Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 17
17 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 H>V_________________________________________________________________________________________________Menning Ferskur vorboði DV-MYND E.ÓL. Örlagavaldurinn: Hýrt daöur hinna konungbornu persóna Sveinn Geirsson og Halldóra Geirharösdóttir í hlutverkum Polyxenes og Hermione. Á undanförnum misserum hefur ís- lenskum leikhúsgestum gefist kostur á aö sjá fjölda verka eftir William Shakespeare. Þar má nefna Lé konung sem L.R. sýndi haustið 2001, uppfærslur Vesturports á Títusi í fyrra og Rómeó og Júlíu sem enn er á fjölunum og verðlaunaða sýningu Leikfélags Akureyrar á Hamlet síðastliðið haust. Þá má líka nefna uppsetningu Leik- félags íslands á Shakespeare eins og hann leggur sig, bráðskemmtilega og vel heppn- aða tilraun til að kynna verk skáldjöfurs- ins í eitt skipti fyrir öll. Vitanlega voru þessar sýningar ólíkar innbyrðis enda túlkunarleiðir leikstjóranna afar misjafn- ar. í gær frumsýndi svo Leikfélag Reykja- víkur Sumarævintýri, útfærslu Benedikts Erlingssonar leikstjóra og leikhópsins á Nýja sviðinu á Vetrarævintýri. Benedikt leikstýrði einmitt Shakespeare eins og hann leggur sig og tveir úr leikhópi Nýja sviðsins, þau Halldóra Geirharðsdóttir og Halldór Gylfason, léku í þeirri uppfærslu. Það er ýmislegt líkt með þessum sýning- um því í báðum er öll umgjörð einfóld og lagt kapp á að gera hlut leikaranna sem mestan. Leikur er færður í stílinn og nánast yfirdrifmn á köflum enda á áhorfandinn ekki að velkjast í vafa um að hann sé á leiksýningu þar sem hlutverk leikaranna er að miðla ákveðinni sögu til áhorf- enda. Efniviðurinn í Sumarævintýri er sannarlega ævintýralegur því þar er farið heimshorna á milli og fjallað um mannlegan harmleik sem hlýst af til- hæfulausri afbrýðisemi Leontes, konungs af Sikiley. Afbrýðisemin verður til þess að hann missir besta vin sinn, Polyxenes konung af Bæj- aralandi, eiginkonuna Hermione og bömin sín tvö. Sonurinn deyr en hins vegar fær ráðgjafi hans það hlutverk að bera út dóttur hans ný- fædda. Hann fer með hana alla leið til Bæheims þar sem gamall hirðir finnur hana og elur upp sem sína eigin dóttur. Perdíta, eins og stúlkan heitir, er óvenju fógur og þegar hún verður gjaf- vaxta fellur Florizel, sonur Polyxenes konungs, kylliflatur fyrir henni. Konungi hugnast ekki ráðahagurinn og því neyðist unga parið til að flýja land og fyrir atbeina Camillos, sem áður var ráð- gjafi Leontes, halda þau til Sikileyjar. Eins og í öll- um alvöru ævintýrum sigrar ástin að lokum og Leontes fær annað tækifæri sem ekki verður far- ið nánar út í hér. Leikhópurinn á Nýja sviðinu hefur eflst með hverju verkefni og uppfærslan á Sumarævintýri er enn ein rós í hnappagatið. Sem fyrr er hópur- inn skipaður Þór Tulinius, Sóleyju Elíasdóttur, Gunnari Hanssyni, Hörpu Arnardóttur og þeim Halldóru og Halldóri sem áður voru nefnd. En Sveinn Geirsson er nýr liðsmaður og sérlega kær- komin viðbót í sýningu sem bygg- ir jafn mikið á tónlist og raun ber vitni. Það eru leikararnir sem eiga heiðurinn af tónlistinni og frábærum textum sem undir- strika enn frekar þau hughrif sem leikstjórinn vill ná fram hverju sinni. Hljóðfæraleikur er sömu- leiðis í höndum leikaranna og ekki amalegt að hafa úr jafn fjöl- hæfum hljóðfæraleikurum að spila. Einfóld leikmynd Snorra Freys Hilmarssonar þjónar sýningunni