Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
ím
Draumabíllinn minn
Glæsilegur Dodge Veapon í Þorlókshöfn:
nmtugur
Þegar Þórarinn Grimsson í Þorláks-
höfn fer í ferðalag á ferðabílnum sínum
vekur hann athygli hvar sem hann fer
eða kemur. Þórarinn ekur um á fimm-
tíu ára gömlum Veapon sem hann hef-
ur gert upp og þrátt fyrir háan aldur lít-
ur bíllinn út sem nýr. „Björgunarsveit-
in Brák í Borgamesi keypti hann upp-
haflega af Sölunefnd varnarliðseigna,"
segir Þórarinn. „Þeir byggðu yfir bílinn
og áttu í nokkur ár. Af þeim keypti
björgunarsveitin á Reykhólum hann og
átti um tíma. Ég sá bílinn á Reykhólum
eitt sinn þegar ég var á ferð þar og náði
sambandi við eigendur hans og gerði
þeim tilboð sem þeir tóku. Enda notuðu
þeir bílinn mjög lítiö, helst í söluferðir
með flugelda fyrir áramót.“
Get staðið uppréttur
Eftir að Þórarinn eignaðist bílinn
hófst hann handa við að endurbætur.
„Reykhólamönnum fannst hann kraft-
lítill svo fljótlega setti ég túrbínu í
hann. Seinna fékk ég mér túrbínuvél í
Bretlandi og setti í staöinn. Við hana
hef ég nú bætt intercooler til að ná enn
meiru út úr henni.“
Þórarinn hefur líka gert breytingar á
yfirbyggingunni og sett í hann innrétt-
ingu. „Ég setti líka lúgu í þakið á henni
svo að maður geti staðiö uppréttur.
Aliavega þegar ég er að klæða mig í á
morgnana þegar við sofum í bílnum á
ferðalögum. Það er þreytandi til lengd-
ar að þurfa alltaf að vera hálfboginn.
Þegar við vorum á ferð í Finnlandi gist-
um við eina og eina nótt á gistiheimil-
um til að geta rétt almennilega úr okk-
ur,“ segir Þórarinn. Hann bætir við að
stólarnir fyrir ökumann og farþega í
framsæti séu snúanlegir og verði hinir
bestu stofustólar þegar komið er í
áfangastað.
Tvö hundruð þúsund
„Ég var búinn að vera með bílinn af-
skráðan í tvö ár og vann i honum á
Veapon
Þórarins
Vél: Perkins dísil, T4236. Með
orginal túrbínu, Þórarinn setti á
hana intercooler og 3 tommu op-
ið púst.
Drif: Millikassi og fjaðrir eru
orginal.
Gírkassi: 5 gíra yfírgíraður.
Dekk: 38 tommu Dick Cepec.
Hægt er að koma undir hann 44
tommu dekkjum
Rúðuþurrkublöðin: Eru upp-
hituð. Þau eru frá Rafseli í Búð-
ardal. Endingartími blaðanna er
10-12 sinnum lengri en venju-
legra þurrkublaða vegna þess að
þau eru úr silíkoni.
meðan. Það sem ég hef gert i honum
miðast við að gera hann sem þægileg-
astan til að ferðast í. Við hjónin ferð-
umst mikið á honum, bæði innanlands
og utan. Ég gæti trúað að við værum
búin að aka um 200 þúsund kílómetra á
honum á þeim tíma sem við höfum átt
hann,“ segir Þórarinn.
„Það fer mikill tími í þetta en það er
gefandi. Það má líka segja að þetta væri
ekki hægt ef maður ætti ekki svona
góða konu sem sýnir mér mikla þolin-
mæði í þessum verkum mínum,“ sagði
Þórarinn Grímsson Víboneigandi í
Þorlákshöfn að síðustu í samtali við
DV-Magasín.
-NH
M
agasm
m
og mælarnir. Mælaborölö er fallegt og kemur
úr Dodge Ram.
Ollu er liaganlesí fyrlr komlö og nauösynleg tæki
öll á sínum staö.
ÞÖrðrÍnn felldi íslandskort ofan í boröplötuna, þaö er
gott tll aö vita hvar maöur er staddur, sagöl Þórarinn.