Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003
45
v'7
K.>i
Þóröur til IA
Markvörðurinn Þórður Þórðarson Þórður, sem lék með KA síðasta sum-
hefur skrifað undir samning við Skaga- ar, er uppalinn á Akranesi og lék 86
menn og mun leika með þeim í Síma- leiki með liðinu í efstu deild á árunum
deildinni í sumar. 1994-1998. -ósk
a hindrunin
irvarðarson um leikinn við Portúgal í kvöld
„Þetta er fyrsta stóra hindrunin
sem við verðum að yfirstíga í þessu
móti og það við lið sem leikur á
heimavelli. Það er dagsformið sem
skiptir máli í þessum leik og hvern-
ig menn leggja leikinn upp og hverj-
ir standast pressuna.
Eitt er víst, að þetta verður örugg-
lega erfiður leikur,“ sagði Einar Þor-
varðarson aðstoðarlandsliðsþjálfari
þegar DV spurði hann út í viður-
eignina gegn Portúgal á heimsmeist-
aramótinu í kvöld.
Er undirbúningurinn ööruvísi fyr-
ir þennan leik en leikina tvo sem eru
að baki?
„Við vitum meira um Portúgal-
ana en mótherjana tvo á undan og
þar af leiðandi höfum við meiri
möguleika til að setja upp allan und-
irbúning. Portúgalska liðið er líka
mörgum klössum betra en Gænlend-
ingar og Ástralar en ég held að við
mætum vel undirbúnir til leiks í
kvöld. Ég held að það sé engin
spurning um það að þessi leikur
skiptir máli þegar litið er til fram-
haldsins í riðlinum. Það er mikil-
vægt að fara með stig áfram í milli-
riðil keppninnar."
Hvaóa tilfinningu hefur þú fyrir
leiknum í kvöld?
„Ég hef þokkalega góða tilfinn-
ingu fyrir honum og fmnst að við
höfum ágætis möguleika. Þeir felast
í því að við höldum rétt á okkar spO-
um og við fáum góðan leik frá flest-
um okkar leikmönnum. Það er
grundvallaratriði en öðruvísi næst
ekki árangur í þessu. Það er ekki
jafn mikið álag og í Evrópukeppn-
inni í fyrra og er því ekkert að van-
búnaði. Hugafarslegt ástand skiptir
miklu máli og hvernig menn ná að
höndla spennuna," sagði Einar Þor-
varðarson. -JKS
%
V
Samstilltur hóp
frábært andrúm
- segir Aron Kristjánsson sem er á leiöinni til Danmerku
Aron Kristjánsson, landsliðsmað-
ur úr Haukum, hefur ákveðið að
leika næstu þrjú árin í Danmörkú
með Tvis Holstebro sem leikur í 1.
deildinni þar í landi.
Segja má að Aron sé að halda á
fornar slóðir en hann lék í þrjú ár
með Skjem á Jótlandi en Holstebro,
sem Aron hefur gert þriggja ára
samning við, er skammt þar frá en
bæðin liðin eru á Jótlandi.
Forráðamenn Holstebro vissu því
nákvæmlega að hverju þeir gengu
og nokkuð er síðan þeir lýstu yfir
áhuga að fá Aron í sínar raðir. Ar-
on sagði í samtali við DV í Viseu i
Portúgal að samningurinn sem hon-
um hefði verið boðinn væri mjög
spennandi.
Að honum loknum er alveg inni í
myndinni að hann fari að þjálfa en
tíminn muni leiða það allt saman I
ljós. Aron lýkur tímabilinu með
Haukum og heldur til Danmerkur í
sumar.
Ekki hægt aö hafna tilboðinu
„Mér og fjölskyldunni líst mjög
vel á það að fara aftur til Danmerk-
ur. Við höfðum það mjög gott í Dan-
mörku á sínum tíma og langaði í
aðra röndina að fara aftur. Við
þekkjum vel til staðarins sem við
förum til og tilboðið sem ég fékk var
það gott að ekki var hægt að hafna
því. Endanlegt tilboð fékk ég síðan
skömmu fyrir jólin og skrifaði ég
síðan undir samninginn þegar ég
var á keppnisferðalagi með landslið-
inu fyrir heimsmeistaramótiö.
