Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 28
> 44 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 ' f "w •:» Sport Bubbi annar aí heiðupsgestum Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og Jónmundur Guð- marsson, bæjarstjóri Seltjamar- nesbæjar, verða heiðurgestir á leik Gróttu/KR og Sávehof á sunnudagskvöldið. Leikurinn fer fram í íþrótta- húsinu á Seltjamamesi og hefst kl. 20. Seldir verða sérstakir VIP- miðar á 2500 kr. en innifaldar í þeim em veitingar fyrir leik. Venjulegur aðgangseyrir er 1000 kr. fyrir fulloröna, 500 kr. fyrir 12-16 ára og frítt er inn fyrir böm 11 ára og yngri. Boðiö verður upp á andlits- málun frá kl. 18.30 og 400 bolir verða gefnir. Fyrir leikinn verður ljósasýn- ing þar sem leikmenn Gróttu/KR verða kynntir og er ætlun forráðarnanna félagsins að skapa sem mesta stemmningu í kringum leikinn. Það tekst þó ekki nema áhorfendur mæti og eru handknattleiksáhugamenn nær og fjær hvattir til að láta þennan leik ekki fram hjá sér fara. Handhafar dómaraskírteina og þeir aðilar sem em með gild HSÍ-skírteini geta nálgast miða á leikinn í íþróttahúsinu á Seltjarnamesi á sunnudaginn milli kl. 12-14 en skírteinin gilda ekki sem miðar á leikinn. -ósk KÓRFUBOLTI J GO B & Úrsllt í nótt: San Antonlo-New Jersey .. 92-78 Duncan 21 (21 frák.), Parker 21, Ginobili 18 - Martin 19 (8 frák.), Kittles 14, Kidd 11 (8 frák., 13 stoö.), WiUiams 11. Chicago-Golden State ... 119-105 Curry 24 (10 frák.), Chandler 23 (14 frák.), Rose 21 (7 stoös.) - Arenas 28, Jamison 22, Murphy 13 (9 frák.). Portland-Phlladelphla .... 60-88 Wallace 17 (9 frák.), Anderson 12 (8 frák.), Randolph 10 - Iverson 36, Snow 16, Coleman 11 (8 frák.). - segir Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, en liðið þarf að vinna upp átta marka forystu Svíanna Grótta/KR mætir sænska liðinu Sávehof í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Borgakeppni Evrópu á Sel- tjamamesi á sunnudaginn. Það var við ramman reip að draga hjá leik- mönnum Gróttu/KR því að þeir þurfa að vinna upp átta marka for- ystu sænska liðins frá fyrri leiknum en hann vann Sávehof, 34-26, í Gautaborg síðastliðinn laugardag. DV-Sport ræddi við Ágúst Jó- hannsson, þjálfara Gróttu/KR, um leikinn og það var engan bilbug á honum aö finna þótt verkefnið væri æriö og möguleikamir á að komast í undanúrslit keppninnar ekki mikl- ir. Seljum okkur dýrt „Þaö er alveg á hreinu að við er- um ekki hættir. Þegar liö er komiö þetta langt þá þýðir ekkert að kasta inn handklæðinu þótt á móti blási og við munum selja okkur dýrt í leiknum á sunnudaginn. Hvemig sem þessi leikur fer þá held ég að við getum gengið uppréttir á eftir en hungrið til að gera betur er til staðar og þaö verður farið í leikinn með því hugarfari að komast áfram í undanúrslitin," sagði Ágúst. Góö byrjun skiptir mestu „Þaö sem skiptir mestu máli fyrir okkur er að byrja vel. Ef við náum yfirhöndinni strax frá fyrstu mín- útu getur allt gerst. Við munum taka á þeim af krafti því að þeir eru með ungt lið sem er brothætt á úti- velli og ef þeir lenda í mótbyr þá er aldrei aö vita hvemig þeir bregðast viö því. Við þurfum helst að ná fimm til sex marka forystu i hálfleik og þá eigum við möguleika á að komast áfram.“ Varnarleikurinn veröur aö batna „Það sem við þurfum helst að laga fyrir þennan leik, ef mið er tek- ið af leiknum um síöustu helgi, er varnarleikurinn og markvarslan. Þetta tvennt var mjög slakt í leikn- um í Gautaborg og það er alveg á hreinu að við vinnum ekki leikinn á sunnudaginn ef vömin og mark- varslan em ekki i lagi. Við þurfum að sjálfsögðu að reyna að stoppa Kim Andersson en hann var okkur erfiður í leiknum ytra. Við vomm meö ákveðna áætlun í gangi fyrir þann leik sem miðaði að því að stoppa hann en honum héldu engin bönd. Viö munum breyta vamar- leiknum örlítið og reyna að koma þeim á óvart og vonandi skilar það sér í fleiri hraðaupphlaupum en síð- ast þegar við skoruðum aðeins fjög- ur mörk af 26 úr hraðaupphlaup- um.