Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 18
> 34
Tilvera
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003
I>V
v
Durst skammar
aðdáendur sína
Rokkarinn Fred Durst hefur harð-
lega gagnrýnt aðdáendur sina fyrir að
gagnrýna samband hans við poppdív-
una Britney Spears. Margir aðdáend-
anna eru lítt hrifnir af stúlkunni og
telja það mikla smán að jafn mikill
„rokkari" og Durst skuli vera í sam-
bandi við einhverja eins og Britney.
„Það virðist sem allir séu að skipta
sér af því aö ég sé með Britney. Eina
manneskjan sem ætti ekki að standa
á sama er Britney sjálf. Þið þurfið öll
að slappa verulega af,“ segir Durst í
dagbókarfærslu á heimasíðu sinni.
Durst er 10 árum eldri en Britney
sem nýlega hætti með öðrum popp-
ara, Justin Timberlake.
Gwyneth hjálpfús
á Nýja-Sjálandi
Leikkonan Gwyneth Paltrow þótti
gera mikið góðverk þegar hún var
stödd á Nýja-Sjálandi fyrir skömmu
þar sem hún var að taka upp kvik-
mynd. Það var á leiðinni á tökustað
þegar Gwyneth og ferðafélagar henn-
ar stilltu inn á útvarpsstöð sem bauð
áhorfendum upp á peningaverðlaun
fyrir aðgang að henni. Þeir buðu 30
pund fyrir mynd af henni, 300 pund
fyrir nærfatnað frá hótelherbergi
hennar og 2 þúsund pund fyrir viðtal
í beinni útsendingu.
í staðinn fyrir að bregðast ókvæða
við af ótta við ofsókn áhugasamra
ákvað hún að spila með og lét yngsta
- og verst launaða starfsmann mynd-
arinnar, hringja inn á útvarpsstöðina
og láta sig svo aftur frá símann.
„Okkur fannst að Nathan ætti að fá
að hringja þar sem hann vinnur mik-
ið, 18 tíma á dag, og fær minnst borg-
að,“ sagði Gwyneth í viðtalinu.
Frasier að kveðja?
Það gæti vel komið til þess að nú-
verandi samningur um framleiðslu
hina vinsælu þátta um Frasier verði
ekki endumýjaður. Núverandi samn-
ingur rennur út eftir að 11. þáttaröð-
inni lýkur, vorið 2004.
Ástæður þessa mun vera aukinn
framleiðslukostnaður þáttarins og
minnkað áhorf aö undanfómu. Þáttur-
inn hefur þó átt mikilli velgengni að
fagna og sópað að sér verðlaunum í
gegnum tíðina, þeirra á meðal 21
Emmy-verðlaunum.
Framleiðslukostnaður mun vera um
3,2 milljónir dala fyrir hvem þátt en
aðalleikaramir, Kelsey Grammer og
David Hyde Pierce, taka stærsta hluta
þeirrar tölu til sín sem laun.
Persónan Frasier kom upphaflega
fram í Staupasteini árið 1984. Þegar
framleiðslu þeirra þátta laúk var Frasi-
er hleypt af stokkunum þar sem fylgst
var með sáifræðingnum vinsæla i
starfl og leik.
í París
-»■ mr • • 1 Hilmar
Minningar hermanns bb
Tískan
Bert bak
Tískuhönnuð-
urínn Ungaro á
heiðurínn af
þessum glæsi-
lega kvöldkjól.
Blóm
Valentino olli
aðdáendum
ekki
vonbrígðum
með sýningu
sinni í París.
Tískuvikan í París stendur nú
sem hæst og keppast hönnuðir
við að sýna konum heimsins
hvernig þær eiga að klæðast
næsta sumar.
Svart í sumar
ítalski hönnuðurínn Ungaro frumleg-
ur að vanda. Hattar afýmsu tagi
eru ráðandi í sumarlínunni.
Kabarettkjóll
Emmanuel Ungaro þótti slá á nýja strengi
með vor- og sumarlínu sinni. Skærir litir
eru áberandi hjá hönnuðinum.
Sumarkjoll
Karl Lagerfeld vakti sem
endranær mikla athygli í París.
Lagerfeld starfar fyrir Chanel-
tískuhúsið í París.
Silki og satín
Tískuhönnuðurinn
Jean Paul Gaultier
■ á heiðurínn
afþessarí
dragt.
