Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 32
32
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003
Sport
Frank De Boer:
Blackburn
freistar
Frank De Boer, leikmaður
Barcelona, er með lausan samning
þegar keppnistímabilinu lýkur í
vor. Hann hefur viöurkennnt að
hann getur vel hugsað sér að ganga
til liðs við Blackbum í ensku úr-
valsdeildinni. Félagið hafði áður
neitað því að það hefði áhuga á leik-
manninum en nú þykir ekki ólík-
legt að vilji sé fyrir hendi hjá
Greame Souness, framkvæmda-
stjóra Blackburn, að fá kappann í
sinar herbúðir.
„Ég hef séð Blackbum leika í
sjónvarpinu og ég er hrifmn af því
hvemig þeir reyna alltaf að leika
knattspyrnu. Ég hef alltaf sagt að ég
heíði áhuga á að reyna fyrir mér í
Englandi eftir að hafa lokið
samningi mínum á Spáni.“ -PS
Undanúrslit, fyrri leikir
Celtic-Boavista .............1-1
0-1 Joos Vaalgaeren (49. sjm.), 1-1
Henrik Larssen (50.)
Celtic: Robert Douglas, Bobo Balde,
Johan Mjallby, Joos Vaalgaeren, Paul
Lambert, Neil Lennon, Stilian Petrov
(David Fernandes 77.), Alan
Thompson, Didier Agathe, John
Hartson, Henrik Larsson.
Boavista: Alexandre Ricardo,
Femando Avalos, Guterres Eder,
Nascimento Erivan, Jorge Mario,
Loja, Cesar Paulo Turra, Filipe
Anunciacao, Joaquim Martelinho,
Luis Pedrosa, Carlos Alberto Duda,
Soares Luiz Claudio (Arlindo Cafu
46.HSilva Bosingwa 80.).
Gul Spjöld: Paulo Turra (Boavista
67.), Bobo Balde (Celtic 90.),
Alexandre Ricardo (Boavista 90.).£
Áhorfendur: 60.000
Dómari: Frank Bleeckere (Belgíu).
Porto-Lazio ..................4-1
O-l Claudio Lopez (5.) 1-1 Nuno
Maniche (10.), 2-1 Vanderlei Derlei
(27.) 3-1 Vanderlei Derlei (50.),
Manuel Postiga (56.).
Porto: Vitor Baia, Jorge Costa, Jorge
Nuno Valente, Paulo Ferreira,
Alberto Ricardo Carvalho, Dmitri
Alenitchev (Tiago (81.), Jose
Costinha, Anderson Deco, Nuno
Maniche, Vanderlei Derlei
(Jankauskas 85.), Manuel Helder
Postiga (Marco Ferreira 59.).
Lazio: Angeio Peruzzi, Rodriquez
Cesar, Femando Couto, Guiseppe
Favalli (Castroman 68.), Sinisa
Mihajlovic, Guiseppe Pancaro,
Stefano Fiore, Diego Simeone
(Giannichedda 70.), Dejan Stankovic,
Enrico Chiesa (Simone Inzaghi 57.),
Claudio Lopez.
Gul spjöld: Guiseppe Favalli (Lazio
41.), Guiseppe Pancaro (Lazio 49.),
Stefano Fiore (Lazio 74.), Cesar (Lazio
90.), Lucas Castroman (Lazio 90.)
Áhorfendur: 45.528
Dómari: Kyros Vassaras (Grikkl.).
Formúla 1:
BMWmeð
eigið lið?
Svo getur farið að BMW-bíla-
framleiðandinn, sem er aðili að
WOliams-liðinu í Formúlu 1,
muni senda eigið liö tO keppni í
framtíðinni en forsvarsmenn
BMW eru óánægðir með frammi-
stöðu WiOiams-liðsins.
Það er hins vegar ljóst að
BMW hyggst klára yfirstandandi
keppnistímabO með WOliams-
liðinu, en hlutur þýska bOafram-
leiðandans i samstarfinu er að
sjá liðinu fyrir vélum. Þá segja
forsvarsmenn BMW að eins og
staðan sé í dag sé fullur vOji tO
að halda samstarfmu áfram, en
verði þróuninni hins vegar ekki
snúið við sé ekkert annað að
gera en að stofna sitt eigið lið.
