Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003
I>V
7
Fréttir
Vín 2003 á Hótel Loftleiðum um helgina:
Svar við auknum áhuga á vínum
„Menn hafa lengi gengið með hug-
mynd að sýningu sem þessari, þ.e.
sýningu þar sem eingöngu er verið
að fjalla um léttvín, að portvínum,
sérríi og fleiri slíkum vínum með-
töldum. Ég held að stóraukin um-
fjöllun í fjölmiðlum eins og Gestgjaf-
anum,Morgunblaðinu og DV eigi
stóran þátt í að efla léttvínsmenn-
inguna. Við vonum að þessi sýning
svari að einhverju leyti þessum
aukna áhuga almennings á léttvín-
um,“ sögðu þeir Ágúst Guðmunds-
son og Sigurðm- Bjarkason, sem eru
meðal aðstandenda sýningarinnar
Vín 2003 sem fram fer í ráðstefnusal
Hótels Loftleiða á laugardag og
sunnudag.
Helstu vínbirgjar landsins verða
á sýningunni sem hefst kl. 14 og
stendur til kl. 18 báða sýningardag-
ana. Auk almennra vínkynninga
verða fyrirlestrar og vínsmökkun
ofarlega á blaði. Þannig mun Stein-
grímur Sigurgeirsson fjalia um
spænsk vín, ívar Bragason um
ítölsk vín, Þorri Hringsson um vín í
víðu samhengi og Leandro Bastias
um víngerð í Argentínu. Og er þá
aðeins fátt eitt nefnt.
Þeir Ágúst og Sigurður segja til-
gang sýningarinnar fyrst og fremst
vera að hlúa að áhuga fólks á létt-
vínum, jafht meðal almennings, sem
er að kynnast léttvínum og þeirri
menningu sem umlykur þau, og
hinna sem lengra eru komnir. Þar
kemur t.d. val á vínum með mat
sterkt inn í myndina.
„Við leggjum áherslu á að þessi
sýning er fyrir alla sem hafa áhuga
á vinum.“
Aðgangseyrir á Vín 2003 er 1000
krónur. Aldurstakmark er 20 ár.
-hlh
Spáð í dýra dropa
Ágúst Guömundsson og Siguröur Bjarkason segja umfjöilun fjölmiöla hafa
eflt léttvínsmenninguna og aö sýningin Vín 2003 endurspegli þennan áhuga.
Þeir leggja áherslu á aö allir áhugasamir 20 ára og eldri séu velkomnir.
Austur-Hérað:
Bæjarfulltrúar
lá fartölvur
Allir bæjarfulltrúar í sveitarfélag-
inu Austur-Héraði fengu í vikunni
afhentar fartölvur til afnota frá
Tölvusmiðjunni á Egilsstöðum en
fyrirtækiö er samstarfsaöili Skyggn-
is og sér um þjónustuna gagnvart
sveitarfélaginu. Fartölvurnar gera
bæjarfulltrúunum nú kleift að vinna
sín mál í fjarvinnslu utan bæjar-
skrifstofunnar. Þetta er liður í end-
urnýjun upplýsingatæknimála hjá
Austur-Héraði sem hófst með viða-
miklum samningi við Skyggni um
síðustu áramót.
Haft er eftir Eiríki Birni Björg-
vinssyni, bæjarstjóra Austur-Hér-
aðs, að í þessu felist mikil hagræð-
ing fyrir bæjarfulltrúana. Nú geti
þeir undirbúið sig fyrir bæjarstjórn-
arfundi í fjarvinnslu, hvort sem er
heima hjá sér eða á vinnustað. -GG
Samskipti og skilningur:
Málþing um sam-
skipti Islendinga
og múslíma
Sr. Þórhallur
Heimisson.
Islam og íslend-
ingar; samskipti -
skilningur er yfir-
skrift opins mál-
þings sem AFS á
Islandi heldur á
morgun. Málþingið
er í Alþjóðahúsinu,
Hverfisgötu 18,
Reykjavík, og hefst
Salmann Góður tími gefst til
am n ' umræðna. Málþing-
ið er öllum opið, svo lengi sem hús-
rúm leyfir. AFS hvetur alla sem
áhuga á þessu málefni að koma í
Alþjóðahúsið og eiga skemmtilegan
og fróðlegan dag. -GG
Heyrnar- og talmeinastöðin:
Nýp framkvæmda-
stjópi skipaður
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, hefur skipað
Guðrúnu Gísladóttur viðskiptafræð-
ing í stöðu framkvæmdastjóra
Heymar- og talmeinastöðvarinnar
til næstu fimm ára.
Sérstök nefhd var skipuð til að
meta hæfiii umsækjenda um stöð-
una og skilaði hún áhti sínu fyrir
stuttu og hafði þá komist að þeirri
niðurstöðu að sex umsækjenda væru
vel hæfir til að gegna framkvæmda-
stjórastarfmu og tólf hæfir. Átján
sóttu um stöðuna. -GG
hraumadísin
” ^setía:
Þorsteinn i w
og Anna Lilja
SKlöldur í
túkkinu:
T|gg||gpPMjg' m kl V • ni kV
■ i * i V I I PiJ
TiT
í * i M