Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Side 18
42 Skoðun MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 DV * **y Mikið misrétti í þjóðfélaginu „Ríkisstjórnin gleymdi öldruöum og öryrkjum, hún gleymdi atvinnulausum en hún mundi eftir atvinnurekendum og hátekjumönnum. Þess vegna var tekju- skattur fyrírtækja lœkkaður, þess vegna var hátekjuskattur lækkaður. “ Núverandi valdhafar í landinu, Sjálfstæöis- flokkurinn og Framsókn- arflokkurinn, segjast hafa stjórnaö landinu vel. Þeir segja efna- hagsmálin og fjármálin í góðu lagi. Þar hefur vissulega miöaö í rétta átt. Þaö er rétt. En vandinn liggur fyrst og fremst þar. Misskiptingin Vandinn liggur í misskipting- unni í þjóðfélaginu, rangri tekju- skiptingu og ranglátu kvótakerfi. íslendingar eru meðal ríkustu þjóða heims en samt býr hluti þjóðarinnar við fátækt. Sumir hafa varla til hnífs og skeiðar. Það er smánarblettur á þjóðfélag- inu. Mjög stór hópur launafólks berst einnig í bökkum, á erfitt með að láta enda ná saman, m.a. vegna skattahækkana í tíð ríkis- stjórnarinnar. En aðrir hafa mjög mikla peninga handa á milli. Á valdatíma núverandi stjóm- arflokka hefur misréttið í þjóðfé- laginu aukist. Hinir ríku hafa orðið ríkari og hinir fátæku hafa orðið fátækari. Velferðarkerfinu hefur hnignað. Hvers vegna hefur þetta gerst? Að verulegu leyti er þetta vegna stjórnarstefnunnar. En að hluta til hefur þetta gerst óviljandi. Sjálfstæðisflokkurinn vill veg atvinnurekenda og fjár- magnseigenda sem mestan. Það er stefna flokksins. Þess vegna lækkaði ríkisstjómin tekjuskatt fyrirtækja í 18% á sama tíma og tekjuskattar einstaklinga hækk- uðu, þar eð skattleysismörkin voru ekki látin fylgja þróun launa og verðlags. Tekjuskattur einstaklinga er nú 25,75%. (Út- svar er 12,79%). Barnabætur hafa verið skertar um 8 milljarða frá 1995, þar eð viðmiðunarfjárhæðir hafa ekki fylgt verðlagsþróun. Mistök Á valdatíma stjórnarflokkanna hafa kjör aldraðra og öryrkja dregist aftur úr. Þessir hópar hafa ekki einu sinni fengið sömu hækkun og hinir lægst launuðu, sem eru á vinnumarkaðnum, hvað þá meira! Skattur á lægst launuðu öryrkja, aldraða og aðra láglaunamenn (með tekjur undir 90 þús. kr. á mánuði) hefur hækk- að um einn milljarð á ári í tíð rík- isstjómarinnar! Hvers vegna hefur þetta gerst? Hefur það verið stefna ríkisstjórn- arinnar að níðast á öryrkjum og öldraðum? Ég held varla. Senni- lega er hér um mistök að ræða hjá stjórnarflokkunum. Þeir hafa keppst svo við að bæta hag at- vinnurekenda, fjármagnseigenda og hátekjufólks að þeir hafa gleymt þeim sem minnst mega sín. Þess vegna hafa aldraðir og öryrkjar ekki fengiö sömu hlut- deild í bættum kjöram og tekju- hærri hópar þjóðfélagsins. Aldrað- ir og öryrkjar hafa setið eftir. Sama er að segja um atvinnu- lausa. Þeir hafa einnig setið eftir. Á kostnað lágtekjufólks Misréttið í þjóðfélaginu hefur aukist. Ríkisstjórnin gleymdi öldruðum og öryrkjum, hún gleymdi atvinnulausum en hún mundi eftir atvinnurekendum og hátekjumönnum. Þess vegna var tekjuskattur fyrirtækja lækkað- ur, þess vegna var hátekjuskattur lækkaður. En skattar almenn- ings, tekjuskattar einstaklinga, hækkuðu. Félagslega húsnæðis- kerfið var lagt í rúst og jók einnig á misréttið. Framsóknarflokkurinn, sem upphaflega var félagshyggjuflokk- ur, hefur stutt þá stefnu Sjálf- stæðisflokksins að bæta hag at- vinnurekenda og hátekjumanna á kostnað láglaunafólks og bóta- þega almannatrygginganna. Samfylkingin vill jafna tekju- skiptinguna í þjóðfélaginu. Sam- fylkingin vill uppræta misréttið. Samfylkingin vill lækka skatta lág- launafólks og lífeyrisþega og Sam- fylkingin vill afnema kvótabraskið á ákveðnum aðlögunartíma. Óttl og ógn í íslensku uppeldi? „klettan" fyrip böpnin Björn Björnsson hringdi: Langar til að taka undir sjón- armið Guðrúnar Gunnarsdótt- ur mannfræðings sem segr álit sitt á barnauppeldi.m.a. í DV í dag (fóstud. 