Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 DV Fréttir Fimmtugsafmælisveisla Bryndísar Schram: Afhending gagna leyfð til fjármálaráðuneytis Jón Baldvin Hannibalsson sendi- herra og kona hans Bryndís Schram kröfðust þess með málshöfðun 15. ágúst sl. að felld yrði úr gildi ákvörð- un Ríkisendurskoðunar í bréfi til lögmanns þeirra um afhendingu gagna til fjármálaráðuneytisins er vörðuðu greiðslu þeirra Jóns Bald- vins og Bryndísar á kostnaði við veislufóng vegna fimmtugsafmælis Bryndísar, en veislan var haldin á Hótel íslandi 9. júlí 1988, þar sem boðið var upp á mat og drykk. Jón Baldvin var á þeim tíma fjármálaráð- herra. Liölega ári eftir veisluna komu fram getgátur á opinberum vettvangi um að áfengisúttekt fjármálaráöu- neytisins samkvæmt úttektarbeiðn- um ráðuneytisins til Borgartúns 6, sem á þeim tíma sá m.a. um veislu- hald á vegum ríkisins, kynni að hafa verið nýtt til þess að endurgreiða þau vínfóng sem neytt var í afmælis- veislunni. Vegna þessa óskaði Jón Baldvin eftir því við Ríkisendurskoðun að kannað yrði hvort ástæða væri til rengja það að greiðsla vínfanga hafi verið með eðli- legum hætti. Með beiðninni sendi Jón Baldvin afrit af framangreindum út- tektarbeiðnum sem vitnað hafði ver- ið til og að auki gögn þar sem gerð var grein fyrir meðferð veislufanga og því hvernig kostnaður vegna nefndrar afmælisveislu var greiddur. Siðarnefndu gögnin voru einkagögn að mati Jóns Baldvins, en það eru þau gögn sem um er deilt í málinu hvort afhenda skuli fjármálaráðu- neytinu. Ríkisendurskoðun segir í bréfi til Jóns Baldvins 12. október 1989 að athugunin hafi ekki leitt neitt í ljós sem gefi I ástæðu til að tengja saman þau gögn HJ sem að áliti Jóns ■j Baldvins eru einka- jL^ IjÉ göp og úttektar- u beiðnir íjármála- K ráðuneytisins. Mál- —r—ið virtist úr sögunni Schram. Þar til Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. óskaði þess í ágúst 2001 að Ríkisend- urskoöun léti honum í té ljósrit þeirra gagna sem stofnunin athugaði áður en stofnunin skrifaði Jóni Bald- vin áðurnefnt bréf í október 1989. Til stuðnings því var vísað til upplýs- ingalaga. Fj ármálaráöuneytið fór þess á leit í febrúar 2002 við Ríkis- endurskoöun að stofnunin afhenti ráðuneytinu umbeðin gögn. Ríkis- endurskoöun leitaöi eftir áliti Jóns Baldvins, en hann neitaöi. Ríkisend- urskoðun tilkynnti Jóni Baldvin að með vísan til úrskurðar úrskurðar- nefndar um upplýsingamál mundi stofnunin afhenda fjármálaráðuneyt- inu gögnin eftir 17. apríl 2002. í dómi Héraðsdóms segir að málið snúist eingöngu um hvort umrædd gögn beri að afhenda viökomandi ráðuneyti. Er failist á þau rök Ríkis- endurskoöunar að ákvörðun um að afhenda fjármálaráðuneytinu, sem er ríkisstofnun eins og Ríkisendurskoð- un, sé ekki til þess fallin að hafa í för með sér skerðingu á friöhelgi einka- lífsins. Gögnin varði embættisfærslu Jóns Baldvins sem fjármálaráðherra og því ber að afhenda gögn varðandi greiðslu Jóns Baldvins og Bryndísar á kostnaði við veislufóng í afmælis- veislunni á Hótel íslandi. Kröfu þeirra hjóna um að felld verði úr gildi ákvörðun Ríkisendurskoðunar um að afhenda fjármálaráðuneytinu gögn varðandi kostnað við veislu- fóngin var hafnað. -GG Jón Baldvin Hannibalsson. DV kannar afstöðu til skattareglna vegna erlendra fjárfestingar- og eignarhaldsfélaga: meirihluti vill hertar skattareglur Mikill meiri- hluti eða 85 pró- sent er fylgjandi hertum skattaregl- um vegna fjárfest- ingar- og eignar- haldsfélaga ís- lenskra kaupsýslu- manna sem skráð eru erlendis. Ekki er marktækur munur á afstöðu kynjanna en fleiri höfuðborgarbú- ar eru fylgjandi hertum skatta- reglum í þessum efhum en íbúar landsbyggðarinnar. Þetta má lesa úr skoðanakönnun DV. Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvígur hertum skattareglum Ögmundur Jónasson: Vitnisburður um ríka rétt- lætiskennd „Mér finnst þetta gleðilegt og er vitnisburður um ríka réttlætis- kennd þjóðarinnar. Menn hafa verið að horfa á stórfelld skattaundanskot sem eru ekkert annað en þjófnaður. Menn vilja koma böndum yfir þetta og mér er kunnugt um að það hafi veriö kannað á vegum fjármálaráðu- neytisins hvort eigi að herða lög- gjöf um þetta efni. Ögmundur óskaði eftir utandagskrárumræðu um málið sem fram fór á Alþingi í gær. Vilji þjóðarinnar virðist skýr í þessum efnum,“ sagði ögmundur Jónasson, fulltrúi Vinstri grænna í efnahags- og viöskiptanefnd Al- þingis, við DV um niöurstöður könnunarinnar. -hlh Jón Ólafsson. vegna fjárfestingar- og eignar- haldsfélaga íslenskra kaupsýslu- manna sem skráð eru erlendis? Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt milli kynja og hlutfallslega skipt milli höfuðborgarsvæðis og lands- byggðar. Af öllu úrtakinu sögðust 74,3 prósent vera fylgjandi hertum skattareglum vegna þessara félaga sem skráð eru erlendis en 13 pró- sent á móti. 8,8 prósent voru óá- kveðin og 3,9 prósent neituðu að svara sem þýðir aö 87,3 prósent tóku afstöðu gagnvart spuming- unni, voru fylgjandi eða andvíg. Sé aðeins litið til þeirra sem af- stöðu tóku sögðust 85,1 prósent vera fylgjandi hertum skattaregl- um vegna þessara fjárfestingar- og eignarhaldsfélaga en 14,9 prósent andvíg. Þegar svörin era greind eftir af- stöðu kynjanna kemur í ljós að 84,3 prósent karla eru fylgjandi hertum skattareglum en 86 pró- sent kvenna. Munurinn er vart marktækur. Sé litið til afstöðu eftir búsetu eru 87,3 prósent íbúa höfuðborgar- svæðisins fylgjandi hertum skatta- reglum en mun færri á lands- byggðinni eða 81,7 prósent. Fleiri á landsbyggðinni, 15,8 prósent, eru óákveðnir eða svara ekki spum- ingunni. Tilefhi þessarar spumingar er aukin umræða um fjárfestingar- og eignarhaldsfélög íslenskra kaupsýslumanna sem skráð eru erlendis. Stofnun og skráning þessara félaga á erlendri grund, gjaman í skattaparadís eyja, t.d. í Karíbahafi eða á Ermarsundi, virðist hafa þann megintilgang að eigendur þeirra sleppi undan greiðslu skatta á íslandi. Hafa meint undanskot Jóns Ólafssonar og rannsókn skattayfirvalda á um- svifum hans ýtt mjög undir þessa Hertar skattareglur vegna fjárfestingar- og eignarhaldsfélaga sem skráö eru erlendis Alls af þeim sem töku afstööu i 1 Fylgjandl Q Andvíglr n Óákveönlr/svara ekkl Karlar Konur Höfuöborgarsv. Landsbyggóln umræöu. Jón stofnaði eignar- haldsfélagið Inuit Enterprise Ltd. á Bresku Jómfrúreyjum í desem- ber 1997. Það félag hefur sent Norðurljósum (áður Skífunni, Spori og íslenska útvarpsfélaginu) reikninga vegna ráðgjafarþjón- ustu Jóns. Á árunum 1998-2001 námu þessar greiðslur til Inuit Enerprise Ltd. um 204 milljónum króna. Inuit Enerprise Ltd. greiðir enga skatta af þessum greiðslum. Félagið er ekki framtalsskylt. -hlh Sjá bls. 16 og 17 Einar K. Guðfinnsson: Hafa á skýrar reglur „Niðurstaðan kemur í sjálfu sér ekki á óvart. í Ijósi umræðunnar sem átt hefur sér stað undanfamar vikur er ekki viö öðru aö búast en aö menn vilji að fylgst sé mjög vel með þessum þætti málsins. Þetta er á margan hátt vandmeðfarið mál en ég get alveg tek- ið undir með þjóöinni aö hafa eigi ákveðnar og skýrar reglur á þessum sviðum sem öðrum eftir því sem við veröur komið. Viö komum ekki lög- um