Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2003
Fréttir DV
Ummæli eins oddvita Frjálslyndra í Morgunblaösviðtali 1999 stinga í stúf:
Oddvitinn varði kvótakerfið
„Þaö er pláss í þessu kerfi,
eins og öllum kerfum, fyrir dug-
lega menn og þeir munu komast
áfram. Það er það eina sem ég
hugsa um,“ sagði Gunnar Örn
Örlygsson um kvótakerfið í
viðtali við Morgunblaðið 4.
ágúst 1999. Spurður um
hvort hann teldi kvóta-
kerfið réttlátt svaraði
hann: „Það má endalaust
deila um það, en ég fæ
ekki salt í grautinn fyrir
að væla yfir óréttlæti."
Gunnar skipar nú
fyrsta sæti á framboðs- '
lista Frjálslynda
flokksins í Suðvest-
urkjördæmi og hef-
ur eins og aðrir
flokksmenn gagn-
rýnt kvótakerfið
harkalega í kosninga-
baráttunni.
„Ég er á allt annarri skoð-
un í dag,“ sagöi Gunnar i
samtali viö DV í morgun.
„Þarna var ég 28 ára að stíga mín
fyrstu skref í útgerð. Þegar ég
hafði stundað hana í nokkra mán-
uði sáum við hve óréttlátt kerfið
var og við komumst hvorki lönd
né strönd og áttum ekki mögu-
leika á að komast áfram. Ég ít-
reka það að ég er á þeirri
skoðun að þetta kvótakerfi
sé eitthvað það arfavitlaus-
asta sem hefur verið sett á
í þessu landi og undir það
taka 80% landsmanna."
Vælið í Vestfirðingum
í Morgunblaðsviðtalinu
vandar félagi Gunnars í út-
gerð, Guðjón Jóhannesson,
Vestfirðingum ekki kveðj-
umar og segir: „Vestfirðing-
ar hafa ekki gert neitt annað
en að væla yfir því að kvót-
inn hafi verið seldur í burtu
og þess vegna hafa þeir ekki
haft tíma til að spá í
hvemig sé hægt að nýta
sér kerfið til að gera eitthvað.
vwfim
3BHgEaMCm»
Ég fæ ekki saltið í
grautinn fyrir að væla
Gagnrýndu væl yfir kvótakerfinu
Þeir Gunnar Örn Örlygsson, nú odd-
viti frjálslyndra í Suövesturkjördæmi,
og félagi hans í útgerö töldu sumar-
iö 1999 aö pláss væri í kvótakerf-
inu fyrir duglega menn.
Kvótinn var seldur frá Keflavík en
annað tók við í staðinn, menn fóru
að einbeita sér aö útflutningi.
Möguleikamir eru alltaf til staðar,
hvar sem er.“
Þá segir Guðjón í viðtalinu að
kvótakerfið hafi breytt þanka-
gangi manna í útgerð: „Nú er
miklu meira hugsað um að skila
góðu hráefni svo hægt sé að fá
sem hæst verð á mörkuðum. Það
er framfór frá því er menn voru að
keppast um að moka sem mestum
afla upp og hirtu ekki um meðferð
hráefnisins." Segir í fréttinni að
Gunnar Örlygsson taki undir
þessi orð félaga síns og bendi á að
mun betur sé farið með aflann en
áður.
Sem kunnugt er hlaut Gunnar
sex mánaða fangelsisdóm í fyrra,
þar af þrjá mánuði skilorðs-
bundna, meðal annars fyrir að
brjóta lög um stjórn fiskveiða frá
febrúar til nóvember 1999 með því
að landa afla fram hjá vigt. Gunn-
ar segir að þau brot hafi á engan
hátt tengst útgerðinni sem þeir
Guðjón Jóhannesson stunduðu og
var tilefni viðtalsins í Morgun-
blaðinu. -ÓTG
VHdapbörn hefja
sig til flugs
Nýr sjóður að nafni Vildarböm
var stofnaður á Hótel Nordica í
gær, sumardaginn fyrsta, en sjóðn-
um er ætlað að styrkja langveik
börn og fjölskyldur þeirra til utan-
ferða á næstu árum.
Nafn sjóðsins er dregið af vildar-
punktakerfi Icelandair en hann
verður meðal annars fjármagnaður
af frjálsum framlögum félaga í
Vildarklúbbi Flugleiða sem geta
gefið ákveðinn fjölda punkta sinna
árlega. Þá mun flugfarþegum gefast
framvegis kostur á að láta afgangs-
mynt í umslög í sætisvösum sem
renna mun beint til sjóðsins. Þessu
til viðbótar afhenti stjóm Flugleiða
þriggja milljóna króna stofnframlag
til sjóðsins í gær.
