Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Page 32
FRETTASKOTIÐ
SIMINN
ALDREI
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö
í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum
viö fréttaskotum allan sölarhringinn.
Trollið í togaranum Faxa er engin
smásmíði. Það var tekið í land í
gær þar sem skipið lá í
** Reykjavíkurhöfn. Slík veiðarfæri
geta verið frá 600 metrum að
lengd og að einum kílómetra.
Starfsmaður Hampiðjunnar fylgist
með að allt fari eftir settum
reglum við flutning trollsins.
Alþingismenn gagnrýna:
Félag íslenskra hjúkrunarfræöinga:
Bankarnir veita skattaskjól
Hörð gagnrýni kom fram á bank-
ana hjá alþingismönnum í gær þegar
rætt var um skattaskjól fyrir íslend-
inga í útlöndum.
Ögmundur Jónasson vitnaði í
skýrslu Skattrannsóknarstjóra í máli
Jóns Ólafssonar en þar segir aö það
veki athygli að fé hafi verið fært úr
(.:■ tk landi í samstarfi við Kaupþing og ís-.
landsbanka undir merkjum „skatta-
legrar fyrirhyggju". Þá vitnaði hann i
viðtal við Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóra Landsbankans, um
aflandsþjónustu [“off-shore“] á
Ermarsundi.
Kristinn H. Gunnarsson sagði að
fordæma bæri þá menn sem legðu sig
fram um að vera sérfræðingar í að að-
stoða ríkt fólk við að komast hjá
skattgreiðslum með aflandsþjónustu.
Hann gagnrýndi sérstaklega að ríkis-
Ertu á leið til útlanda?
Afnemum 24,5% vsk.
við kaup ó gleraugum
gegn framvísun ó farseðli
Glerauena K .Kringlunni
t 4.588-9988
cn
Halldór J. Kristinn H.
Kristjánsson. Gunnarsson.
bankarnir fyrrverandi skyldu hafa
tekið að sér forystuhlutverk og braut-
ryðjendastarf í þessari viðleitni.
„Það er fjarri öllu lagi að benda sér-
staklega á bankana sem áður voru í
rikiseigu í þessu sambandi og sýnir
mikla vanþekkingu á fjármálamark-
aðnum,“ segir Halldór J. Kristjáns-
son, bankastjóri Landsbankans, um
þessa gagnrýni og bætir við að
aflandsþjónustan s'é að minnsta kosti
hálfrar aldar gömul og fullkomlega
lögleg: „Allir bankar á Norðurlöndun-
um veita þessa þjónustu og allir bank-
ar á Bretlandseyjum. Hún er fullkom-
lega lögleg og eðlileg."
Halldór segir að það sé með þessa
þjónustu eins og annað; alltaf verði
einhver til að misnota hana. Hann
segir aðspurður að það sé þó ekki auð-
velt. „Nei, það hefur verið hert mjög á
reglum um peningatilfærslur milli
landa vegna sameiginlegra reglna
um aðgerðir gegn peningaþvætti.
Og þær hafa verið hertar enn frek-
ar vegna aðgerða gegn hryðjuverk-
um. Allir bankar taka öflugan þátt
í því samstarfi," segir Halldór.
-ÓTG
NÁNAR BLS. 6, 16 og 33
/--------------------A
, ‘Bónstöðín
IS-TEFLON
Bryngljái - lakkvörn
Hyrjorhöf&i 7 • Simi 567 8730^
Kærir auglýsingu
um hjúkkukvöld
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga hyggst kæra auglýsingu frá Óð-
ali - herraklúbbi, þar sem auglýst
er „Hjúkkukvöld í kvöld“. Félagið
telur auglýsinguna um hjúkkukvöld
í nektarklúbbi og tilefni hennar
mjög niðurlægjandi og mótmælir
þeirri afskræmingu á hjúkrunar-
fræðingum og hlutverki þeirra sem
þama kemur fram. Auglýsandinn
sé að hlutgera konur i einstakri
stétt og þær kynntar sem kynlífs-
leikfong og við það verði ekki unað.
Við munum kæra þessa auglýs-
ingu til kærunefndar Jafnréttismála
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLlNAN
LÓGREGLA SLÓKKVIUÐ SJÚKRALIÐ J
á grunni 18.
gr. laganna,
en þar kemur
fram að það
megi ekki lít-
ilsvirða eða
niðurlægja
annað hvort
kynið í aug-
lýsingaskyni.
Við munum
einnig tala í
dag við SÍA,
Samband ís-
lenskra aug-
lýsingastofa.
Á heimasíðu
Óðals má lesa
að þar dansi
stúlkur berar
að ofan og sið-
an fylgi þær
mönnunum upp á 3. hæð. Ég velti
vöngum yfir því hvað gerist á 3.
hæðinni," segir Herdís Sveinsdóttir,
formaður Félags íslenskra hjúkruu-
arfræðinga. -GG
um hjúkkukvóld á
helmasíöu Óöals, er-
otlc club.