Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 18
34 ___________________________________________FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 Skoðun I>V Stjornarliðar og lægstu kjörin „Ríkisstjórn íslands er ekki fœr um að bæta hag þeirra lœgst launuðu vegna þess að stjómarlið- um er fyrirmunað að setja sig í spor þeirra sem lægstu kjörin hafa. “ Við íslendingar höfum lengi getað státað af því að vera eitt af 10 ríkustu ríkjunum innan OECD og á allra síðustu árum hefur hagvöxtur einkennt efnahagslífið og verðbólga er í lágmarki. Þrátt fyrir ríkidæmi þjóðarinnar séð út frá þjóðartekjum er það á mörk- unum að ísland standi undir því að kallast velferðarríki. Lífeyrir og sjúkrabætur Samkvæmt samanburði dr. Stefáns Ólafssonar á velferðar- kerfum Norðurlandanna kemur ísland verulega illa út. í stuttu máli er niðurstaða rannsóknar Stefáns sú að íslenska leiðin sé ekki til þess fallin að stjórnvöld geti barið sér á brjóst með miklu stolti. Sjúklingar, öryrkjar og elli- lífeyrisþegar hér á landi búa við töluvert bágari kjör en sömu hóp- ar annars staðar Norðurlöndum. Meðallifeyrir sem eldri borgarar fá á mánuði er frá 27-81% hærri annars staðar Norðurlöndum og meðalörorkulífeyrir er 50-100 % hærri en hér á landi. Sjúkratryggingar eru eini þátt- ur almannatrygginga þar sem ís- lendingar eru jafnfætis hinum Norðurlöndunum, en þar með er ekki öll sagan sögð því að sjúkra- tryggingar skiptast í tvö megin- svið, þ.e. sjúkradagpeninga og heilbrigðisþjónustu. Þjónustu- gjöld heilsugæslunnar skiptast á rekstur sjúkrahúsa og rekstur heilsugæslu, en þar verjum við álíka upphæðum og frændþjóð- irnar. Skipting sjúkradagpeninga er aftur á móti verulega fjarri því að vera álíka hjá okkur og frænd- um vorum. Annars staðar á Norðurlöndum Árfenöiö fnam undan GIsli Einarsson skrifar: Það virðist ekki vera mikil samhæfing í skoðunum helstu efnahagssérfræðinga okkar um hvað bíði okkar íslendinga í næstu framtíð, hvað varðar ár- ferðið, hvort sem er um að ræða í efnahagsmálum eða at- vinnulífinu. Óþarfi er þó að ef- ast um að eitthvað muni láta undan hér á landi hvað varðar uppgang í atvinnumálum. Og væru það ekki stórkostlegar virkjunarframkvæmdir og síð- an frekari uppbygging stóriðju myndi verulega dökkt fram undan. Sjávarútvegurinn er ekki fyrir alla héðan af og sí- fellt minni landvinna honum tengd. Óvissa er ennþá um stöðu okkar gagnvart hinum evrópsku bandalögum, EES og ESB-samsteypunni. Ég sé ekki mikið annað okkur til fram- dráttar þegar litið er til lengri tíma en áframhaldandi umleit- anir um frekari fjárfestingu hér af hálfu amerískra fyrir- tækja. Það hefur reynst okkur til bjargar til þessa. Stóriðjan stendur sig Fleirí möguleikar í sigtinu? Hvernig í ósköpunum getur það farið saman að ísland sé eitt af auðugustu lýðræðisríkjum heims og að hluti af þegnum þess lifi nánast á sultarmörkum?“ er meginreglan sú að fólk nýtur réttar til greiðslu sjúkradagpen- inga frá hinu opinbera þegar það veikist. Hlutur atvinnurekenda er mun stærri hér á landi eða 89% á móti 21-55 % á hinum Noröurlöndun- um. Þeir sem ekki hafa stundað reglulega launavinnu af einhverj- um orsökum, s.s. heimavinnandi fólk, atvinnulausir, langveikt fólk og fólk með langveik börn, eiga í fá hús að vernda hvað bætur varðar hér á landi. Á hinum Norðurlöndunum fær fólk í svip- aðri stöðu bætur frá almanna- tryggingum. Atvinnuleysisbætur Hvað varðar atvinnuleysisbæt- ur eru þær