Mig langaði aftur utan, og það
var engin ástæða til að bíða eftir
einhverju öðru tilboði, t.d. frá Spáni
eða Þýskalandi," sagði Aron Krist-
jánsson.
Aron lék með Skjern tímabilið
1998-2001 og segir að vegið hefði
þungt í ákvörðunartökunni að fara
aftur að gott sé að vera með fjöl-
skyldu í Danmörku. Aron og eigin-
kona hans eiga tvo syni, sá eldri er
þriggja ára og sá yngri átta mánaða.
Það verður auðvelt fyrir þá að kom-
ast inn í samfélagið hvað dag-
mömmu og leikskóla snertir.
Vantar stemningu hér heima
„Ég verö 31 árs í sumar svo mað-
ur verður að fara huga að framtíð-
inni. Forsvarsmenn Holstebro hafa
nefht það við mig að ég fari inn í
þjálfun hjá þeim eftir 2-3 ár og það
kynti undir að ég ákvað að slá til á
ný.“
Stefndi hugurinn alltaf til að fara
utan aftur eftir veruna í Danmörku í
fyrra skiptið?
„Nei, það gerði hann nú ekki.
Þegar við komun heim vorið 2001
var það með fullum huga. Við af-
skrifuðum það samt ekki að búa er-
lendis aftur en eftir Evrópumótið i
Svíþjóð í fyrra fékk ég tilboð frá
spænska liðinu Valencia og um
sumarið var ég í viðræðum við ann-
að spænskt félag. Þegar þessi tilboð
komu ýtti það undir að prófa það
aftur að leika erlendis. Mér finnst
staðan heima ekki nægilega spenn-
andi og oft er verið að leika frammi
fyrir fáum áhorfendum. Það vantar
finnst mér alla stemninguna en
ástandið í þeim éfnum er samt gott
hjá Haukunum og stór kjami kem-
ur alltaf á heimaleikina. Það er gott
starf unnið innan Haukaliðsins og
þar er gott að vera.“
Lifir þú góðu líft á þeim samningi
sem þér var boöinn hjá Holstebro?
„Það er stór munur á launum í
handbolta og knattspymunni en ég
mun hafa það mjög gott samt. Fram-
tíðarsýn danska liðsins er að ég
komi inn í þjálfun á seinni stigum
en ég gerði í upphafi þriggja ára
samning sem leikmaður og síðan
sér maður til. Það getur vel verið að
maður vilji þá fara heim aftur og
það er allt of snemmt aö spá í þessa
hluti.“
Meiri möguleikar á menntun
Hvað ert þú menntaður og við
hvað hefur þú starfað heima?
„Ég er kennari að mennt og fyrir
vikið gefast mér möguleikar að
mennta mig enn frekar í Dan-
mörku. Konan mín er líka kennari
og henni gefst tækifæri einnig til að
fara í framhaldsnám, t.d i námsráð-
gjöf eða hverju sem er.
Ég get hugsað mér að mennta mig
meira og fyrir vikið verður maður
sterkari á svellinu þegar heim er
komið. Ég er kennari núna við Set-
bergsskóla í Hafnarfirði."
Ef við snúum okkur að heims-
meistarakeppninni í handbolta.
Hvernig líst þér á keppnina ogfram-
haldið hjá liðinu?
„Mér líst vel á hana og hópurinn
er samstilltur og andrúmsloftið í
kringum hann er frábært. Það er til-
hlökkun að takast á við verkefnin
sem fram undan eru. Það er ein-
stakt tækifæri að fá að vera í þess-
um hópi sem er búinn að vera lengi
saman,“ sagði Aron Kristjánsson í
samtali við DV-Sport. -JKS
Aron Kristjánsson slappar af á hóteli íslenska landsliðsins í Portúgal eftir
leikinn gegn Grænlendingum á þriöjudaginn. DV-mynd Hilmar Þór
<
ALLT UM HMyí
HANDBOLTA
Við V Tiandbolta