Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 JOV Fréttir Fæddist sama dag og gosið hófst: Mamma sa eyjuna fyrir sér sundursprungna - segir Vestmannaeyingurinn Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir „Mamma var á Fæðingardeild Landspítalans og komin með hríð- ir þegar byrjaði að gjósa. Hún var færð milli stofa og það var slökkt á útvarpinu til aö reyna að útiloka að hún fengi fréttimar og kæmist í uppnám í miðri fæðingu." Þetta segir Vestmannaeyingurinn Jó- hanna Eldborg Hilmarsdóttir sem fæddist sama dag og gosið hófst í Heimaey. Hún er nú húsfreyja í Hafnarfirði, móðir tveggja stráka, sjö og eins árs, sjúkraliði að mennt og starfar á leikskóla. Þótt hún muni að sjálfsögðu ekki þá örlagaatburði sem gerðust í Vestmannaeyjum fyrir þrjátiu árum hefur hún heyrt sagt frá þeim af tilfmningu og getur lýst þeim ljóslega og þeirri aðstöðu sem for- eldrar hennar, Hilmar Jónasson og Ester Ámadóttir, voru í. „Pabbi vann á vörabil á bílastöð í Eyjum og mamma er leikskólakennari. Pabbi kom í bæinn meö mömmu en þá var ekki til siðs að feður væru viðstaddir fæðingar svo meðan mamma var að rembast uppi á fæð- ingardeild var hann úti á flugvelli um nóttina að taka á móti foreldr- um sínum og öðrum ættingjum sem voru að flýja gosið. Annars ætlaði amma nú ekkert að fara úr Eyjum. Hún bauð björgunarmönnum bara upp á kaffi og það þurfti hálfpart- inn að flytja hana með valdi.“ Móðurina fór að gruna Jóhanna Eldborg kveðst hafa fæðst kl. 12.20 á hádegi en svo lengi tókst ekki að leyna móður hennar ástandinu í Eyjum. „Um kl. átta um morguninn var mömmu farið að gruna að eitthvað væri að gerast. Hún varð vör við svo mikla flugum- ferð og þungaflutninga um Hring- brautina. Sjúklingar frá Eyjum voru líka farnir að koma inn á Landspítalann. Hún gekk á lækn- ana og þeir tjáðu henni hvers kyns var. Sögðu að Helgafell væri farið að gjósa og hún sá fyrir sér eyjuna sína sundursprungna. Hélt samt sínu striki og ég fæddist um hádeg- iö,“ segir Jóhanna Eldborg. Þar sem faðir Jóhönnu Eldborgar Stór nöfn með merkingar Spurð hvort hún hafi verið skírð hér í Reykjavík kveðst Jóhanna Eld- borg ekki hafa verið ausin vatni á hefðbundinn hátt heldur hafi henni verið gefið nafnið þegar hún var nokkurra daga gömul. „Jóhönnu- nafnið er eftir systur hans pabba, sem lést lítil stúlka og Eldborgarnafnið er tilkomið út af gosinu, svo þetta eru stór nöfn með miklar merkingar," segir hún. Jóhanna Eldborg kveðst hafa farið í fyrsta skipti út i Eyjar á þjóðhátíð- ina 1973, þegar hún var sex mánaða, og svo flutt með fjölskyldunni í októ- ber sama ár. „Við komumst samt ekki inn í okkar hús fyrr en í byrjun nóv- ember. Það heitir Mjölnir og er við Skólaveginn. Það var allt á kafi og bara strompurinn upp úr eftir gosið en var handmokað upp. Amma og afl áttu annað hús við Skólaveginn, að- eins neðar, og þau fluttu líka þangað og bjuggu þar ævina út. En foreldrar mínir voru í Eyjum þar til ég var 14 ára og bróðir minn 11, þá fluttum við öll upp á land,“ segir Jóhanna Eld- borg. Eins og styrjaldarástand Jóhanna Eldborg segir mikið talað um gosið nú. Þar komi meðal annars til þáttaröðin á Stöð tvö. Sjálf kveðst hún ekki hafa séð þættina enn en þeir hafi verið teknir upp fyrir hana. „Um- ræðan í kjölfar þáttanna hefur verið mjög merkileg finnst mér og nokkuð á öðrum nótum en fyrir tíu árum. Þá snerist hún svo mikið um hvernig stjórnvöld hefðu brugðist við og hvernig björgunin gekk, nú er meira spáð í hvernig fólkinu leið.