■' 'T ■
Spariklæðnaður
Franska tiskuhúsið Scherrer
leggur mikla áherslu á íburðar- *
mikinn höfuðfatnað.
Múslimsk áhrif
Höfuðfötin frá
franska tísku-
húsinu Scherrer
voru mörg í þess-
um stíl.
Galoup
Liðþjáifí sem þolir ekki að einn liðsmanna standi honum
framar.
Þegar við kynnumst hermanninum
Galoup (Denis Lavant) í Beau Travail
er hann í Marseille, fullur iðrunar á
gerðum sínum sakar sig um þröng-
sýni og afbrýðisemi. Upp úr þessum
vangaveltum fer hann að rifja upp
veru sína í útlendingahersveitinni í
Afrfku. Hann hefur lengi verið
fremstur meðal jafningja, er orðinn
þjálfari nýrra hermanna og tekur
þeim yfirleitt fram í atgervi þó hann
sé mun eldri en nýliðamir. Á þessu
verður breyting þegar nýliðinn Senta-
in (Grégoire Colin) kemur til liðs við
flokkinn. Galoup tekur strax eftir að
hann er öðruvísi en aðrir. Hann stend-
ur honum jafnfætis í líkamlegu atgervi,
er vinsæll meðal félaga sinna og verð-
ur fljótt sjálfskipaður foringi þeirra
vegna þess að hann er ávallt tÚ í að
hjálpa öðrum, öfúgt við Galoup, sem
beitir mikilli hörku. Galoup fmnur fyr-
ir afbrýðisemi gagnvart Sentain sem
magnast og verður að þráhyggju og
ákveður hann loks að nýta sér hjálp-
semi Sentains til að losna við hann. Sú
ákvörðun er örlagarík fyrir þá báða ...
Irm á milli fáum við innsýn f líf
Galoups eftir að hann hefur verið
rekinn úr útlendingahersveitinni.
Þetta er líf án tilgangs og segja má
að með brottrekstri hafi kjölfestan í
lífi hans verið rifin burt.
Leikstjórinn Claire Denis fer ró-
lega af stað og gerir mikið úr þjálfun
hermannanna, fullmikið að mínu
mati, en flott kvikmyndun gerir það
að verkum að atriðin eru eins og
draumsýn. Hún gerir einnig mikið
úr sálar-
kreppu
Galoups, án
þess þó að
kryfja hann
mikið. Það
sem vantar
er að fá inn-
sýn í Senta-
in. Hans til-
finningar eru
ekki bomar á
borð. Það
eina sem við
vitum um
hann er að hann á enga foreldra,
fannst í reifum og síðan ekki söguna
meir. Þama vantar tilfinnanlega
hvað berst innra með honum. Hann
hlýtur að fmna fyrir þeirri andúð
sem Galoup hefur á honum en engin
svörun við henni er í kvikmyndinni.
Þetta er sjálfsagt gert með vilja þar
sem við erum að sjá úttekt Galoups
á eigin minningum.
Eftir rólegan fyrrihluta tekur
Beau Raivail við sér og spennan
eykst. Þegar svo spennan virðist
vera að ná hámarki er myndin
búin. Denis er ekkert aö ljúka því
sem sjá má fyrir, allavega hjá
annarri aðalpersónunni, heldur læt-
ur áhorfandann um að klára sög-
una. Það má virða Claire Denis fyr-
ir það hvernig hún tekur á sögunni
- lætur alla atburðarás gerast í
huga Galoups. Þetta er bæði styrkur
og veikleiki myndarinnar. Endirinn
klippir snöggt á spennuna, meðal
annars vegna þess að myndin er
frekar stutt. Denis skilur að vísu
ekki við áhorfendur án þess að
koma einhverjum boðskap á fram-
færi undir kynningartexta myndar-
innar í lokin. Sjálfsagt geta ein-
hverjir skýrt atriðiö út sem inngrip
í sögunni, án þess að ég sé viss um
hver skýringin á því er.
Leikstjóri: Claire Denis. Handrit: Claire
Denis, Jean-Paul Fargeau. Kvikmynda-
taka: Agnes Godard. Tónlist: Erin Zur.
Aðalleikarar: Denis Levant, Michel Subor
og Grégoire Colin.