Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 DV Fréttir Töluverðar skemmdir á greni af völdum sitkalúsar „Hlýindin í vetur hafa verið sitkalúsinni mjög hagstæð," segir Guðmundur Halldórsson, skor- dýrafræðingur hjá Rannsóknar- stöð Skógræktar ríkisins að Mó- gilsá. „Ég er einmitt að koma úr sýnatöku og það er töluvert mikið um lús þrátt fyrir að henni hafi fækkað frá því í haust.“ Guð- mundur segir að hlýindin í vetur hafi valdið því að lúsin hafi verið að fjölga sér fram að jólum og það sé mjög óvenjulegt. Hann segir einnig að lúsin hafi nú þegar vald- ið miklum skaða á grenitrjám og að það verði mikiö barrfall í vor. Trén fella barrið „Sitkalúsin stingur litlum broddi inn um loftaugun á barr- nálunum og viö það á sér stað eitr- un, tréð dregur til sín öll nothæf efni úr nálinni, græni liturinn hverfur og barrið verður brúnleitt og fellur síðan að lokum.“ Að- spurður segist Guðmundur eiga von á töluverðum skemmdum á greni í vor. „Lúsin er aðallega á DV-MYNDIR HARI Mlkið barrfall í vor Guömundur Halldórsson, skordýra- fræöingur hjá Rannsóknarstöö Skóg- ræktar ríkisins aö Mógilsá, segir aö sitkalús hafi valdiö töluveröum skemmdum á grenitrjám í vetur og aö búast megi viö miklu barrfalli í vor. Sitkalús á greni Sitkalúsin ergræn aö lit og meö rauö augu. Hún er einn og hálfur til tveir millímetrar aö lengd og heldur sig á neöra boröi barrsins og skemmdir afhennar völdum koma ekki i Ijós fyrr en nokkrum vikum eftir aö lúsin er á feröinni. stökum trjám í Reykjavík en ekki á heilum lundum. Lúsin sést með berum augum þó betra sé að leita að henni með stækkunargleri. Það er líka gott að halda hvítu blaði undir greininni og hrista hana því þá fellur lúsin á blaðið ef hún er á greininni." Sitkalúsin er græn að lit og með rauð augu. Hún er einn og hálfur til tveir millímetrar að lengd og heldur sig á neðra borði barrsins og skemmdir af hennar völdum koma ekki í Ijós fyrr en nokkrum vikum eftir að lúsin er á ferðinni. Sjaldgæft aö tré drepist Að sögn Guðmundur eru, enn sem komið er, engin efni á mark- aði hér sem hægt er að beita við lágt hitastig. „Skaðinn er raunar að mestu leyti skeður og litlu hægt að bjarga héðan af.“ Guð- mundur segir að fyrir sitt leyti telji hann vafasamt að úða heilu lundina i einu. „Þaö gildir annaö um sparitréð í garðinum og eðli- legt að garðeigendur verji það á fimm eða tíu ára fresti þegar plág- an kemur upp. Reynslan sýnir okkur að lúsin leggst fyrst á blá- Barrið verður brúnleitt Eftir aö lúsin stingur broddi i barriö dregur tréö til sín öll nothæfefni úr nál- inni, græni liturinn hverfur og barriö veröur brúnleitt og fellur síöan aö lokum. greni og síðan á sitkagreni. Ör- sjaldan sést sitkalús á furu og lerki en þaö heyrir til algjörra undantekninga og hún veldur þessum tegundum engu tjóni.“ Guðmundur segir að það sé mjög sjaldgæft að tré drepist að völdum sitkalúsar og að menn ættu því að hinkra aðeins við áður en þeir fella tré sem skemmst hafa að völdum lúsar. „Það verður að vísu alltaf nála- laust inni við stofn en tré klæða þetta af sér þegar nýjar greinar vaxa utan á.“ -Kip Heyrnarlausir mómæltu á Austurvelli í gær: Vilja táknmál viöur- kennt og túlka til þjónustu „Það er hagsmunamál fyrir heyrnarlausa að fá táknmál viður- kennt sem sitt móðurmál. Einnig að réttur til túlkaþjónustu sé tryggður," segir Hafdís Gísladótt- ir, framkvæmdastjóri Félags heymarlausra, í samtali við DV. Félagið efndi til mótmæla á Aust- urvelli í gær. Formaður félagsins, Berglind Stefánsdóttir, afhenti Davíð Oddssyni forsætisráðherra áskorun til ríkisstjórnar um að viðurkenna áðumefndar kröfur - og að þeir sem ekki heyra hafi rétt og möguleika til eðlilegrar þátt- töku í samfélaginu. Hafdís Gísladóttir segir að á síð- ustu vikum hafi heymarlausir sent til menntamálaráðuneytis ell- efu stjórnsýslukærur vegna synj- unar um túlkaþjónustu. Hún bæt- ir við að síðasta áratug hafi fimm stjómskipaðar nefndir fjallað um þessi mál, en