lægri hér á landi og réttindi atvinnulausra takmark- aðri hér heldur en annars staðar á Norðurlöndum. Það er nánast sama hvert litið er hvað velferð viðkemur og ef við höldum áfram og skoðum hversu fjölskylduvænt þetta samfélag okkar er þá eru það sömu vonbrigðin, t.d. eru út- gjöld til barnabóta mun minni hér á landi heldur en hjá frænd- um vorum og höfum við dregist aftur úr á síðastliðnum áratug. Fæðingarorlof er styst á íslandi og einnig eru útgjöld barnafjöl- skyldna vegna dagvistunar hæst hér á landi. í velferðarkerfi okkar felast beinlínis fátæktargildrur sem fólk festist í og á oft ekki aftur- kvæmt. Hér er um að ræða fólk sem er á lægstu launum og fólk sem þiggur bætur eða lífeyri. At- vinnuleysisbætur eru 77.449 kr. á mánuði, öryrki sem býr einn og hefur ekki lífeyrissjóð hefur u.þ.b. 97.000 kr. á mánuði og er hér um að ræða heildarlaun sem síðan er eftir að taka skattinn af. Einstaklingur sem fær fram- færslu sína hjá sveitarfélaginu er á enn þá lægri kjörum, t.d. ef við- komandi er búsettur í Reykjavík eru launin 67.000 kr. Fólk á lægstu launum á vinnumarkaði er með minna en 100.000 kr. á mánuði. harðstjórum af stóli, en lítur ekki í eigin barm. Ríkisstjóm Islands er ekki fær um að bæta hag þeirra lægst launuðu vegna þess að stjórnarliðum er fyrirmunað að setja sig í spor þeirra sem lægstu kjörin hafa. Það er svo sannarlega kominn tími til að breyta, en það verður ekki gert án þátttöku Vinstri grænna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur það á skotspónum að vinstri stjórnir eyði um efni fram, en spyija má: í hvað fara auðæfi okk- ar ef þau fara ekki i það að jafna kjör landsmanna? Ekki er fjár- munum varið í að þróa öflugt at- vinnulíf í takt við menntunarstig þjóðarinnar, heldur er endalaust farið út í einhæfar skyndilausnir á borð við álver í Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjun. Sem er reyndar efni í aðra grein. Ekki án Vinstri grænna Hvernig í ósköpunum getur það farið saman að ísland sé eitt af auðugustu lýðræðisríkjum heims og að hluti af þegnum þess lifi nánast á sultarmörkum? Við hneykslumst á harðstjórum úti í heimi og stjórn íslands fylkir sér í raðir þeirra sem vilja steypa Eria Björg Siguröardóttir félagsráögjafi, í stjórn Vinstri grænna í Reykjavík Veðurstofa Islands - þaðan koma sekúndumetrarnir. Vintlstig og sekúndumetrap Auðunn Bragi Sveinsson skrifar: Um nokkurt árabil höfum við, sem hlustum á veðurfregnir í út- varpinu, mátt hlýða á nær óskiJj- anlegar tölur frá Veðurstofu ís- lands um vindstyrk. Nú er talað um svo og svo marga metra á sek- úndu. Áður var getið um vindstig, allt frá1—12. Þetta skildi fólk ágæt- lega. Ég vissi alveg fyrir hvað hvert vindstig stóð. Hvers vegna þá að breyta þessu í þann frum- skóg sem nú er á orðinn og fáir botna í? Mér er það óskiljanlegt. Væri nú ekki ráð að hverfa til hins fyrra forms, sem allir skildu, eða gefa almenningi glöggar skýr- ingar á hinu nýja fýrirkomulagi? Mér sýnist að það gæti orðið með „Væri nú ekki ráð að hverfa til hins fyrra forms, sem allir skildu, eða gefa almenningi glöggar skýringar á hinu nýja fyrirkomulagi?