Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003
Fréttir
DV
sem raunar er
þegar hafin
Sigurður Kári Kristjáns-
son héraðsdómslög-
maður fór fyrr í
landsmálapólitík-
ina heldur en
margir vinir
hans og kunn-
ingjar áttu
von á. Þeir
töldu að hann
myndi einung-
is helga sig lög-
fræðinni fyrsta
sprettinn en nú
liggur fyrir hörð
kosningabarátta
Nafn: Sigurður Kári
Kristjánsson
Aldur: 29 ára, naut
Fjölskylda: Einhleypur,
barnlaus
Menntun: Verslunarskóli
íslands, embættis próf i
lögfræði frá
Háskóla íslands.
Starf: Héraðsdómslögmaður
á lögmannsstofunni Lex
í Reykjavík.
Efni: Skipar 4. sæti á lista
Sjálfstæðisflokks í
Reykjavíkurkjördæmi-
norður
Hann var ljóshærður, fjörmik-
ill strákur sem ólst upp í Hóla-
hverfi í Breiðholti. Snemma
varð hann staðráðinn í hvað
Nærmynd
hann ætlaði að verða þegar
hann væri orðinn stór. Hann
ætlaði að verða slökkviliðsmað-
ur - eins og Marteinn Geirsson.
Marteinn er faðir eins besta vin-
ar hans. Þess vegna ætlaði hann
líka að verða
landsliðsfyrirliði
í fótbolta - eins Jóhanna
og Marteinn
Geirsson.
Þetta voru nú framtíðaráform
Sigurðar Kára Kristjánssonar í
þann tíð.
Nú er hann héraðsdómslög-
maður á lögmannsstofunni Lex
og skipar 4. sæti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavíkurkjör-
dæmi nyrðra eftir gott gengi í
prófkjöri flokksins.
Sigurður Kári lét fljótlega til
sín taka í félagsstörfum. Hann
var formaður nemendafélags
Hólabrekkuskóla, forseti nem-
endafélags Verslunarskóla ís-
lands og loks formaður Orators,
félags laganema í Háskóla ís-
lands. Þá sat hann t.d. í háskóla-
ráði fyrir Vöku, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta. Jafnframt
snaraði hann sér í pólitíkina og
hefur gegnt trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn á ann-
an áratug. Á árunum 1999-2001
var hann svo formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna.
Alltaf á jörðinni
Fjórir strákar sem ólustu upp
á nánast sömu torfunni í Hóla-
hverfinu hafa haldið hópinn æ
síðan og raunar verið nánir vin-
ir. Auk Sigurðar Kára eru það
Gísli Marteinn Baldursson sjón-
varpssnillingur, Rúnar Freyr
Gíslason leikari og Pétur Mart-
einsson fótboltamaður.
„Hann var mjög pottþéttur,
lærði alltaf heima, var sam-
viskusamastur okkar og hlýðn-
astur við foreldra sína af okkur
félögunum," segir Gísli Mart-
einn um Sigurð Kára. „Hann
var góður námsmaður, svona
náungi sem foreldrar manns
voru ánægðir með að maður
skyldi umgangast. Hann var
fjörmikill, þessi hópur var áber-
andi í skólanum og Siggi mjög
áberandi í þeim hópi. Hann var
hrókur alls fagnaðar en gekk þó
ekki manna lengst í einhverjum
æsingi. Hann var alltaf með, en
alltaf á jörðinni. Hann passaði
sig t.d. alltaf að leggja pening
fyrir.“
Sigurður Kári æfði fótbolta
með Fram fram undir tvítugt.
„Hann var mikill keppnismaður
og með mikið skap,“ segir Gísli
Marteinn.
Gísli Marteinn segir að félag-
ar Sigurðar
_________ Kára hefðu allt
S. Sigþórsdóttir eins átt von á
blaöamaður því að hann
myndi helga sig
lögfræðistörfunum á fyrsta
sprettinum. En smám saman
hefði hann færst nær pólitík-
inni, ekki síst eftir að hann
hefði unnið „stórglæsilegan
kosningasigur" eftir harða bar-
áttu um formannssætið í SUS.