16. maí). í þessu viðtali eða frétt í DV kemur Guðrún inn á hluti sem ættu að vera umhugsunarefni fyrir alla íslenska foreldra, því þeir eru, margir hverjir, einfaldlega ekki barnanna bestir, ef svo má að orði komast. Alltof eftir- gefanlegir og sjálflr agalausir og því verða foreldramir oft hræddari við börnin en bömin við foreldrana þótt ótti eigi að sjálfsögðu ekki að vera neins staðar í spilinu í uppeldismál- um, aðeins gagnkvæm virðing og agi. Þróunin í uppeldismál- um hér á landi er ógnvænleg og kenni ég um auknu ofbeldi og klámi í sjónvarps- og bió- myndaefni sem unglingum hér leyfist að sjá óhindrað. Slíkt þekkist varla erlendis í siððum þjóðfélögum, og alls ekki inni á heimilunum sjálfum. Þakka gott viðtal i DV. Hagkvæmni stærðarinnar „Viö erum meö hundraö sinnum öflugri fiskveiöiflota en fyrlr fjörutíu árum og hann skilar minna magni úr sjó.“ Þorsteinn Hákonarson framkvæmdastjóri skrifar: Þessi pistill hefði átt að birtast fyrir kosningar til glöggvunar fyr- ir ágæta frambjóðendur stjórn- málaflokkanna. Það er kominn tími til að leiðrétta hugmyndir þeirra um hvað viðfangsefni þeirra er - eða ætti að vera. Meðaltal orkunotkunar á jörðu í aflvélum nær ekki einu kílóvatti á mann. Við erum því að tala um óskastöðu annarra í framkvæmd hér, og þetta ræður flestu hérlend- is. í dag stefnum við óðfluga að því að nota þrettán kílóvött á mann af afli, allar stundir ársins. Þá erum við ein þjóða við það að komast í þá stöðu að hag- kvæmni stærðarinnar verður í meirihluta tilfella röng. Það sem er hagkvæmt fyrir okkur er að fjölga sjálfsögðum vistgæðum. Ekki bara varðandi andrúmsloft, rými og lagarétt, heldur og hús- næði og heilbrigðisþjónustu ein- staklinganna. Allir kvótar kveða á um að hefta rétt til framlegðar, með því að meina fólki aðkomu. Öll slík höft, sem ekki eru almenns eðlis, þvinga fram misvægi til framlegð- ar í atvinnulífinu. Þetta verður því ljósara eftir að vélmennin fara í alvöru að vinna verk okkar. Efnahagslíf er ekki peningavið- skipti fyrir tæknileg kerfi sem éta sjálf upp alla framlegð, það er og á að vera fyrir fólk. Við erum með hundrað sinnum öflugri fiskveiðiflota en fyrir fjör- tíu árum og hann skilar minna magni úr sjó, ef eitthvað er - að frátalinni loðnu. En þama eru menn enn að tala um „hagkvæmni „Tœknilega felst hag- kvœmnin í að minnka stærðina. Enn vilja menn fœkka fiskimjölsverksmiðj- um fyrir „hagkvæmni stœrðarinnar“. Líka rangt. Fyllsti virðisauki aflans er málið. Það þýðir fleiri smœrri einingar. “ stærðarinnar." - Rangt. Tækni- lega felst hagkvæmnin í að minnka stærðina. Enn vilja menn fækka fiskimjölsverksmiðjum fyr- ir „hagkvæmni stærðarinnar." Líka rangt. Fyllsti virðisauki afl- ans er málið. Þaö þýðir fleiri smærri einingar. Við eigum að tryggja ódýra orku, ódýrt vatn, ódýrt land, jcifn- ræði um aðgang að náttúrauðæf- um, sem samt fara í virðismat á öllum stigum viðskipta. Við þurf- um ekki „vatnsbaróna" einka- væddra skömmtunarvatnsveitna á Majorka. Við þurfum takmarkað- an rétt til fjölda vélmenna á mann eða fyrirtæki. Vélmennin sem koma verða svo öflug að þau verða að sjá fyrir fólki, en ekki að fólk víki til