af völdum eldgossins. Karl Sig- urbjörnsson, biskup íslands, sem varö prestur Vestmannaey- inga nokkrum dögum eftir aö gosiö hófst, orðar þaö svo aö björgun fólksins frá Vestmannaeyjum sé einn undursamleg- asti atburöur síöustu aldar. Biskup nefnir einnig þá staöreynd aö unnt var á skömm- um tíma aö koma öllum Vestmannaeyingum fyrir, þúsund- um manna. Fólk opnaði heimili sín og lánaði húsnæöi. ís- lendingar sýndu þá, eins og þeir hafa raunar sýnt viö önnur tækifæri þegar verulega bjátar á, aö þjóðarhjartað er eitt. Eldgosiö í Heimaey, sem hófst 23. janúar 1973, var Vest- mannaeyingum gríðarlegt áfall og um leið þjóöinni allri. Vestmannaeyjar hafa frá öndveröu verið ein helsta verstöð landsins, styrk stoö efnahagslegrar velferöar samfélagsins alls. Óvissan meöan á eldgosinu stóö gekk því nærri fólkinu sem þar bjó og átti allt sitt, en snerti um leið þjóðarhag all- an. Þeir sem upplifðu þessa atburöi hafa vart séö annað eins, eldsprunguna og síðar eldfjalliö sem reis, hraungosið og öskufallið. Húsin hurfu undir hraun, skíöloguöu síðustu, augnablikin. Askan færöi önnur á kaf. Yngra fólk fylgist dol- fallið meö upprifjun þessara atburða í sjónvarpi og blöðum, flótta fólksins um nóttina þegar svo lukkulega vildi til aö Eyjaflotinn var allur í höfn, móttökunum uppi á landi og síð- ar starfínu sem viö tók, hreinsuninni en ekki síst baráttunni við hraunið, vatnskælingunni snjöllu sem vissulega skilaði árangri. Þótt eignatjónið væri mikið og tilfinnanlegt bjargaö- ist þaö sem mestu skipti, aö frátöldum mannslífunum, höfn- in í Vestmannaeyjum, lífæöin sjálf. Það sem einkenndi Vestmannaeyinga þessa erfiðu gos- mánuöi var bjartsýni og þrautseigja. Mikill meirihluti þeirra sneri aftur heim þótt þessi mikla röskun leiddi aö sönnu til mannfækkunar í kaupstaðnum. Menn voru ákveðnir aö takast á viö vandann, láta áfallið ekki buga sig. Hjól atvinnu- lífsins tóku aö snúast aftur. Hjálmar Guönason, tónlistarkennari og fyrrverandi loft- skeytamaöur, fæddur og uppalinn Eyjamaöur, lýsir afstööu þeirra vel í viötali í sérblaði sem fylgir DV í dag. Hjálmar og kona hans, Kristín Svavarsdóttir, misstu hús sitt og flesta innanstokksmimi í gosinu. Þau lentu á flakki eftir aö þau komu upp á land, bjuggu meðan á gosinu stóö í Kópavogi, Mosfellssveit, á Laugarvatni og í Hveragerði uns þau keyptu sér hús í Vestmannaeyjum og fluttu heim aftur. „Það var allt fariö,“ segir Hjálmar, „húsið og æskustööv- arnar, hreinlega þurrkaö af kortinu og ástandið hrikalegt. Þegar voraöi og dró úr gosinu fór ég aftur aö sjá til sólar og aö lokum áttaöi ég mig á því að það þýddi ekkert aö vera aö þessu voli og eftir þaö fór ég aö heyra fuglasönginn í hraun- inu.“ Vestmannaeyingar sáu sem betur fer til sólar eftir gos. Því er þar á ný blómleg byggö. Verstöðin mikilvæga hélt sessi sínum og er enn sem fyrr styrk samfélagsstoð. Þess minnast Eyjamenn með veglegri dagskrá í dag og næstu daga en ekki síður í sumar meö hátíöahöldum 3.