Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Síða 25
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2003
Freyr Brynjarsson skorar gegn Hallgrími Jónassyni, markveröi ÍR, í leiknum aö Hlíöarenda í gærkvöid. Annars reyndist Hallgrímur Valsmönnum erfiöur en
hann varöi á köflum eins og berserkur. Hallgrímur varöi alls 22 skot og átti stóran þátt í sigri síns liðs. DV-mynd Teitur
- þegar ÍR sigraöi Val á Hlíðarenda í framlengdum leik
Það var ÍR sem sigraði Val, 34-31,
að Hlíðarenda í fyrsta leik þessara
liða í undanúrslitum ESSO-deildar-
innar i handbolta í gærkvöld. Leik-
urinn var gríðarlega spennandi og
réðust úrslit ekki fyrr en i framleng-
ingu. Sigra þarf í tveim leikjum til
að tryggja sér sæti í úrslitaviður-
eignum um íslandsmeistaratitilinn
og Breiðhyltingar eru því komnir
vel á veg með það.
Leikmenn gestanna höfðu forystu
í leiknum nærri allan leikinn og því
hægt að segja að sigur þeirra hcdi
verið verðskuldaður þó að munur-
inn á liðunum í gærkvöld hafl ekki
verið mjög mikill. Það var strax ljóst
í upphafi leiks að mikið var í húfi.
Bæði lið spiluðu framliggjandi vörn
og hraustlega var tekist á. Góðir
dómarar leiksins byrjuðu leikinn
lika af krafti og höfðu góð tök á því
sem fram fór. ÍR-ingar byrjuöu betur
og leiddu allan fyrri hálfleikinn.
Mestur varð munurinn fjögur mörk
en með mikilli baráttu náðu heima-
menn að minnka muninn niður í
eitt mark fyrir hlé.
Gestirnir skoruðu þrjú fyrstu
mörkin í seinni hálfleik. Eftir það
leiddu þeir leikinn fram yfir miðjan
hálfleikinn. Þá náðu Valsmenn að
vinna muninn niður og jöfnuðu þeg-
ar um tíu mínútur voru eftir. Þeir
náðu einu sinni forystunni í stöð-
unni 26-25 en eftir það voru ÍR-ing-
ar alltaf á undan að skora. Mikil
spenna var undir lokin er Einar
Hólmgeirsson kom ÍR yfir þegar 40
sekúndur voru eftir. Valsmenn jöfn-
uðu jafhharðan og gestimir fengu
eina sókn í lokin sem endaði með
því að þeir fengu aukakast sem ekki
tóks að skora úr.
I framlengingunni var ÍR á undan
að skora en samt ekki fyrr en bæði
lið voru búin að fara þrisvar i sókn
en markmenn beggja liða vörðu án
afláts. En þijú mörk á síðustu mín-
útum fyrri hálfleiksins gerðu nærri
út um leikinn. Valsmenn áttu erfitt
uppdráttar eftir þaö og sigurinn
tryggður.
Hjá ÍR átti Hallgrímur Jónasson
góðan leik í markinu. Einar Hólm-
geirsson og Guðlaugur Hauksson
voru atkvæðamiklir í sókninni
ásamt Ólafi Sigurjónssyni sem kom
inná í seinni hálfleik. Bjarni Fritz-
son nýtti einnig sin færi vel. Vörnin
var einnig mjög góð hjá þeim. Vals-
menn voru í miklum vandræðum
með að koma einhveijum takti í
sinn sóknarleik gegn þessari gríðar-
lega hvössu og sterku framliggjandi
vöm sem sótti í sóknarmenn Vals-
manna langt út fyrir punktalínu.
Þar stendur þjálfarinn, Július Jón-
asson, eins og herforingi i miðjunni
og stýrir sínum mönnum.
Hjá Val átti Snorri Steinn Guð-
jónsson mjög góðan leik í sókn.