fullkomlega og eins og vera ber eru búningar notaðir til að undir- strika þjóðfélagslega stöðu per- sónanna. Engu er ofaukið hvað varðar leikmuni enda áherslan á list leikarans eins og áður segir. Þótt gamansemin sé vissulega fyrirferðarmikil í Sumarævintýri er dramatíkin það ekkert síður. Leikaramir sveifla sér fimlega upp og niður tilflnningaskalann og eiga allir hrós skilið fyrir frammistöðuna. Mögnuð túlkun Halldóru á Hermione og harm- rænum örlögum hennar lét engan ósnortinn og verður eflaust lengi í minnum höfð en aðrir leik- arar gáfu henni lítið eftir. Uppfærsla Benedikts Erlingssonar á Sumarævintýri er veisla fyrir augu og eyru og góður lokahnykkur á vel heppn- uðu leikári á Nýja sviðinu. Halldóra Friðjónsdóttir Lelkfélag Reykjavíkur sýnir á Nýja sviðinu: Sumarævintýri eftir William Shakespeare, Benedikt Erlingsson og leikhóp- inn. Þýöing: Indriöi Einarsson. Umsjón meö tónlist: Halldór Gylfason og Sveinn Geirsson. Lýsing: Kalle Olavi Ropponen. Búnlngar: Guðrún Lárusdóttir. Leikmynd: Snorri Freyr Hilm- arsson. Leikstjóri: Benedikt Erlingsson. Áheyrnarpróf Nú um helgina, 12.-13. apríl, verða opin áheyrnarpróf í Borgar- leikhúsinu fyrir óper- una Krýning Poppeu sem Sumarópera Reykjavíkur setur upp í samvinnu viö Borgar- leikhúsið. Leitað er að öllum röddum, bæði í aðalhlutverk, smærri hlutverk og kór. í óper- unni eru 17 hlutverk. Sumaróperan setti í fyrra upp sýninguna Dido og Eneas við mikið lofgagnrýnenda og svo góða aðsókn að færri komust að en vildu. Krýning Poppeu eftir Claudio Monteverdi telst eitt merkasta verk síðendurreisnartímabils- ins. Hún fjallar um Neró keisara í Róm og tilraunir hans til að gera ástkonu sína að keisaraynju, en til þess þarf hann að koma eig- inkonu sinni frá. Verkið einkennist af dramatík og beittum húmor og verður sýningin lífleg og nýstárleg, eins og Sumaróperan er þekkt fyrir. Velski stjórnandinn Edward Jones snýr aft- ur til landsins til að stjóma hljómsveitinni og leikstjóri verður sem fyrr Magnús Geir Þórð- arson. Framkvæmda- stjóri Sumaróperunnar er Hrólfur Sæmundsson og er hægt aö skrá sig í áheyrnarpróf hjá hon- um í síma 897 1271. Hin smyrjcindi jómfrú Nærondi leiksýning fyrir líkoma og sól. Sýnt íIðnó: I minningu Kristjáns Eldjáms Á annan í páskum, ld. 20.30, verða haldnir tónleikar, tileinkaðir minningu Kristjáns Eldjárns, gítarleikara í íslcnsku óperunni. Meðal þeirra sem fram koma eru Finnur Bjarnason, Kristjana Arngrímsdóttir, Jóel ^H,v ^.'aH Pálsson og Agnar Már Magnússon, Páll Óskar ^H. w Hjálmtýsson og Monika Abendroth, Kristinn Ámason gítarleikari, orgelkvartettinn Apparat, Margrét Eir, Iiilntar Öm, Bubbi Morthens, Stuðmenn ásamt Eggerti Þorleifssyni og Guðmundur Pétursson. Einnig verður sýnd stuttmyndin Tindar eftir Ara Eldjám. Kynnir verður Eva María Jónsdóttir. Forsala aðgöngumiða er í Skífúnni, Laugavegi 26. Aðgangseyrir er kr. 2.000 og rennur allur ágóði í Minningarsjóð Kristjáns Eldjáms til styrlctar efnilegum tónlistarmönnum og afreksfólki í tónlist. Sjóðurinn tekur einnig við minningargjöfúm og fijálsum ffamlögum (bankareikningur: 0513 18 430830, kt.: 650303-3180). Leikfélag Reykjavtkur STÓRA SVIÐ ÖFUGU MEGIN UPPU. Derek Benfteld Forsýning fi. 24/4 kl. 20 - Kr. 1.000 FRUMSWING su. 27/4 - UPPSELT Mi. 30/4 kl. 20 - Tilboðkr. 1.800 Fi. 1/5 kl. 20 - TUboðkr. 