Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Blaðsíða 16
4+
16______________________________________________________________________________________________FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003_FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003_____ 17
Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson
Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 82, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fýrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Úrrœðaleysi
Úrræðaleysi ríkir í vistun fanga
með geðraskanir. Ástandinu hefur
verið lýst í fréttum DV undanfarna
daga. Tilefni fréttanna var saga
rúmlega fertugrar konu sem af-
plánar dóm fyrir manndráp í Kópa-
vogsfangelsi en hefur verið vistuð
víða - á Sogni, Litla-Hrauni og í
Byrginu. Konan stríðir við mikla vanlíðan og þunglyndi og
hefur gert ítrekaðar tilraunir til sjálfsvígs. Hún er fíkill, með
alvarleg einkenni persónuleikatruflunar og skapgerðarbresta,
talin árásargjörn og jafnvel hættuleg undir áhrifum áfengis,
lyfla og eiturlyfja. Konan hefur því, vegna sjúkdóms sins,
reynt mjög á þolrif starfsfólks og samfanga í Kópavogsfangels-
inu.
Þessi kona þarf mikla umönnun en öðruvísi aðstæður en
hún býr við í dag. Hið sama á við um fleiri sem dvelja í fang-
elsum landsins en þyrftu meðferðarvistun. Það var mikil
framför þegar Réttargeðdeildin á Sogni tók til starfa, þar sem
ósakhæfir afhrotamenn dvelja, en hún er fullsetin og getur
því ekki leyst úr þeim bráða vanda sem við er að etja.
Magnús Skúlason, yfirlæknir á Réttargeðdeildinni á Sogni,
giskar á að geðtruflaðir fangar, sem flokka megi sem bráðatil-
vik en dvelji í fangelsum, geti verið &-6 núna. Yfirlæknirinn
segir að þau úrræði sem fyrir hendi séu til að vista geðsjúka
fanga, eða fanga með alvarlegar geðraskanir og hegðunar-
truflanir, endurspegli ákveðinn skort í meðferðarkerfinu.
Þetta fólk þurfi meðferðarúrræði. Því finni menn sárlega til
þess að ekki skuli vera fleiri páss á Sogni. Fangarnir, sem svo
illa sé komið fyrir, verði að dveljast annars staðar við ófull-
nægjandi aðstæður.
Slíkt er hvorki boðlegt hinu sjúka fólki né þeim sem það
dvelur hjá, hvort heldur er starfsfólk stofnana eða samfangar.
í svo nánu sambýli gætu fangar hugsanlega þurft að taka út
margfalda refsingu.
Spurður sagðist Þorsteinn A. Jónsson, forstjóri Fangelsis-
málastofnunar, ekki vita um nein úrræði fyrir þessa fanga.
Hann sagði að því miður ættu margir fangar við geðræn
vandamál að stríða en ekki væru önnur úrræði en fangelsi
fyrir þá sem dæmdir væru til slíkrar vistar. Komið hefði fyr-
ir að menn með alvarlega geðveiki, en þó dæmdir sakhæfir,
hefðu verið vistaðir á Sogni. Þar væri hins vegar allt fullt svo
fleiri kæmust ekki að þótt menn vildu skipa málum á þann
veg.
Það er einmitt á þann veg sem þarf að skipa málum. Á
Sogni er fyrir starfsfólk og sérþekking. Núverandi húsnæði er
fullnýtt. Úr því þarf að bæta og það hið bráðasta. Fram kom
hjá yfirlækninum á Sogni að Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi hefði lagt fram formlegar tillögur síðastliðið haust til
heilbrigðisráðherra í þá veru að strax yrði aukið við Réttar-
geðdeildina á Sogni til að leysa úr þessum bráða vanda. Okk-
ar tillögur eru þær, sagði Magnús Skúlason yfirlæknir, að
plássum á Sogni verði fjölgað sem allra fyrst. Að sögn hans er
eins konar yfirbyggður fangelsisgarður á Sogni sem aldrei er
notaður. Byggja mætti yfir hann og nýta það mannvirki.
