Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 11
11
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003
DV Útlönd
Naumur sigur kristilegra
demókrata í Hollandi
- flokkur Pim Fortuyn endurheimti einungis 8 þingsæti af 26
Þaö létti mikið yfir Verkamanna-
flokknum í Hollandi eftir að úrslit
kosninganna voru ljós í gær en
honum tókst að endurheimta fylgi
sitt að mestu frá því í kosningunum
1998. Flokkurinn beið afhroð í fyrra,
fékk einungis 23 sæti en er nú orð-
inn næststærsti flokkur landsins,
með 42 þingsæti. Það voru þó kristi-
legir demókratar sem hlutu mest
brautargengi, með 44 þingsæti unn-
in.
Listi Pim Fortyun fékk einungis 8
þingsæti, sem verður að teljast
gífurlegt fylgistap, en flokkurinn
náði inn 26 mönnum í fyrra. Það má
þó sennilega best útskýra með þvi
að skömmu fyrir kosningamar í
fyrra var Fortyun, leiðtogi flokks-
ins, myrtur og hlaut því listi hans
mikia athygli. Fortyun þótti mjög
hægrisinnaður og vildi til að mynda
takmarka innflutning erlendra rík-
isborgara til landsins.
Þrátt fyrir að kjósendur hafl í
REUTERS
Sigurrelfur forsætisráöherra
Jan Peter Balkenende, leiötogi kristilegra demókrata, var sigurreifur í gær,
ásamt konu sinni. Líklegt er aö hann haldi forsætisráðherraembættinu.
mestum mæli kosið þá tvo flokka sem
þykja hafa verið styrkustu stoðir lýð-
ræðisins í Hollandi er alls óvíst
hvernig næsti meirihluti lítur út. Sig-
ur kristilegra demókrata gæti tryggt
Jan Peter Balkenende áframhaldandi
veru í forsætisráðuneytinu en hann
leiddi nú siðast skammlífustu ríkis-
stjórn Hollands síðan í síðari heims-
styrjöld, en hún entist aðeins í 87
daga. Meb-ihlutinn var myndaður af
kristilegum demókrötum, lista Pim
Fortuyn (LPF) og frjálshyggjuflokkn-
um VVD en samstarfinu var slitið
þegar ósætti kom upp meðal ráðherra
LPF.
Balkenende hefur verið lýst sem lit-
lausum en „200% áreiðanlegum" og
verður að teljast líklegt að hann muni
einnig leiða næstu ríkisstjórn. Vissu-
lega hélt meirihlutinn sinni stöðu í
kosningunum en ekki hefur verið úti-
lokað að endurlífga samstarf
kristilegra demókrata og Verka-
mannaflokksins.
Tesco býður
í Safeway
Tesco kom öllum á óvart i gær-
morgun þegar fyrirtækið tilkynnti
að það hygðist bætast í hóp þeirra
sem gera tilboð í Safeway. Fram
kom í máli forstjóra Tesco, Terrys
Leahy, að alvara lægi að baki tilboð-
inu en það væri ekki gert til að
spilla fyrir í söluferlinu. Félagið
myndi halda eftir um 75% af búðum
Safeway og koma þannig í veg fyrir
að samkeppnislög yrðu brotin.
Leahy sagði jafnframt að hann teldi
ekki líklegt að samkeppnisyfirvöld
myndu samþykkja að fjórar af
stærstu verslunarkeðjum Bretlands
yrðu að þremur með tilboði Wal-
Mart og Sainsbury. Ef sala á
Safeway yrði hins vegar leyfð með
þeim skilyrðum að fyrirtækið yrði
brotið upp hefði Tesco áhuga á að
spila með.
Með tilboði Tesco eru vonbiðlar
Safeway orðnir sex talsins en þeir
eru Philip Green, Asda, sem er í
eigu Wal-Mart, Sainsbury og banda-
ríska fjárfestingafyrirtækið Kohl-
berg Kravis Roberts. Matvörukeðj-
an William Morrisson kom átökun-
um af stað fyrir um tveimur vikum,
er tilboð hennar í Safeway var
kunngert.
Markaðurinn lítur á þetta sem
síðasta tækifæri Sainsbury til að
stækka á matvörumarkaði en telur
tilboð Greens sigurstranglegast þar
sem það byggist á reiðufé. Þá hefur
Green sérhæft sig í verslun með
fatnað og ættu samkeppnisyfirvöld
ekki að sjá því neitt til fyrirstöðu að
hann kaupi matvörukeðju. -vb
Bjó með líki aldr-
aðrar frænku
Þýska lögreglan upplýsti nýlega
að 54 ára kona hefði leynt dauða 89
ára gamallar frænku sinnar, síðan
smurt líkið og búið með því í heila
átján mánuði. Þær frænkumar
munu hafa búið saman í áraraðir og
rekið saman matvöruverslun í bæn-
um Ostfildem-Ruit í nágrenni Stutt-
gart, en þegar verslunin hafði ekki
verið opnuð í nokkra mánuði og
ekkert sést til kvennanna, létu
áhyggjufullir nágrannar lögregluna
vita.