atvinnuleysis fyrir þeim. þetta er ekki spurning um að vél- ar taki vinnu frá fólki, heldur hver á framlegðarrétt með vélum. Við notum afl í aflvélum og sú gæfa, að hér er komin notkun vetnisaflvéla, mun færa okkur þá blessun að skilja að miklu einfald- ara er að geyma rafmagnið beint, heldur en að búa til vetni. Slíkur geymir er undirstaða þess að koma jarðarbúum upp eða venja þá við þrettán kilóvött. íslending- ar ættu að geta skilið hve óskap- lega miklu leiðtogahlutverki þetta land gegnir því nægt afl til vist- hæfra aflvéla er forsenda friðar, farsældar, öryggis og þroska jarð- arbúa. - Og það við verulega öðru- vísi félagslegar áherslur. Hefur ASÍ farnast vel á tekjujöfn- unarleiðinni? ASÍ og skattalækkunin Gunnar Jóhannsson skrifar: Var ég að heyra rétt í sjónvarps- frétt sl. fimmtudag þar sem fram- kvæmdastjóri ASÍ fullyrti að skattalækkun sú sem stjórnar- flokkamir hafa boðað sé óæskileg? Eða var ASÍ-maðurinn að taka undir vanþóknun Landssambands eldri borgara um sama efni? Halda þessir menn að eitthvað annað komi launafólki, svo og eldri borg- urum, að meira gagni? Er það ekki einmitt afnám eignaskatts, lækkun erfðafjárskatts og lækkun virðis- aukaskatts af neysluvörum sem koma öllum til góða? Hvað eru þessir aðilar sífellt að taka um milljón króna manninn sem „fái líka skattalækkun"? Það verður aldrei nein „tekjujöfnun" í þessu þjóðfélagi fremur en í öðrum og þar af leiðandi engin sátt heldur milli kynslóðanna í þessum efn- um. Tökum við skattalækkun með gleöi og þakklæti. Við stöndum ekki verr eftir. Bæklingar í tugatali Hjörtur hringdi: Ég vil koma mótmælum á fram- færi gagnvart þeirri ógn sem mér stendur af flæði sölubæklinga í póstkassann minn. Hann er ýmist fullur að morgni eða kvöldi af þess- um allsendis gagnslausu bækling- um sem fara jú beint i ruslið ólesn- ir. Ég ber ekki við að lesa neitt af þessu og svo er um flesta i þessu annars fjölbýlishúsi þar sem ég bý. Auk þess eru dagblöðin, einkum Morgunblaðið og Fréttablaðið, með ýmsa bæklinga inni 1 sér og þeir fara líka beint í ruslið (samanber t.d. sá síðasti í Mbl„ merktur MAT- RIX, eða Sánd. Bæklingar stórmark- aðanna og einstakra verslana eru þó fyrirferðarmestir. Það sýnir mér að hart er barist um bitann þessa dagana. Ég efast um að bæklingarn- ir dragi björg í bú fyrir viðkomandi fyrirtæki. Gísla þáttun Marteins Svanhildur Sigurðardóttir skrifar: Þættir Gísla Marteins Baldurs- sonar á laugardagskvöldum hafa verið til fyrirmyndar frá byrjun. Honum hefur tekist nokkuð jafn vel upp frá þætti til þáttar, enda sjálfur ágætur sjónvarpsmaður, og þar standa honum fáir á sporði. Næstsíðasti þáttur Gísla stakk hins vegar í stúf við hina þar sem hann ræddi við þrjár sjálfumglaðar per- sónur, fyrrverandi Kvennalista- konu og tvo uppgjafaþingmenn, sem báðum hefur þó verið séð fyr- ir vinnuskjóli hjá hinu opinbera - nema hvað! Og til að setja punkt- inn yfir i-ið á neikvæðu nótunum dró Gísli fram tvo unga drengi (kannski 8 og 12 ára eða þ.u.b.) sem voru látnir öskra eigin laga- smíð - svo féleg sem hún nú var - um „Stóru strákana" sem mega drekka bjór og mega gera hitt og þetta. - Hér fór Gísli Marteinn út af laginu en enginn er heldur full- kominn. Það gengur vonandi betur næst, er sagt. Ef þátturinn verður þá bara ekki tekinn af dagskrá „yfir sumarið", eins og Sjónvarps- ins er vani, og nauðungaráskrif- endum sagt að „éta það sem úti frýs“ - eða þannig. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíö 24,105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.