“ Mjög sterkt liö „Sávehof er mjög sterkt lið. Það er I öðm sæti sænsku deildarinnar og það er engin tilviljun. Þeir spila sterka 6:0 vöm, keyra hraðaupp- hlaupin vel en það var helst í sókn- arleiknum sem mér fannst ég greina veikleika hjá þeim. Þeir spila frekar óagaðan sóknarleik og ef vömin hjá okkur er almennileg og markvarsl- an í lagi þá er vel gerlegt að vinna liðið með meira en átta mörkum,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, við DV-Sport í gær. -ósk Grótta/KR mætir sænska liðinu Sávehof í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Borgakeppni Evrópu: Enum ekki hættir Njarövík-Breiðablik 80-72 2-0, 8-4, 11-15, (14-15), 24-16, 24-22, 34-28, (34-32), 43-36, 5(142, 50-46, (53-46), 59-48, 61-55, 76-67, 80-72. Stlg NJarðvlkur: Páll Kristlnsson 27, Fri6- rik Stefánsson 9, Ólafur Aron Ingvason 8, Teitur Örlygsson 8, Sigurður Einarsson 6, Gregory Harris 5, Þorsteinn Húnfjörð 5, Halldór Karlsson 5, Ragnar Ragnarsson 4, Guðmundur Jónsson 3. Stig Breiöabliks: Kenneth Tate 19, Pálmi Sigurgeirsson 18, Mirko Virijovic 14, Isak Einarsson 8, Loftur Einarsson 6, Friðrik Hreinsson 5, Þórarinn Andrésson 2. Dómarar (1-10): Einar Elnarsson og Rúnar Glslason (9). Gœðl leiks (1-10); 6 Áhorfendur: 150. Ma&ur leikslns: Páil Kristlnsson, Njar&vfk Fráköst: Njarövik 38 (81 sókn, 301 vöm, Friðrik 12), Breiðablik 39 (15 1 sókn, 24 1 vöm, Tate 16). Stoðsendlngar: Njarövik 23 (Harris 9), Breiöablik 10 (Isak 4). Stolnir boltar: Njarövík 6 (Harris 2), Breiðablik 8 (Pálmi 3, Tate 3). Tapaðir boltar: NJarðvik 16, Breiöablik 14. Varin skot: Njarðvík 8 (Friörik 5), Breiöablik 0. 3ja stlga: Njarövik 25/8, Breiðablik 24/5. Vlti: Njarövlk 25/18, Breiöablik 22/15. Páll Kristinsson átti stórleik meb Njar&vfklngum gegn Brei&abliki f gær- kvöld og var yfirburöamaöur á vellin- um. Njar&viklngar endu&u f fimmta sæti delldarlnnar og mæta KR f úr- ') slitakeppninni. DV-mynd Hari Njarðvík bar sigurorð af Breiðabliki í gærkvöld: Uimum á vönninni - sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur Njarðvíkingar sigmöu Blika ör- ugglega í lokaumferð Intersport- deildarinnar í Ljónagryfjunni í gær- kvöld. Lokatölur urðu 80-72 eftir aö heimamenn höfðu haft 34-32 forystu í leikhléi. Þaö var ekki hátt risið á körfu- boltanum lengi vel en það var einna helst Páll Kristinsson sem spilaði vel að þessu sinni og þá átti Ólafur Aron Ingvason finar rispur. Gestimir höfðu reyndar forystu, 14-15, eftir fyrsta leikhluta en eftir að UMFN komst í forystu, 24-16, snemma í öðrum leikhluta var í raun aldrei spuming hvorum megin sigurinn myndi lenda. Blikar náöu þó meö baráttu að minnka muninn í 2 stig fyrir hlé en alltaf þegar Blikar nálguöust var eins og Njarövíkingar skiptu um gir og forystan jókst upp í 10 stigin. Blikar spiluöu svæðisvöm mestall- an leikinn og náðu aðeins að dempa hraðann á Njarðvíkingum en hittni liðana var einnig frekar döpur. Eins og áður sagði var Páll yfir- buröamaður í þessum leik. Sam- vinna hans og Friöriks var mjög góð og ijóst að með komu Gregory Harris hefur jafnvægi komist á sóknarleik UMFN. Ólafur Aron, Teitur og Harris áttu einnig ágætan leik, Harris hitti reyndar illa en skilaði finum alhliða tölum. Kenny Tate og Pálmi Sigurgeirs- son voru bestu menn Blika aö þessu sinni sem oftar. Tate hitti þó ekkert sérlega vel en frákastaði vel. Mirko Virijevic byrjaði ágætlega en gekk illa sóknarlega þegar á leið. Sigurinn aldrei í hættu Þar með er ljóst að Njarðvíkingar ljúka keppni í fimmta sæti og and- stæöingar þeirra verða KR. „Sóknarleikurinn i kvöld var dapur. Við unnum þennan leik á vöminni að þessu sinni. Viö hitt- um illa og oft á tíðum var eins og um skylduverkefni væri að ræða og leikurinn bar keim af því. En sigur- inn var annars aldrei i hættu og ég get ekki veriö annað en sáttur við niðurstöðuna," sagði Friðrik Ragn- arsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir leikinn. Hvernig líst þér á KR i átta lióa úrslitum? „Þetta er held ég fjórða áriö í röð sem við mætum KR í úrslitakeppni og það eru alltaf skemmtilegar viðureignir. Eins og liöið mitt er að spila í dag þá ættum viö að geta veitt þeim veröuga keppni," sagði Friðrik. -EÁJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.