Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 DV Fréttir Tveir lögreglumenn báru vitni gegn manni og konu - dómari dæmir: — Framburður sambýlis- fólks felldur í sektamáli - sakfellt fyrir að aka á of miklum hraða skammt frá Vestfjarðagöngum Samhljóða framburður sambýlis- fólks, sem stangaðist á við það sem tveir lögreglumenn báru, leiddi ekki til sýknu þegar hraðaksturs- mál var leitt til lykta fyrir Héraðs- dómi Vestfjarða. Niðurstaðan er því að dómurinn tekur mið af því sem tveir lögreglumenn bera enda þótt tvö vitni, annað ákærður öku- maður, beri eindregið á annan hátt. Ökumaðurinn ber því habann þó að tveir beri gegn tveimur. Undir lok ágúst á síðasta ári ók sambýlisfólk út úr gangamunna Vestfjarðaganga í Tungudal áleiðis að ísafirði. Skammt þar fyrir utan er vegskilti sem sýnir að nú megi auka hraðann í 90 km á klukku- stund en aka má á 60 km hraða i og rétt fyrir utan göngin. Tveir lög- reglumenn mældu hraða bílsins 83 km á klukkustund þegar hann átti skammt ófarið að 90 km-skiltinu. Ökumaðurinn bar hins vegar að hann hefði verið kominn fram hjá skiltinu og það gerði sambýliskona hans einnig - sagði að henni hefði reyndar sérstaklega verið annt um gætilegan akstur þar sem börn sátu aftur í - því hefði hún fylgst með. Vestfjarðargong. Konan staðfesti að sambýlismaður- inn hefði ekki aukið hraðann fyrr en eftir að bílnum hefði verið ekið fram hjá umræddu skilti þar sem heimilað er að auka hraðann á ný eftir akstur um göngin. Þessu mót- mæltu hins vegar lögreglumenn- irnir báðir og sögðu bílinn hafa átt um 100 metra eftir að skiltinu - bíll fólksins hefði verið staddur á móts við tilgreinda vegstiku þegar hraði hans var mældur. Héraðsdómur segir í niðurstöðu sinni að með framburði lögreglu- mannanna, sem studdur er niður- stöðu ratsjármælingar á vettvangi, þyki sannað að ákærði hefði ekið bilnum á 80 km hraða. „Leggja verður tO grundvallar eindreginn framburð lögreglumannanna um að ákærði hafi þá átt u.þ.b. 100 metra ófarna að umferðarmerki sem sýnir hækkun á leyfðum há- markshraða í 90 km á klukku- stund, þrátt fyrir framburð ákærða og sambýliskonu hans um að hann hafi ekki aukið hraðann fyrr en við umferðarmerkið," segir í niður- stöðu dómsins. -Ótt Sjómanns leitaö Leitin aö Guömundi Sigurössyni sjómanni stendur enn á Seyöisfiröi. Ekkert hefur spurst til Guömundar síöan aðfaranótt þriöjudagsins. Kafarar hafa leitaö í Seyöisfjaröarhöfn og í gær kom varöskip til aöstoöar. Fundu 310 kannabisplöntur Viö húsleit lögreglu á Blönduósi á tveimur stööum í umdæminu fannst verulegt magn hassplantna. Á öör- um staönum vou um 16 plöntur geröar upptækar, Ijósabúnaöur, nokkurt magn af efni í vinnslu, þrjú skotvopn og skotfæri. Á hinum staönum voru 170 plöntur gerðar upptækar, Ijósabúnaöur, kannabis- efni, 7 skotvopn og töluvert af skot- færum. Tveir menn voru handteknir í þessum aögerðum og hefur veriö fariö fram á gæsluvarðhald yfir þeim meöan á rannsókn stendur. Hvaö ætliö þiö aö gera? Guömundur Árni Stefánsson spuröi hvaö ríkisstjórnin ætlaöi aö taka til bragös í Ijósi vaxandi atvinnuleysis. Páll Pét- ursson sat á hægri hönd formanns síns og bræddi meö sér svörin. Félagsmálaráðherra um vaxandi atvinnuleysi: Ríkisstjórnin vill flýta framkvæmdum „Ríkisstjómin vill flýta útboðum og koma verklegum framkvæmdum í gang sem fyrst,“ segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra, spurður um að- gerðir ríkisstjómarinnar í ljósi vax- andi atvinnuleysis. Hann segir að með- al annars hafi samgönguráðherra sent sínum undirstofhunum sérstök tilmæli um þetta. í þessu sambandi má geta þess að framkvæmdaáætlun í samgöngumál- um til næstu fjögurra ára var nýverið samþykkt í ríkisstjóm og er nú til um- fjöllunar í þingflokkum stjómarflokk- anna. Það var Guðmundur Ámi Stefáns- son, þingmaður Samfylkingarinnar, sem vakti máls á vaxandi