Til er teikning að þessari viðbyggingu og talið að kostnað-
ur við hana sé undir 30 milljónum króna. Með þeirri bygg-
ingu skapast 7-8 ný pláss til þess að mæta þörfum veikustu
fanganna sem nú dvelja í fangelsum við ófullnægjandi aðstæð-
ur. Þau pláss mæta þeirri brýnu þörf sem nú er fyrir hendi.
Yfirlæknirinn á Sogni og fleiri aðilar hjá Heilbrigðisstofn-
un Suðurlands hafa lagt málið fyrir heilbrigðisráðherra án
þess að niðurstaða liggi fyrir. Heilbrigðisyfirvöld hljóta að
taka til alvarlegrar skoðunar og skjótrar úrlausnar hagkvæm-
ar og tiltölulega fljótvirkar tillögur í brýnu réttlætis- og
mannúðarmáli. Ekki verður unað við úrræðaleysið.
Jónas Haraldsson
Skoðun
Frjálslyndi flokkurinn
mun hækka persónuafslátt
„Frjálslyndi flokkurinn vill byrja á því að ná rýrnun persónuafsláttarins til baka og
hefur lýst því yfir að fyrsta skrefið sé að hækka persónuafslátt um 10.000 krónur.“
Framsókn og Samfylkmg saman ta Brussel?
„Kosningabarátta Samfylkingarinnar hefur til þessa skorið sig úr hvað varðar óheiðar-
lega framgöngu og feluleik gagnvart kjósendum. Reynt er að lokka fólk til fylgis með
því að breiða yfir nafn og númer ogfela bœði stefnu og stefnuleysi ípússi Ingibjargar.“
Allt vinnandi fólk þarf að
hafa tekjur til að sjá sér
og sínum farborða. Sam-
kvæmt neyslukönnunum
Hagstofu íslands árið
1995 kostaði meðalneysla
einhleyps einstaklings
kr. 112.800 á mánuði.
Síöan þá hefur vísitala neyslu-
verös hækkað um 32%. Það þýðir,
miðað við óbreyttar forsendur, að
neysla þessa einstaklings kostar í
dag 148.000 kr. Við erum hér að
tala um fjármuni sem einhleypur
einstaklingur þarf að hafa milli
handanna til að getar lifað sóma-
samlegu lífl.
Skattleysismörkin allt of lág
Hið margrómaða hugtak, velferð-
arkerfl, byggist m.a. upp á þeirri
hugmynd að almenningur hafl þær
tekjur eftir venjulegan vinnudag að
þær dugi honum til framfærslu. ís-
lendingar eiga langt í land með að
uppfylla þá hugmynd og hefur ein-
ungis miðað aftur á bak frá því nú-
verandi ríkisstjóm tók við völdum
árið 1991. í staðinn fyrir að skatt-
leysismörk einstaklings séu nálægt
148.000 krónum, þá eru þau nú í
kringum 69.000 kr.
Ástæðan er sú að skattaafsláttur
(persónuafslátturinn) er allt of lág-
ur og í engu samræmi við fyrr-
greint markmið velferðarkerfisins.
Það er langur vegur frá 69.000 kr. til
148.000 króna. Væri persónuafslátt-
ur nægilega hár þá þyrfti einhleyp-
ur einstaklingur ekki að greiða
skatt af 148.000 krónum. Hann gæti
því látið heildarlaun (brúttó) upp á
148.000 kr. duga sér til lífsviðurvær-
is. Eins og staðan er í dag þarf hann
hins vegar að hafa 198.000 króna
tekjur á mánuði til að eiga þessar
148.000 kr. eftir að af tekjum hans
hafa verið dregin 38,7% í tekjuskatt
og útsvar og honum reiknaður per-
sónuafsláttur til frádráttar skattin-
um upp á kr. 26.825.
Samkvæmt sömu neyslukönnun
Hagstofu íslands og forsendum
eyða hjón með 3 börn á framfæri
sínu að meðaltali kr. 319.000 á mán-
uði til að reka heimili sitt. Það þýð-
ir að til þess að þau geti komist af
þurfa þau samanlagt að hafa
434.000 kr. í mánaðarlaun. Barna-
bætur velferðarkerfísins fara fyrir
lítið þegar fólk er komið með þessi
laun, hvort sem það er eftir venju-
legan vinnudag eða erfiði sem líkja
má við þrældóm.
