Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003
DV
Fréttir
íslenskur námsmaöur búsettur í Guangdonghéraði þar sem SARS-flensan greindist fyrst:
Skortur á upplýsingunt
„Þessi veiki hefur vissulega
áhrif á fólkið hérna í borginni en
ástandið er samt ekki nálægt því
sem er að gerast í Hong Kong.
Manni finnst eins og meira sé gert
úr þessu þar heldur en hérna þar
sem ég er,“ segir Arnar Steinn
Þorsteinsson háskólanemi sem
býr í borginni Guangzhou í Kína.
Um 7 milljónir manna búa í borg-
inni sem er í um þriggja klukku-
stunda fjarlægð frá Hong Kong en
það var einmitt þar sem fyrstu til-
fellin af svokallaðri SARS-flensu,
lungnabólgunni sem svo mikið
hefur verið fjallaö um síðustu vik-
ur, greindust.
Fá ný tilfelli
„Maður sér í sjónvarpinu að
fólkið í Hong Kong tekur þessu
mun alvarlegar en almenningur
hérna í Guangzhou. Það er lítið
um það að fólk gangi um með
grímur fyrir andlitinu hérna en
fólk er samt sem áður á varð-
bergi. Annars finnst mér eins og
það sé dálítill skortur á upplýs-
ingum um veikina hér. Það er að-
eins minnst á þetta í kvöldfréttun-
um en fyrir utan það er voðalega
lítið fjallað um þetta og fólk veit
þess vegna ekki almennilega
hvernig staðan er. Það hefur tals-
vert verið gagnrýnt af íbúum hér-
aðsins og núna höfum fengið þær
upplýsingar að fá ný tilfelli hafi
komið upp hérna í kringum okk-
ur,“ segir Arnar Steinn sem
stundar nám í kínversku í Gu-
angzhou.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin
WHO sendi nýlega frá sér al-
heimstilkynningu þar sem fólki
er ráðlagt að halda sig fjarri Hong
Kong og Guangdonghérað þar
sem Arnar Steinn býr. Á þessum
svæðum hafa flest tilfelli veikinn-
ar komið upp en Amar Steinn er
þó hvergi banginn þótt nokkrir af
samnemendum hans hafi sýkst af
flensunni.
„Það voru þrír sem bjuggu á
stúdentagörðum hérna í borginni
sem sýktust og fyrir vikið var öll
byggingin rýmd og sótthreinsuð.
Fyrir utan það hef ég ekki tekið
eftir miklu hvaö þennan sjúkdóm
varðar og ég er ekkert á leiðinni
að flýja. Ég er búinn að vera
hérna í eitt og hálft ár og kann vel
við mig og sé fram á að vera
hérna einhver ár í viðbót.“
Minna um ferðamenn
Guangzhou er einhver sögu-
frægasta borg Kínverja og nær
saga hennar meira en 2800 ár aft-
ur í timann. Þangað kemur mikill
Qöldi ferðamanna ár hvert til þess
að skoða merkar forminnjar auk
þess sem þar er tvisvar á ári hald-
in mikil kaupsýsluráðstefna þar
sem flest fyrirtæki héraðsins
kynna vörur sínar. Þangað kemur
fólk víða að úr heiminum til að
kynna sér það sem í boði er en í
ár hafa flestir afboðaö komu sína.
„Mér skilst að þeir ætli þrátt
fyrir allt að halda þessa ráðstefnu,
þó svo að fáir muni koma. En ég
hef ekki orðið var við að það sé
færra fólk á ferli hérna. Samt er
manni sagt að ferðamanna-
straumurinn hafi minnkað mikið
og það hefur náttúrlega gríðarlega
mikil áhrif á atvinnulífið og efna-
haginn hérna. Eins og ég sagði
áður þá liggur aðalmunurinn í
upplýsingaflæðinu. Fjölmiðlarnir
í Hong Kong eru öflugri í gagn-
rýni sinni og umfjöllun um þetta
heldur en þeir kínversku og fólk
þar tekur þessu mun alvarlegar
en hér.“ -áb
Hæstiréttur:
Tóll mánaða fangelsi
fypir fíkniefnabpot
Hæstiréttur dæmdi í gær mann
í tólf mánaða fangelsi fyrir að
hafa í vörslum sínum 1,47 grömm
af hassi og um það bil 200 grömm
af metamfetamíni sem sannað
þótti að hefði verið ætlað til sölu
að verulegu leyti. Héraðsdómur
Suðurlands haiði áður dæmt
manninn í 15 mánaða fangelsi.
