Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Qupperneq 10
10
Fréttir
FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003
H>"V
Viðskiptaþátturinn
Útvarpi Sögu fm 94.3
Þáttur um viðskipti og efna-
hagsmál á hverjum virkum degi
milli klukkan 17-18
ulll Jnti) ítliiifiiim'Dnslii í lii’iini Mipla í ilnp
-þaúborgarsigaóhlusta
Landsbankinn
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 2001-2024
og deiliskipulag í Reykjavík
Færsla Hringbrautar, undirgöng undir Snorrabraut, til-
laga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-
2024.
í samræmi við 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur
2001-2024 varðandi undirgöng undir Snorrabraut við
gatnamót Snorrabrautar, Bústaðvegar, Miklubrautar og
Hringbrautar.
Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að gera undirgöng
undir Snorrabraut á umræddum stað til þess að auka
umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda um
gatnamótin til austurs og vesturs sem og á svæðið sunnan
Hringbrautar þ.m.t. á íþróttasvæði Vals. Nánar er gerð
grein fyrir fyrirhugaðri staðsetningu undirganganna í
deiliskipulagtillögu þeirri sem auglýst er til kynningar hér að
neðan.
Færsla Hringbrautar, frá Rauðarárstíg að Þorfinnstjörn,
tillaga að deiliskipulagi.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að deiliskipulagi vegna færslu Hring-
brautar.
Tillagan tekur til svæðis sem nær frá Rauðarárstíg í austri
að Þorfinnstjörn í vestri og afmarkast svæðið til norðurs af
núverandi legu Hringbrautar og til suðurs af fyrirhugaðri
legu götunnar sem kemur til með að liggja undir núverandi
brú á Bústaðaveginum sunnan við Umferðarmiðstöðina og
Læknagarð, auk helgunarsvæða. Skipulagi er frestað af
svæðinu þar sem Umferðarmiðstöðin stendur og lóð Land-
spítalans, milli núverandi legu Hringbrautar og fyrirhug-
aðrar legu hennar.
Megin tilgangur skipulagsins er að sameina lóð Land-
spítalans auk þess að bæta umferðaröryggi og aðgengi
akandi og gangandi vegfarenda að spítalanum. Að sama
skapi mun umferð verða greiðari og öruggari um gatnamót
Hringbrautar, Snorrabrautar, Miklubrautar og Bústaða-
vegar. Einnig mun færslan draga úr óæskilegum áhrifum
umferðarinnar á íbúðahverfið í sunnanverðum Þing-
holtunum s.s. hávaða- og loftmengun.
Helstu breytingar eru þær að legu Hringbrautar er breytt og
hún færð til suðurs undir núverandi brú á Bústaðaveginum
sunnan við Umferðarmiðstöðina og Læknagarð en við það
breytast öll gatnamót á þessum kafla m.a. verður
gatnamótum Rauðarástígs og Hringbrautar lokað. Núver-
andi Hringbraut breytist í tveggja akreina safngötu úr
fjögurra akreina stofngötu. Vegna framkvæmdanna þarf
hús nr. 16 við Miklubraut að víkja en húsið nr. 18-20 getur
staðið áfram þar til kemur að 2 áfanga framkvæmdanna en
um hann er ekki fjallaði í skipulagi þessu. Þá þarf
leikskólinn Sólbakki að víkja, hluti hússins að Eskihlíð 2-4
sem og húsin að Vatnsmýrarvegi 28 og 35. Þá gerir tillagan
ráð fyrir allverulegum breytingum á göngustígakerfi
svæðisins. Nánar vísast til tillögunnar og annarra
kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi á skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, virka daga kl. 10.00 -
16.00 frá 7. mars 2003 til 22. apríl 2003. Eru þeir sem telja
sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Kynningargögn er einnig að finna á heimasíðu
skipulags- og byggingarsviðs, skipbygg.is. Ábendingum
og athugasemdum við þær skal skila skriflega til
Skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi
síðar en 22. apríl 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 7. mars 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.
Skoðanakönnun DV um fjölmiðla og eignarhald:
MeiPihluti
vill vitahven
á Ijöímiðlana
Mikill meirihluti
kjósenda, eða rúm 80
prósent, er fylgjandi
því að íslenskir íjöl-
miðlar verði skyldaðir
til að upplýsa um eig-
endur sína. Mikill
meirihluti krefst
þannig að vita hverjir
eiga fjölmiðlana. Fylgi
við þá skyldu er meira
meðal karla en kvenna
og að sama skapi
meira meðal íbúa höf-
uðborgarsvæðisins en
landsbyggðarinnar.
Þessar niðurstöður má
lesa úr skoðanakönn-
un DV sem gerð var á
þriðjudagskvöld.
Spurt var: Ertu fylgj-
andi eða andvíg(ur)
því að íslenskir fjöl-
miðlar verði skyldaðir
til að upplýsa um eig-
endur sína? Úrtakið
var 600 manns, jafnt
skipt milli kynja og hlutfalls
HaukurLárus
Hauksson
blaðamaöur
lega milli höfuðborgarsvæðis
og landsbyggðar.