Fólk í skuldafeni
Víst er það rétt að margir hafa
þessar heildartekjur sem hér eru
nefndar. Fáir þó eftir venjulegan
vinnudag. En því miður eru ennþá
fleiri sem hafa þær ekki. Fólk reyn-
ir að bæta á sig vinnu, en það dug-
ar ekki til. Sumir eiga ekki kost á
að bæta við sig vinnu. Margir hafa
ekki heilsu til þess og lífeyrisþegar,
atvinnulausir og öryrkjar fá bætur
og aðrar opinberar greiðslur sem
eru langt frá því að uppfylla þarfir
einstaklingsins fyrir flárhagslegu
öryggi.
Margt fólk með meðaltekjur og
minni sér ekki fram á, að óbreyttu,
að það komist nokkurn tíma út úr
skuldafeni og vinnuþrælkun -
skuldafeni sem í flestum tilfellum
er eingöngu tilkomið vegna eðli-
legs heimilisreksturs.
Ríkissjóður þolir hækkun
Frá því núverandi ríkisstjórn
komst til valda árið 1991 hefur per-
sónuafsláttur ekki verið látinn
fylgja verðlagsþróuninni. Hefði
hann verið látinn gera það, þá væri
hann 14.000 kr. hærri en hann er í
dag, eða um 40.000 kr. Skattleysis-
mörk væru þá í kringum 105.000 kr.
Það myndi þýða að engin skerðing
yrði á bótum öryrkja og lífeyrisþega
sem væru lægri 105.000 krónur.
Frjálslyndi flokkurinn vill byrja á
því að ná rýrnun persónuafsláttar-
ins til baka og hefur lýst því yfir að
fyrsta skrefið sé að hækka persónu-
afslátt um 10.000 krónur. Ríkissjóð-
ur íslands þolir það.
Forysta miðjuflokkanna
beggja, Framsóknar og
Samfylkingar, stefnir ein-
dregið að því að ísland
gerist aðili að Evrópusam-
bandinu.
Allt frá því að Halldór Ásgrhns-
son tók við formennsku í Framsókn-
arflokknum 1994 hefur hann unnið
að því að kúvenda fyrri afstöðu
flokksins til Evrópusambandsins.
Þetta hefur ekki reynst auðvelt en
nú segir um ESB-aðild í kosninga-
stefnuskrá Framsóknar „... ljóst að
til ákvörðunar kann að koma innan
fárra ára“. Um Samfylkinguna þarf
enginn að velkjast í vafa eftir að for-
ystan tryggði sér umboð til aðiidar-
viðræðna í umdeildri póstkosningu
síðastliðið haust.
Um niðurstöðuna sagði Össur
Skarphéðinsson í viðtali við Morg-
unblaðið 29. október 2002: „Þetta
þýðir að umboð forystu flokksins í
þessum efnum er ákaflega skýrt og
afdráttarlaust... nú er kominn fram
stór stjómmálaflokkur sem hefur af-
dráttarlaust á sinni stefnu að það
beri að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu af fullri alvöru og
leggja niðurstöðuna undir dóm þjóð-
arinnar í atkvæðagreiðslu."
Össur hangir enn í formannssæti
en Ingibjörg sem við á að taka þarf
ekki í neina endurhæfingu í þessu
máli. Þegar árið 1992 var hún komin
í sömu spor og Alþýðuflokkurinn í
Evrópumálum og valdi þá að ganga
þvert gegn stefnu Kvennalistans.
Reynt að blekkja kjósendur
Viðhorf almennings til aðildar
að Evrópusambandinu hafa sveifl-
ast til mörg undanfarin ár ef
marka má skoðanakannanir.
Spurningar hafa líka oft verið mis-
vísandi og byggt á þeirri blekkingu
að unnt sé að sækja um aðild að
ESB til prufu, nánast til að kanna
hvað í boði sé. Evrópusambandið
hefur margsinnis tekið af tvímæli
um að aðeins samningaviðræður í
fullri alvöru koma til greina og ís-
lensk ríkisstjórn sem legði út í
slíkt væri því að leggja allt undir.
