Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 Fréttir DV Svokölluðum anti-Ameríkönum fjölgar stöðugt og ógna Bandaríkjamönnum: Um leið og líkurnar á stríði gegn írak aukast, stríði sem Bandaríkjamenn verða hugsan- lega einir um að eiga aðild að, þá eykst hinn svokallaði anti-amerík- anismi um allan heim. Reiðin gagnvart bandarískum stjórnvöld- um eykst með hverjum degi og nú er svo komið að bandarískir ríkis- borgarar sem búsettir eru utan heimalands sins lifa margir hverj- ir í sifelldum ótta við eigin heilsu. Þennan anti-amerikanisma er að finna víða; á götum úti, í fjölmiðl- um, á skemmtistöðum og víða annars staðar í borgum erlendis. Víðast hvar í Evrópu reynir fólk þó að gera greinarmun á Bandaríkjamönnum og ríkisstjórn þeirra. En Bandaríkjamenn í Evr- ópu segjast þó finna klárlega fyrir aukinni reiði í garð handarískra stjórnvalda og sú reiði geri það að verkum að Bandaríkjamenn verði sífellt varkárari í sínu daglega lífi. Þeir viti að fjölda fólks er að finna sem vill enga Bandaríkjamenn í sínu landi, og gerir hvaö sem er til að losna við þá. Bandarískir ríkis- borgarar eru þannig stöðugt minntir á áhættuna sem felst í því að búa og lifa annars staðar en í heimalandi sínu. Engin reiði á íslandi Þó er afskaplega misjafnt hve mikinn anti-amerikansima er að finna í löndum heims. Fulltrúar bandaríska sendiráðsins á íslandi segjast t.a.m. ekki finna fyrir auk- inni reiði í garð Bandaríkjamanna á íslandi. Það sé frekar að Banda- ríkjamenn hafi mætt góðvild frá íslendingum heldur en hitt. Öll ör- yggismál hafí verið tekin fastari tökum eftir 11. september, eins og raunin varð úti um allan heim, og ekkert bendir til þess að sú gæsla verði aukin eitthvað frekar. En bandarísk sendiráö í mörg- um öðrum löndum taka enga áhættu. Talsmenn sendiráðsins í Indónesíu, fjölmennasta múslíma- ríki heims, segja t.d. mögulegt stríð skapa „ástand sem einkenn- ist af óvissu". Fjölskyldur banda- rískra embættismanna þar í landi, sem voru fluttar úr landi í kjölfar hryðjuverkaárásinnar á Bali, fá ekki að koma aftur, einfaldlega af hættu á að skæðir anti-Ameríkan ar láti til skarar skríða gegn þeim. í svörtum skúmaskotum í Miðausturlöndum eru víða skólar sem bandarísk ungmenni ganga í og í sumum þeirra jaðrar ástandið við borgarastyrjöld. Skól- arnir líkjast sumir hverjir virki og börnum er ráðlagt að hafa vikuskammt af klæðnaði og öðr- um nauðsynjum í skápum sínum ef ske kynni að aðstæður yrðu þannig að ungmennin kæmust ekki út af skólalóðinni. Skólarnir eru hreinlega umkringdir af anti- Amerikönum sem vilja skaða Bandaríkin og ráðast því á sak- lausa nema. Því fer fjarri að svona ástand sé aðeins að finna í múslímalöndum. Jafnvel í Afríku leynast anti-Am- eríkanar í svörtum skúmaskotum. Lífverðir fyrir heimamenn Ástandið er hvað verst í Pakist- an. í borginni Karachi, sem talin er ein sú hættulegasta fyrir Banda- ríkjamenn að búa í og þolað hefur fjölmargar hryðjuverkaárásir gegn Bandaríkjunum á liðnu ári, býr heimamaðurinn Don Graybiel, sem eignast hefur fjölda óvina fyrir það eitt að kenna ensku og enskar bók- -ÍSÓKN OGVÖRN! Samtök auglýsenda standa fyrir hádegisveröarfundi miövikudaginn 5. mars kl. 12.00-13.30 á Hótel Loftleiðum, þingsölum 1-3. Fjallað verður um almannatengsl frá ýmsum hliðum. Til dæmis verður leitað svara við eftirtöldum spurningum: • Bregðast forráöamenn istenskra fyrirtœkja rétt við neikvœðri umfjöilun? • Hvað gera forráðamenn islenskra fyrirtækja til að fyrirbyggja