Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Síða 7
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 I>V Fréttir DV-MYND HILMAR ÞOR Fyrstu verðlaun í tipplelk DV Vinningshafinn Elmar Hallgríms Hallgrímsson á milli Einars Þórs Daníelssonari, fyrirliöa KR, og Ágústs Gylfasonar, fyr- irliöa Fram, en liöin mætast í sannkötiuðum Reykjavíkursiag á sunnudaginn í Laugardal. Enginn með fimm nétta „Ég sá þegar Ásgeir Sigurvinsson opnaði leikinn á baksíðu DV og ákvað að skrá mig inn og taka þátt. Þetta er þrælskemmtilegur leikur og ekki skemmir fyrir að vinna til verðlauna," segir Elmar Hallgríms Hallgrímsson, lögfræðingur hjá yf- irskattanefnd, sem vann fyrstu verðlaun í tippleik DV sem er á heimasíðu blaðsins. Enginn var með 5 rétta enda mik- ið um óvænt úrslit í 1. umferðinni í Landsbankadeildinni. Elmar var einn af 10 sem voru með 4 rétta og var hann dreginn út úr þeim þátt- takendum. 82 voru með 3 leiki rétta, 247 með 2 leiki rétta og 167 með 1 leik réttan. Um 800 manns tóku þátt í fyrstu umferðinni en þeim fjölgar daglega, enda er hægt að skrá sig til leiks hvenær sem er á meðan mótið stendur yfir. Elmar fékk að launum glæsileg verðlaun frá Jóa útheija sem voru í þetta skiptið bakpoki, bolti og sér- stök verðlaun fyrir að vera fyrsti vinningshafinn sem var árituð landsliðstreyja af Guðna Bergssyni sem er nýhættur að leika með Bolton en spilar enn þá með ís- lenska landsliðinu. „Ég hef alltaf lit- ið upp til Guðna. Hann var minn uppáhaldsleikmaður og því er sér- staklega ánægjulegt að fá áritaða treyju.“ Elmar lék með Fram í handboltanum áður fyrr en er hætt- ur. Hann fær að auki miða á leik Fram og KR, sem er á sunnudaginn, og getur séö sitt félag leika við ís- landsmeistarana á Laugardalsvelli. Allir geta tekið þátt í tippleiknum á dv.is og kostar ekkert að vera með. Eftir hveija umferð eru dregin út glæsileg verðlaun frá Jóa útherja og í lok tímabilsins er vegleg utan- landsferð í verðlaun fyrir þann sem er með flesta leiki rétta á tímabil- inu. -HÞG Maöur dæmdur í sekt fyrir aö aka undir áhrifum verkjalyfja: Víssi ekki að varhugavert væri að keyra eftir inntöku lyfianna Fertugur maður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norður- lands eystra í 70 þúsund króna sekt fyrir aö hafa ekið undir áhrif- um lyfja um götur Akureyrar sumarið 2001. Maðurinn sagðist hafa tekið margar töflur af park- ódíni og öðrum lyfjum að læknis- ráði vegna mjög slæmrar tannrót- arbólgu. Hann neitaði því að hafa fundið til lyfjavímu við aksturinn og sagðist ekki hafa vitað að var- hugavert gæti verið að aka bifreið eftir inntöku lyfjanna. Niðurstöður blóðrannsóknar bentu til þess að maðurinn hefði tekið talsvert meira en ráðlagðan skammt af lyfjunum og talið var líklegt að hann hefði af þeim sök- um ekki verið fær um að stjóma bílnum með öruggum hætti. Mað- urinn hefur oft gerst sekur um umferðarlagabrot og með þessu broti rauf hann 30 daga skilorðs- bundinn dóm fyrir þjófnað, en dómarinn ákvað þó að láta hann haldast og dæma sérstaka refs- ingu í þessu máli. Auk sektarinn- ar var maðurinn sviptur ökurétti í fjóra mánuði. -EKÁ Grand Vitara 3ja dyra verð frá 2.115.000 Grand Vitara 5 dyra verð-frá 2.435.000 Grand Vitara XL-7 verð frá 3.090.000 SUZUKI BILAR HF Skeiíunni 17. Síml 568 51 00. > www.suiukibilar.is SUZUKI IHÆTTUM AÐREVKJA HVATNINGAR- ÁTAK UMFÍ B Taktu þát samk slaffon reykingum Slagoröasamkeppnin er opin öllum landsmönnum á hvaöa aldri sem er. Vegleg verölaim tengd •íþróttum, útivist og feröalög- um veröa veitt. Sendiö slagorðin tH: Þjónustumiöstöö UMFÍ, FeUsmúla 26, 108 Reykjavík merkt: SLAGORÐASAMKEPPNI fyrir 25. maí. ÚtsUt veröa kynnt á reyklausum degi 31. maí. Leggöu inn á Reyklausan reikning til aö fá geisla- plötuna HÆJTTUM AÐ REYKJA! Leggöu kr. 1000 inn á Reyklausan reikning í banka eða sparisjóði og þú færð eintak sent um hæl: SPK nr. 5513 - SPH nr. 6943 - SPV nr. 11047 SPRON nr. 7306 - SPK nr. 408428 íslandsbanki (aðalbanki) nr. 160379 Landsbanki (aðalbanki) nr. 283408 Búnaðarbanki (aöalbaiíki) nr. 120552 Mundu að láta nafn þitt og heimibsfang koma skýrt fram þegar þú leggur inn á Reyklausan reikning. REYKLAUS REIKNINGUR tmmss g HVATNINGAR ATAK UMFÍ ÍS, Geisladiskinn HÆTTUM AÐ REYKJA er einnig hægt að fá í Þjónustumiðstöð UMFÍ, Fellsmúla 26,108 Reykjavík, s. 568 2929. Diskurinn kostar 1.000 kr. Heildarverðmœti vinninga í hvatningarátaki UMFÍ er kr. 750.000. Nöfn vinningshafa veröa birt í DV á reyklausum degi 31. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.