Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 17
16 17 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fýrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Víglína Margt bendir til aö höröustu átök í íslensku þjóðfélagi síðustu áratugi séu hafin. Annars vegar takast á gríöarlegir fjárhagslegir hagsmunir og hins vegar lífsskoöun Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Á hlið- arlínunni standa fjölmiðlar, stjórnmálamenn og jafnvel stjórn- málaflokkar. Davíð Oddsson hefur sett fram alvarlegar ásaknir um að for- ráðamenn Baugs hf. hafi ýjað að því að bera á hann fé „gegn því að ég léti af ímyndaðri andstöðu við Baugs-fyrirtæki“. Forsætis- ráðherra segir þetta hafi komið upp á fundi hans og Hreins Loftssonar, stjómarformanns Baugs. Hreinn Loftsson og Jón Ás- geir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hafa báðir neitað þessum ávirðingum staðfastlega. Fyrir hluthafa er fátt verra en að fyrirtæki þeirra verði bit- bein á opinberum vettvangi. Hvort sem hluthöfum Baugs líkar betur eða verr hefur fyrirtæki þeirra dregist með beinum hætti inn í pólitíska umræðu á síðustu vikum, en upphafið má rekja til þess að Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sá sérstaka ástæðu til þess að gera ítök verslanakeðja á matvöru- markaði og þá ekki síst yfirburðastöðu Baugs að umtalsefni á Alþingi 22. janúar á liðnu ári: „Stóru keðjurnar hafa í skjóli ein- okunar keyrt upp matarverð. Hreðjatak þeirra á markaðnum hefur kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur ... Ef fortölur duga ekki til, herra forseti, þá er það skoðun okkar í Samfýlkingunni að Samkeppnisstofnun eigi að fá í hendur þau tæki sem hún þarf til þess að skipa fyrir um breytingar, þar á meðal að skipta upp slíkum einokunarrisum ef hún telur þess þörf til þess að vernda hagsmuni neytenda.11 Össur Skarphéðinsson virðist hafa aðrar skoðanir á málum en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, talsmaður Samfylkingarinnar, sem sagði í frægri ræðu í Borgamesi að afskipti stjórnmála- manna af fyrirtækjum væru ein aðalmeinsemd íslensks efna- hags- og atvinnulífs. Ingibjörg Sólrún nefndi sérstaklega Baug, Norðurljós og Kaupþing í þessu sambandi: „Byggist gagnrýni og eftir atvikum rannsókn á þessum fyrirtækjum á málefnalegum og faglegum forsendum eða flokkspólitískum? Ertu í liði forsæt- isráðherrans eða ekki - þarna er efinn og hann verður ekki upp- rættur nema hinum pólitísku afskiptum linni og hinar almennu gegnsæju leikreglur lýðræðisins taki við.“ En jafnvel þótt formaður og talsmaður Samfylkingarinnar séu ekki samstiga í viðhorfum til stórra fyrirtækja er augljóst að Ingibjörg Sólrún hefur markað stefnuna og gefið tóninn. Eftir- tektarvert er að þeir þingmenn Samfylkingar sem fyrir liðlega ári höfðu áhyggjur af einokun á matvörumarkaði og töldu nauð- synlegt að færa Samkeppnisstofnun „þau vopn í hendur sem duga til að kljúfa í sundur stórfyrirtæki,“ hafa kosið að þegja þunnu hljóði. Fyrir nokkrum árum hefði það þótt saga til næsta bæjar að formaður Sjálfstæðisflokksins stæði í hörðum átökum við for- ráðamenn eins stærsta einkafyrirtækis landsins. Og ekki eru mörg ár síðan - raunar nokkrir mánuðir - jafnaðarmenn töldu það skyldu sína að berjast gegn stórfyrirtækjum og fákeppni. Átakalínurnar í íslenskum stjórnmálum hafa því orðið skýrari á síðustu