Lengi vel kvartaði Samfylkingin
sáran undan því að málið fengist
ekki tekið á „dagskrá“ hérlendis,
mjög í anda þeirrar mæðu sem nú
er kennd við Borgames. En frá því
að Samfylkingin og Framsókn tóku
aðildarspurninguna á dagskrá í
eigin flokkum hafa skoðanakann-
anir sýnt síminnkandi fylgi meðal
almennings við aðild að Evrópu-
sambandinu.
Síðan hefur Samfylkingin ham-
ast við að gera sem minnst úr Evr-
ópustefnu sinni í kosningabarátt-
unni. Formaður þingflokks Sam-
fylkingarinnar sagði við Frétta-
blaðið nýverið (23. aprU 2003): „En
Samfylkingin mun ekki sækja um
ein og óstudd. Það er verkefni
næstu ríkisstjórnar að taka afstöðu
tU málsins."
Siðleysi Samfylkingarinnar
Kosningabarátta Samfylkingar-
innar hefur til þessa skorið sig úr
hvað varðar óheiðarlega fram-
göngu og feluleik gagnvart kjósend-
um. Reynt er að lokka fólk til fylg-
is með því að breiða yfir nafn og
númer og fela bæði stefnu og
stefnuleysi í pússi Ingibjargar. Um
stefnuna gUdir svipað og lagt er í
munn Bakkabræðra: „Botninn er
suður í Borgarfirði". í mörgum
stórmáium er flokkurinn rekald
sem ekki veit í hvorn fótinn hann
á að stíga. Þetta á við um stærstu
viðfangsefni samtíðar eins og um-
hverfismálin og í anda miðjustefn-
unnar er ekkert gefið upp um hvert
eigi að halla sér ef stjórnarmeiri-
hlutinn fellur 10. maí.
Þegar svo kemur að málum þar
sem stefna hefur verið mörkuð,
eins og um aðild að Evrópusam-
bandinu, er sá kostur valinn að
þegja - fýrir kosningar. Færi hins
vegar svo að Framsókn og Samfylk-
ing fengju meirihluta á Alþingi 10.
maí væri þagnarbindindinu lokið
og póstkosningin afdráttarlausa frá
síðasta hausti réði framhaldinu.
Ólíklegt er að Framsókn stæðist þá
freistingu að stíga upp í Brussel-
lestina, með Ingibjörgu sem vagn-
sljóra og Halldór áfram sem utan-
ríkisráðherra. Undir kjósendum er
komið hvort nægur dampur fæst
fyrir slíkt ferðalag.
Ummæli
Blekkingap
„Forsætisráð-
herrakosninga-
áróður Sam-
fylkingarinnar
er bara blekk-
ing og fólki lík-
ar ekki við
blekkingar.
Fólk er nefni-
lega ekki jafn
vitlaust og þau Össur og Ingibjörg
virðast halda. Samfylkingin getur
haldið áfram að birta Kim Il-Sung
myndir af Ingibjörgu fram á kjör-
dag og Össur getur skrifað grein á
dag um að Ingibjörg Sólrún sé Vig-
dís. En auðvitað er hún engin Vig-
dís og það sjá allir - og fólk er
strax orðið þreytt á persónudýrk-
uninni sem virðist ætla að verða
eina framlag Samfylkingarinnar til
þessarar kosningabaráttu."
Ármann Jakobsson á Múrnum.is.
samband við mig og ég hefði alls
ekki tekið þvi fjarri að setjast í
fimmta sætið og ég teldi með því
móti að það væri hægt að koma
umræðunni um borgina, hagsmuni
borgarinnar og hagsmunum borg-
arbúa betur á dagskrá í þessari
kosningabaráttu sem i hönd fer.“
Ingibjörg Sölrún Gísladóttir í viötali
við Ríkisútvarpiö 18. desember
2002.
„Var allan
daginn i greina-
skrifum og
hringingum
vegna komandi
Alþingiskosn-
inga. Það er far-
ið að hitna
verulega í kol-
unum.“
Siv Friöleifsdóttir í netdagbók sinni
sl. sunnudag.