-PS
Henrik Larsson horfir hér til himins eftir að hann hafði misnotað vítaspyrnu gegn Boavista í gærkvöld, en markvörður portúgalska liðsins varði spyrnuna
frá Larsson. Það er Marjo Loja, leikmaður Boavista, sem fylgist glöggt með angist sænska leikmannsins. Reuter
Celtic tók á móti Boavista í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða í gærkvöld:
Larsson misnotaði víti
- Henrik Larsson skoraði eitt mark og misnotaði víti. Stórsigur Porto á Lazio
Celtic gerði 1-1 jafntefli við Boa-
vista í undanúrslitum Evrópu-
keppni félagsliða, en leikurinn fór
fram í Glasgow. Það féO ekkert með
liði Celtic því Henrik Larsson mis-
notaði vítaspymu sem hefði komið
Celtic yfir, 2-1, auk þess sem Joos
Valgaaeren, leikmaður Celtic, gerði
sjálfsmark og kom þannig gestunum
yfir.
Þetta eru mikO vonbrigði fyrir
Celtic sem hafði gert sér vonir um
að fara í síðari leikinn með þægi-
lega forystu, en það er ljóst að síðari
viðureignin verður Skotunum erfið.
Celtic hefur ekki leikið tO úrslita í
Evrópukeppni síðan 1970
Þrátt fyrir að hafa fengið eitt viti
í leiknum og brennt af vOdu leik-
menn Celtic fá fleiri, í það minnsta
tvö i viðbóti, en í bæði skiptin töldu
þeir leikmenn Boavista hafa leikið
knettinum með hönd í eigin vita-
teig. Þá voru þeir ósáttir við tima-
tökuna í leiknum, en dómarinn
bætti við þremur mínútum í
leikslok. Celtic-menn vOdu hafa það
mun meira, meðal annars vegna
þessa að þeim fannst leikmenn Boa-
vista hrynja niður af minnsta tOefni
og liggja fuflengi á jörðinni, gerandi
sér upp meiðsl. „Þessi handaatvik
eru hlutir sem menn virðast þurfa
að láta yflr sig ganga í Evrópu og
ekk skO ég hvemig dómarinn fékk
út aðeins þrjár mínútur í viðbótar-
tíma. Ég myndi vilja sjá leikinn aft-
ur og ég er viss um að taflrnar voru
í það minnsta 10 mínútur.
Leikirnir í Evrópukeppninni eru
líkamlega erfiðir, en í dag var mik-
ið um leikaraskap á meðal andstæð-
inga okkar auk þess sem þeir voru
stöðugt að toga í peysur okkar
manna, “ sagði John Hartson, leik-
maður Celtic.
Martin O'NeOl, framkvæmda-
stjóri Celtic, sagði að leikmenn sín-
ir hefðu verið vonsviknir i búnings-
kiefanum eftir leikinn, en menn
ættu í raun ekki að vera það. „Við
erum í undanúrslitum Evrópu-
keppninnar og þetta er í fyrsta
skipti sem Celtic er hluti af þeirri
keppni eftir jól í 23 ár. Menn em
kannski dálítið pirraðir yfir úrslit-
um kvöldsins, en þetta er ekki búið
eins og dæmið sannar í viðureign-
inni gegn Liverpool á dögunum.
Leikmenn Porto komu tO að vinna
ákveðiö verkefni sem þeir gerðu
vel. Mér heíði hins vegar ekki kom-
ið á óvart þó að dómarinn hefði
bætt við 13 mínútum í leikslok,"
sagði Martin O'NeiO.
Porto vann stórsigur á Lazio í
hinum undanúrslitaleiknum sem
fram fór í Porto. Lazio komst yfir
strax í leiknum með marki frá
Claudio Lopez en þá sögðu leik-
menn Porto stopp, hingað og ekki
lengra og svöruðu með fjómm
mörkum á 46 mínútum. Staða Porto
er góð fyrir síðari leik liðanna.
Það gæti orðið söguleg stund ef
portúgölsku liðin komast bæði
áfram og lenda saman í úrslitaleik,
því aldrei í sögu Evrópukeppninnar
hafa lið frá sömu borg leikið tO úr-
slita í Evrópukeppni. Porto og Boa-
vista koma bæði frá Porto og því
yrði um sannkaflaðan nágrannaslag
að ræða. -PS
Frá Augusta golfvellinum í Georgíu í gær, en þar var keppni frestaö vegna rigninga.
US Masters í golfi:
Frestaö
vegna
rigninga
Fyrsta degi US Masters í golfi,
sem fram mun fara á Augusta golf-
vellinum í Georgíu, hefur verið
frestað vegna rigninga.
Þess í stað verða leiknar 36 holur
í dag, eða tveir hringir, og þrátt fyr-
ir þetta er gert ráð fyrir að mótinu
ljúki á sunnudag.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu keppn-
innar sem fresta þarf keppni vegna
veðurs, en það hefur rignt gríðarlega
á keppnissvæðinu undanfama daga
og þótti vöUurinn ekki í keppnis-
hæfu ástandi í gær. -PS