Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 Útlönd Á gægjum ísraelskur hermaður fer að öllu með gát í innrásinni í Bureij. Hamas-foringi hand- tekinn á Gaza-svæðinu ísraelskar hersveitir handtóku í gær Mohammed Taha, einn helsta pólitíska leiðtoga og stofnanda Ham- as-samtakanna á Gaza-svæðinu og mun hann fyrsti háttsetti Hamas-leið- toginn sem ísraelar handtaka síðan yfirstandandi ófriður blossaði upp í september árið 2000. Að sögn talsmanns palestínskra stjórnvalda á Gaza voru þrir synir Tahas einnig handteknir í innrásinni í Bureij-flóttamannabúðirnar en þeir eru aOir virkir félar í Hamas-samtök- unum. Eftir aðgerðimar í gær skutu Hamas-liðar sprengiflaug að bænum Sderot í ísrael en að sögn ísraelskra stjómvalda án teljandi skaða eða mannfalls. Bandarísk hermála- yflrvnld efla njésnir Yfirvöld hermála í Banda- ríkjunum ætla að efla mjög njósna- og gagnnjósnadeild land- varnaráðuneytisins til að safna upplýsingum um hryðjuverka- samtök og önnur skotmörk, að því er bandaríska blaðið Los Angeles Times sagði í morgun. Blaðið hefur eftir heimildar- mönnum sínum að innan fárra ára verði hundruð útsendara á snærum leyniþjónustu hersins. Þeir eigi að geta tekið að sér margvísleg verkefni, allt frá eftir- liti fyrir hernaðaraðgerðir til leynilegra aðgerða sem taka lang- an tíma. Njósnararnir verða tekn- ir úr öllum deildum hersins. Bandaríkjamenn fjölna enn í herliöi sínu Bandarísk stjómvöld tUkynntu í morgun að þau heföu skipað auka sex- tíu þúsund manna herlið i viðbragðs- stöðu, sem verði tObúið tU þátttöku í fyrirhuguðum hernaðaraðgerðum gegn írökum gerist þess þörf. Að sögn talsmanns bandaríska varnarmálaráðuneytisins gaf Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra út skipunina um helgina en sagði þó ólíklegt að liðið yrði sent tO Persaflóa- svæðisins fyrr en eftir að væntanleg- ar aðgerðir hæfust. Þessi ákvörðun Rumsfelds kemur á sama tíma og loftárásir á skotmörk á flugbannssvæðinu í suðurhluta íraks eru hertar tU muna og staðfesti Rums- feld í viðtali nýlega að bandarískar og breskar flugsveitir, sem fæm með eft- irlitið á flugbannssvæðunum, hefðu fengið rýmri heimUdir fyrir loftárás- um og væri þeim nú beint að mun fleiri skotmörkum en áður. I fyrrinótt gerðu bandarískar og breskar herþotur hörðustu loftárásir á suður-flugbannssvæðinu til þessa og Pabbi kvaddur. var þeim aðaUega beint að loftvarnar- stöðvum í nágrenni borgarinnar Basra en styrkur árásanna er talinn bera vott um aukna hörku og for- smekkurinn að því sem koma skal. Að sögn talsmanns íraskra stjórn- valda fórust fimm manns í árásunum auk þess sem að minnsta kosti fimmt- án slösuðust. Þetta gerist þrátt fyrir það að írak- ar hafi sýnt aukinn samstarfsvUja með eyðingu hluta al-Samoud stýri- flauga sinna, en á síðustu þremur dög- um hafa þeir eytt sextán af 120 ólög- legum flaugum sínum. Rumsfeld sagði í umræddu viðtali að hann liti ekki á eyðingu flauganna sem merki um aukinn samstarfsvUja Iraka við vopnaeftirlitið heldur aðeins beint framhald af leiksýningu Saddams. Rumsfeld mun hitta Tommy Franks, yfirmann bandaríska herafl- ans á Peraflóasvæðinu, á fundi í Pentagon i dag en þar munu þeir fara yfir breyttar hernaðaráætlanir eftir að tyrkneska þingið hafnaði beiðni bandariskra stjórnvalda um afnot af þarlendum herstöðvum tU árása á íraka. UPPBOÐ Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins að Útgarði 1, Húsavík, sem hér segir á eftir- _______farandi eignum:_______ Aðalbraut 29, hluti, Raufarhöfn, þingl. eig. Árni Heiðar Gylfason, gerðarbeið- andi Húsasmiðjan hf., mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Austurvegur 1, íbúð 0101, Þórshöfn, þingl. eig. Jóhann Ólafur Lárusson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður, sýslumaðurinn á Húsavík og Vátrygg- ingafélag íslands hf., mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Ásgata 23, íb. 01-0101, Raufarhöfn, þingl. eig. ísabella Björk Bjarkadóttir, Reynir Þorsteinsson og Hilmir Agnars- son, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Brúnagerði 1, efri hæð, Húsavík, þingl. eig. Halldóra Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur Landssími íslands hf., Sparisjóður Suður-Þingeyinga og Vátryggingafélag íslands hf., mánu- daginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Brúnagerði 1, neðri hæð, Húsavík, þingl. eig. Meindýravarnir íslands ehf., gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Húsavík og Vátryggingafélag íslands hf., mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Duggugerði 9, Kópaskeri, þingl. eig. Eyþór Margeirsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Húsavík, mánudag- inn 