1.800 PUNTILA OG MATTI r. Bertolt Brecht Su. 13/4 ki. 20 Lau. 26/4 kl. 20 Su. 4/5 kl. 20 Su. 11/5 kl. 20 SÖNGLEIKURINN SÓL 8< MÁNI eftir Sálina og KarlAgúst Ú/fsson Ikvöldkl. 20 Lau. 12/4 kl. 20 Fö. 25/4 kl. 20 Lau 3/5 kl. 20 Fö. 9/5 kl. 20 í vor TÍBRÁ: Prokofieff & Poulenc Tónleikaspjall Þorkell Sigurbjörnsson. Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Prokofieff og Rhapsodie Négre eftir Poulenc. Flytjendur KaSa hópurinn. Gestaflytjandi: Einar Jóhannesson, klarinett. Styrktar- og samstarfsaðiliar: Omega Farma, 12Tónar, Stafræna hljóðupptökufélagið, Kökuhornið, Nói&Sirius. Verð kr. 1.500/1.200 Hjörturinn tekur á rás Vox Academica og Rússíbanarnir frumflytja verk eftir Hróðmar Sigurbjörnsson, Ijóð Isak Harðarson. A efniskrá einnig klezmer-tónlist, íslensk þjóðlög og napólítanskir söngvar. Einleikari Sigrún Eðvaldsdóttir. Einsöngvari Sigrún Hjálmtýsdóttir. Verð kr. 2.000 ATH. Sýningum lýkur NYJA SVIÐ SUMARÆVINTÝRI e. Shakespcare og leikhópinn Su. 13/4 kl. 13 - ATH. Breyttan sýningartíma Mi. 23/4 kl. 20 Lau. 26/4 kl. 20 Su. 27/4 kl. 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR ejtir Peter Brook og Maric-Hcl'ene Estienne fkvöldkl. 20 Fö. 25/4 kl. 20 Fi. 1/5 ki. 20 KVETCH eftir Steven Berkoff, I SAMSTARFI VIÐ Á SENUNNI Su. 13/4 kl. 20 Fí. 24/4 kl. 20 Lau. 3/5 kl. 20 ATH. SÍHJSTU SWINGAR 15.15 TÓNLEIKAR -12 TÓNAR Sídíúnir útgáfutónleikar Lau. 12/4 kl. 15.15 Juxuíituu Mið. 16. apríl, kl. 20.00, örfá sæti Lau. 19. apríl, kl. 20.00 Lau. 25. aprfl, kl. 20.00 Sun. 26. aprfl, kl. 20.00 Síðustu sýningar. Tríó Artis Gunnhildur Einarsdóttir, harpa, Kristjana Helgadóttir, flauta og Jónína Hilmarsdótdr, víóla, flytja verk eftir Jolivet, Takemitsu,Vieuxtemps og Debussy. Verð kr. 1.500/1.200/750 „Til að kóróna herlegheitin er boðið upp á Ijúffengt smurbrauð fyrir sýningu og því óhœtt lofa þeim sem laka allan pakkann nœrandi kvöldstund fyrir sál og líkama. “ H.F., DV TÍBRÁ: Sönglög Páls ísólfssonar Hanna Dóra Sturludóttir, Finnur Bjarnason og Nína Margrét Grímsdóttir flytja öll sönglöng Páls í tilefni 110 ára ártíðar hans. Verð kr. 1.500/1.200 ÞRIÐJA HÆÐIN PÍKUSÖGUR eftirEveEnsler Su. 13/4 kl. 21. Ath. breyttan sýningartima Lau. 3/5 kl. 20 Takmarkaður sýningafjöidi "Charlotte var hreint út sagt frábœr í hlutverki hinnar smyrjandi jómfrúar og hún átti ekki t neinum vandrœðum með að heilla áhorfendur upp úr skónum með... einlœgni sinni, ósviknum húmor og ekki síst kómtskri sýn á hina íslensku þjóðarsál." S.A.B. Mbl. LITLA SVIÐ STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN f SAMSTARFI VIÐ SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ts á eftir! Lau. 12/4 kl. 14 - UPPSELT Lau. 26/4 kl. 14 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakesp eare I SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT Lau. 12/4 kl. 20 Fö. 25/4 kl. 20 'Eróttskur dans rœkjubrauðsneiðar og lifrakœfubrauðsneðar var sérlega eflirminnilegur og svo ekki sé minnst á litlu rœkjunna sem sveiflaði sér fimlega upp og niður tilfinningaskalann. " HF, DV BORGARLEIKHUSIÐ Sunnudagur 13. apríl kl. 20 eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Agúst Úlfsson Miðvikudagur 16. ALLIR i IEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsid er fjöiskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsid i fylgd með forráðamönnum. (Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.) Miðasala 568 8000 BORGARLEIKHUSIÐ Miðasala 5 700 400

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.