Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Síða 2
2
Fréttir
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003
JOV
Mjög brýn þörf á auknu hjúkrunar- og þjónusturými aldraðra:
Yflp 500 akt'aðir eru
á biölistuni í Reykjavík
Yfir fimm hundruð aldraðir eru nú
á biðlistum eftir vistplássi í Reykja-
vík og er þar ýmist um að ræða fólk
með brýna eða mjög brýna þörf fyrir
vistun. Benedikt Davíðsson, formað-
ur Landssambands eldri borgara, seg-
ir listana nú þá lengstu sem nokkum
tíma hafi verið. Um 450 manns voru
á biðlistum eftir plássi í Reykjavík í
maímánuði í fyrra, ýmist í þjónustu-
húsnæði eða hjúkrunarrými sjúkra-
húsanna. Fjölgunin nú er rakin að
stórum hluta til skorts á heimahjúkr-
un og heimaþjónustu.
Samkvæmt tölum nú í janúar úr
vistunarskrá sem tekin er saman hjá
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu
biðu 515 eftir plássi í Reykjavík í
þjónustu- og hjúkrunarrými. Þar af
biðu 345 eftir plássi á hjúkrunarrými
og voru 15 í brýnni þörf og 285 í mjög
brýnni þörf.
Á Seltjamamesi biðu 11 eftir
plássi á þjónustu- og hjúkrunarrými,
í Kópavogi 67, í Garðabæ 39, í Hafn-
arfirði 98 og í Mosfellsbæ biðu 7 eftir
plássi. Á landsbyggðinni sker Akur-
eyri sig úr en þar biðu 102 eftir
plássi. Á landinu öllu biðu 1034 en
48% eða 492 þeirra biðu eftir plássi í
þjónustuhúsnæði en 542 eða 52% eft-
ir plássi á hjúkrunarrými. Úr síðar-
nefnda hópnum vom 419 eða 77% í
mjög brýnni þörf en þeir voru 356 í
maí á síðasta ári.
í maí í fyrra vom samtals 967 aldr-
aðir einstaklingar á biðlistum eftir
plássi í þjónustuhúsnæði og hjúkrun-
arrými á landinu öllu og hefur því
fjölgað á listunum milli ára um 67
einstaklinga.
Þörfin eykst
í áætlun heilbrigöis- og trygginga-
málráðuneytisins um uppbyggingu á
öldrunarþjónustu áranna 2002-2007
er talaö um gífurlegan vanda á höfuð-
borgarsvæðinu. Víða á landsbyggð-
inni fullnægi framboð stofhanarýmis
hins vegar að mestu eftirspum.
Á síðasta ári var talin þörf á 2.488
hjúkrunarrýmum fyrir aldraða á
landinu öllu en hjúkrunarrýmin
vora aðeins 2.162. Vantaði sam-
kvæmt því 326 rými til að anna eftir-
spum. Miðað við óbreyttar aðstæöur
var þá talið að talan myndi hækka í
437 rými á árinu 2005, í 468 rými árið
2007 og þörf yrði fyrir 254 rými til
viðbótar árið 2010. Er þá miðað við að
heildarþörf á hjúkrunarrými árið
2010 samkvæmt vistunarmati verði
2.716 pláss. Virðist þessi spá ætla að
ganga eftir og rúmlega það og vera-
lega skortir á að opinberir aöilar
sinni brýnni þörf í þessum málum.
Ekki er talið að verulega slái á þetta
fyrr en Vífilsstaðir komast í gagnið
með hjúkrunarrými fyrir aldraða. Er
þá ótdin þörfm á plássi í þjónustu-
húsnæði. -HKr.
Storkurinn Styrmir senn ún ein-
semd á sænskan storkabúgarð
„Það er verið að tala við Svía um
að koma Styrmi fyrir á storkabúgarði
á Skáni, sem er rekinn af áhuga-
mannafélagi-þar, en storkastofninn
hefur verulega látið á sjá í Svíþjóð.
Það á að reyna að aðlaga hann og
helst að para hann og sleppa hon-
um,“ sagði Siv Friðleifsdóttir um-
hverflsráðherra í gær. Siv segir að
unnið sé að því að fá leyfi samkvæmt
alþjóðasamningum um flutning dýra
á milli landa. „Það era því allar líkur
á að storkurinn fari bráðlega".
Storkurinn Styrmir, sem búið hef-
ur í Húsdýragarðinum síðan í desem-
ber, kann því að vera á fórum. „Við
vonum svo sannarlega að hann verði
fluttur fljótlega," sagði Tómas Guð-
jónsson, líffræðingur og forstöðumað-
ur garðsins, í gær. Hann sagöi að
storkurinn væri fremur einmana og
þyrfti að komast í hóp sinna líka.
Tómas sagði aö aðeins hefði ræst
úr með félagsskapinn þegar Skúli
Magnússon á Tókastöðum, sem nú er
nýlátinn, gaf garðinum nokkra
fasana sem era í nýja búrinu með
storknum. Tómas sagöi að ekki væri
útilokað aö Styrmir hefði þvælst frá
storkabúgarði í Svíþjóö hingað til
lands síðastliðið haust.
Ólafur K. Nielsen líffræðingur, ann-
ar þeirra sem fönguðu fuglinn austur
í Breiðdal i vetur, mun eiga að fara
með fuglinn með flugvél, en hann er
um þessar mundir upptekinn í
rjúpna- og fálkarannsóknum. -JBP
DV-MYND E.ÓL.
Storkurinn Styrmir
Loksins fékk storkurinn Styrmir félagsskap nokkurra fasana, hænsnfugla sem hann umgengst reyndar takmarkaö.
lippleikur dv.is
bypjar með látum
Mikil þátttaka hefur verið í nýj-
um tippleik sem er á vefsíðu DV.