yfir þaö sem gerist erlendis en mér finnst sjálfsagt að reglumar séu skýrar og ákveönar varðandi þaö sem snýr að íslenskum veruleika. í þessum eftium eru skattareglur okk- ar, eftir þvi sem ég best veit, sam- bærilegar reglum annarra þjóða,“ sagöi Einar K. Guðfinnsson, formað- ur eftiahags- og viðskiptanefndar Al- þingis, vegna niðurstöðu skoðana- könnunar DV sem sýnir að mikill meirihluti kjósenda vill hertar skattareglur vegna ftárfestingar- og eignarhaldsfélaga íslenskra kaup- sýslumanna sem skráö eru erlendis. - En hefur endurskoðun á þessum reglum borið á góma? „Ekki er mér kunnugt um það.“ -hlh Óformlegur fundur Baugs: Trúnaðarbrest- ur á dagskrá Mikil spenna ríkir fyrir óformleg- an fund stjómar Baugs sem haldin veröur í dag. Harðar meiningar eru um trúnaðarbrest í kjölfar þess er Fréttablaðið birti opinberlega tölvu- póst sem sem Hreinn Loftsson, stjón- arformaöur Baugs,sendi 26. janúar í fyrra til Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar, Tryggva Jónssonar, Jóhannesar Jónssonar, Guðfmnu Bjamadóttur og Þorgeirs Baldurssonar. Bæði Guðfmna Bjamadóttir og Þorgeir Baldursson hafa harðlega gagnrýnt þennan fréttaflutnning og hefur Þorgeir krafist þess að upplýst verði með hvaða hætti upplýsing- amar láku til Fréttablaðsins. Hreinn Loftsson lenti í haröri orrahríð við Davíð Oddsson forsæt- isráðherra eftir útvarpsviðtal við Davíð á mánudag. Lét Hreinn þá ýmislegt flakka sem vart mátt skilja á annan veg en að hann væri hætt- ur stuðningi við Davíð og Sjálfstæð- isflokkinn. í viðtali við fréttamenn RÚV í gær lýsti Hreinn yfir afdráttarlaus- um stuðningi við Davíð og Sjálfstæð- isflokkinn og sagðist ekki mega til þess hugsa að Samfylkingin næði völdum. Samfylkingin hefur undan- fama daga verið sögð styrkt af Baugi og ekki síst forstjóranum, Jóni Ásgeiri sem jafnframt styðji Fréttablaðið sem málsvara Samíylk- ingarinnar. -HKr. Búnaöarþing: Dagur kvenna Á Búnaðarþingi, sem nú stendur yfir, hefur verið samþykkt að Bændasamtök íslands beiti sér fyr- ir því að 15. október verði formlega tekinn upp hérlendis sem dagur kvenna í dreifbýli. Grasrótarhreyf- ingunni „Lifandi landbúnaöi" veröi falið að vixma að undirbúningi dagsins á vettvangi landbúnaðar- ins. Meöal annara tillagna má nefna að koma á til framkvæmda degi landbúnaðarins og miöa að því að hann verði árlegur viöburður. Stjóm BÍ er falið að skipa sérstaka undirbúningsnefnd til að vinna að málinu og sé að því stefnt að „Dag- ur landbúnaðarins" verði haldinn í fyrsta sinni árið 2004. -GG Arnarfjörður: Kvótinn aukinn Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að rækjukvóti í Amarfirði verði auk- inn úr 550 tonnum í 650 tonn á yfir- standandi vertíð. Þessi ákvörðun er byggð á tveimur síöustu könnunum Haffannsóknarstofnunar. Á síðasta vetri var var rækjukvótinn í Amar- firði ákveðinn 750 tonn, árið 2001 var hann 650 tonn en fiskveiðiárin 1997 til 1999 var hann 550 tonn hvert ár.Ekki búið að vinna úr niðurstöð- um rannsókna í ísafjarðardjúpi í síð- asta mánuði. Það er seinunnið verk vegna þess hversu smá rækjan er en líklegt sé aö niðurstöður geti legið fyrir í næstu viku. Rækjusjómenn við ísafjarðardjúp óttast að kvótinn verði skertur. -GG Ártúnshöföi: Bensínstuldup öryggisverðir komu aö mönn- um sem voru að stela bensíni af bíl á Ártúnshöfða í Reykjavík í morgunsárið. Mennimir voru á bak og burt þegar lögregla kom á staðinn, en á vettvangi var bens- ínbrúsi og slaga. Þjófnaðurinn var því mislukkaður, eins og varðstjóri komst aö orði -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.