Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Síða 10
10
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003
Fréttir
:
tUiMPíWé
w!§m
Viðburöarík saga á 13 ára tíma hugbúnaðarfyrirtækisins OZ:
Það er óhætt að segja að saga
hugbúnaðarfyrirtækisins OZ hafi
verið viðburðarík. Guðjón Már
Guðjónsson stofnaði fyrirtækið
árið 1990 en árið 1995 var OZ.com
stofnað í Bandaríkjunum um leið
og fyrirtækið fór að leita út fyrir
landsteinana. Opnaðar voru skrif-
stofur í San Francisco þetta sama
ár og fyrirtækinu tókst jafnframt
að afla um 8 milljóna Bandaríkja-
dala með sölu hlutafjár. Árið 1999
var síðan gerður stór þriggja ára
samningur við símafyrirtækið Er-
icsson sem færði fyrirtækinu
miklar tekjur en síðan hann rann
út hefur framtíð fyrirtækisins
verið óljós. Nú hefur nýstofnað
dótturfyrirtæki Landsbankans í
Kananda hins vegar keypt upp
eignir OZ og ætlar að halda áfram
sölu og þróun á þeim vörum sem
OZ framleiðir.
Mikill uppgangur
Þrívíddarforritun var í fyrstu
aðalviðfangsefni OZ og hún fór
fljótlega að vekja athygli víða um
heim. Fyrirtækinu gekk vel, enda
miklir peningar í umferð á þess-
um tíma og forsvarsmönnum þess
gekk vel að ná í fjármuni með sölu
á skuldabréfum og hlutabréfum.
Árið 1996 var íslenskum fjárfest-
um svo gert kleift að kaupa hlut í
OZ sem svaraði samtals til 2,3%
hlutar í fyrirtækinu, að andvirði
um 600 þúsund dollara, en á þess-
um tíma sögðu forsvarsmenn OZ
Guðjón Már Guöjónsson.
Skúli Mogensen.
markaðsvirði þess vera um 25
milljónir dollara.
í byrjun árs 1999 var svo gerður
stór samningur við símafyrirtæk-
ið Ericsson sem var metinn á um
einn milljarð króna. Fljótlega eftir
það var skrifstofa OZ opnuð í Sví-
þjóð og á sama tíma keyptu FBA
og Landsbréf nýtt hlutafé í fyrir-
tækinu. Verðmæti OZ á þessum
tíma var talið nema um 11 millj-
örðum íslenskra króna. Við þetta
tækifæri var því spáð að gengi
hlutabréfanna myndi snarhækka,
og þar af leiðandi einnig verðmæti
fyrirtækisins. Þetta gekk eftir og
þegar búið var að ganga frá samn-
ingnum við Ericsson hækkuðu
hlutabréfin hratt í verði. Til
marks um það var gengi fyrirtæk-
isins í ársbyrjun 1999 2,3 dollarar
á hlut en var komið upp i 3,80 doll-
ara í mars sama ár. OZ var á tíma-
bili meira virði á markaði en rót-