Stjóm sjóðsins kom saman til
fyrsta fundar síns í gær og er
reiknað með að hún veiti um tutt-
ugu börnum og fjölskyldum þeirra
ferðastyrk á hverju ári. Umsóknir
um styrki verða auglýstar sérstak-
lega á næstu vikum.
Landsbanki íslands mun annast
fjárvörslu sjóðsins. -aþ
Fyrsta frjálsa framlagið
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, er verndari Vildarbarna og afhenti hún Siguröi Helgasyni, forstjóra
Flugleiöa, fyrsta frjálsa framiagiö t umslagi merktu sjóönum á Hótel Nordica í gær. Á myndinni eru einnig Peggy
Helgason, eiginkona Siguröar, sem ötullega hefur unniö aö málefnum langveikra barna á síöustu árum, og Kári
Kárason, hóteistjóri Nordica og einn stjórnarmanna í ViIdarbörnum.
Mál Þróunarfélagsins í Vestmannaeyjum:
Kært tl efnahagsbrotadeikfai’
Sjávarútvegsfyrir-
tæki svartsýnust
í könnun sem IMG Gallup hefur
gert fyrir fjármálaráðuneytið og
Seðlabankann kemur fram að 51,2%
fyrirtækja vænta þess að velta verði
meiri í ár en í fyrra, en 17,3% telja
að velta muni dragast saman. Sjáv-
arútvegsfyrirtæki gerðu helst ráð
fyrir samdrætti. Um 53% fyrirtækj-
anna áætla samdrátt og sami fjöldi
að hagnaður yrði minni. Aðeins 9%
fyrirtækjanna gerðu ráð fyrir meiri
hagnaði í ár. -GG
„Fólk á rétt á að fá fulla vitneskju
um hvað varð um allt það mikla fé,
tugi milljóna króna, sem farið hafa í
gegnum Þróunarfélagið. Það er því
alveg ljóst að bæjarstjóm mun sam-
þykkja að senda málefni Þróunarfé-
lagsins til rannsóknar hjá efnahags-
brotadeild Ríkislögreglustjóra, hjá
því verður ekki komist," sagöi Andr-
és Sigmundsson forseti bæjarstjómar
í samtali við DV í morgun.
Stuttar fréttir
Sjálfsvörn hjá Framsókn
Framsóknarflokkurinn fer
ótroðnar slóðir í kosningabarátt-
unni í Norðvesturkjördæmi því þar
verður konum boðið upp á sjáífs-
vamamámskeiö í iþróttasalnum í
Sundhöll ísafjarðar sem hefst í dag
kl. 17. Leiðbeinandi er Eydís Líndal
Finnbogadóttir sem skipar 4. sæti á
framboðslista flokksins í kjördæm-
inu, en hún er jarðfræðingur og lið-
tækur karate-iðkandi. BB greindi
frá.
Styrkur og bjórafsláttur
Nokkur stúdentsefni frá Mennta-
skólanum við Sund bám vörur sem
tengdust tveimur bjórheildsölum í
nýafstaðinni dimmisjón og fengu í
öðru tilvikinu afslátt af bjór fyrir
Félagsmálaráðuneytið gerði í
ársbyrjun athugasemdir við starf-
semi og rekstur Þróunarfélagsins
á 13 vélrituðum síðum. Þar var
fundið að mörgu og talað um brot
á lögum um bókhald og ársreikn-
inga, en bókhaldsgögn félagsins
týndust sem frægt er orðið. Ráðu-
neytið telur að sveitastjórnarlög
hafi verið brotin þegar félagið upp
á eindæmi skuldsetti bæjarfélagið
en í hinu fjárhagslegan styrk. Fyr-
irtækin vora Ölgerðin Egill SkaÚa-
grímsson og Austurbakki.
Bara tímaspursmál
Sigurður Guð-
mundsson land-
læknir segir það
eingöngu tíma-
spursmál hvenær
hin dularfulla
bráðalungnabólga
greinist hér á
landi. Nú þegar
hefur á þriðja hundrað manns lát-
ist úr veikinni víða um heim. RÚV
greindi frá.
Mikill skógræktaráhugi
Um 300 landeigendur era á
um tugi milljóna króna.