Maðurinn viðurkenndi bæði hjá
lögreglu og fyrir dómi að hafa átt
hassefni það sem um ræöir en
kvað það hafa verið ætlað til eigin
neyslu. Samkvæmt sakavottorði
mannsins hefur hann tólf sinnum
frá árinu 1986 hlotið refsingar.
Ætíð var um sektarrefsingar að
ræða og af þessum tólf skiptum
hefur hann fimm sinnum hlotið
refsingar fyrir brot gegn lögum
um ávana- og fíkniefni. Þá hefur
hann alls sjö sinnum hlotið sekt-
arrefsingar fyrir umferðarlaga-
brot, fyrst á árinu 1986 og síðast í
aprU 2001.
Með vísan tU sakarferUs manns-
ins, magns fikniefhanna og styrk-
leika þeirra þótti fangelsisvist í
tólf mánuði hæfileg refsing. -EKÁ
Vinnuslys í Norðuráli
Vinnuslys varð í Norðuráli á
Grundartanga í gærmorgun.
Hafði starfsmaður í skautsmiðju
Norðuráls klemmst á milli hand-
riðs og hlaupakattar og var hann
fluttur á sjúkrahús í Reykjavík
til aðhlynningar. Reyndust meiðsl
hans vera minniháttar. -EKÁ
Utanríkisráðherra um fall íraksstjórnar:
Þjóðníðingur fariim frá vöMum
„Ég tel að þetta sé dagur
sem verði minnst á spjöld-
um sögunnar og ég held að
Saddam Hussein komi tU
með að skipa sess með
Hitler og Stalín. Það hlýtur
að vera hverjum manni í
heiminum ánægjuefni þeg-
ar slíkur þjóðníðingur fer
frá völdum og við skulum
vona að Guð gefi að þessi
þjóð geti farið að byggja
sig upp á nýjan leik eftir
áratuga harðræði," segir
HaUdór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra um faU
íraksstjórnar.
Uppbygging tekur
tíma
sama hætti og gert var í
Afganistan. Mismunandi
þjóðflokkar í landinu
verði að koma að því.
HaUdór telur að þetta
verði ekki gert nema
með mikilli aðkomu
Sameinuðu þjóðanna og
segir að það muni skipta
sköpum að ekki skapist
togstreita á þeim vett-
vangi, sérstaklega ekki
vegna viðskiptahags-
muna viðkomandi ríkja.
Vilji þjóðarinnar
- Hve mikilvægt er
það fyrir réttlætingu
stríðsins að gereyðingar-
vopn finnist í írak?
„Það liggur fyrir að
Saddam Hussein hefur
ekki farið að samþykkt-
um alþjóðasamfélagsins
og hefur ekki gert grein
fyrir eyðingu þessara
vopna. Eg tel fuUvíst að
þar sé eitthvað að finna
en ég tel aðalmálið vera
hvað þjóðin sjálf segir
um það sem þarna hefur
veriö að gerast. Mér sýnist að
íraska þjóðin sé farin að gera sér
vel grein fyrir því, með sama
hætti og gerðist í Afganistan,
Rúmeníu og.fleiri löndum þar
sem menn bjuggu við svipaðar
aðstæður." -ÓTG
HaUdór segir að íslend-
ingar muni koma að upp-
byggingarstarfi í írak að
stríðinu loknu. „Það var
sennilega aðalatriðið í
þeim vUyrðum sem við
gáfum á sínum tima og það
atriði sem fyrst og fremst
stendur eftir þegar þessi
átök eru að baki. Það mun
hins vegar taka langan
tíma að byggja upp eðlUegt mann-
líf, með sama hætti og það tók
langan tíma í Rúmeníu og mun
líka taka langan tíma í Afganist-
an. En fyrst hægt var aö koma
saman ríkisstjórn í Afganistan
hlýtur það að vera hægt í írak og
Dómur írösku þjóöarinnar skiptir mestu
Utanríkisráöherra segist telja fullvíst aö gereyöingarvopn sé
aö finna í írak en varöandi réttlætingu stríösins sé aðalmáliö
hvaö þjóöin sjálfsegi um það sem gerst hefur í landinu.
ég tel að Sameinuðu þjóðirnar
beri gæfu tU að ná saman um það
og standa að því með þeim hætti
sem þeim ber.“
Halldór telur að á næstu vikum
verði fyrst og fremst leitast viö að
finna ríkisstjórn fyrir írak með
Stuttar fréttir _______________________________________'
Börn of þung
Tæplega íjórðungur níu ára
barna í Reykjavík telst vera of
þungur og af þeim eru 5,5% sem
teljast eiga við offituvandamál að
stríða. Þessar tölur fást úr niður-
stöðum nýrrar rannsóknar á veg-
um Háskóla íslands og Kennara-
háskóla íslands.