sólarhringum, með dálítið undarlegum hætti og þó hafa málefnin ekki verið rædd. Líkt og iðulega þegar forðast er að ræða málefnin verða hin pólitísku átök harðari og óvægnari en ella. Þegar miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi er því afli beitt sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir að þeim hags- munum sé stefnt í voða. Eftir sitja þrumu lostnir kjósendur. Líklega fæst seint úr því skorið hver segir satt í deilum for- sætisráðherra og forráðamanna Baugs. En í þessu sambandi er athyglisvert að rifja upp síðustu áramótaræðu Davíðs Oddsson- ar. Þar ræddi hann um heiður og taust: „Furðu margir segja hálfsatt eða ósatt og virðast ekki leiða hugann eina örskotsstund að heiðri sínum og orðstír og það sem lakara er, enginn hermir framkomuna upp á viðkomandi og ótrúlega mörgum virðist standa á sama ... Traust er mikilvægasti þátturinn í því, sem þeir er sýsla með fyrirtæki kalla viðskiptavild. Traust getur maður ekki fengið lánað og heldur ekki keypt. Maður verður að ávinna sér traust með framgöngu sinni og það er ekki hlaupið að því að endurheimta það, ef það glatast." Óli Björn Kárason 4" ÞRIÐJUDAGUR 4, MARS 2003_ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 Skoðun Stund skussanna Gerhard Schröder kanslari og Jacques Chirac, for- seti Frakklands. - „Með yfirlýsingunni heita þeir m.a. að standa saman að málum í alþjóðlegum nefndum og ráðum, Öryggisráði SÞ meðtöldu, og Ijá Evrópu nýja öryggis- og vamarstefnu af nýjum „gœðum“. Fyrsta fórnin er sameiginleg utanríkis- og öryggispólitík Evrópu. “ í þýskum sjónvarpsþætti í beinni útsendingu voru stórmenni í þýskri pólitík ásamt gestum, krataráð- herra, varaformaður kristi- legra og formaður Græn- ingja ásamt yfirmanni í þróunarstofnun. Umræðu- efnið var íraksdeilan og Þýskaland. A. Beer, formaöur þýskra Græn- ingja, hélt hjartnæma og upp- tendraða ræðu um að reyna þurfl allt til að koma í veg fyrir átök í írak; ekkert megi vera óreynt og fjölga þurfi eftirlitsmönnum SÞ og ná samningum. H. Al-Mozarnyk, íraskur útlagi og gestur, sagði þá rólega: „Hvernig á að semja við brjálaðan mann?“ Nokkra þögn sló á hópinn. - Til þessa hefur enginn getað samið við Saddam, ekki um nokkum skapaðan hlut. - Tónn fundarins breyttist umsvifalaust. Hvernig stendur á því að alltaf verður að byija á Adam og Evu í þessu máli til að umræður fái jarð- samband og ekki sé bullað um eitt- hvað ónýtt. Þjóðverjar og Frakkar hafa lagt mikið upp úr því að fjölga eftirlits- mönnum. H. Blix, formaður eftir- litsins, sagði að árangur byggðist ekki á fjölda eftirlitsmanna; hon- um er treyst til að stjórna eftirliti en ekki að meta mannaflaþörf. Hvað eru menn að rugla út um allt, í þessu tilviki Þjóðverjar og Frakk- ar? C. Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði fyrir nokkru að árangur byggðist ekki á tíma heldur afstöðu ráðamanna í írak. Helsta aðferðin til að tefja málin og vinna tíma er eins og allir vita að alltaf eigi að gefa eftirliti meiri tíma, enn og aftur eftir 12 ára þjark og með óteljandi samþykktir Ör- yggisráðsins í ruslakörfunni. Leiðtogar og lausteymingjar Hvernig gátu málin klúðrast á þann veg sem þau nú eru í? EB, Nató og samband BNA og EB er klofið þvers og kruss og þverstæð- ur æpa. Á flokksfundi krata í janú- ar í Goslar, yndislegum bæ í Neðra-Saxlandi, missti Schröder kanslari út úr sér