neikvœða umfjöllun? Antl-Ameríkanar Þeir vilja eyða öllu sem svo mikið sem tengist Bandaríkjunum - svo mikiö er hatrið. menntir við hinn svokallaða „Am- eríska skóla“ sem er í borginni. Taka skal fram að engir bandarísk- ir nemendur eru við skólann, að- eins nemendur sem koma frá Pakistan. Fimm bandariskir kenn- arar eru nú við skólann en voru á þriöja tug fyrir 11. september 2001. Þeir hafa allir flúið land af ótta við að verða myrtir. Graybiel þessi er hataður af sam- löndum sínum fyrir það eitt að breiða út bandaríska siðmenningu. Nú er svo komið að Graybiel fylgja fjórir lífverðir hvert fótmál, vopnað- ir haglabyssum og rifflum. Heimili hans er vaktað af þremur vörðum allar nætur og áðurnefndur skóli minnir helst á fangelsi. Þar hefur turnum verið komið fyrir sem hindra aðgang „óboðinna gesta“, ef svo má að orði komast, sem ólmir vOja vinna voðaverk á samlanda sínum sem svo óheppilega er aðdá- andi bandarískrar sögu. Ameríku-brandarar vinsælir Gott er að lýsa þessari andúð á Bandaríkjamönnum með atviki sem átti sér stað á skemmtistað einum í Amsterdam í Hollandi í vikunni. Þegar grínisti, sem var við iðju sína á staðnum, bað áhorf- endur sem staddir voru í salnum að játa eitthvað neyðarlegt við sig varð fyrst í stað óþægileg þögn og fólki greinilega illa við að gera lít- ið úr sér fyrir framan aðra. Skömmu síðar ómaði há rödd úr skaranum sem mælti með evr- ópskum hreim: „Ég er Bandaríkja- maður"! Hlátursvein ómuðu í kjöl- farið úr salnum og þótti þetta besti brandari kvöldsins, þ.e. að vera frá Bandaríkjunum. -vig Byggt m.a. á efni frá The New York Times Varlega fariö í fjármálum í Skagafiröi: Götur og íþróttamannvirki helstu nýframkvæmdirnar • Nýta islensk fyrirtœki almannatengsl til fullnustu? • Geta almannatengsl komið i stað auglýsinga? Framsögumenn Ólafur Hauksson, lceland Express Sigursteinn Másson, PR0 PR Stefán Kjærnested, Atlantsskipum Fundarstjóri verður Kristján Guðmundsson, forstöðumaöur markaðsdeildar Landsbanka islands. Aögangseyrir kaffi og léttar veitingar innifalið 2500 kr. fyrir félagsmenn 3500 kr. fyrir aðra Skráning á www.sau.is Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar var samþykkt fyrir skömmu. Niðurstöðutölur fyrir aðalsjóð eru tekjur að upphæð 1.477 milljónir króna og rekstrar- gjöld 1.519 milljónir. í áætluninni er gert ráð fyrir að nýfjárfestingar nemi 77,3 milljónum. Þar vega þyngst gatnagerðarframkvæmdir á Hólum og Sauðárkróki. í fram- kvæmdir við íþróttavöllinn á Sauðárkróki fara 10 milljónir en á honum standa nú yfir miklar breytingar vegna Landsmóts Ung- mennafélaganna. Alls er áætlað að selja eignir fyrir tæpar 64 milljón- ir, þar er að mestu um íbúðarhús- næði að ræða. Þá er reiknað með að liðlega 36 milljónir króna fari til viðhalds eigna á árinu. „Útgangspunktur í þessari fjár- hagsáætlun er að í lok ársins 2003 hafi ekki orðið aukning á skuld- um sveitarfélagsins. Það er von okkar að sú ítarlega vinna sem lögð hefur verið í að greina fjár- hagsvanda sveitarfélagsins og þau viðbrögð sem viðhöfö hafa verið leiði til þess að í framtíðinni megi sveitarfélagið standa fyrir eðli- legri aðkomu að framkvæmdum og viðhaldi og að á næstunni legg- ist allir á eitt við að gera Skaga- DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON Ársæll Guömundsson. sveitarstjóri Skagafjaröar. fjörð að enn betri og fegurri bú- setukosti," sagði Ársæll Guð- mundsson sveitarstjóri. -ÖÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.