Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2003
Fréttir
DV
Veriö er að leggja fram nýjar hugmyndir verkfræðinga Línuhönnunar
og hönnuðar sem gert hefur þessa útlitsmynd af mislægum gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar án umferðarljósa. Auk þess er um
heildarlausnir á umferðarvanda fleiri gatnamóta í nágrenninu að ræða.
Ný þriggja hæða gatnamót ð Kringtumýrarbraut og Miklubraut
Þessi glæsilega mynd er hönnuö og unnin af Sigurði Vali Sigurössyni samkvæmt forskrift byggingaverkfræöinganna Haralds Óskarssonar og Haraldar Sigþórssonar hjá Línuhönnun. Hún er birt hér
meö góöfúslegu leyfi þeirra og ritstjóra Tæknivísis. Á myndinni sést aö Kringlumýrarbraut ligguryfir Miklubraut í um 1 metra hæö yfír núverandi vegi og áfram til hægri á myndinni niöur aö Sæbraut.
Sex metrum neöan viö núverandi veglínu á gatnamótunum er svo hringtorg og undir þaö stokkur í aksturstefnu Mikiubrautar, austur/vestur.
Mjög ítarlega hefur verið fjaliað
um hættuleg gatnamót Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar og
gerð mislægra gatnamóta á þeim
stað sem gætu dregið gríðarlega úr
þeim fómarkostnaði sem umferðin
tekur þar vegna slysa á hverju ári.
Nú er komin fram mjög athyglis-
verð hugmynd til lausnar þessum
vanda sem Harald Óskarsson og
Haraldur Sigþórsson, byggingar-
verkfræðingar hjá Línuhönnun,
hafa lagt fram. Hefur hugmyndin
verið útfærð á glæsilegan hátt af
Sigurði Vali Sigurðssyni sem hann-
að hefur útlit fjölda umferðarmann-
virkja. Byggist hugmynd þeirra fé-
laga á gerð þriggja hæða gatnamóta
á þessum stað þar sem ekki verður
þörf á umferðarljósum. Þessari
hugmynd hefur ekki verið lýst
áður opinberlega og hafa verkfræð-
ingamir og listamaðurinn gefið
góðfúslegt leyfi til að DV birti
myndina og sömuleiöis ritið
Tæknivísir, blað nemenda Tækni-
skólans. Tæknivísir íjalla enn ítar-
legar um hugmyndir þessar í
næsta tölublaði sem kemur út í
maí. Eru öllum þessum aðilum
færðar sérstakar þakkir fyrir.
Margra ára deilur
Deilur hafa staöiö um gerð mis-
lægra gatnamóta á þessum stað í
mörg ár. Gerð þeirra var í aðalskipu-
lagi Reykjavikur 1990-2010 en við
endurskoðun skipulagsins vora þau
tekin út. Meirihluti borgarstjómar
samþykkti þess í stað íjögurra fasa
ljósastýrð gatnamót í stað þriggja.
Hafa borgaryfirvöld verið gagnrýnd
harðlega fyrir að hafa ekki stuðlað að
framgöngu málsins með því að koma
gatnamótunum inn á skipulag.
Tryggingafélög og fleiri sem hafa
látið sig málið varða hafa óskað eftir
gerð slaufu- eöa smáragatnamóta án
umferðarljósa á þessum stað sem
skila myndu hámarks-umferðarör-
yggi. Fiöltrúar meirihluta borgar-
stjómar hafa bent á að vegna nálægö-
ar við byggð á svæðinu sé ekki hægt
að koma þar fyrir venjulegum
slaufugatnamótum. Um þetta eru
menn þó ekki á einu máli en hug-
myndir hafa hins vegar verið uppi
um að leysa málið með því að leggja
Kringlumýrarbraut í stokk undir
Miklubraut. Sú lausn hefur þó þann
annmarka að menn losna ekki við
notkun umferðarljósa að öllu leyti.
Það hefur m.a. verið gagnrýnt af
tryggingafélögum vegna augljóss
áframhaldandi kostnaðar við afta-
nákeyrslur, bæði tjón á ökutækjum
og vegna slysa á fólki. Benda menn
m.a. á reynsluna af mislægum
gatnamótum Reykjanesbrautar,