Eftir að hafa brotist inn í íbúð
þeirra fann lögreglan lík gömlu kon-
unnar i uppbúnu rúmi hennar og
haföi yngri konan haglega smurt
það og haldið áfram að búa með því
í kyrrþey.
Talið er að konan hafi dáið eðli-
legum dauðdaga í júní árið 2001.
REUTERS
Heimilið rústir einar
íbúar í borgarinni Colima sitja á rústum heimilis síns eftir jaröskjálftann sem skók Mexíkó í gær. Tuttugu og sjö hafa
fundist látnir en skjálftinn mældist 7,6 á Richter. Um 10 þúsund heimili eru skemmd eftir skjálftann
og 800 nánast jöfnuö við jöröu. Fox Mexíkóforseti feröaöist um skjálftasvæöiö í gær og hét íbúum aö endurbygging
myndi hefjast hiö fyrsta.
„Mannlegir skildir" halda
ótrauðir til starfa í írak
Fimmtiu manna alþjóðlegur hópur
friðarsinna úr samtökunum „Human
Shields", eða Mannlegir skildir, halda
á laugardaginn til Iraks þar sem þeir
munu koma sér fyrir á nokkrum fjöl-
fömum stöðum tÚ þess að hindra og
mótmæla fyrirhuguðum hemaðarað-
gerðum Bandaríkjamanna og Breta.
Fulltrúar samtakanna bönkuðu
upp á hjá Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, að Neðrastræti 10 í
Lundúnum í gær og afhentu lista
með nöfnum þeirra sem þátt taka í
þessu ævintýralega verkefhi og
einnig lista yfir þá staði þar sem
fólkið mun koma sér fyrir.
Að sögn talsmanns samtakanna
er það gert til þess að árásarherim-
ir hafi fulla vissu um það hvar og
hvenær þeir muni eiga það á hættu
að verða liðsmönnum samtakanna
að bana, mönnum sem jafnvel eru
Blair fékk þátttökuiista
Fulltrúar samtakanna „Human Shi-
elds“ bönkuöu upp á hjá Blair og af-
hentu lista yfír þá sem halda til Iraks.
þeirra eigin landar.
Hópurinn, sem er að þriðjungi
skipaður Bretum, mun ferðast til
íraks í tveimur tveggja hæða rauð-
um rútum og er búist við að ferðin
taki rúmar tvær vikur.
Ken O’Keefe,, fyrrum sjóliði í
bandaríska hernum og einn stofn-
enda „Human Shields“, sagði að
liðsmenn myndu koma sér fyrir á
fjölförnum stöðum, eins og á sjúkra-
húsum, skólum, vatnsbólum og mik-
ilvægum stöðum í nágrenni fjölbýl-
is. „Þetta er aðeins byrjunin, en það
er markmið okkar aö halda áfram
að safna liði, jafnvel nokkrum
hundruðum," sagði O’Keefe og
bætti við að það væri ætlunin að
taka upp fleiri liðsmenn á leiðinni
um Evrópu til íraks, en áætlaður
komutími til Bagdad væri þann 8.
febrúar.
Myjiar'
www.evro.is
tdÆYMJt Sp.Touring soo sdi
árgerö 2003 1.460.000
YDÆYMJt Ranger Mountain
árgerð 2003 1.390.000
tiÆYMJt Rave 800
árgerö 2002 1.345.000
tilboð 1.245.000
f&ÆYMIT ENDURO 700 RER
árgerö 2002 1.245.000
tilboð 1.145.000
C ÆYMJT SAFARI 400
árgerð 2002 890.000
tilboð 790.000
Notaðir vélsleðar
hjá EVRÓ Skeifunni
Lynx Rave 2001 ek: uookm
Listaverð: 980þús, tilboð 880þús
Lynx Touring 1998 ek: 3600km
Listaverð: 550þús, tilboð 450þús
S.Doo 1998 Mach Z ek: 5600km
Listaverð: 580þús, tilboð 510þús
S.Doo 1997 Mach Z ek: 3600km
Listaverð: 490þús, tilboð 410þús
S.Doo 1994 Summit ek: 5000km
Listaverð: 310þús, tilboð 250þús
S.Doo 1995 MachZ ek: 5000km
Listaverð: 350þús, tilboð 300þús
Lynx Racing 2001 ek: isookm
Listaverð: 895þús, tilboð 795þús
Lynx Racing 2000 ek: isookm
Listaverð: 730þús, tilboð 660þús
Lynx Touring 2001 ek: lOOOkm
Listaverð: 910þús, tilboð 840þús
Tökum
tjaldvagna/fellihýsi
uppí vélsleða á lager I
mikið úrval
Sleðafatnaður
Vélsleðahjálmar
Hanskar
Vélsleðaskór
Rekstrarvara
og margt fleira.
EVRÓ
www.evro.is
Skeifunni- S. 533-1414