“ því að birta almenningi opinber- lega með einhverjum hætti sam- anburð á metrum á sekúndu og vindstigunum fornu. Fólk gæti síðan í rólegheitum reiknað út hversu mörg vindstigin væru og sem allir skilja. Er ég ef til vill að afhjúpa fá- visku mína á hinu nýja fyrir- komulagi veðurfræðinganna á Veðurstofunni varðandi vind- styrkinn, sem daglega er nú nefndur öðrum nöfnum, og víst vísindalegri en áður tíðkaðist? En ég gat hreinlega ekki orða bundist hvað þetta varðar. Er ég kannski sá eini sem lætur í sér heyra varð- andi þessar breytingar og ég hefi reifað hér með nokkrum orðum? Umsjónarmaður lesendasíðu: Spurningu Auðuns Braga verður best svarað strax með því að upp- lýsa að ótal fyrirspurnir hafa borist til DV hvers vegna vindstig- in gömlu voru tekin úr umferð, og nokkur slík bréf hafa verið birt hér á síðunni. Greinilega er hluti þjóð- arinnar a.m.k. ekki ýkja hrifinn af breytingunni í sekúndumetra. Skuldasöfnun Reykjavíkur Óskar Sigurðsson skrifar: Það er nú komið í ljós að Reykjavíkurborg er orðin alvar- lega skuldsett. Upphæð skulda, vaxta og ábyrgða er kom- in langt fram úr því sem hægt er Ingibjörg Sólrún að sætta sig við. Gísladóttir. Skuldir borgar- innar vegna Línu.nets eru t.d. hreinar óreiðuskuldir. Allt hefur þetta ástand fjármála Reykjavík- ur þróast undir forsjá fyrrv. borg- arstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.Hjá venjulegu fyrir- tæki hefði forstóri verið gerður ábyrgur og honum vikið frá, auk þess sem hann hefði sennilega verið krafinn um bætur vegna uppsafnaðrar skuldastöðu. Það er einkennilegt að ekki skuli gilda það sama fyrir alla. Reykjavíkur- borg hefur skákað í því skjóli að þegar skuldir hennar margfaldast fyrir hreina óráðsíðu er einfald- lega farið í vasa borgarbúa og þeir látnir gjalda fyrir. - Óhugn- anleg þróun og ófyrirgefanleg. Einar Vilhjálmsson skrifar: Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um heimild til þess að af- sala til Landsvirkjunar landi til virkjunar. Gnúpverjahreppur, ríkið og Landsvirkjun virðast hafa verið að höndla með vatns- réttindi Þjórsár í heimildarleysi. Eðlilegt er að orka fallvatnanna sé metin og seld á hæfilegu verð á vélar orkuveranna, en ríkið haldi eignarrétti sínum. Virkjan- ir fyrir erlenda stóriðju ætti að vera hluti af verksmiðjukostnað- inum og kostaður alfarið af henni, en þeim gert að greiða fyr- ir vatnsorkuna. Mannvirkin væru síðan eign íslenska ríkisins að hæfilega löngum tíma liðnum. En með afsali á vatnsréttindum til Landsvirkjunar komast þau í einkaeign, ef fyrirtækið verður einkavætt. Þá er eins komið með vatnsréttindin og fískimiðin; braskarar geta klófest þau og far- ið með að vild sinni. Hagsmunir Baugs í fyrirrúmi Jarjprú_ður skrifar: Fólk hefur fylgst agndofa með Baugsmál- inu undanfarna daga. Stjórnarfor- maðurinn sálfur, margnefndur Hreinn, kemur til landsins til að „létta á sér“ í fjölmiðlum og fara yfir málin, því hagsmunir Baugs ganga jú fyrir öllu öðru, segir hann. Ekki finnst manni þó að hagsmunir Baugs hafi verið ofarlega í huga hans á meðan hann bunaði úr sér upplýsingum í Fréttablaðið, meint málgagn Samfylkingarinnar, Baugs og Húsasmiðjunnar, eins og þeir hafa orðað það á Útvarpi Sögu. En nú mun Hreinn sem sé gera hreint fyrir sínum dyrum, á stjórnarfúndi Baugs og í orða- skaki sínu við forsætisráðherra, sem dafnar sem aldrei fyrr, eftir sennuna við Hrein. Nú bíðum við bara eftir næsta kafla í Baugs- málinu; Upplýsingum frá Jóni Gerald, „okkar manni í Amer- íku“ eins og hann var kynntur fyrir Hreini af forsvarsmönnum Baugs á sínum tíma. IDV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasí&a DV, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. Hreinn Loftsson,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.