Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Page 10
10
Útlönd
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2003
DV
Dáti í þjóöminjasafni
Bandarískur hermaöur stendur vörö-
inn í íraska þjóöminjasafninu í
Bagdad sem varö illilega fyrir barö-
inu á gripdeildarmönnum.
Sakar hermenn um að
hafa ekki gert nóg til
að stöðva gripdeildir
Donny George, yfirmaður forn-
minjavörslu í Irak, segir að
bandarískir hermenn hafi látið
hjálparbeiðni frá starfsmönnum
íraska þjóðminjasafnsins sem
vind um eyrun þjóta og ekki veitt
nægilega vernd gegn gripdeildar-
mönnum sem stálu öllu steini
léttara í safninu eftir fall Bagdad.
Yfirmaður bandarísku hersveit-
anna sem fyrirskipað var að
standa vörð um safnið segir aftur
á móti að menn sínir hafi gert
allt sem þeir gátu til að koma í
veg fyrir þjófnað á þjóðarger-
semunum. Ekki væri því hægt að
kenna hermönnum hvemig fór.
Ómetanlegir fjársjóðir, sumir
mörg þúsund ára gamlir, voru
ijarlægðir eða eyðilagðir í
vargöldinni í írösku höfuðborg-
inni eftir fall Saddams Husseins.
Lögreglan hefun ákært
Mhosevic fyrir morö
Serbneska lögreglan hefur
ákærð Slobodan Milosevic, fyrr-
um Júgóslavíuforseta, fyrir að
hafa hvatt til morðsins á forvera
sínum og andstæðingi, Ivan
Stambolic, á árinu 2000.
Stambolic hvarf í ágústmánuði
2000, skömmu áður en Milosevic
hrökklaðist frá völdum í upp-
reisn almennings. Líkamsleifar
hans fundust aftur á móti ekki
fyrr en í síðasta mánuði.
Lögreglan sagði að fimm menn
úr sérsveitum lögreglunnar hefðu
rænt Stambolic og myrt.
Átta menn aðrir hafa verið
ákærðir fyrir morðið, þar á með-
al fyrrum yfirmaður lögreglu-
sveitar sem einnig er grunaður
um aðild að morðinu á Zoran
Djindjic forsætisráðherra í mars.
Tariq flziz í haldi Banda-
ríkjamanna í Bagdad
Tariq Aziz, fyrrum aðstoðarfor-
sætisráðherra íraks og einn þekkt-
asti ráðamaður íraka á Vestur-
löndum, er nú í gæslu bandaríska
hersins í írak eftir að hafa gefið sig
sjálfur fram í Bagdad í gær.
Að mati stjómmálaskýrenda er
Aziz feitasti bitinn, sem náðst hefur
til þessa af þeim 55 sem bandarísk
stjómvöld listuðu í spilastokk sinn
yfir eftirlýsta íraka, þrátt fyrir að
vera þar aðeins í 43. sæti, en hann
er í hópi þeirra sem kallaðir hafa
verið „tólf ruddar“ sem meðlimur
byltingarráðs Saddams Husseins og
auk þess eftirlýstur af Bandaríkja-
mönnum fyrir meinta striðsglæpi í
Persaflóastriðinu árið 1991.
Aziz er jafnvel talinn búa yfir
vitneskju um afdrif Saddams Huss-
eins eða hvar hann dvelst en hann
var einn nánasti samstafsmaður
Tariq Aziz
Tariq Aziz, fyrrum aöstoöarforsætis-
ráöherra íraks, gaf sig sjálfur fram
viö Bandaríkjamenn í fyrrinótt.
Saddams frá upphafi valdaferils
hans en þó aldrei inni í innstu
Tikrit-klíkunni, líklega vegna upp-
runans, en Aziz er kristinnar trúar
og fæddur og uppalinn í borginni
Mosul í norðurhluta landsins.
Taliö að hann búi einnig yfir
mikilvægri vitneskju um gjöreyð-
ingarvopnaáætlanir og eign íraka,
sem voru helsta ástæðan fyrir hem-
aðaraðgerðum bandamanna í land-
inu.
Ekki er enn vitað hvað varð til
þess að Aziz gaf sig fram en að sögn
eins talsmanns yfirstjómar banda-
ríska hersins í Katar gaf hann sig
sjálfviljugur fram við bandaríska
hermenn I fyrrinótt en samkvæmt
óstaðfestum fréttum tók hann þá
ákvörðun eftir árangurslausar
samningaviöræður við milli-
göngumenn.
REUTERSMYND
Maöurinn og bolinn
Spænski nautabaninn Morante de la Puebla sýndi listir sínar f Maestranza-nautahringnum í borginni Sevilla á sunnan-
veröum Spáni í gær þegar hann baröist gegn stæðilegu nauti og haföi sigur.