Markús Máni náði sér einnig nokk-
uð á strik en aðrir leikmenn liðsins
áttu í nokkrum erfiðleikum í sókn-
inni. Vamarleikur þeirra var nokk-
uð góður. Þar fer fremstur meðal
jafningja Ragnar Ægisson. Roland
Eradze, markvörður Vals, náði sér
ekki alveg á strik í þessum leik og
munar um minna fyrir Valsmenn
sem treysta mikið á þann frábæra
markvörð.
Það er mikiö eftir
„Mjög ánægður með að hafa sigr-
að hér á útivelli. Þaö er náttúrlega
mikið eftir, það er bara hálfleikur.
Við voram að spila vel meirihlutann
af leiknum. Viö leiddum allan leik-
inn en eram klaufar að hleypa þeim
inn í þetta sem verður til þess að
það er framlenging. Við höfum farið
í framlengingu áður og hingað til
sigrað og ætluðum okkur að sigra
sem og við gerðum. Ég held að þessi
framliggjandi vörn hafi hjálpað okk-
ur, það er engin spurning. Sóknar-
lega vorum við meirihluta leiksins
mjög skynsamir og póstamir hjá
okkur að spila virkilega vel. Vorum
að rúlla vel á skiptingum og hvaða
lið sem er þarf að spila virkilega vel
til að sigra hér á Hlíöarenda," sagði
Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR.
Svekkjandi að tapa heima
„Náttúrlega er svekkjandi að tapa
hér á sínum heimavelli og nú erum
við komnir með bakið upp við vegg
og verðum að fara í Austurbergið og
sækja sigur. Það er eitthvað sem við
erum búnir að gera einu sinni í vet-
ur og er eitthvað sem við getum gert
aftur, engin spuming. Það eru of
margir sterkir póstar ekki að skila
sínu og maður er náttúrlega orðinn
ágætlega kröfuharður á Roland
greyið og hann var ekki að finna sig
í leiknum og þá sérstaklega i seinni
hálfleik. Það eru svona þættir sem
snúa beint að okkur sem við verðum
bara að laga. Þetta er ekki flóknara
en það að við ætlum að vinna í
næsta leik,“ sagði Geir Sveinsson,
þjálfari Vals. -MOS
Guðnwndur Steinarsson
genpn í raðir Fram
Guðmundur Steinarsson, knatt-
spymumaður úr Keflavík, mun á
komandi tímabili leika með Fram í
úrvalsdeildinni. Stjóm Knatt-
spymudefldar Fram hefur átt í
viðræðum við Guðmund að undan-
fómu og í gærkvöld komust aðflar
að munnlegu samkomu-
lagi. Framarar gerðu Guð-
mundi ákveðið tOboð sem
hann gekk að og er hann
væntanlegur tO landsins
frá Danmörku í næstu
viku.
Guðmundur hefur sl.
vikur leikið með danska 2.
deOdarliðinu Branshoj og hefur
skorað 3 mörk fyrir félagið sem er
sem stendur í níunda sætinu í
deOdinni. Guðmundur er 24 ára
gamafl sóknarmaður og hefur aO-
an sinn ferO leikið með Keflvíking-
um. Hann skoraði fimm mörk í úr-
valsdeOdinni í fyrra með
Keflavík en aOs á hann að
baki 82 leiki með liðinu í
deOdinni.
Ekki leikur vafi á að Guð-
mundur kemur tO með að
styrkja Framliðið mikið í
sumar.
-JKS
Sport
UaluHR 31-34
1-0, 1-3, 4-6, 6-9, 8-12, 12-13, (13-14). 13-17,
15-19, 18-22, 22-23, 24-24, 26-26, 27-28,
28-29-29-29. 29-32, 30-33, 31-34.