yfírlýsingu sem sett hefur bæði hann og Þjóðverja í alvarlega klípu. Reiknið ekki með að Þjóðverjar samþykki tillögu í Öryggisráði SÞ sem heimili stríð gegn írak. Og nokkru seinna mátti heyra: „Þýskaland mun ekki taka þátt í hernaði af neinu tagi gegn Irak. Og það verður þannig,“ sagði hann stórmannlega, þegar farið var að þrýsta á hann um útskýr- ingar. Auðvitað eru margir ánægð- ir með þetta pólitískt en afleiðing- arnar voru allar ófyrirséðar, flumbur og fálm kom í kjölfarið. Hvernig gat kanslarinn komið sér í þessi vandræði? Nýlega var kynnt ný yflrlýsing Þjóðverja og Frakka við 40 ára afmæli Elysée-yf- irlýsingarinnar frá tímum de Gaulle og Adenauers; hér kemur J. Chirac forseti til sögunnar. Þeir fé- lagar, hann og kanslarinn, hafa tvímælalaust þurft að ræða margt vegna textans sem síðan var gefinn út. Hver sneri á hvern í þessu er ekki gott að átta sig á. Með yfirlýs- ingunni heita þeir m.a. að standa saman að málum í alþjóðlegum nefndum og ráðum, Öryggisráði SÞ meðtöldu, og ljá Evrópu nýja ör- yggis- og varnarstefnu af nýjum „gæðum“. Fyrsta fórnin er sameig- inleg utanríkis- og öryggispólitík Evrópu. Þeir félagarnir höfðu ekki ráð- fært sig við hin 18 ríkin. Fyrst heyrðist gremjutónn í EB-8 hópn- um með London, Róm og Madrid innanborðs. Síðan kom Vilnius-10 hópurinn (EB-vonbiðlar) sem síðan frábað sér leiðtygistilkall París- Berlínar. Já, dúettinn er á móti einhliða áætlunum BNA en gera sjálfir ráð fyrir einhliða afstöðu sinni. Ótrúverðugt er að ásaka Bush og gera slíkt hið sama sjálfir. Sá sem breytir einhliða öðlast mót- stöðu en ekki fylgifiska. Eftir því sem menn eru nær Rússlandi, þeim mun meiri er tiltrú á BNA; París-Berlín dúettinn breytir því ekki. Pólverjar og Búlgarar töluðu fullum hálsi fyrir sjálfsákvörðun- arrétti sínum þegar Chirac hótaði þeim varðandi inngöngu í EU, enn ein þverstæðan í lýðræði. Veifiskati og vingull Annað fórnardýrið er Nato, en Þýskaland ásamt konfektstórveld- inu Belgíu hótaði að beita neitun- arvaldi gegn stuðningi við Tyrk- land í tilviki árásar frá írak; tríóið taldi að þess þyrfti ekki með og fæli í sér fyrirframætlun um árás, en hana ætlaði Chirac hvort sem er að stöðva. Auðvitað ættu menn að vita þaö að Nato stenst ekki nema „prinsippið" um sameigin- legar varnir haldi. Svo mikill var hamagangurinn í Chirac að Schröder er nú sem pólitískt hrak, innanlands og utan. Hann og J. Fischer eru komnir í hár saman og svo virðist sem traust þeirra á milli sé forbí um sinn. Eftir Elysée-yfirlýsinguna lýsti Chirac því yflr með miklum til- burðum leikara sem trúðs, að eng- in ástæða, alls engin, væri til að ráðast á írak. Svona bull sjá flestir í gegn um. Auðvitað eru margar ástæður fyrir hendi en menn geta metið þær svo að fleira mæli gegn árás. Ef reynt er að skoða markmið með árás á írak eru þau ekki öll uppi á borðinu. Flestir vita að Saddam þarf að fá burt því hann er óútreiknanlegur stórglæpamaður, afvopna þarf landið, endi verði bundinn á áralanga glímu við SÞ, frelsa þarf þjakaða íbúana, hryðju- verkamenn útilokaðir og eins og sumir ætla, olíuvinnslu á fulla ferð. Svo eru önnur rök sem BNA minnast ekki á en sumir ætla þeim að stórveldið geti hlutast til um stjórnir landa og fjarlægja spillta og glæpsamlega valdamenn. Póli- tískir andstæðingar BNA ætla þeim allt hið versta í þessu efni. Þó eru sennilega flestir þeirrar skoðunar að írakar muni sjálfir ákveða nýtingu olíunnar án íhlut- unar BNÁ; einmitt í þessum efni skiptast leiðir á milli þeirra, sem nú fylgja árás og hinna sem stöðugt streitast á móti öllu amer- ísku. Senn kemur betur í ljós að fyrirhuguð árás snýst ekki bara um írak heldur ekki síður um BNA sjálf í ljósi allra aðstæðna, stærðar, áhrifa í heiminum, 11.9,- árásar og annarra á BNA og Bandaríkjamenn sjálfa og allt sem amerískt er um heim allan. Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur Kjallari Sandkom sandkorn@dv.is Á laugardaginn var birtist í Fréttablaðinu frétt um fund Davíðs Oddssonar og Hreins Loftssonar, stjórnarformanns Baugs, sem líklega má telja neistann að þeirri pólitísku kjarnorkusprengju sem sprakk í viðtali Útvarpsins við Davíð í gærmorgun. Tímasetning fréttarinnar var við hæfi, en hún birt- ist á degi heilags Davíðs! Davíð þessi var munkur sem kristnaði vestur- hluta Bretlands á 6. öld. Hann var meinlætamaður sem neit- aði sér um flest annað en vatn og brauð en var þó hraustur mjög og sterkur. Kóngablóð mun hafa runnið í æðum hans og hann er sagður hafa geflð Bretum ýmsar snjallar ráðlegg- ingar í hernaðarlist. í alfræði- bókum er tekið fram að margar sögur séu tU af heflögum Davíð en mjög sé á reiki hvað af því sé staðreyndir og hvað hreinar getgátur... Ummæli Skpýtinn ávani „Það hefur reyndar gerst oftar en einu sinni.“ Bryndís Jónsdóttir, varamarkvöröur kvennaliös Hauka í handbolta, sem segir fréttablaöinu „Vikulega í Firöin- um“ að þaö neyöarlegasta sem hUn hafi gert sé aö fara næstum inn í bil hjá bláókunnugum manni. 1 hvens þá? „Eingöngu er mokuð heimreiðin, þó ekki síðustu 50 metrarnir." Úr nýjum reglum Grímsness- og Grafn- ingshrepps um snjómokstur og hálku- varnir, þar sem segir aö hægt sé að óska eftir snjómokstri heim aö lögbýl , um. Ys og þys ut af engu „Við erum alltaf að fara á einhverjar há- tíðir, koma svo heim og monta okkur í blöðunum - til að fá meira áhorf. Þessar kvikmyndahátíðir eru bara ekki nærri eins mikið húllumhæ og nafnið gefur til kynna.“ Guöný Halldórsdóttir kvikmyndaleik- stjóri í Morgunblaðinu. IMei - heyrðu nú! „[Það mætti hugsa sér að] kjósend- ur væru beðnir um að forgangsraða flokkunum, t.d. frá 1-4 þar sem 4 flokkar byöu sig fram. Miðað við stöð- una í dag væri hugsanlegt að miðju- flokkurinn, þ.e. Framsóknarflokkur- inn, yrði þá oftast settur í 2. sætið en hinir flokkarnir, þ.e. Sjálfstæðisflokk- urinn, Samfylkingin og Vinstri-græn- ir, skiptu á milli sín 1., 3. og 4. sæt- inu. Þannig gæti Framsóknarflokkur- inn fengið flest stig út úr kosningun- um og yrði því stærsti flokkurinn í landinu." Guömundur Freyr Sveinsson, frambjóö- andi Framsóknarflokksins, í grein á , Maddömunni.is. I óvæntni vist BDH „En miðað við hraustlega róttækni I mina á þessum árum pt ™ “ ?l heföi mér tæplega QL - y dottið í hug að ég ætti Sk. 'jÆ síðar eftir að verða húskarl hjá Björgólfi ' f —Æ Guðmundssyni. Svona lumar lífið nú á ýmsu.“ Halldór Guömundsson, Utgáfustjóri Eddu, í viötali við Morgunblaðiö. Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi alþingismaður Kjallari Peningalyktinni er auðvelt að eyða lega mikið eftir ástandi hráefnis og veðurfari. Hver þekkir ekki peninga- lyktina svoköiluðu sem fylgt hefur fiskimjölsverk- smiðjum hérlendis frá upphafi til mikils ama fyrir marga? Mikið hefur verið gert í tækni- legum endurbótum á flestum fiski- mjölsverksmiðjum að undanfórnu með nýjum aðferðum, m. a. við þurrkun á mjöli og vinnslu soð- kjarna sem gerir kleift aö koma í veg fyrir alvarlega mengun ef rétt er staöið að rekstri. Grútarmeng- un í sjó ætti því að heyra sögunni til, en þó kemur hún fjrir alltof oft vegna þess að settum reglum er ekki framfylgt og eiga þar hlut að máli hæði veiðiskip við löndun og verksmiðjurnar. Eftir stendur hins vegar „pen- ingalyktin“, loftmengun af marg- víslegum efnasamböndum sem valda hvimleiðum og oft skelfileg- um ódaun sem leggur yfir byggðir í grennd verksmiðjanna, misjafn- Viöráðanlegar tæknilausnir Lengi hefur því verið borið við af forráðamönnum fiskimjölsverk- smiðja, að allt sé gert sem unnt sé til að draga úr þessari hvimleiðu mengun og j'afnvel staðhæft að lengra verði ekki komist. Hafi þetta átt við einhver rök að styðj- ast er svo ekki lengur, því að þeg- ar eru komin í notkun hérlendis ráð sem duga til að eyða nær alveg peningalyktinni. Akureyringar og gestir þar í bæ þekkja af langri reynslu loftmengunina frá fiski- mjölsverksmiðjunni í Krossanesi. ísfélag Vestmannaeyja, sem nú er eigandi verksmiðjunnar, tók fyrir fáum árum á þessu vanda- máli og frá því á árinu 2001 er verksmiðjan þar komin með bún- að frá fýrirtækinu MEGTEC og hefur hann reynst vel til lykteyð- ingar þannig að kvartanir eru að heita má úr sögunni og helst rakt- ar til annars fyrirtækis, fóður- verksmiðju sem starfrækt er á sama stað. Bæði skoðanakannanir og athuganir á vegum Hollustu- verndar staðfesta þetta. Farið var yfir þessi mál á fundi með talsmönnum ísfélagsins, framleiðendum búnaðarins og full- trúum Hollustuverndar og heil- brigðiseftirlitssvæða 14. febrúar síðastliðinn. Upplýst var að MEG- TEC ábyrgist 98% virkni búnaðar- „Eftir stendur hins vegar „peningalyktin“, loftmengun af margvíslegum efnasamböndum sem valda hvimleið- um og oft skelfilegum ódaun sem leggur yfir byggðir ígrennd verksmiðjanna, misjafnlega mikið eftir ástandi hráefnis og veðurfari.“ ins með einfóldu kerfi og 99,6% eyðingu lyktarefna með viðbótár- búnaði. Orkukostnaðurinn við brennslu ólyktarefnanna við 1000°C er vel viðráðanlegur að sögn talsmanns ísfélagsins. Eftir engu aö bíöa Nú þegar þetta liggur fyrir er ekki eftir neinu að bíða að setja fiskimjölsverksmiðjunum skilyrði um lykteyðingu með besta fáanleg- um búnaði. Hollustuvernd hefði mátt standa betur að málum við að upplýsa almenning um þá tækniþróun sem orðið hefur að undanfórnu og setja skilyrði um lykteyðingu í starfsleyfi verk- smiðjanna. Á þessu hlýtur að verða ráðin bót fyrr en seinna, því að það er engum til góðs að fram- lengja núverandi ástand. Tæknin sem kynnt var á um- ræddum fundi byggist m. a. á því að verksmiðjuhúsunum er haldið lokuöum svo að þau verða hið innra í undirþrýstingi og þannig næst að soga mengað loft til brennslubúnaðar frá öllum upp- sprettum í byggingunum. Slíkt er ekki aöeins til bóta fyrir ytra um- hverfi heldur einnig fyrir starfs- menn verksmiðjanna, forráða- menn og eigendur. Jafnframt þarf auðvitað að tryggja að mengað loft berist ekki frá löndunarbúnaði og geymslum. Almenningur og sveitarstjórn- armenn þmfa að fylgja kröfum um úrbætur fast eftir og góð rekstrar- afkoma í fiskimjölsiðnaðinum nú um stundir ætti að vera hvatning til dáða. +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.