VÍSLAND!
'MALNING
Hágæða ak/ýJ
innimálning
'gjm
\líar Teknos vörur frar
\ /
Stórmarkaðsverð
Allar Teknos vörur framleiddar
skv. 9001 gædakerfi.
Innimálning Gljástig 3
Verð frá kr. 298 pr.l.
.^Ónnimálning Gljástig 7
Verð frá kr. 330 pr. líter
Sími 517 1500 • Sætún 4 • 105 Reykjavík
www.islandsmalning.is
VTEKNOS
Hugsanlega eru engjn
gjöreyðingarvapn í irak
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að hugsanlega
hefðu Irakar eyðilagt eða flutt
gjöreyðingarvopnin sem voru til-
efni stríðsins á hendur írak. Vopn-
in hafa ekki enn fundist, þrátt fyr-
ir mikla leit.
Forsetinn lét orð um það falla í
ræðu sem hann flutti frammi fyr-
ir verksmiðjustarfsmönnum í
Ohio sem framleiddu marga
Abrams-skriðdrekana sem banda-
ríski herinn beitti gegn liðsafla
Saddams Husseins.
„Þaö mun taka tíma að finna
þau,“ sagði Bush um meint gjör-
eyðingarvopn Saddams. „Við vit-
um að hann átti þau og við mun-
um komast að sannleikanum um
hvort hann eyðilagði þau, flutti
burt eða faldi. Og eitt er víst,
Bandaríkjunum stendur ekki leng-
ur ógn af Saddam Hussein og gjör-
eyðingarvopnum hans.“
Þetta var í fyrsta sinn sem Bush
hefur ýjað að þeim möguleika að
REUTESMYND
Bush í skriðdrekaverksmiöju
Bush Bandaríkjaforseti klifraöi upp á
Abrams-skriödreka til aö heilsa
starfsmanni í verksmiöjunni þar
sem drekarnir eru framleiddir.
vopnin hafi verið eyðilögð áður en
ráðist var inn í írak og að hugsan-
lega myndu þau aldrei finnast.
meiri tíma
Forystumenn í
danska jafnaðar-
mannaflokknum
segja að það sé að-
eins tímaspursmál
hvenær leiðtoga
flokksins, Mogens
Lykketoft, takist
að sannfæra
landsmenn um að hann sé betri
maður í forsætisráðherraembætt-
ið en Anders Fogh Rasmussen.
BNA vilja SÞ ekki með
Bandarísk stjórnvöld vilja ekki
að Sameinuðu þjóðirnar fái að
vera með í ráðum um sölu á olíu
frá írak eftir að áætlunin um olíu
fyrir matvæli rennur út í júní.
Menntakonur Irekar barnlausar
Konur með háskólapróf eru 50
prósentum líklegri en aðrar til að
eiga ekki börn, að því er fram
kemur í breskri rannsókn.
Chirac ekki boðið á búgarðinn
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti getur ekki vænst þess að
vera boðið að heimsækja Bush
Bandaríkjaforseta á búgarð hans
í Texas vegna andstöðunnar við
Íraksstríðið, að sögn Bush sjálfs.
Týndir tald>r af eftir skriðu
Björgunarliðar í Gvatemala
hafa gefið upp alla von um að
flnna ellefu manns sem saknað
var eftir að aurskriða féll og varð
tólf öðrum að bana.
Nýtt skinn grætt á Ali
Læknar í
Kúveit tilkynntu í
gær að þeir
myndu byrja að
græða skinn á
brunasár hins tólf
ára gamla Alis Is-
mails Abbas frá
írak sem missti
báða handleggi sina í loftárásum
Bandaríkjamanna á Bagdad.
Myndir af Ali litla á sjúkrahúsi I
Bagdad birtust í fjölmiðlum um
allan heim.
Drap skólastjórann og sig líka
Fjórtán ára piltur í Pennsyl-
vaníu í Bandaríkjunum kom með
byssur í skólann í gær og drap
skólastjórann í matsalnum áður
en hann svipti sjálfan sig lífi.
Murphy með mest fylgi
Markaðshyggju-
maðurinn Ricardo
Lopez Murphy
nýtur mests stuðn-
ings þriggja fram-
bjóðenda í forseta-
kosningunum í
Argentínu, sem
fram fara á
sunnudag, að því er fram kom í
skoðanakönnun í gær.
Nemandinn mætti ekki
Ekki tókst að opna minnsta
skóla á Bretlandi þar sem eini
nemandinn mætti ekki vegna óá-
nægju með nýráðinn kennara.
Blóðugrar orrustu minnst
Þúsundir manna komu saman
á Gallipoli-skaga í Tyrklandi við
dögun í morgun til að minnast
einhverrar blóðugustu orrustu
heimsstyrjaldarinnar fyrri.
Lykketoft þarf