Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003
Fréttir DV
Fyrsta almenna vetnisstöö heims opnuö í Reykjavík 24. apríl:
7 milljóna dollara vetnis-
stöð á leið frá IMoregi
Norsk Hydro sendi í gær af staö til
íslands fyrstu vetnisstöðina fyrir al-
menna notkun vegna eldsneytisáfyll-
ingar fyrir ökutæki. Þó slíkar stööv-
ar hafi áður verið settar upp til
einkanota hjá fyrirtækjum erlendis
hefur slíkt ekki áður verið gert til al-
mennra nota. Verður þessi fyrsta
vetnisáfyllingarstöð heims fyrir al-
menn ökutæki opnuð á lóð Skeljungs
við Vesturlandsveg í Reykjavík á
sumardaginn fyrsta, 24. apríl. Stöðin
er hluti af samstarfsverkefni ís-
lenskrar NýOrku ehf., Daim-
lerChrysler og fLeiri erlendra aðila
um vetnissamfélag á íslandi. Er verk-
efhið m.a. í tengslum við svokallað
ECTOS-verkefni sem styrkt er af Evr- af ESB. Vetnisstöðin á íslandi verður
ópusambandinu en það er systur- eins og áður sagði búin búnaði frá
verkefninu CUTE sem rekið er beint Norsk Hydro til að kljúfa vetni úr
vatni með rafgreiningu. Kostar bún-
aðurinn um 7 milljónir dollara.
íslensk stjómvöld ákváðu 1998 að
taka þátt í þessu verkefni og hefur
mjög verið horft til framsýni íslend-
inga í þessum málum víða um heim.
í tengslum við opnun vetnisstöðvar-
innar verður haldin ráðstefha um
notkun og dreifikerfi vetnis. Verður
hún undir fyrirsögninni: Að gera
vetni aðgengilegt fyrir almenning.“
Þá mun við opnun stöðvarinnar
verða tekin í notkun fyrsta
vetnisknúna bifreiðin hér á landi.
Verðm- þar um að ræða Mercedes-
Benz sendibifreið af Sprinter-gerð.
-HKr.
Göngin fyllt-
ust af reyk
Mikill reykur úr flutningabíl
fyllti Hvalfjarðargöngin um tíu-
leytið í gærkvöld. Lögregla og
slökkvilið á Akranesi og af höfuð-
borgarsvæðinu hafði mikinn við-
búnað vegna atviksins og var
þyrla Landhelgisgæslunnar í við-
bragðsstööu. Spíss í vél flutninga-
bílsins gaf sig með þeim afleið-
ingum að hráolía lak niður í
sveifarhús vélarinnar. Varð
sprenging og fyllti mikill reykjar-
mökkur göngin. Nokkrir bílar
voru í göngunum en þeir komust
leiðar sinnar án vandræða.
Reykræst var úr göngunum en
vaktmenn hjá Speli höfðu áður
þurft að hörfa frá vegna reyks.
Mikill reykur kom úr göngunum
sunnanmegin þegar byrjað var að
rykræsta og þá hjálpaði stíf norð-
anátt til. Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins komst því ekki að fyrr
en búið var að reykræsta. Þrátt
fyrir reykinn kviknaði ekki í
bílnum. Nokkur uggur var í
mönnum vegna atviksins en allt
fór betur en á horfðist. -hlh
DVAÍYND E.ÓL.
Nýtt hús undir KPMG
Nýbyggingar setja orðiö sterkan svip á Borgartúnið. Þessi nýbygging er aö Borgartúni 31, á bak viö gamia Sindrahúsiö, og veröur
samtais 8 hæöir. Þarna munu höfuöstöövar endurskoöunarfyrirtækisins KPMG veröa til húsa frá og meö september.
Enn byggt í Borgartúni:
KPMG flytup í stóphýsi
Endurskoðunarskrifstofa KPMG
mun flytja í nýtt 8 hæöa skrifstofu-
hús sem er að rísa í Borgartúni, á lóð-
inni þar sem Sindraskemman var
áður. Húsið er alls 700 fermetrar á 8
hæðum en efsta hæðin verður inn-
dregin. Bílageymsla fyrir 54 bíla
verður í kjallara hússins. Verður
húsið klætt náttúrusteini og gleri.
Byggingafélag Gylfa og Gunnars
byggir húsið. Teikningar að því
voru samþykktar í október og var
þá strax hafist handa við að grafa
fyrir grunninum. Uppsteypa hófst í
október og síðan hafa hlutirnir
gerst hratt enda veðrið leikið við
byggingaverktaka víðast hvar
þennan vetur. Gert er ráð fyrir að
húsið verði tilbúið til notkunar í
september.
Borgartúnið hefur tekið miklum
breytingum síðustu misseri en þar er
mikið af nýbyggingum og mun meira
líf en áður. Enn má búast við að
byggt verði í Borgartúni en bygging-
arreitur er á lóðinni vestan nýja
hússins sem hér segir frá. -hlh
Stuttar fréttir
Ekki best í heimi
íslenska vatnið fær ekki góða
einkunn hjá Mennta- og vísinda-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.Ýís-
lenska vatnið hafnaði í 19. sæti í
könnun sem náði til 122 landa, en
Finnar hafa besta vatnið. ísland
er hins vegar í öðru sæti þegar
eingöngu vatnsmagn á íbúa er
mælt. - RÚV greindi frá.
Kárahnjúkakvikmynd
Alls bárust 32 umsóknir um gerö
heimildarmyndar vegna Kárahnjúka-
virkjunar sem Landsvirkjun bauð út.