“ En hvað hefur hún heyrt sjálf um líðan fólks- ins? „Þetta var rosalega erfiður tími. Pabbi hefur lýst honum eins og styrj- aldarástandi. Það eina sem menn hugsuðu var að hafa daginn af og lifa næstu vakt. Fólk var mjög tætt og lengi að ná sér eftir þetta,“ segir hún og bætir við. „Það sem gerði foreldr- um mínum og öðrum auðveldara að flytja aftur út í Eyjar var sú stórkost- lega staðreynd að ekkert maiyitjón varð af völdum gossins." -Gun. Fagnar stórafmæli „Fótk var mjög tætt og lengi aö ná sér eftir þetta, “ segir Jóhanna Eldborg um afleiöingar gossins. var vörubílstjóri, eins og áður seg- ir, þá var honum ekki lengi til set- unnar boðið í landi. Strax daginn eftir að dóttirin fæddist þurfti hann að byrja aö skipuleggja verðmæta- söfnunina í Eyjum og sjálfur dreif hann sig út þangað þann 25. janúar. „Hann rétt kíkti á mig áður en hann hóf björgunarstarfið og var að mestu úti í Eyjum það sem eftir var vetrar," segir Jóhanna Eldborg og heldur áfram: „Við mæðgur voram hins vegar hjá móðurömmu minni, á Bergþórugötu 25, ásamt fóður- ömmu minni og afa. Það var lygi- legt hversu margir komust í þá litlu íbúð, enda var vist alveg pakkað." Aukln umferö Jón og Anna María, hóteleigendur í Freys- nesi, segja umferö hafa aukist til muna. Umferö eykst vegna Kárahnjúka- framkvæmda „Við erum farin að verða vör áhrifa vegna virkjunarframkvæmdanna á Austurlandi," segja þau Jón Bene- diktsson og Anna María Ragnarsdótt- ir, hóteleigendur í Freysnesi í Öræf- um. „Umferð flutningabOa hefur auk- ist og hingað koma 15-20 flutningabíl- ar á dag og eins hefur almenn umferð aukist," segja þau Jón og Anna María. Verið er að stækka matsal hótelsins og bætist þar við rými fyrir um 60 manns. Sú viðbót á að verða tilbúin í lok janúar þannig að í matsal á neðri hæð verður pláss fyrir 120 matargesti. Ferðamönnum sem komu í Hótel Freysnes fjölgaði á síðasta ári og seg- ir Jón að nýting hafi verið miklu betri en áður og ferðaþjónustutíminn lengst í báða enda. Vel lítur út með ferða- þjónustu fyrir þetta ár og mikiö hefur verið bókað frá byrjun febrúar sem er mun fyrr en áður hefur verið. -JI Uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík: Ellert fram yfir Eirík Ellert B. Schram, sem var þingmaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í ein fimmtán ár, verður í 6. sæti á lista Samfylk- ingarinnar í Reykjavíkur- kjördæmi-norð- ur. Hann segist ekki hafa skráð sig úr Sjálfstæðisflokknum. „Ég er sjálfstæðismaður, maður ein- staklings- og athafnafrelsis, og vonandi get ég stutt Sjálfstæðis- flokkinn aftur seinna. Mér flnnst bara flokkurinn hafa verið á skjön við grundvallarsjónarmið sín,“ segir Ellert og bætir við að næstu kosningar séu líklega sið- asta tækifærið til að ná fram breytingum á fiskveiðistjómar- kerfrnu. Ellert segist ekki hafa velt fyrir sér hvort hann skrái sig í Sam- fylkinguna. „Svoleiðis formsatriði eru aukaatriði í minum augum. Ég er frjáls að því að hafa skoðan- ir og læt samvisku mína ráða.