„Ef ég ætti að lýsa Sigga í
einni setningu myndi ég segja
að hann væri svo áreiðanlegur
að hann myndi aldrei hvika frá
þeirri ákvörðun eða leið sem
Ingibjörg Sólrún á fundi í Keflavík í gærkvöld:
hans menn hefðu í hópi komið
sér saman um að fara, burtséð
frá hvort hann væri sammála
henni eða ekki.“
Erasmus í Belgíu
Sigurður Kári nam almenna
lögfræði undir handarjaðri Sig-
urðar Líndals, prófessors við
lagadeild HÍ.
„Þetta er afskaplega góður
drengur, ljúfur og indæll," segir
Sigurður. „Hann er duglegur
þegar hann tekur sér það fyrir
hendur. Námsferill hans var
hnökralaus, að því er ég best
veit, og árangurinn í lagi og vel
það. Hann er duglegur í félags-
málum, röskur og drífandi."
Sigurður rifjar upp að Sigurð-
ur Kári hafi verið Erasmus-
nemandi í Löven í Belgíu á
námsferli sínum í lögfræðinni,
tekið þar evrópskan vinnumark-
aðsrétt sem hann skrifaði síðan
lokaritgerð um í lagadeildinni,
einnig undir umsjón Sigurðar
Líndals.
„Ég bjóst við að hann færi út
í pólitík fyrr eða síðar, en það
varð fyrr en ég átti von á,“ seg-
ir Sigurður. „Mín skoðun er nú
sú að þessir ungu menn ættu að
fara út í framhaldsnám.“
Og svo getur hann sungið ...
Guðrún Inga Ingólfsdóttir
hagfræðingur kynntist Sigurði
Kára fyrst í háskólapólitíkinni.
Hún var síðan í stjórn SUS þeg-
ar hann gegndi þar formennsku.
í prófkjörinu í haust tókust þau
svo á þar sem bæði voru í fram-
boði fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„Hann er harður baráttumað-
ur en drenglyndur og getur tek-
ið rökum,“ segir Guðrún Inga.
„Þótt við værum „mótherjar“ þá
studdum við líka hvort annað,
ræddum saman og bárum sam-
an bækur okkar. Ég samgladdist
honum þegar honum gekk
svona vel.“
Hún segir að Sigurður Kári sé
skemmtilegur í góðra vina hópi.
„Og svo getur hann sungið,“ bæt-
ir hún við. „Ég held að hann sé
mjög félagslyndur og hann rækir
vini sína mjög vel. Það er alveg á
hreinu. Hann hefur mjög gaman
af að segja brandara um vinstri-
menn og kann nóg af þeim.
Hvað skilning á kvenréttinda-
hugsjóninni varðar þá hefur
hann farið batnandi.“
Losa þarf þjóðina úr
hrokafullum stjórnarháttum
„Það er mikilvægt að losa þjóö-
ina úr þeim sjálfsmiðuðu og hroka-
fullu stjómarháttum sem nú ríkja í
landinu,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir á fundi hennar og Öss-
urar Skarphéðinssonar, formanns
Samfylkingar, sem haldinn var í
Keflavík í gærkvöld. Þar reifuðu
þau helstu stefnumál flokks síns í
aðdraganda kosninganna og var
víða komið við.
Kraumar í pottum
Um ásakanir milli æðstu stjóm-
enda Baugs og forsætisráðherra,
sem nú ber hátt, sagði Ingibjörg
Sólrún að hún vildi ekki taka þátt í
þeim. „Fara niður á það plan,“ eins
og hún komst að orði. Hún sagði að
hin fræga Borgamesræða sín - þar
sem hún vék meðal annars að
ýmsu í valdakerfi landsins - hefði
greinilega við ýmsu hreyft, eins og
hörð viðbrögð sýndu. „Ég taldi mig
vera að tala á almennum nótum og
fræðilegum um ýmsar tegundir
lýðræðis. Hafði hins vegar ekki
grænan grun um að svona hressi-
lega kraumaði í pottunum. Satt
MYND VÍKURFRÉTTIR
I Keflavík
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á fundi Samfylkingarinnar sem haldinn
var í gærkvöld.