„Ráðuneytið er í raun að fela bæj-
arstjóm að taka endanlega ákvörðun
um framhald málsins, það er hvort
það verður sent lögreglu til rann-
sóknar. í áliti ráðuneytisins er bent á
að verði sveitarstjóm ekki við áskor-
un ráðuneytisins sé heimilt að stöðva
greiðslur til sveitarsjóðs úr jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga," sagði Andrés Sig-
mundsson. -JBP
biðlista eftir aö taka þátt í lands-
hlutabundnu skógræktarverkefhi
ríkisins en nú þegar taka rúmlega
500 landeigendur þátt í verkefninu.
Stærstur hluti er bændur sem hafa
verið að draga saman í hefðbundn-
um búskap. Mbl. greindi frá.
Háskóli í garöyrkjunni
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráð-
herra undirritaði í
gær nýja reglugerð
í Garðyrkjuskóla
ríkisins að Reykj-
um í Ölfusi sem
gerir skólanum
kleift að útskrifa
nemendur á háskólastigi með B.Sc.-
gráðu. -HKr.
Sjávarútvegur:
Fæneyingar
íhuga hvalveiðap
Svo kann að fara að Færeying-
ar hefji hvalveiðar á nýjan leik
en fyrir utan grindhvalaveiðar á
sumrin hafa Færeyingar ekki
stundað hvalveiðar í atvinnu-
skyni frá því að hvalveiðar voru
bannaðar á miðjum níunda ára-
tug síðustu aldar. Haft er eftir
Jakob Vestergaard, sjávarútvegs-
ráðherra Færeyinga, að til að
byrja með vilji hann að hafnar
veröi hvalveiðar í vísindaskyni
til þess að finna út hvort grund-
völlur sé fyrir veiðum í atvinnu-
skyni. Einkum er horft til hrefnu-
veiða en að auki kemur til greina
að veiða aðra stærri hvali ef
stofnarnir þoli veiðar.
Færeyingar veiða árlega nokk-
ur hundruð grindhvali á ári og
komið hefur í ljós að sá stofn þol-
ir ágætlega að hann sé nýttur.
Bent er á að umhverfisverndar-
sinnar hafi leyft Færeyingum að
stunda þessar veiðar í friði ef
undan séu skilin öfgasamtök á
borð við Sea Shepherd. Green-
peace hefur ekki beint sjónum
sínum sérstaklega að hvalveiðum
Færeyinga en fullvíst má telja að
Greenpeace-samtökin muni ekki
sætta sig við að Færeyingar hefji
hvalveiðar í atvinnuskyni. -GG
Femínistafélagiö:
Á móti fegupðap-
samkeppnum
Staðalímyndahópur Femínista-
félags íslands er á móti því að
fólk keppi í fegurð.
Segir í tilkynningu frá hópnum
að enda sé fegurð afstætt hugtak.
„Okkar skoðun er sú að fegurð-
in felist í margbreytileika mann-
lífsins og að útlit sé aðeins einn
lítill hluti af mörgum sem móta
persónuna og gera okkur að því
kraftaverki sem við erum. Það er
álit okkar að þær staðalímyndir
sem haldið er á lofti í dag, og er
m.a. viðhaldið með fegurðarsam-
keppnum, hafi óæskileg áhrif á
bæði konur og karla,“ segir í til-
kynningunni.
Til að koma sjónarmiðum sín-
um á framfæri hefur staðalhópur-
inn útbúið bækling þar sem bent
er á óæskileg áhrif staðalímynda
og leiðir til eflingar sjálfstæðis.
„Þetta er í raun sögufræg
stund. í 35 ár hafa femínistar
staðið fyrir utan fegurðarsam-
keppnir og mótmælt en í þetta
sinn verða femínistar uppi á
sviði í beinni útsendingu," segir í
tilkynningunni.
-hlh
í mi+Æ helgarblað
Söngfugl í
nýjum ham
í Helgarblaði DV
á morgun er itarlegt
viðtal við Bjöm
Leifsson athafna-
mann. Bjöm talar
hispurslaust um
harða samkeppni,
sjálflærðan stjómunarstíl og setu á
sakamannabekk. DV ræðir einnig við
fjórar ungar konur i Femínistafélagi
íslands sem ætla sér að hrista upp í
umræðunni um jafnrétti kynjanna.
DV fjallar um tilfinningabönd sem
húseigendur tengjast íbúðum sínum
og hve erfitt getur verið að rjúfa þau.
Einnig talar blaðið við Geir Ólafsson
söngvara sem nú haslar sér völl sem
„dragdrottning“.