Mikill fjöldi fólks reyndi að skrá
sig þegar leikurinn var opnaður og
var mikið álag á vefþjóninn sem
hýsir leikinn. Mörg hundruð þátt-
takendur hafa skráð sig til leiks
enda verða vegleg verðlaun frá Jóa
útherja veitt eftir hverja umferð og
í lok tímabilsins verða veitt glæsi-
leg ferðaverðlaun.
Tippleikurinn er ætlaður öllu
áhugafólki um íþróttir og þá sér- •
staklega þeim sem ætla að fylgjast
með Landsbankadeildinni í sumar.
Hægt er að tippa á leikina á auð-
veldan hátt og auðvelt er aö lesa úr
súlum á hvaða lið aðrir veðja.
Talið er að Landsbankadeildin
verði meö jafnasta móti í ár enda
hafa flest lið styrkt hópa sína og
því ómögulegt að segja til um hver
úrslit leikja verða. En það er að-
eins ein leið til að vinna til verð-
launa og hún er aö taka þátt í
leiknum og freista gæfunnar. Til að
komast í leikinn er farið inn á
heimasíðu DV, www.dv.is, og teng-
illinn Tippleikur valinn. -HÞG
íslandsfugl í Dalvíkurbyggö:
Ekki enn tekin af-
staða til tilboðs
Eitt tilboð barst í þrotabú
kjúklingabúsins íslandsfúgls í Dal-
víkurbyggð 15. apríl sL frá óstofnuðu
hlutafelagi, en að baki því mun Auð-
björn Kristinsson, fyrrverandi eig-
andi, standa ásamt fjárfestum.
Svanhildur Ámadóttir, forseti
bæjarstjómar Dalvíkurbyggðar, seg-
ir að bæjarfélagið hafi átt 15% hlut í
íslandsfúgli eftir að fyrirtækið var
endurreist vorið 2002. Þá lagði bær-
inn 30 milljónir króna í fyrirtækið
en var áður búinn að leggja í þetta
húseignir sem vora metnar á 38
milljónir króna. Bærinn leggi ekki
meiri fjármuni í íslandsfugl því á
meðan ástandið á kjötmarkaðinum
breytist ekkert sé ekki mjög lífvæn-
legt að endurreisa fyrirtækið.
Um 30 manns hafa starfað hjá ís-
landsfúgli -GG
Kona lést efth* að
liafa fallið af hestbaki
Kona á sextugsaldri lést í gær
eftir að hafa dottið af hestbaki á
Lögmannshlíðarvegi á Akureyri
sl. þriðjudag. Málið er til rann-
sóknar hjá lögreglunni á Akur-
eyri en konan var ein á ferð þeg-
ar slysið varð. -EKÁ
Stuttar fréttir
Tunglmyrkvi
Tunglmyrkvi sást vel í nótt en
hann hófst um eittleytið og lauk rúm-
lega sex í morgun.
Kynferðisleg áreitni
Tæplega 40% íslenskra flugfreyja
hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í
vinnunni og rúm 30% tvisvar sinnum
eða oftar. Um 18% hjúkranarfræðinga
hafa orðið fyrir kynferöislegri áreitni
á vinnustað og höfðu 8% verið áreitt
tvisvar eða oftar. Mbl. greindi frá.
Vill endurtalningu
Fijálslyndi flokkurinn hefur farið
fram á að atkvæði í Alþingiskosning-
unum verði endurtalin í öllum kjör-
dæmum landsins. Flokkinn vantar 13
atkvæði til að koma 5. manni á þing.
Fulltrúi sjúklinga
Fulltrúi sjúklinga
j&J er tekinn til starfa á
H Landspítala háskóla-
I sjúkrahúsi. Hann
JpF veitir sjúklingum og
v -t— Wf aðstandendum stuön-
ing og beinir um-
i kvörtunum þeirra í
réttan farveg. Ingibjörg Pálmadóttir
mun móta starfið. Mbl. greindi frá.
100 ára
Freysteinn Jónsson, bóndi í Vagn-
brekku í Mývatnssveit, verður tíræð-
ur á morgun. Mbl. greindi frá.
Óheimill vaskur
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur um að ís-
lenska ríkinu hafi verið óheimilt að
leggja hærri virðisaukaskatt á sölu
bóka á erlendum tungum en ís-
lensku. Ríkinu hefur verið gert að
endurgreiða Herði Einarssyni mis-
mun á 24,5% vsk. sem hann var lát-
inn greiða af bókum á ensku, og 14%
vsk. sem lagður er á innlendar bæk-
ur. Mbl. greindi frá.
Samruni í lagi
Samkeppnisráð telur að samruni
Búnaðarbanka íslands og Kaupþings
stangist ekki á viö samkeppnislög.
Welch til íslands
Jack Welch, fyrrverandi forstjóri
bandaríska fyrirtækisins General
Electrics, kom til landsins í gær.
-hlh
helgarblaö
Ferill forsetans
í Helgarblaði DV á
morgun verður fjallað
um feril forseta íslands,
Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, í máli og myndum.
Forseti vor gekk í heilagt
hjónaband á miðvikudagskvöld á sextíu
ára afinæli sínu. í blaðinu er einnig
fjallað ítarlega um keppendur um titil-
inn Ungfrú Island. í Helgarblaðinu er
rætt við Stefán Jónsson leikstjóra um
samstarf við landamæraverði, við Ólaf
Hauksson, talsmann Iceland Express,
um samkeppni og undirboð og Hall-
grim Óskarsson, lagahöfúnd og
Eurovision-fara, um lagastuld og Ijóð-
list. Blaðið fjallar um undarlega dauð-
daga, norskar konur á íslandi og talar
við nýjan ritstjóra Bleiks og Blás.
EHSI