Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003
29
I>V
Sport
Jóhannes Karl
Guðjónsson í
baráttu viö
Christian Dugg-
arry áöur en sá
fyrrnefndi fékk aö
líta rautt spjald
Ferill Ríkharðs
Ferill Ríkharðs Daðasonar,
landsliðsmanns í knattspyrnu hjá
norska liðinu Lilleström, kann að
vera i hættu eftir því sem fram
kemur í norska blaðinu
Romerikes Blad. Norsku stórblöð-
in Verdens Gang og Aftenposten
vitna einnig í umrædda frétt á
vefsíðum sínum í gærkvöld. Rík-
harður hefur átt við þrátlát hné-
meiðsli að stríða í nokkur ár og
hefur ekki fengið bót meina sinna
þrátt fyrir aðgerðir.
Ríkharður segist i samtali við
Romerikes Blad í gær hafa
áhyggjur af gangi mála en hann
hefur lítið sem ekkert æft með lið-
inu á undirbúningstímabilinu en
hann dvelst þessa dagana með
Lilleström á Spáni. Keppni í
norsku úr-
valsdeildinni
hefst eftir sex
vikur og
stendur
undirbúning-
ur norskra
knattspyrnu-
manna sem
hæst. „Það
getur brugðið
til beggja
vona og þessi
meiðsli geta bundið enda á knatt-
spyrnuferilinn hjá mér,“ segir
Ríkharður.
Terje Braathen, sjúkraþjálfari
Lilleström, er ekki eins svartsýnn
og Ríkharður og segir allt verði
gert sem í þeirra valdi stendur til
V ''11 " " 1 r I > Ll ! I! 11! rrn 11 i III! | ! I í 11 V
l rí ' ■" ■■■' 1 ;jÉð£a
Grindvíkingar tryggöu sér í gærkvöid deildarmeistaratitilinn í körfuknattleik þegar ein umferö er eftir af
deildarkeppninni. Hér má sjá liðiö fagna aö leik loknum á heimavelli sínum í Grindavík. DV-mynd Víkurfréttir
Grindvíkingar lögöu Hauka aö velli í Intersportdeildinni:
Grndiflkingar
deihbrmeistarar
Aston Villa og Birmingham
áttust við í nágrannaslag í
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld og og fór
Birmingham með sigur af
hólmi, 0-2. Það voru þeir Lazari-
dis og Horsefield sem skoruðu
mörk Birmingham, en reyndar
var það síðara ólöglegt þar sem
boltanum var spyrnt úr höndum
markvarðar Aston Villa, áður
en Horsefield lagði knöttinn í
autt markið.
Dion Dublin, leikmaður
Aston Villa, var rekinn af leik-
velli á 53. mínútu eftir að hafa
skallað Robbie Savage i andlitið,
eftir að Dublin hafði brotið á
Savage og þá var Jóhannes Karl
rekinn af velli á 80. mínútu fyr-
ir óhemjuljótt brot. Hafði
reyndar fengið gult spjald rétt
áður. Leikurinn var hinn leið-
inlegasti á að horfa, grófur, lítt
um að knattspyma væri leikin
og var ljótur blettur á
iþróttinni. Minnstu munaði að
brytust út ólæti á áhorfenda-
bekkjum í kjölfar brottreksturs
Jóhannesar Karls.
Jóhannes Karl Guðjónsson
lék allan leikinn á miðjunni hjá
Aston Villa en náði ekki að sýna
neina sérstaka takta í leiknum,
en nældi sér hins vegar í gult
spjald. Hann var þó sterkur á
miðjunni og stóð oft í ströngu í
leiknum. Christian Dugarry
gæti þó verið í slæmum málum
eftir viðskipti sín við Jóhannes
Karl því i fyrri hálfleik hrækti
hann á eftir Jóhannesi Karli og
án efa á þetta eftir að vekja at-
hygli enska knattspymusam-
bandsins. -PS
Grindvík-Haukar 105-80
2-0, 2-15, (12-15), 14-15, 23-19, 29-26, 29-36,
(44-38), 46-38, 51^9, 63-51, 71-55, (74-59),
76-59, 8&-59, 86-61, 93-63, 97-67, 100-78,
105-80.
Stig Grindvik: Helgi Guöfinnsson 31,
Guölaugur Eyjólfsson 18, Páll A.
Vilbergsson 18, Predrag Pramenko 15,
Guðmundur Bragason, Guömundur
Ásgeirsson 7, Jóhann Þ. Ólafsson 4, Nökkvi
M. Jónsson 2.
Stig Haukar: Stevie Johnson 25, Sævar I.