10. mars 2003, kl. 10.00. Garðarsbraut 39, hluti í íbúð 0201, Húsavík, þingl. eig. Sigurður Jóhanns- son, gerðarbeiðandi Landsbanki ís- lands hf., mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Garðarsbraut 43, íbúð efri hæð, Húsa- vík, þingl. eig. Ævar Ákason, gerðar- beiðandi íbúðalánasjóður, mánudag- inn 10. mars 2003, kl. 10.00. Helluhraun 5, Skútustaðahreppi, þingl. eig. Þórunn Snæbjömsdóttir, gerðarbeiðandi fbúðalánasjóður, mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Héðinsbraut 1, hl. gþ., Húsavík, þingl. eig. Anna Stefanía Brynjarsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Norð- urlands, mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Höfðabraut 1, Raufarhöfn, þingl. eig. Iðufell ehf., gerðarbeiðandi Sandöx ehf., mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Höfði 3, eignarhl. 02-0101 og 03-0101, Húsavík, þingl. eig. íslenskur harðvið- ur ehf., Húsavík, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands hf., mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. Ketilsbraut 22-24, Húsavík, auk rekstrartækja og bún., þingl. eig. Hót- el Húsavík hf., gerðarbeiðandi Ferða- málasjóður, mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK REUTERSMYND Trommudrottningin dansar dátt Fabia Borges, trommudrottningin frá Unidos da Tijuca sambaskólanum í Rio de Janeiro, dansar dátt á kjötkveðjuhátíöinni sem stendur nú sem hæst. Reynt að veiða upplýsing- ar upp úr al-Qaeda liða Bandaríkjamenn keppast nú viö að reyna að veiða upp- lýsingar upp úr Khalid Sheikh Mo- hammed, al-Qaeda foringjanum sem var handtekinn í Pakist- an um helgina. Embættismenn sögðu í gær að þeim væri mjög í mun að afla upplýsinga um hryðjuverkaárásir sem kunna að vera skipulagðar í Banda- ríkjunum á næst- unni. Þá leikur yfír- heyrendum líka mik- il forvitni á að vita hvar Osama bin Laden, leiðtogi al-Qa- eda, er niður kom- inn, áður en hann bregður aftur undir sig betri fætinum og flytur sig um set. Talið er að bin Laden sé í felum nærri norðurlandamær- um Pakistans að Afganistan. Tom Ridge, yfir- maður öryggismála heima fyrir, sagði að embættismenn hefðu vitað áður en Mohammed var handsamaður að hann heföi vit- neskju um hryðju- verkasamsæri í Bandaríkjunum. Það hefði meðal annars verið ástæð- an fyrir því að ör- yggisviðbúnaður var aukinn í síðasta mánuði. Bandarískir emb- ættismenn vildu ekkert ræða aðferð- irnar sem beitt er við yfirheyrsluanr yfir Mo- hammed, nema hvað að notað væri allt sem leyfilegt væri. Ekki væri gripið til pyntinga. I yfirheyrslu Bandaríkjamenn beita öllum löglegum aðferöum viö yfir- heyrslur á al-Qaeda liðanum Khalid Sheikh Mohammed. Skólar áfram hjá ríkínu Hogni Hoydal, ráðherra sveitar- stjórnarmála í Færeyjum, segir að engin áform séu uppi um að rekstur grunnskól- anna verði færður til sveitarfélag- anna. Grunnskólinn hefur þó ver- ið nefndur sem einn af þeim málaflokkum sem flytja mætti til sveitarfélaganna. Gamlir þvingaðir á eftirlaun Ný rannsókn samtaka danskra málmiðnaðarmanna leiðir í ljós að vegna atvinnuieysis séu marg- ir margir fullorðnir starfsmenn þvingaðir til að fara á eftirlaun. Tími til að græða sárin Jacques Chirac Frakklandsfor- seti sagði í heimsókn sinni í Al- sír í gær að kominn væri tími til að græða sárin og leita sátta, fjörutíu árum eftir blóðugt sjálf- stæðisstríð. Uill nýja stjóm fljótlega Forsætisráðherra Fílabeins- strandarinnar hvatti deilendur í fimm mánaða löngu borgarastríði að fallast sem fyrst á myndun nýrrar þjóðstjómar til að koma í veg fyrir frekara blóðbað. í mál við flrafat í Panís Ættingjar fóm- arlamba árása í ísrael hafa höfðað mál á hendur Yasser Arafat, for- seta Palestínu- manna, fyrir dóm- stóli í París. Þar er Arafat meðal annars ákærður fyrir þjóðar- morð, að sögn heimildarmanna í franska réttarkerfmu. Hægristjóm líklegri Búist er við að forseti Eistlands feli leiðtoga hægriflokksins Res Publica að mynda næstu stjóm landsins og gangi þar með fram hjá leiðtoga Miðflokksins sem sigraði í þingkosningunum á sunnudag. Sendimaður páfa á hmd Bush Friðarboði á vegum Jóhannes- ar Páls páfa fór til Washington í gær til að hvetja Ge- orge W. Bush Bandaríkjaforseta til að hætta við stríðsáform sín gegn írak. Sendimaðurinn mun afhenda forsetanum bréf frá páfa þar sem hvatt er til friðsamlegrar lausnar á íraksdeilunni. Æfa viðbrögð við hryöjuverkum David Blunkett, innanríkisráð- herra Bretlands, sagði í gær að einhvem tíma á næstunni yrði efnt til æfinga á viðbrögðum við meiriháttar hryðjuverkum í London.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.