-6. júlí þegar goslokanna verður minnst. Jónas Haraldsson DV Skoðun Ekki tímabært að ganga í ESB Björgvin Guömundsson viðskiptafræöingur og fyrrverandi sendifulltrúi í utan- ríkisráðuneytinu Á Island að ganga í Evr- ópusambandið? Dugar okkur aðild að Evrópska efnahagssvæðinu? Þetta eru spurningar sem ísland þarf að svara. Þessar spurningar verða ræddar í alþingiskosningunum í vor og ef til vill fást þá einhver svör við þeim. Þó hefur aðeins einn flokkur sett málið á dagskrá, þ.e. Samfylkingin, sem hefur tekið afstöðu í málinu í póst- kosningu. Samfylkingin vill ákveða samningsmarkmið í aðildarviðræð- um, sækja um aðild og láta reyna á hvort viðunandi niðurstaða fæst fyr- ir ísland, þar á meðal í sjávarútvegs- málum. Að því loknu vill Samfylk- ingin leggja niðurstöðuna undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er skýr stefna varðandi meðferð málsins. Samfylkingin er eini stjómmála- flokkurinn sem hefur tekið skýra af- stöðu í þessu stærsta máli íslensku þjóðarinnar nú. Mín skoðun er þessi: Það er ekki tímabært fyrir ísland að ganga í Evrópusambandið. Við fengj- um ekki undanþágu frá sjávarút- vegsstefnu ESB ef við gerðumst aðil- ar nú. Eftir 10-15 ár Það er alger forsenda fyrir aðild íslands að ESB að við höldum fullu forræði í sjávarútvegsmálum. Það myndi trúlega ekki takast nú. En eft- ir 5-10 ár, þegar áhrifa nýrra aðildar- ríkja er farið að gæta, er ef til vill hugsanlegt að ísland fengi undan- þágu frá sjávarútvegsstefnu ESB og þá gæti ísland gengið inn. Þetta er mitt mat eftir að hafa rætt við fjölda „Það er alger forsenda fyrir aðild íslands að ESB að við höldum fullu forrœði í sjáv- arútvegsmálum. Það myndi trúlega ekki takast nú. “ fulltrúa ESB í Brussel á sl. ári þegar ég var mikið á ferðinni þar á vegum utanríkisráðuneytisins. Ég sótti þá fundi um mál er vörðuðu EES og sveitarfélögin en hugsanlega aðiid ís- lands að ESB bar alltaf á góma. Samningurinn um EES, sem ís- land gerðist aðili að 1. janúar 1994, er okkur mjög hagstæður. Island fékk þá toilaniðurfeilingu á ýmsum sjáv- arafurðum sem höfðu orðið út undan þegar það gerði fríverslunarsamning við Efnahagsbandalagið 1972, t.d. á ferskum flökum sem gleymdust 1972, skreið, saltfiski (flökum og flöttum þorski), heilum ferskum og frystum fiski (flestum tegundum) o.fl. Aðeins fáar sjávarafurðir eru enn út undan, svo sem saltsíld, humar og lax. ís- land er nú með hagstæðari fríversl- unarsamninga við ESB en Norð- menn vegna þess að fríverslun sam- kvæmt samningnum frá 1972 hélst. Aðild að ESB yrði því lítill ávinn- ingur fyrir ísland i viðskiptamálum. Við erum einnig aðilar að innri markaði Evrópusambandsins og höf- um samþykkt frelsin fjögur, þ.e. frjálsa flutninga fjármagns, vinnu- afls, þjónustu og vara. Við tökum reglulega við miklum fjölda tilskip- ana ESB á sviði umhverfismála, fé- lags- og vinnumála, opinberra styrkja, orkumála, opinberra inn- kaupa, samgöngumála, neytenda- mála o.fl. Ekki hvaða verði sem er Er þá ekki allt í lagi? Nei, við erum ekki með við fyrsta undirbún- ing nýrra tilskipana og ákvarðana- töku. Við sitjum ekki í stjóm ESB eins og t.d. Danir, Finnar og Svíar gera. Þegar íslendingar sækja fundi í Brussel finna þeir sárlega fyrir