Einungis 5,2 prósent voru óá-
kveðin og 4,7 prósent neituðu
aö svara spurningunni eða
samtals 9,9 prósent. Þannig tók
90,1 prósent aðspurðra ákveðna
afstöðu með eða á móti. Af þeim
sem afstöðu tóku sögðust 80,8
prósent vera fylgjandi því að ís-
lenskir fjölmiðlar væru skyld-
aðir til að upplýsa um eigendur
sína en 19,2 prósent andvíg.
Fieiri karlar fylgjandi
Þegar litið er á afstöðu eftir
kynjum í öllu úrtakinu eru 76,7
prósent karla fylgjandi, 16,3
andvíg og 7 prósent óákveðin
eða svara ekki spurningunni.
Meðal kvenna eru 69 prósent
fylgjandi, 18,3 prósent andvíg
og 12,7 prósent óákveðin eða
svara ekki spurningunni. Mun
fleiri konur en karlar eru óá-
kveðnar eða svara ekki.
Þegar svörin eru greind eftir
búsetu er fylgi við ofannefnda
skyldu fjölmiðla meiri á höfuð-
borgarsvæðinu en á lands-
byggðinni. Á höfuðborgarsvæð-
inu eru 76,9 prósent fylgjandi,
15,6 prósent andvíg og 7,5 pró-
Á aö skylda fjölmiöla til aö upplýsa um eigendur sína?
Alls
af þeim sem tóku afstööu
Karlar
Konur
X
* >0,8% í
Höfuðborgarsv. Landsbyggðin
11 Fylgjandi Q Andvígir
I I Óákveðnir/svara ekki
sent óákveðin eða svara ekki
spurningunni. Á landsbyggð-
inni eru 66,7 prósent fylgjandi,
20 prósent andvíg og 13,3 pró-
sent óákveðin eða svara ekki
spurningunni. íbúar höfuðborg-
arsvæðisins eru því mun ein-
dregnari í afstöðu sinni.
Útgáfufélag DV
Umræða um eignarhald á fjöl-
miðlum hefur ekki síst tengst
Fréttablaðinu en til þessa hefur
verið á huldu hverjir eiga Frétt
ehf., útgáfufélag blaðsins.
Skráðir stofnendur Fréttar eru
Gunnar Smári Egilsson rit-
stjóri og Ragnar Tómasson lög-
maður.
Eignarhald hinna dagblað-
anna er síður en svo leyndar-
mál og hefur ekki verið, ekki
frekar en eignarhald á Stöð 2
eða Skjáeinum. Eignarhald á
Útgáfufélagi DV hefur verið
ljóst frá upphafi. í apríl 2001
keypti Fjárfestingarfélagið
ESOB 40 prósenta hlut í Útgáfu-
félagi DV ehf. af Frjálsri fjöl-
miðlun hf. í desember 2001 birti
DV síðan frétt um kaup Fjár-
festingarfélagsins ESÓB ehf. á
Fjárfestingarfélagið ESÓB ehf.:
Kaupir 60%
í útgáfu DV
Tvkíst h:»!'a sumnuigar njilli
Hjálswr QtiimU'Vhmar ehf. og Fjár
tesUnsarfélagsms ESÓB ehf. uro
kaup þess- ssíwrm fmki á 60'. hlut i
Ctgtifufélaginu DV ehf.
í santeiginlegrí frétiattlk.vmtingtt
»53r að i aprí! stðastitðnum haO
ESÓB kevpt w ■ hlut i Ctgafufélag-
inu UV af Erjálsrí öölmiðitm «g haíl
aðilar nn náð samkunmlagi um
kaup KSÓB á ölluro Wntabréfimum.
Samníngurínrt lekur gikli miðviku
ctaginti 12. (iesember nsestkomandi
vn i» er gett rá* fvrtr að Qárntögn-
ttn wrði inkiö. Kaupverö er trfmaA
anttái miSii aðtla.
Fjáríésttngarfi'tegið ESÓB ehf. cr
t V'tgu Öte Bjarretr Kárasonar. rit-
stjóra DV. Rinars Stgurösstmar.
Ágitsts Eiimrssonar og Hjartar hTiel-
Höfuöstöövar DV.
sen. Agftst Kinarsson hefur vertð
stjórnarformaöur Úigáfufrtegsins
DV t'rá tiönu vori
-aþ
Fréttablaöiö
Ekki hefur veriö upplýst um eigendur
Fréttar ehf. útgáfufélags blaösins.
Frétt DV í desember 2001
/ desember 2001 birti DV síöan frétt um kaup Fjárfestingarfélagsins ESÓB
ehf. á 60 prósent hlut Frjáisrar fjölmiölunar í félaginu. ESÓB haföi þá eignast
öll hlutabréfin. Hluthafafundur veröur haldinn 20. mars. Aö loknum þessum
hluthafafundi veröur hluthafalisti útgáfufélagsins birtur.