Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Side 32
Sérkennilegar „innheimtuaðgerðir11:
Venktakar með motmælaspjöld
Fulltrúar fjögurra verktaka,
alls um 20 manns, mættu í morg-
un fyrir utan heimili stjórnarfor-
manns Hótel Búða á Snæfellsnesi
í Garðabæ, Þormóðs Jónssonar,
með mótmælaspjöld. „Þessi þátt-
taka er bara toppurinn á ísjakan-
um. Áður en hann ók burt á bíln-
um sínum hreytti hann miklum
ónotum i okkur og taldi þetta
vera mikinn dónaskap við sig og
sina fjölskyldu að við værum að
minna á okkur hér. Auðvitað er
það ekki þægilegt fyrir manninn.
Hann minntist aftur á móti ekk-
ert á þann dónaskap sem hann
hefur sýnt okkur með því að
greiða okkur ekki fyrir unnin
verk fyrir vestan. Við erum
margir verktakar sem höfum
ekki fengið greitt og um margar
milljónir að ræða. Við höfum orð-
ið varir mikilla „leikfimisæf-
inga“, þ.e. seldar eignh* á milli
Mótmælastaða verktaka vegna Hótel Búða
Verktakar viö byggingu Hótel Búöa á Snæfellsnesi mættu í morgun viö heimili stjórn-
arformannsins, Þormóös Jónssonar í Garöabæ, meö mótmælaspjöld. Verkkaupi
skuldar verktökum a.m.k. 53 milljónir króna. Einn verktaka segir gjaldþrot hótelsins
einu sjáanlegu leiöina í stööunni.
kennitalna þannig að menn grípa
bara í tómt. Við höfum einnig
ljósrit af afsölum og kaupsamn-
ingum frá sýslumanninum í
Stykkishólmi þar sem skuldabréf
fyrir eigninni Fmnast ekki. Við
höfum reynt árangurslaust fjár-
nám. Við þetta getum við ekki
sætt okkur lengur. Þetta er bara
fjárglæframennska," segir Baldur
Bjömsson hjá Gólflögnum í Súð-
arvogi.
Þormóður Jónsson segir
Byggðastofnun og Landsbankann
vinna með þeim að fjármögnun-
arferli og því sé þetta ekki glatað
fé. „Þeir eru með ærumeiðandi
ummæli og rógburð í minn garð
og hótanir auk þess að vera hér
án leyfis lögreglu, og ég mun
leggja fram kæru á hendur þeim.
Þeim verður gert að koma með
afsökunarbeiðni," segir Þormóð-
ur Jónsson. -GG
f
LEX
boutique
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
, ‘Bónstöðín
IS-TEFLON
Bryngljái - lakkvörn
Hyrjarhöfði 7 • Sími 567 8730
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