starf þeirra litlu skil- að enn sem komið er. Núgildandi reglur eru að heym- Davíð afhentar kröfur Félag heyrnarlausra efndi til mótmæla á Austurvetli í gær og afhenti Davíö Oddssyni forsætisráöherra áskorun um aö fá táknmál viöurkennt sem sitt móöurmál og aö fá rétt til túlkaþjónustu tryggöan. arlausir njóta án endurgjalds þjónustu túlka frá Samskiptamið- stöð heyrnarlausra í samskiptum við opinbera aðila. Til þess séu fjármunir veittir úr opinberum sjóðum. „í eigin vafstri þurfa heyrnar- lausir hins vegar að greiða sjálfir fyrir þjónustu túlka, sem m.a. starfa sjálfstætt. Ég veit dæmi um heyrnarlausan einstakling sem þarf greiða 8.400 kr. fyrir að njóta þjónustu túlks sem var til aðstoð- ar þegar gengið var frá samningi vegna fasteignakaupa. Annað til- vik er húsfundur í fjölbýlishúsi, heyrnarlaus einstaklingur sem þar býr hafði með sér túlk og verð- ur fyrir að greiða rúmar 17 þús- und krónur. Hér er því um stórar upphæðir fyrir heyrnarlausa að tefla - sem sýna vel hversu brýnt mál er að tryggja eðlilegan rétt þessa fólks," sagði Hafdís Gísla- dóttir. -sbs Forsvarsmenn Air Greenland Jan H. Pedersen, Susanne Kattrup Dam og Michael Binzer. Akureyri - Kaupmannahöfn? Grænlandsflug bíður svars Air Greenland ætlar að hefja beint flug til Akureyrar þann 28. apríl næstkomandi. Flugfélagið hef- ur lagt fram pappíra vottaða af dönskum yfirvöldum um að það sé að öllu leyti danskt fyrirtæki en það var nauðsynlegt vegna gildandi flug- samnings milli landanna. Núverandi samningur milli landanna er frá ár- inu 1950 og orðalag í honum gæti haft í för með sér tafir í meöferð samgönguyfirvalda, því þar er ein- göngu rætt um flug frá Reykjavíkur- flugvelli til Danmerkur. Að sögn Michaels Binzer, sölu- og markaðs- stjóra Air Greenland, gerir hann ekki ráð fyrir að þetta orðalag í samningnum muni valda umtals- verðum töfúm. Máhð bíður nú af- greiðslu íslenskra stjómvalda og ef styðjast ætti við þetta ákvæði í samningnum nú, væri allt flug Flug- leiða ffá Keflavík til Danmerkur ekki innan ramma samningsins og því leyfislaust. Einnig er spuming hvort samningurinn frá 1950 hafi ekki falliö úr gildi eftir að ísland gerðist aðili að EES. Flugfelagið ætlar ekki að keppa viö lágfargjaldaflugfélög í verði en telur þó að það geti boðið upp á verð á bilinu ffá 28.400 - til 39.700 krónur. í maí ætlar fyrirtækið að bjóða upp á sérstakt kynningarverö, 25.550 krónur. -ÆD Vestfjaröaleiö: Beint flug til Sviss Ferðaskrifstofa Vestfjarðaleiðar býður upp á flugferðir til Sviss sum- arið 2003 ffá Keflavíkurflugvelli. Flogið er einu sinni í viku til Genfar aðfaranótt laugardags frá 14. júní til 16. ágúst, en nú hefur opnast nýr möguleiki með flugi til Zúrich tvisvar í viku. Með Svissfluginu er um að ræða einfaldasta og fljótleg- asta ferðamáta á milli Sviss og ís- lands en flugtími er um 4 klst. á hvom sfaö og flogið er með 156 far- þega Boeing MD-83 flugvélum. Genf er ein þekktasta borg Evrópu, enda em þar aðsetur flestra æðstu stofn- ana og samtaka heimsins og borgin sjálf er mjög skoðunarverð. Zúrich er stærsta borg Sviss og ekki síður en Genf, vel staðsett í þjarta Evrópu. Hún er mesta við- skipta- og menningarborgin og líka ein fegursta borg landsins. Flogið er til Zúrich vikulega aðfaranótt laug- ardags frá 21. júní til 16. ágúst og í júlí bætist við flug á miðvikudögum með fyrsta flugi 2. júlí en því síðasta þann 6. ágúst. Upplýsingar um áætl- un og verð er að finna á heimasíð- unni www.vestravel.is. -GG DV-MYNDE.ÓL Tvöföldun Reykjanesbrautar Framkvæmdir eru komnar á fullt viö tvö- földun Reykjanesbrautar frá Hvassahrauni aö Strandarheiöi, um 8,6 km leiö, og ekki hefur tíöarfariö tafiö þær fram- kvæmdir. Stórvirkar vinnuvélar eru komn- ar á svæöiö viö Kúageröi og þeim á eftir aö ijölga þegar einnig veröur hafist handa viö mislæg gatnamót á mótum Hvassa hrauns- og Vatnsleysustrandarvegar auk tengingar viö þau.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.