Hitnar í kolunum
„Það er nátt-
úrulega fráleitt
að ímynda sér
það að ég ætli
að fara aö vera
einhver kjör-
dæmapotari
fyrir norður-
hluta Reykja-
víkur."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir I nýjasta
tölublaöi skagfirska héraösdagskrár-
blaösins Sjónarhorns.
Fyrir Reykjavík
„Ég sagði þeim það, eins og ég er
að segja ykkur, að Össur hefði haft
Tækifærissinnar
„Flokkamir
sem Morgun-
blaðið vill
koma saman í
stjóm nú eiga
litla samleið
þar sem Sam-
fylkingin er
orðin breiður
jafnaðarmanna-
flokkur, Vinstri
grænir eru jaðarflokkur og Frjáls-
lyndir eru einsmálsflokkur tæki-
færissinna i ætt við Framfaraflokk
Mogens Glistrups í Danmörku ..."
Ásgeir Friögeirsson I grein
í Morgunblaöinu.
Fynr alla
Ekkert lært og
25. apríl var frétt í Mbl.
um að Kanadamenn ætl-
uðu að banna allar þorsk-
veiðar víðast hvar við
landið því fiskurinn væri í
sögulegu lágmarki. Veiðar
hafa að mestu verið
bannaðar í 11 ár en
lítilræði hefur mátt
veiða í dreifbýli.
Já, veiðarnar voru stundaðar
með kvótakerfi eins og hér. ís-
lenskur fiskifræðingur taldi á 9.
áratugnum að veiðar þar væru til
fyrirmyndar. Svo kom hrunið og
það hefur orðið á 20 þorskstofnum
í Norður-Atlantshafi - þar sem
víðast hvar hefur verið „stjórnað"
með aflakvótum. Botninn er dott-
inn úr flestum veiðum í Norður-
sjó; það sem eftir er finnst í smá-
fiski af þorski, ýsu, lýsingi og
kola, en kynþroskaaldur er kom-
inn niður úr öllu - einmitt ein-
kenni úrkynjunar. Það verður að
teljast blinda eða þrjóska að neita
að horfast í augu við þetta og
draga réttar ályktanir.
Það á að banna opinberum vís-
indamönnum að misvirða þróun-
arkenningu Darwins. Engum vafa
er undirorpið að ein aðalástæðan
er úrkynjun á mismunandi háu
stigi. Það er búið að sanna að
stærðarval fiska í gegnum kyn-
slóðir leiðir til sífellt minni afla og
lækkaðs kynþroskaaldurs.
Vísitölur eöa villukenningar
Vísitölur árganga byggjast á
hausatali eftir lengd í vorralli tog-
ara; nú virðist vera auknmg á
veiöistofni (4+) um 7-9%, en hún
felst í 4 ára fiski og lélegum 5 ára
eins og mynd sýnir. En mælingin
er innan skekkjumarka. Minnkun
er á góðum 5 ára fiski, en það er í
samræmi við frétt um að næring-
arástand fisksins sé áhyggjuefni. 3
ára fiskur er nú lélegri en 2002 og
2 ára vantar alveg. Þetta þýðir að
vísitalan lækkar á næsta ári og
hrynur eftir 2-3 ár.
Alvarlegast er að 6 ára fiskur-
inn er að miklu leyti týndur, en
hann átti að vera upp á þúsundir
tonna umfram það sem var í fyrra.
Það er sem fiskurinn hrynji eftir
að 60 sm er náð, en það er vísbend-
ing um að náttúrulegur dauði sé
mjög mikill þegar kynþroskaaldri
er náð. Vísitalan er eins og vísi-
tala neysluvöru: Hún segir til um
verðlag á neysluvörum en hún
segir ekki hvað mjólkin kostar;
hún fær ekki innihald fyrr en
litlu gleymt
margfaldað er með þunga árganga,
en þannig fæst stærð veiðistofns.
Margir leggja takmarkaðan trúnað
á svona vísitölur, en þær eru
sterkar vísbendingar.