þvi að fá ekki að vera með á öllum stig- um. Þeir fá ekki að vera með i Evr- ópuþinginu, ekki í sérfræðinganefnd- um ráðherraráðsins, ekki í sveitar- stjórnaráðinu og þannig mætti áfram telja. Þeir fá að sækja fundi sérfræð- inganefnda framkvæmdastjómarinn- ar en það er ekki nóg. Við getum þó ekki keypt fulla að- ild hvaða verði sem er. Við getum ekki keypt hana því verði að afsala okkur yfirráðum yflr flskimiðum okkar. En um leið og við fáum und- anþágu í sjávarútvegsmálum getum við gengið inn. Og aö því mun koma. Mótvœgisaðgerðir óskast ■ ' Svanfríöur Jónasdóttir atþingismaður Atvinnuleysi fer nú vax- andi. Samkvæmt upplýs- ingum Vinnumálastofnun- ar má búast við að það verði að meðaltali 3,5% til 3,9% nú í janúar. Á sumum stöðum er ástandið mun verra. Efiiahagsstjóm rikisstjómar Dav- íðs Oddssonar, ekki síst gengis- rússibaninn sem leiddi af viðskipta- hallanum, hin tifandi tímasprengja, hafði þær afleiðingar að nýsköpun í atvinnulífinu fór fyrir lítið. Efna- hagsstefnan hefur þannig unnið gegn þróun nýja hagkerfisins og aukinni fjölbreytni í atvinnulifinu. Þess vegna er atvinnuleysið nú að nokkra með öðrum hætti en áður og fiöldi menntaðs fólks sem ætlaði að nýta hina nýju möguleika tækni og samskipta gengur um atvinnu- laust. Má enda spyrja; hvemig eiga fyr- irtæki sem hafa fjármagnað sig með innlendum lánum á okurvöxtum, en byggja á útflutningi eða búa við samkeppni erlendis frá, að lifa þess- ar hremmingar af? Þetta er sagan og þessu ástandi á nú að mæta með stóriðjuframkvæmdum. Gott og vel, en meðalið má þá ekki vera svo sterkt að það drepi sjúklinginn. Ruðningsáhrifa gætir þegar Ruðningsáhrifa vegna væntan- legra framkvæmda eystra er þegar farið að gæta með hækkandi gengi krónunnar. I svari við fyrirspurn á Aiþingi frá sl. vori, um mótvægisað- gerðir vegna efnahagslegra áhrifa framkvæmdanna eystra, kom líka fram að búast mætti við að verkefn- ið leiddi til hækkunar á gengi krón- unnar i aðdraganda og á fyrstu stig- um framkvæmdanna og jafnframt að þessar gengissveiflur hefðu „veruleg áhrif á raungengi og sam- keppnisstöðu útflutnings- og sam- keppnisgreina." í nýju grunndæmi fjármálaráðu- neytis þar sem lagt er mat á þjóð- hagsleg áhrif framkvæmdanna er gengi krónunnar mikilvæg for- senda. Miðað er við að gengisvísi- tala krónunnar verði 130 stig ailt framkvæmdatímabilið, sem er ívið lægra en meðaltal ársins 2002. Við mat á stofnkostnaði er miðað við að dollarinn sé á 85 kr. Núna er hann hins vegar undir 80 krónum. Fyrir ári fengust yflr 100 krónur fyrir hvem dollar. Þróun gengisins hefur, eins og spáð var, þegar sett alvarlegt strik i reikninga útflutnings- og samkeppn- isfyrirtækjanna og ef þessi staða verður óbreytt mun hún enn auka á uppsagnir og atvinnuleysi, fjöldi fyr- irtækja mun enn loka því þau ráða ekki við þá gengisþróun sem fyrir- hugaðar álvers- og stóriðjufram- kvæmdir hafa þegar kallað fram. Hvar eru stjórntækin? Forsætisráðherra mærir íslensku krónuna í áramótagrein sinni í Morgunblaðinu og spyr hvað hefði gerst ef við hefðum ekki að undan- förnu búið við okkar eigin mynt. Spyrja