Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Síða 8
8 Fréttir MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 ÐV Krabbameinslækningar ræddar Siguröur Björnsson yfirlæknir ræöir um krabbamein og krabbameinstækningar á ársfundi Landspítala - háskólasjúkrahúss st. fimmtudag i fundarsal í nýjum bamaspítala LHS. Lækkandi nýgengi krabbameins í maga og leghálsi: aukniw kraMameins í lunauni. brióstum on MöapuhaskirtÉ Þriöji hver íslendingur fær krabbamein en árlega greinast um 1100 manns hérlendis - og árlega deyja um 450 manns úr krabba- meini. Krabbamein og krabba- meinslækningar voru ræddar á nýafstöönum ársfundi LSH. Sig- urður Bjömsson yfirlæknir sagði aukna þekkingu og skilning á þessum sjúkdómaflokki hafa skil- að meiri og betri meðferð. Hann taldi reykingar valda um 80% dauðsfalla karla með lungna- krabbamein og 75% meðal kvenna. Hann taldi einnig að það ætti að vera stefna LHS í krabba- meinslækningum að mennta heil- brigðisstéttir í samvinnu við há- skóla og aðrar menntastofnanir í greinum sem tengjast krabba- meini og vera ávallt í fremstu röð Fylgst meö fyrirlestri Jón Kristjánsson heilbrigöisráöherra, Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss, og Davíö Á. Gunnarsson ráðuneytisstjóri fytgjast meö fyrirlestri um krabbamein ásamt fjölda annarra gesta ársfundarins. varðandi greiningu og meðferð. Enn fremur yrði Landspítali - há- skólasjúkrahús að vera búinn undir aukningu í nýgengi krabba- meina af ýmsum toga á næstu árum. Efling rannsókna og lækninga á krabbameini er aðkallandi í ljósi þess að þriðji hver íslendingur má búast við að fá krabbamein ein- hvern tíma á lífsleiðinni. Krabba- mein ógnar öllum og engin fjöl- skylda getur búist við því að sleppa við að kynnast þessum sjúkdómi af eigin raun. Vísindavinna efld Sameining Sjúkrahúss Reykja- víkur og ríkisspítala í Reykjavík er mesti samruni fyrirtækja eða stofnana hérlendis og mótað hefur verið nýtt sjúkrahús, Landspítali - háskólasjúkrahús (LHS), með yfir 4.000 ársverk og um 5.000 starfsmenn. Heilbrigðisráðherra ákvað í janúarmánuði 2000 að sameina sjúkrahúsin en samein- ingunni var ætlað að bæta þjón- ustu við sjúklinga, m.a. með sam- einingu sérgreina læknisfræðinn- ar, og gera rekstur sjúkrahúsanna hagkvæmari. Krabbameinsmiðstöð Landspít- ala - háskólasjúkrahúss hóf rekst- ur í janúar 2002 og hefur eigin stjóm og fagráð. Reksturinn er fjármagnaður með greiðslum úr sjóði sem stofnaður var í sam- starfi við íslenska erfðagreiningu og Urði Verðandi Skuld. Fyrirtæk- in studdu miðstöðina vel með stofnframlögum í sjóðinn. Verk-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.