Sérstök nefhd hefur valið 7 umsóknir
úr þessum hópi. Óskaö er eftir að
kvikmyndafyrirtækin geri frekari
grein fyrir hugmyndum sínum um
efnistök og kostnað við verkefiiið.
Evróvisjónlaginu breytt
Segðu mér allt, eftir Hallgrím Ósk-
arsson, í flutningi Birgittu Haukdal,
verður framlag íslands í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stööva í Lettlandi, þrátt fyrir að trún-
aðarmenn STEFS treysti sér ekki til
þess að mæla með því að lagið verði
flutt núverandi mynd, vegna hættu á
málsókn ef höfundur Right here wait-
ing kæri lag Hallgríms. Gert er ráð
fyrir endurútsetningu íslenska lags-
ins.
Jafnt í vígslubiskupskjöri
Séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson
og séra Kristján Valur Ingólfsson
fengu 30 atkvæði hvor í síðari umferð
kosninga til vígslubiskups á Hólum
en atkvæði í kosningunum voru talin
á Biskupsstofu í gær.
Mest kaupmáttaraukning
Kaupmáttur launa á almennum
vinnumarkaði jókst um 27% á íslandi
á tímabilinu 1995 til 2003 en var tæp
12% í OECD-ríkjum að meðaltali.
Þetta kemur fram á fréttavef Sam-
taka atvinnulífsins sem vísa til gagna
Efnahags- og framfarastofnunar Evr-
ópu. Þar kemur fram að á þessu tíma-
bili hafi kaupmáttur nánast staðið í
stað á evrusvæðinu.
-HKr.
Bckert bana-
slys í 144 daga
Ekkert banaslys hefur orðið á ís-
landi undanfama 144 daga - eða í
tæpa fimm mánuði. Síðasta banaslys
í umferðinni var 13. október 2002 en
fram til þess dags hafði árið 2002
verið afar slæmt, en þá höfðu 29
manns látist frá 10. janúar 2002. Því
er um að ræða afar ánægjulegar
fréttir þó svo engin met séu enn fall-
in, hver dagur án banaslyss hlýtur
að teljast góð frétt. Á tímabilinu
október 1996 til 1. apríl 1997 liðu 160
dagar án banaslyss og árið 1968 þeg-
ar íslendingar skiptu úr vinstri um-
ferð yfir í hægri umferð kom tíma-
bil þar sem ekkert banaslys varö
hátt í 6 mánuði.
Svona löng tímabil án banaslysa
eru því miður afar fátíð hér á landi
en að sögn Sigurðar Helgasonar hjá
Umferðarstofu hafa aðstæður verið
ökumönnum afar hagstæðar í vetur,
lítið hefúr verið um ófærð á vegum
og vegna hlýinda hefúr hálka á veg-
um verið meö minnsta móti. Sigurð-
ur segist einnig vonast til að úr
þessu megi lesa að ökumenn á ís-
landi séu orðnir meðvitaðri um að
meiri varúðar sé þörf í umferðinni,
en áðstæðuna fyrir hinu langa tíma-
bili árið 1968 er talin af mörgum
mega rekja til þess að ökumenn þá
hafi verið afar óstyrkir vegna breyt-
inganna og því afar varkárir. -ÆD
1,7% veröbólga
Stærstu fjármálafyrirtæki landsins
spá að meðaltali að hækkun neyslu-
verðsvísitölunnar milli febrúar og
mars verði 0,54% sem er nokkuð ná-
lægt meðaltali hækkana milli þessara
mánaða síðustu ár. Ef rétt reynist
verður 12 mánaða verðbólga 1,7%.
Það sem mun hafa hækkunaráhrif
í mars eru útsölulok á fatnaði, áfram-
haldandi hækkun húsnæðisverðs,
eldsneytisverðs og hækkun á fargjöld-
um Strætó. Greiningardeild Kaup-
þings segir janúarútsölur aö öllu
jöfhu hafa áhrif á vísitölu neyslu-
verðs til lækkunar í febrúar en lækk-
unin gangi þó oftast að mestu til baka
í mars. Muni aðeins hluti af lækkun
vöruverðs vegna vetrarútsalna ganga
til baka að þessu sinni, m.a. vegna
styrkingar krónu.
Búnaðarbankinn segir eldsneytis-
hækkanir stafa bæði af bensín- og ol-
íuhækkun frá miðjum siðasta mánuði
og svo viðbótarhækkun á dísilolíu um
2,3 krónur. Miklar hækkanir hafa
verið á eldsneytisverði að undanfómu
en heimsmarkaðsverð bensíns var
um 11% hærra að meðaltali i febrúar
en janúar.
Landsbankinn gerir ráð fyrir að
verð á búvörum og grænmeti lækki
eilitið en verð á öðrum innlendum
vörum haldist óbreytt. Búist er við
hækkun á þjónustuliðum vísitölunnar
vegna launahækkana um áramót. -VB
I helgarblað
Betri helmingur Birgittu
í Helgarblaði DV á
morgun verður viðtal
við trommuleikarann
sem hreppti hálft kon-
ungsríkið og prinsess-
una að auki. Þetta er
Jóhann Bachmann
sem trommar í Skíta-
móral og írafári og er unnusti
Birgittu Haukdal. Jóhann er alinn
upp við trommuslátt og kynntist
hljómsveitarfélögum sínum á leik-
skóla. í blaðinu er sagt frá svörtum
lista yfir 1000 manns í Bandaríkjun-
um sem mega ekki fljúga. Blaðið
fjallar um drykkjuvenjur James
Bond, 50 ára afmæli Lúðrasveitar
verkalýðsins og upplýsir helstu or-
sakir nágrannaerja.