má á móti; hvar eru kostirn- ir við það að búa við okkar eigin mynt? Ég auglýsi eftir þeim stjórn- tækjum til áhrifa í efnahagslífinu sem forsætisráðherra og aðrir ESB- andstæðingar telja svo mikilvæg þegar þau mál ber á góma. Nú væri ráð að sýna þau og nota, ef þau eru þá til. Það ætti að vera öllum ljóst að at- vinnulíf á íslandi þolir ekki, fremur en atvinnulif þeirra landa sem við berum okkur saman við, þær sveifl- ur sem í tímans rás hafa ítrekað hreinsað stóran hluta nýgræðings úr atvinnuiífsflórunni og skilið okk- ur eftir með einhæft atvinnulíf sem hvorki mun fullnægja eftirspurn eft- ir fjölda né fjölbreytileik í framtíð- inni. „Eg auglýsi eftir þeim stjomtækjum til ahrifa i efnahagshfinu sem forsætisraðherra og aðrir ESB-andstæð- ingar telja svo mikilvæg þegar þau mál ber á góma. Nú vœri ráð að sýna þau og nota, ef þau eru þá til. “ - Tölvumynd er sýnir staðsetningu fyrirhugaðrar verksmiðju Alcoa á Reyðarfirði. Sandkom Þingmenn í stuði Umræður á Alþingi fara fjörlega af stað nú i aðdraganda kosninga og ljóst að þingmenn hafa beðiö óþreyjufullir eftir að fá að taka hver á öðrum í þing- sal. í gær kom Halldór Blöndal þingfor- seti upp í pontu til að svara ummælum Össurar Skarphéðinssonar og sló vænt- anlega tóninn í málflutningi sjálfstæð- ismanna héðan í frá þegar hann kallaði Össur aldrei annað en „formann Sam- Ummæli Flýta - ekki seinka „Tii að draga úr atvinnuleysinu eiga stjómarflokkamir að nýta þann slaka sem nú er i efnahagslífinu og flýta opinberum framkvæmdum. Það er það skynsamlegasta í stöðunni nú, ekki síst í ljósi þeirrar þenslu sem skapast getur á árunum 2005-2007 og jafhvel þegar undir lok næsta árs vegna framkvæmda við Kárahnjúka- virkjun. Slíkar sveiflujafhandi flýti- aðgerðir nú á opinberum fram- kvæmdum eru við þessar aðstæður afar skynsamlegar." Jóhanna Sigurðardóttir á vef sínum. Það sem sannara reynist „Að Svanur Kristjánsson skuli bera það á borð sem niðurstöðu' fræðilegra athugana að valdabrölt þeirra Össurar og Ingibjargar Sól- rúnar núna jafnist á við samstarf Ólafs Thors og Bjarna Benediktsson- ar í Sjálfstæðisflokknum á flmmta og sjötta áratug síðustu aldar sýnir best hve prófessornum er það mikið í mun að hafa ekki það sem sannara reynist til að afsaka það sem þau sandkorn@dv.is fylkingarinnar hér í þingsal" til að- greiningar frá „hinum mikla leiðtoga Samfylkingarinnar utan þings“. össur lét þessu ósvarað en sagði annað í mál- flutningi Halldórs „ekki sæmandi manni sem gegnir embætti þingfor- seta“. Fastast skaut hann þó á Vinstri- græna og sagðist þeirrar skoðunar að utanríkisstefna þess flokks væri „full- komlega ga-ga“. Þingmenn skjóta því í allar áttir - en ganga vitanlega óbundn- ir til kosninga... Össur og Ingibjörg Sólrún kynntu fréttamönnum á Hótel Borg síðdegis sunnudaginn 12. janúar. Athyglis- vert er að hvorki formaður þing- flokks, formaður framkvæmda- stjórnar né varaformaður Samfylk- ingarinnar var á þeim fundi." Björn Bjamason á vef sínum. Dagdraumar „Ég hef komist að þeirri niður- stöðu að það væri ekki nóg að fá að njóta ásta með Ritu Hayworth; það yrði að vera í svarthvítu." Gjörsamlega forfallinn kvikmynda- áhugamaöur frá New York í heimilda- myndinni Bíóæöi. Hún veröur endur- sýnd í Sjónvarpinu á sunnudaginn, klukkan 12.55. Uppljóstrun „Ég tel ástæðu til að koma hér upp um störf þingsins ...