atvinnuleysi á Alþingi í gær. Hann sagði að hátt í 5.500 atvinnulausir einstaklingar létu sér fátt um fmnast þegar þingmenn ræddu um mótvægisaðgerðir gegn þenslu sem hugsanlega yrði á vinnu- markaði eftir tvö til þrjú ár í kjölfar stóriðjuframkvæmda; mestu skipti að nú væri spáð 3,5 til 4% atvinnuleysi á landsvísu í janúar. Hann sagði flesta kannast við vandann frá fyrstu hendi, til dæmis hefðu um 30 manns sótt um stöðu í tölvudeild sjálfs Alþingis, og spurði hvað ríkisstjómin ætlaði til bragðs að taka. Páll Pétursson sagði ótvírætt að því miður væri atvinnuleysi vaxandi og nefndi ýmsar hugsanlegar ástæður fyr- ir því; sagði að meðal annars hefði hag- ræðing i sjávarútvegi leitt til fækkunar starfa. Um aðgerðir ríkissfjómarmnar sagði Páil að hún vildi flýta fram- kvæmdum. • „Samgönguráðherra hefur sérstak- lega sent sínum undirstofhunum til- mæli þar um,“ sagði Páll og nefndi líka önnur úrræði: „Atvinnuleysistrygginga- sjóður er tilbúinn að styrkja átaksverk- efni sem sveitarfélög eða fýrirtæki vilja leggja í og viö reynum að stýra atvinnu- leyfum til útlendinga," sagði Páll. -ÓTG EES-samningur ónýtur? Kjartan Jóhanns- son, sendiherra ís- lands hjá Evrópusam- bandinu, segir að samningurinn um Evrópska efnahags- svæðið verði ónýtur ef ekki takist samn- ingar milli ESB og EFTA um aðlögun EES-samningsins að stærra Evrópusambandi. Stefán Már Stefánsson lagaprófessor er þessu ósammmála. - RÚV greindi frá. Þörf á vaxtalækkun Samtök atvinnulífsins, SA, telja að raungengi krónunnar hafi hækkað „ískyggilega mikið“ að undanfómu og svo mjög að verulega sé farið að þrengja að samkeppnisstöðu atvinnu- lífsins. - Mbl. greindi frá. Vegabréfi stoliö Lögreglan í Njarðvik rannsakar nú innbrot í hús í Njarðvík í vikunni. Brotist var inn og stolið vegabréfi tólf ára stúlku en deilt er um forræði henn- ar. - RÚV greindi frá. Flóttamenn til Akureyrar Akureyrarbær hefur, i samvinnu við Rauða kross íslands, ákveðið að taka á móti 24 flóttamönnum frá fyrrum lýð- veldum Júgóslavíu. Fólkið hefur búið í flóttamannabúðum síðastliðin 6-8 ár, án allra nútímaþæginda. Um er að ræða 6 fjölskyldur, 13 fullorðna og 11 böm, af serbneskum uppruna. Reisa iðngarða Fyrirhugað er að reisa iðngarða í Súðavík, á Langeyri, skammt innan við byggðarlagið, á þessu og næsta ári. Er ætlunin að byggja fimm einingar. Álnám á Akureyri Háskólinn á Akureyri er í samvinnu við nokkra aðila að skoða hvort hægt sé að koma á fót alþjóðlegri háskóla- deild á Akureyri, á sviði málmfræðslu. Hugsanlegt er að álfyrirtækin Alcoa og Atlantsál setji upp sérstakar rannsókn- armiðstöðvar um áltækni, í samvinnu við Háskólann. - RÚV greindi frá. 20 ár frá snjóflóðunum Tuttugu ár em liðin i dag frá því að tvö krapa- og snjóflóð féllu á kauptúnið á Patreksfirði. Fjórir létust og á fjórða tug manna missti heimili sín. EÍóðin eyðilögðu fjögur hús og önnur mann- virki og bifreiðar. Hert lög við peningaþvætti Ríkisstjómin leggur til í nýju frum- varpi að gildissvið laga gegn peninga- þvætti verði rýmkað. Framvegis munu lögin einnig taka til þeirra sem hafa milligöngu um kaup og sölu fasteigna, skipa, eðalmálma og listaverka. -HKr. f ókus ES3 A MORGUN Virkjun? ÚLgf.l I ! I pf sí '4 f Fókus á morgur er rætt við ungt fóli um skoðun þess é fyrirhugaðri Kára hnjúkavirkjun oí settur fram stað reyndapakki urr hana. Skiptar skoð anir eru að sjálf sögðu um málið eins og hjá þjóðinn: ailri. Við ræðum við nokkra snjó brettakappa sem hafa verið á fullu : allan vetur þrátt fýrir snjóleysið og fjöllum um óvæntar vinsældir skjald armerkisins okkar nýverið. Þá er aí finna í blaðinu úttekt á helstu popp söngkonum heims sem birtast okkui sífellt í sjónvarpinu, karlmenn ert spurðir um hvemig er að kyssa konui með varalit og við kennum fólki ai búa til sinn eigin þorramat.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.