Framkvæmdagleði
Fram undan eru framkvæmdir
á tímabUinu 2003-2009 sem kosta
munu um 315,5 miUjarða króna.
Þetta kom fram hjá Tryggva Þór
Herbertssyni, forstöðumanni Hag-
fræðistofnunar Háskólans, á fundi
í gær.
Félag um tónlistarhús
Einkahlutafélag tU að annast
undirbúning og byggingu tónlist-
ar- og ráðstefnuhúss við Reykja-
víkurhöfn var stofnað í dag. Félag-
ið sem heitir Austurhöfn-TR efh.
er í eigu ríkis og borgar.
Deilt um nýjan skóla
Skólameistari Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra telur ekki þörf
fyrir fleiri framhaldsskóla á Norð-
urlandi. Hann telur frekar þörf á
að fjölga nemendum í þeim skól-
um sem fyrir eru heldur en að
stofnsetja framhaldsskóla við ut-
anverðan Eyjafiörð sem Dalvík-
ingar, Ólafsfirðingar og Siglfirð-
ingar hafa verið áhugasamir um.
Aukin framlög
Ríkisstjórnin
hefur samþykkt
tillögur Jóns Krist-
jánssonar heil-
brigðisráðherra
um að stórauka
geðheilbrigðis-
þjónustu við börn
og unglinga. Til-
lögumar fela í sér að Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans
verður stækkuð og hins vegar
breytingar á vinnufyrirkomulagi
göngudeildar.
DV-MYND TEITUR
Harður árekstur á Bústaðabrúnni í
gær
Fólksbíllinn er gjörónýtur eftir árekst-
urinn og nota þurfti klippur til aö ná
ökumanninum út.
Tveir slösuðust í
hörfium árekstri
Harður árekstur varð um
klukkan Qögur í gær þegar
sjúkrabíll með sjúkling innan-
borðs og fólksbíll lentu saman á
Bústaðabrúnni. Sjúkrabíllinn var
á leið vestur Bústaðaveginn þeg-
ar hann lenti í árekstrinum og
kastaðist á umferðarvita. í
sjúkrabílnum voru auk sjúklings-
ins ökumaður og einn sjúkra-
flutningamaður en í fólksbílnum
var stúlka og farþegi hennar.
Tækjabíll slökkviliðsins var kall-
aður á staðinn og þurfti að nota
klippur til að ná ökumanni fólks-
bílsins út. Ökumenn beggja bíl-
anna voru fluttir á slysadeild en
sjúklingurinn var fluttur með
öðrum sjúkrabíl á Landspítaiann
en meiðsl hans voru minni hátt-
ar. Bústaðavegi var lokað i
klukkustund í gær á meðan á
björguninni stóð. -EKÁ
Játaði bankarán:
Vísaði lögneglu
á hluta fjárins
Nítján ára piltur, sem verið
hefur í haldi lögreglunnar í Hafn-
arfirði vegna gruns um vopnað
bankarán í Sparisjóði Hafnar-
fiarðar 1. apríl síðastliðinn, hefur
játað á sig verknaðinn. Hann hef-
ur verið í haldi lögreglunnar frá
því á fóstudaginn en var sleppt í
gær eftir játninguna. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni hef-
ur hann vísað henni á talsverðan
hluta ránsfengsins en hann var
búinn að eyða hluta hans.
Ránið var framið snemma
morguns en þá kom ungi maður-
inn með nælonsokk yfir höfðinu
inn í útibú Sparisjóðs Hafnar-
flarðar við Reykjavíkurveg. Hann
stökk yfir afgreiðsluborðið og
tæmdi peningaskúffu eins gjald-
kerans. Hann komst undan lög-
reglu en var handtekinn eftir að
lögregu barst fiöldi vísbendinga.
Telst rannsókn málsins að
mestu leyti lokið. Pilturinn hefur
nokkrum sinnum áður komist í
kast við lögin, aðailega fyrir þjófn-
að og umferðarlagabrot. -EKÁ
i helgarblað
Ástin heldur mér gangandi
í Helgarblaði DV á morgun er
rætt við Sigurð Guðmundsson, fyrr-
verandi dagfóður í Kópavogi, sem
var fyrir skömmu dæmdur í Hæsta-
. rétti í 18 mánaða
fangelsi fyrir mann-
dráp af gáleysi.
Blaðið talar við
Matta Ósvald um
kynrænt og skyn-
rænt nudd en Matti
hefur nuddað 6000
_______I konur. DV ræðir
við ungan bóndason af Rauðasandi
sem er lamaður eftir bílslys, skoðar
undarlegar lagasetningar um kynlíf
og tekur unga frambjóðendur í sér-
stakt stjómmálapróf. -PÁÁ