“ Árni Steinar Jóhannsson á Alþingi. Hann kvaddi sér hljóös til aö ræöa um störf þingsins en af oröalaginu aö dæma mátti vænta þess aö Árni, sem er einn af varaforsetum Alþingis, ætlaöi aö leysa frá skjóöunni um eitt- hvaö misjafnt. Heimilisbókhald og He-man kallar Sigríður Víðis Jónsdóttir háskólanemi „Henda eða geyma?“ gal- aði ég innan úr geymsl- unni undir stiganum og hélt á lofti eldgömlu pottasetti sem fjölskyld- an hafði tekið með í úti- legur á árum áður. Það var farið að láta töluvert á sjá. „Henda!“ bætti ég síðan ákveðin við og lét sem ég hefði ekki sagt orð þegar faðir minn kom askvaðandi. Forláta gúmmíbátur, sem hægt var að blása upp, fylgdi á eftir. Við vorum að tæma húsið þar sem fjölskyldan hafði búið allar göt- ur frá fæðingu minni. Bömin voru öll farin að heiman og húsið ailtof stórt fyrir mömmu og pabba. Verkið var risavaxið, enda herbergin stór og geymslumar margar. Mér fannst foreldrar mínir síður en svo nógu duglegir við að henda og grisja. Seinustu vikuna hafði ég rekist á ógrynni hluta sem ég hafði ekki hugmynd um að til væru á heimil- inu. „Beta-vídeótæki!“ hafði ég æpt upp yfir mig þegar ég tæmdi út úr búrinu. Tækið hafði ég aldrei séð áður og það fór í sama hom og Kitchen Aid-vélin frá sjötta áratugn- um og gamla Commodore-tölvan. „Við ættum kannski að koma á fót safni," sagði ég og horfði ögrandi á pabba. Barbí frá sögulegum tíma Eftir að hafa tint fjöldann ailan af snjógöflum og skíðagöllum út úr geymslunni, fundið bæði heilan ruslapoka með fuglafóðri og gömlu dúkkulísumar mínar, var ég komin niður á röð af hrörlegum kössum sem allir vora af svipaðri stærð. „Dísús, þetta er örugglega frá for- sögulegum tíma,“ sagði ég við bróð- ur minn og fékk mér sopa af kóki. Það kom í ljós að umræddum köss- um hafði faðir minn raðað með fram veggnum á geymslunni þegar fjöl- skyldan flutti inn það herrans ár 1979. Með tímanum höfðu hinir og þessir hlutir safnast ofan á kassana og þeir aldrei veriö opnaðir. Ég horfði inn eftir geymslunni, blés tyggjókúlu og dæsti: „Sko bara, við erum komin niður á landnámslag- ið!“ Kassamir mynduðu ljósbrúnt lag inn með veggnum - rönd frá því fjölskyldan nam land í húsinu. Ég kallaði á mömmu og sagði spekingslega og einna helst líkust Ragnari sjálfum skjálfta: „Nú, og fyrir ofan landnámslagið má síðan sjá lög frá sögulegum tíma, til dæm- is þetta hér sem greinist um það bil frá árunum 1986-1989.“ Ég benti á leikföng sem lágu ofan á kössunum. Þama voru gömlu barbídúkkumar og He-man-kallarnir. „Skeleton, maður!