Hetjur ríða um héruö
Utanríkisráðherra sagði á Akur-
eyri að hann vildi vita hvað komi
í staðinn ef einu skipi Brims af 15
verði aö leggja vegna fyrningar
kvóta um 5% á ári; í sjónvarpi
krafði hann formann VG um svör,
en hann bakkaði strax með flókn-
um frádráttarreglum og sagði að
ráðherrann ætti að lesa gula pésa
VG. Þvílík pólitísk ragmennska -
auðvitað er þetta bull því málið á
ekki að snúast um kerfið eins og
það er heldur hvemig á að auka
afla - deila má endalaust um
hvemig skipta má sífellt minni
afla. Aflakvótakerfi hafa næstum
alls staðar leitt til hruns; einmitt
botnvarpan er talin valdurinn
með úrkynjun og einhverjum
botnsskemmdum einnig.
Hvað á Brim að gera eftir 2-3 ár
þegar vísitalan lækkar um þriðj-
ung? Formaður VG gat sagt að
krókaveiðar í dreifbýli kæmu í
staðinn; bæði atvinna og aukinn'
afl. Siv, ráðherra umhverfisins,
sem engist um í spennitreyju
kvótastefnu, telur hana vistvæna
aðferð; þetta er augljóst þegar
stofninn er kominn niður í þriðj-
ung og útlitið fram undan dökkt.
Aðferðir sem hafa leitt til þurrðar
eru ekki líklegar til að bæta úr
því.
Meuinástæöa
aukninuar á inil i
2001 OU 2002
Sárafmkur
Minnkuná
tnilii áui
2002oö?PP3
Rannsóknir á veið-
arfærum og skaðsemi
þeirra geta þó skilað
árangri en taka of
langan tíma. Vísinda-
menn í Kanada eru
100 sinnum fleiri en
hér en samt hrundi
þorskurinn þeirra.
Þær erföarannsóknir
sem hafnar eru
skipta máli, en þær
koma of seint.
ing. Þaö var aldrei látið á það reyna
en það eru mörg sterk fræðileg og
skynsamleg rök fyrir því að stýring
á sókn sé betri en aflastýring til að
viðhalda miklum afla þótt önnur
vandamál komi þá til.
Prófessor við HÍ ferðast um lönd
og lepur þessa tölu og mærir
kvótakerfið. í ljósi þess að það er
Fjórflokkinn
til Færeyja
Formaður Samfylk-
ingar ver doktorsrit-
gerð um æxlun risaur-
riðans í Soginu með
dvergmurtuna i Þing-
vallavatni fyrir fram-
an nefið; hann hefur
ekki þor til að ljá
þorskinum sömu rétt-
indi til að taka erfða-
breytingum; hann ætti ---------------------------------------------------------------------------
að lesa meira um „Vísitölur árganga byggjast á hausatali eftir lengd í vorralli togara
Darwm. Komm er á _ nij virðist vera aukning á veiðistofni (4+) um 7-9%, en hún felst
flot su hugmynd að , . . 6 7,7 _ , ’. , . f.
veiða 30 þ. tonn nú i fjogurra ara fiski og lelegum 5 ara eins og myndin symr.
umfram veiði 2002. Er
ábyrgð og þekking
skekkjumarka?
líka innan
Forsætisráðherra
segir á ísafirði að hann viti ekki um
annað kerfi og betra sem allir geta
sætt sig við. Auðvitað verða seint
allir sáttir um kerfi sem menn
þekkja ekki. Það eru ósannindi að
segja að skrapdagakerfið 1977-83
hafi sýnt sig sem vond sóknarstýr-
vá fyrir dyrum er við hæfi að lit-
ast um í frændgarði, hjá Færey-
ingum, til að sjá hvernig þeir hafa
skotið okkur ref fyrir rass, enn og
aftur, og sýnt fram á að það er
ekkert náttúrulögmál að þorskur-
inn og aðrir botnfiskar þurfi að
hrynja eins og annars staðar um
allan heim.
Vísitala þorsks (vorralll togara 2003,2002 & 2001
Aukninu á milli
m 7 0% 2QQ3 ..............
Minnkun á
núlliára <
Aukninu a
tnilii ára
6 ara
+