Haraldsson 18, Halldór Kristmannsson 9,
Þórður Gunnþórsson 9, Predrag Bojovic 7,
Ingvar Þ. Guöjónsson 5, Ottó Þórisson 5,
Vilhjálmur S. Steinarsson 2.
Dómarar (1-10): Helgi Bragason og Rúnar Gisla- son, (8). Gœði ieiks (1-10): 8. Áhorfendur: 350.
Ma&ur leiksins: Helgi J. Gu&finn V / sson, Grindavík
Fráköst: Grindvík 44 (14 í sókn, 30 í
vörn, Guðmundur B. 16 ), Haukar 36 (14 í
sókn, 22 í vöm, Johnson 7, Bojovic 7).
Stoósendingar: Grindvík 25 (Jóhann 8),
Haukar 16 (Johnson 4).
Stolnir boltar: Grindvík 9 (Páll 3, Helgi
3), Haukar 8 (Vilhjálmur 2, Marel 2).
Tapaöir boltar: Grindvík 15, Haukar 13.
Varin skot: Grindvík 3 (Guömundur
Ásgeirsson 2, Pramenko 1), Haukar 1
(Gunnar Sandholt 1).
3ja stiga: Grindvík 18/30 (60%), Haukar
8/21 (38%).
Víti: Grindvík 15/20 (75%), Haukar 10/17
(59%).
Grindvikingar tryggðu sér deildar-
meistaratitilinn í Intersportdeild
karla í körfuknattleik í gærkvöld í
Röstinni, með hreint stórkostlegum
sigri á spútnikliði Hauka. Þetta er í
annað sinn sem Grindvíkingar
hampa þessum titli en fyrra skiptið
var árið 1998. Grindvíkingar léku án
Darrell Keith Lewis, sem er meiddur,
og ekki er vitað hversu alvarleg þau
meiðsli em.
Það var skjálfti í heimamönnum í
byrjun enda hafa Haukar verið að
gera frábæra hluti í vetur og það af-
skrifar þá enginn heilvita maður.
Þeir mættu grimmir til leiks og
komust í 2-15. Var ekki laust við að
beyg setti að Grindjánum í húsinu
enda hittu þeirra menn afar illa og
taugaveiklunin allsráðandi. Með
seiglu og góðri vöm tókst þeim þó að
setja undir lekann, skoruðu tíu síð-
ustu stigin í leikhlutanum og náðu
þar með úr sér mesta hrollinum. Þeir
náöu síðan frumkvæðinu og forskot-
inu í byrjun annars leikhluta en
Haukarnir náðu að skora tíu stig í
röð og náðu mest sjö stiga forskoti.
Þá fór allt á fleygiferð hjá heima-
mönnum sem skomðu 15 stig gegn
aðeins 2 og höfðu 6 stiga forskot í
leikhléi, 44-38. Þessi lokakafli fyrri
hálfleiksins hjá Grindvíkingum var
aðeins forsmekkurinn að því sem
koma skyldi í seinni hálfleik. Þeir
hreinlega tóku öll völd á vellinum,
spiluðu frábæra vöm þar sem barátt-
an var aðdáunarverö og síðan var sett
á svið 3ja stiga sýning þar sem í aðal-
hlutveríd vom þeir Helgi Jónas Guð-
finnsson og Guðlaugur Eyjólfsson.
Á lokakaflanum varð munurinn
mestur 30 stig og lykilleikmenn fengu
verðskuldaða hvíld sem og dynjandi
lófatak. Haukar sýndu aðeins sitt
rétta andlit í upphafi leiks en þeir
áttu fá svör við góðri vöm heima-
manna og réðu ekkert við skyttur
þeirra. Stevie Johnson lék mjög vel í
öðrum leikhluta en þetta var einfald-
lega ekki hans dagur, Sævar I. Har-
aldsson átti góða innkomu í þriðja
leikhluta.
Þetta var hins vegar dagur þeirra
Grindvíkinga sem voru staðráðnir í
að sýna fram á að þeir gætu klárað
dæmið þótt Lewis væri frá. Eftir
slæma byrjun sýndi liðið hvað raun-
verulega í því býr; einn fyrir alla, all-
ir fyrir einn. Til hamingju, Grindvík-
ingar, með virkilega verðskuldaðan
deildarmeistaratitilinn.