“ sagði bróðir minn með glampa í auga og greip einn plast- kallinn. Pabbi kom aðvifandi. „Hvað er eiginlega i þessum kössum?" spurði ég ákveðin og benti á landnámslag- ið. Hann svaraði að bragði: „Vina mín, ef ég hefði fengið nóbelsverð- launin þætti þetta merkilegur fund- ur. í Havana voru þeir að finna kassa frá Hemingway og hann er kominn í heimsfréttir." Ég hristi höfuðið. - Kræst! Iðnaðarbanki með á nótunum í flutningunum hafði komið í ljós að okkur fóður minn greindi á um hvað teldist dýrgripur og hvað drasl, hverju mætti henda og hvað ætti að gefa. „Maður veit aldrei hvenær maður gæti þurft að nota hlutina, bamið gott,“ hafði harrn sagt með djúpri röddu þess sem allt veit. Ég ranghvolfdi í mér augunum: „Nei, nei, maður veit náttúrlega aldrei hvenær maður gæti þurft að nota grillofninn sem er búinn að standa óhreyfður í búrinu í tíu ár. Eða græjuna til aö reykja ála, frá því þú varst með æðið fyrir álaveið- unum. Eða bara þessa bók héma!“ sagði ég með þjósti og þreif bók út úr einum bókaskápnum. Japanese for Busy People stóð á kilinum og ég brosti sigurviss. „Einmitt, hvenær veit maður hvenær maður gæti þurft að læra japönsku í hvelli!“ sagði ég lymskulega. „Mér fannst foreldrar mínir síður en svo nógu duglegir við að henda og grisja. Seinustu vikuna hafði ég rekist á ógrynni hluta sem ég hafði ekki hugmynd um að til vœru á heimilinu. “ Næsta skotmark á eftir geymsl- unni undir stiganum var þvottahús- ið. Þar sem ég stóð með málningar- dós í annarri hendi og háaldraðan tennisspaða í hinni rakst ég á möppu með reikningum frá því árið 1984. Ég strauk af henni rykið og teygði mig síðan í gemsann, sálufé- laga minn. Tflkynningaskyldan gagnvart vinunum í Reykjavík kafl- aði. Þeir fengu að fylgjast náið með framgangi flutninganna og voru orðnir spenntir yfir því hvað fyndist næst í þessu húsi sem virtist geyma beinlínis hvað sem var. Reglulega sendi ég þeim sms. Kvöldið áður hafði ég skrifað: „Búin að starta keppni um nauðsynlegasta hlut heimilisins. Æsispennandi alveg. Sem stendur tróna á toppnum golf- kúlur sem lýsa í myrkri og „electric putting partner", sérstök vél til að æfa sig i að pútta. Jedúdamía." Nú skrifaði ég á hraða ljóssins: „Heimil- isbókhaldið frá tímum Duran Duran kemur sterkt inn. Nauðsyn á hverju heimili, skuldabréf frá Samvinnu- bankanum og nótur frá Almennum trygginum. Já, Iðnaðarbankinn er sko með á nótunum." Geisladiskar og klausturganga Um það leyti sem flutningunum var að ljúka var ég farin að íhuga al- varlega að ganga í klaustur og gefa frá mér allar eigur mínar. í hugan- um var ég farin að útdeila geisla- diskum og bókum og á nóttunni dreymdi mig landnámslagið. Á dag- inn hélt ég langar tölur um það hvernig menn virtust einfaldlega fylla upp í áflt það rými sem þeir hefðu og þess vegna ættu þeir að hafa fáar geymslur. Þessi hegðun væri örugglega arfleifð frá því að við vorum veiðimenn og safnarar. Loksins var komið að lokadegi flutninganna og á leiðinni suður sagði ég kokhraust við pabba: „Ókei, kannski klausturgangan sé tú möts.“ - Ég var líka strax farin að sjá á eftir geisladiskunum mínum. „En ég ætla að flytja á tíu ára fresti eða allavega fara reglulega í gegnum dótið mitt. Síðan get ég bara komið og gramsað í þínum geymsl- um þegar ég þarf að reykja ála eða læra japönsku í hvelli." - Svo brost- um við bæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.