best að segja langar mig ekkert að
horfa ofan í þennan pott.“
Þaö liggur í loftinu
Ingibjörg Sólrún sagði enn frem-
ur að mikilvægt væri í dag að efna
til þjóðarsáttar um lækkun skatta
og gengis. Ljóst mætti vera að nú,
þegar álvers- og virkjunarfram-
kvæmdir væru að hefjast á Austur-
landi, gætu því fylgt ýmsir vaxtar-
verkir í efnahagslífmu. Nauðsyn
væri að bregðast við því svo hags-
munir til dæmis sjávarútvegs, iðn-
aðar og ferðaþjónustu röskuðust
ekki enn meira. Ella gæti útkoman
orðið að þegar álver á Reyðarfirði
væri komið í gagnið hefðu fleiri
störf tapast úr landi en stóriðjan
eystra skapaði.
Hvað varðar hið pólitíska landslag
í augnablikinu sagðist Ingibjörg Sól-
rún vera sigurviss. Hún hefði sömu
sigurtilfinningu og fyrir borgar-
stjómarkosningamar 1994 þegar R-
listinn vann borgina. „Það liggur
eitthvað í loftinu, en það er svo
spuming hvort okkur tekst að raun-
gera hlutina," sagði Ingibjörg. -sbs
Myndi skrimta
Páll Pétursson
félagsmálaráð-
herra stóð ekki
að ályktun
flokksþings
Framsóknar-
flokksins um at-
vinnuleysisbæt-
ur og greiddi
henni ekki at-
kvæði. Frá
þessu sagði
hann á Alþingi í gær þegar Stein-
grímur J. Sigfússon spurði hvort
atvinnuleysisbætur yrðu hækkað-
ar úr 77 þúsund krónum í 93 þús-
und til samræmis við lágmarks-
laun, eins og samþykkt hefði ver-
ið á flokksþinginu að bæri að
gera. Páll sagðist ekki myndu
beita sér fyrir slíkri hækkun því
að hann teldi að einhver hvati
þyrfti að vera fyrir fólk að vera í
vinnu frekar en á bótum. Þetta
væri því ekki skynsamlegt en
hann teldi koma til greina að
hækka bæturnar eitthvað. Að-
spurður sagði Páll að hann
myndi sjálfur „skrimta í ein-
hverja mánuði“ á atvinnuleysis-
bótum „ef og þegar ég missi vinn-
una“, en að hann myndi ekki
treysta sér til að vera á þeim
lengi.
Stríö er neyðarkostur
Ögmundur
Jónasson spurði
forsætisráð-
herra um af-
stöðu íslands til
íraksmálsins í
ljósi þróunar
mála síðustu
daga í fyrir-
spurnatíma ráð-
herra á Alþingi
í gær. Davíð
Oddsson sagði að reyna ætti til
þrautar að ná friðsamlegri lausn
í málinu, stríð væri neyðarkostur
en naUðsynlegt væri að ályktun
Sameinuðu þjóðanna númer 1441
héldi. Ögmundur harmaði að ís-
lensk stjórnvöld skyldu ekki
neita Bandaríkjamönnum um að-
stöðu til aðgerða og undirbúnings
vegna stríðsátaka. -ÓTG
Ögmundur
Jónasson.
Páll Pétursson.
Suöurkjördæmi:
Býður Iram
óháðan lista
Kristján Pálsson, alþingismað-
ur Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi, gekk úr flokknum í
gær um leið og hann tilkynnti að
hann ætlaði að bjóða fram óháð-
an lista fyrir komandi kosningar.
Kristján hefur jafnframt sagt sig
úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins
og kveðst munu starfa sem óháð-
ur þingmaður til þingloka.
Undirbúningur sérframboðsins
mun hafinn en ekki liggur enn
fyrir hverjir munu skipa önnur
sæti listans. Miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins hafnaöi í liðinni viku
beiðni Kristjáns um að hann
fengi að bjóða fram undir bók-
stöfunum DD. Kristján hafði far-
ið þess á leit við flokkinn eftir að
ljóst var að hann myndi ekki
vera í leiðtogasæti Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurkjördæmi. -aþ