Valur:
Mörk/viti (skot/viti): Snorri Steinn
Guöjónsson 11/2 (19/3), Markús Máni
Mikaelsson 6/2 (10/3), Hjalti Pálmason 4 (4),
Freyr Brynjarsson 4 (6), Ragnar Ægisson 2 (2),
Ásbjörn Stefánsson 2 (3), Hjalti Gylfason 1 (4),
Siguröur Eggertsson 1 (4), Roland Eradze (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Snorri
Steinn 3, Hjalti P., Ásbjörn, Markús, Freyr).
Vitanýting: Skoraö úr 4 af 6.
Fiskuö vitú Freyr 2, Markús, Snorri Steinn
Hjalti G., Ragnar.
Varin skot/viti (skot á sig): Roland Eradze
15 /3 (48/5, hélt 2, 31%, eitt víti stöng.
Brottvísanir: 4 mínútur, Ásbjörn rautt fyrir
brot.
Dómarar (1-10):
Gunnar Stefán
Arnaldsson (9).
GϚi leiks
(1-10): 9.
Áhorfendur: 500.
Maöur
Hallgrímur Jónasson, ÍR
ÍR:
Mörk/víti (skot/víti): Einar Hólmgeirsson 9
(17), Bjarni Fritzson 6 (7), Guölaugur
Hauksson 6/1 (11/2), Ólafur Sigurjónsson 5/1
(7/1), Ingimundur Ingimundarson 3 (11),
Fannar Þorbjömsson 2 (2), Ragnar Helgason 1
(2), Kristinn Björgúlfsson 1 (2), Sturla
Ásgeirsson 1 (5/3).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Bjami 2,
Fannar, Ólafúr).
Vitanýting: Skoraö úr 2 af 6.
Fiskuö vítL Ingimundur 2, Ólafúr 2, Einar,
Bjami.
Varin skot/viti (skot á sig): Hallgrímur
Jónasson 22/1 (52/5, hélt 8, 42%, eitt víti í
stöng).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Valun-ÍR
Víðavangshlaup ÍR:
fljöpnkom
fypstur
ímapk
Víðavangshlaup ÍR var þreytt
í 88. skiptið í gær en hlaupið er
á götum í nálægð við Tjömina.
Það var Bjöm Margeirsson úr
Breiðabliki sem kom fyrstur i
mark í karlaflokki og hljóp á
15,43 mínútum. Burkni Helga-
son, ÍR, varð annar á 15,49 mín-
útum og Ólafur Ámason, HSV,
lenti á þriðja sæti á 16,05 mínút-
um.
Martha Ernstdóttir, ÍR, kom
fyrst kvenna í mark á 16,59 mín-
útum. Gerður Rún Guðlaugsdótt-
ir, ÍR, varð í öðru sæti á 17,42
mínútum og Fríða Rún Þórðar-
dóttir, ÍR, hljóp á 18,23 mínútum
og hreppti þriðja sætið.
-JKS
Brooking stýrir
West Ham
Stjóm enska úrvalsdeildar-
liðsins West Ham United komst
að samkomulagi við Trevor
Brooking um að hann stjórnaði
liðinu í þeim þremur leikjum
sem eftir eru í veikindaforforföll-
um Glenns Roeder. Trevor
Brooking er einn þekktasti leik-
maður enskrar knattspymu og
lék allan sinn feril með West
Ham. Hann átti um árabil fast
sæti í enska landsliðinu en hann
hætti knattspymuiðkun endan-
lega 1984. Hann hefur sinnt við-
skiptum og einnig unnið hjá
BBC við knattspyrnulýsingar.
Glenn Roeder, knattspymu-
stjóri West Ham, hefur legið á
sjúkrahúsi í Lundúnum til rann-
sóknar. Hann fékk verk fyrir
brjóstið eftir leikinn gegn Midd-
lesborough og var fluttur í
skyndingu á sjúkrahús. Rann-
sóknir hafa leitt í ljós að svolítið
hefur blætt inn á heila en búist
er þó við að hann nái sér að lok-
inni hvíld.
West Ham er í alvarlegri fall-
hættu en aðeins þremur umferð-
um er ólokið. -JKS