í leikslok kom DV-Sport að máli
við Guðmund Bragason sem sneri aft-
ur í heimahagana í haust eftir nokk-
urra ára fjarveru. Gummi hefur
leikið vel í vetur og hann hafði þetta
að segja: „Ég hef sjaldan séð meiri
baráttu í liði en hér hjá okkur í
kvöld. Það var barist um alla lausa
bolta og öll fráköst enda urðum við að
stíga upp og sýna úr hverju við emm
gerðir. Síðan var hittnin hjá strákun-
um alveg ótrúleg en það fylgir barátt-
unni og vöminni, það kemur stemn-
ing í hópinn og menn fá trú á því sem
þeir em að gera.
Við erum með hörkulið sem getur
á góðum degi spilað alveg glimrandi
vel, við höfum spilað illa inn á milli
en alltaf rifið okkur upp aftur og það
er mjög gott að vinna deildina því það
em mörg virkilega góð lið í henni.
Nú hins vegar tekur við alveg ný
keppni og við verðum að koma okk-
ur fljótt niður á jörðina og búa okkur
undir hana,“ sagði baráttujaxlinn
Guðmundur Bragason.
-SMS
íhættu
að koma Ríkharði i gang aftur.
Ríkharður lék áður með Viking
frá Stavangri og enska liðinu
Stoke en þaðan kom hann til
Lilleström í fyrra. Fyrir rúmum
tveimur árum munaði minnstu að
Ríkharður færi til þýska liðsins
Hamburger SV. Við læknisrann-
sókn kom í ljós hnéskaði og varð
ekkert af kaupum þýska liðsins á
Ríkharði á elleftu stundu.
Það mun koma í ljós á næstu
vikum hvort Ríkharður leikur
með Lilleström á næsta tímabili.
Hann hefur ekki verið eini leik-
maður liðsins sem átt hefur í
meiðslum en þýski leikmaðurinn
Uwe Rösler er þó á góðum bata-
vegi og verður klár í slaginn á
næstunni. -JKS
Ársþing GLÍ:
SkuMaust
samband
Ársþing Glímusambandsins
fór fram um helgina, en á þing-
inu kom það fram í skýrslu
stjórnar að fjárhagur sambands-
ins væri traustur um þessar
mundir. Skuldir sambandsins
hafi verið gerðar upp og það þvi
skuldlaust og er eflaust eitt fárra
sérsambanda innan ÍSÍ sem svo
er komið.
Ýmsar tillögur voru lagðar
fram á þinginu. Samþykkt var
að setja á stofn sýningarflokk
sem sýndi glímu og þjóðlega
leiki við hin ýmsu tækifæri. Þá
voru samþykktar viðamiklar
breytingar á glímulögum og að
kanna yrði aðild að keltneska
fangbragðasambandinu.
Kristján Ingvason var
endurkjörinn formaður
Glímusambandsins. -PS
KÖRFUBOLTI J
CO B A
Úrslit í nótt
Memphis-Boston .........110-1X1
Gasol 23 (17 frák.), Battier 21, Person
18 (7 frák.) - Pierce 31 (13 frák.), Brem-
er 23, Walker 17 (14 frák., 6 stoð.).
Chicago-Orlando.........89-104
Rose 24, Marshall 15 (11 frák.), Chandler
13 (10 frák.) - McGrady 26 (9 frák., 13
stoð.), Garrity 21, Giricek 18 (7 frák.).
Sacramento-Philadelphia . .107-99
Webber 29 (10 frák., 8 stoð.), Jackson 18,
Divac 17 (13 frák., 7 stoð.) - Iverson 35,
Van Horn 17, Snow 15 (10 stoðs.).
LA Clippers-New Orleans 108-111
Maggette 24, Richardson 22, Miller 21
(9 stoðs.) - Mashbum 35 (10 stoðs.),
Wesley 23, Magloire 13 (8 frák.).
K A R L A R
37"
INTERSPORTDEILP
Grindavík
Keflavík
KR
Haukar
Njarðvík
Tindastóll
iR
SnæfeU
Staðan:
21 17 4 1960-1771 34
21 16 5 2105-1760 32
21 15 6 1874-1721 30
21 14 7 1892-1817 28
21 12 9 1742-1755 24
21 11 10 1871-1868 22
21 11 10 1831-1883 22
21 8 13 1689-1706 16
Breiðablik 21 7 14 1890-1974 14
Haraar 21 7 14 1896-2046 14
SkaUagr. 21 4 17 1725-1923 8
Valur 21 4 17 1697-1948 8
Næstu leikir:
Haukar-KR .. fím., 6. mars kl. 19.15
Keflavík-SnæfeU . . 6. mars kl. 19.15
Hamar-Grindavík . 6. mars kl. 19.15
Njarövík-Breiðablik 6. mars kl. 19.15
Valur-SkaUagrímur 6. mars kl. 19.15
tR-TindastóU........6. mars kl. 19.15