“ Ellert segist telja mjög langt í Ellert B. Schram. að 6. sætið nái á þing: „Hjá mér er þetta miklu frekar yflrlýsing um mína pólitísku afstöðu og lið- veislu." Hann hafði áður boðist til að vera í 5. sæti í suðurkjördæminu en uppstillingamefnd hafði boðið það Einari Karli Haraldssyni. „Ég taldi einsýnt að menn yrðu að standa við þau orð, orð skulu standa,“ segir Ellert. Uppstillingar- nefnd hafði raunar áður rætt 6. sætið við Eirík Bergmann Einarsson að sögn Páls formanns. Eiríkur seg- ist hafa þegið tilboð nefndarinnar um að taka þetta sæti fyrir rúm- um mánuði. „Ég sóttist ekki eftir því, en þáði það og hef ekki verið beðinn um að víkja. Ég get því ekki litið öðruvísi á en að ég sé í þessu sæti,“ sagði Eiríkur um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Uppstillingamefnd fundaði síðar um kvöldið og varð niöurstaðan sú að standa við tilboðið til Ell- erts en bjóða Eiríki 7. sætið. Páll Halldórsson segir að upp- stillingamefnd lofi engum sæti á lista og rætt hafi verið við ýmsa um ýmislegt. Kjördæmisráð kýs um tillögu uppstillingamefndar í næstu viku. -ÓTG Páll Halldórsson. ga- Sólarlag í kvöld Sólarupprás á morgun 10.32 Síödegisflóð 22.21 Árdegisflóð á morgun 10.42 jpJjyurjSJJ REYKJAVIK AKUREYRI 16.45 16.12 10.33 14.23 02.54 Hlýnandi Austlæg átt, 15-23 m/s og snjókoma eða slydda, en heldur hægari norðan og austan til. Suöaustan 10-15 og slydda eða rigning sunnan til síðdegis. Hiti víða 0 til 5 stig í kvöld en áfram vægt frost í innsveitum norðan til. Él fyrir noröan \loröaustan 8-13 og él norövestan til jn annars fremur hæg vestlæg eöa Dreytileg átt og úrkomulítið. Hiti víða 3-5 stig. Laugardagur Sunnudagur Mánudagur ‘óSió Hiti 4« Hiti 2° Hiti 0° tíl 1° til 9“ til 5° Víndur: 15-18«»/» Vindur: 10-15 "V* Vindur: 8-13™/» * 7» 'bl Hœg breytileg átt, en suöaustan 13- 18 og slydda oöa rigning sunnan- og vestanlands undir kvöld. Hiti frá 4 stigum nlöur í frost. Suövestan 10- 15 m/s og skúrir, en luegari vindur og víöa léttskýjaö noröaustarv og austanlands. Hiti á bilinu 2 tii 9 stlg. Norövestan og vestan 8-13 m/s og él oöa skúrir, en léttskýjaö austanlands. Kólnandl veöur. Logn Andvari Kul Gola Stlnnlngsgola Kaldi Stlnningskaldl m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10,8-13,8 Allhvasst Hvassviöri Stormur Rok Ofsaveöur Fárvlöri 13,9-17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7 emsu' AKUREYRI snjókoma -12 BERGSSTAÐIR alskýjað -9 BOLUNGARVÍK skýjað -3 EGILSSTAÐIR úrkoma -11 KEFLAVÍK snjókoma -1 KIRKJUBÆJARKL. snjókoma -3 RAUFARHÖFN hálfskýjað -7 REYKJAVÍK snjóél -2 STÓRHÖFÐI snjókoma -1 BERGEN léttskýjaö 1 HELSINKI snjókoma -1 KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 1 ÓSLÓ þokumóða 1 STOKKHÓLMUR 1 ÞÓRSHÖFN snjókoma -0 ÞRÁNDHEIMUR snjókoma -5 ALGARVE heiöskírt 7 AMSTERDAM alskýjað 7 BARCELONA léttskýjaö 8 BERLÍN skýjað 3 CHICAGO heiðskírt -16 DUBLIN léttskýjaö -1 HAUFAX snjóél -14 HAMBORG rigning 5 FRANKFURT skýjað 5 JAN MAYEN snjóél -15 LONDON skýjaö 6 LÚXEMBORG skýjað 4 MALLORCA skýjað 10 MONTREAL skýjað -21 NARSSARSSUAQ skýjaö -2 NEW YORK heiöskírty -12 ORLANDO hálfskýjaö 16 PARÍS rigning 7 VÍN frostrigning -0 WASHINGTON alskýjaö-8heiöskírt WINNIPEG -33 T & l.pmýlSGL V FK4 VLPLRýTQR.' ISESSaK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.