Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Síða 8
8
FTMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003
Fréttir dv
Fíkniefnahringur sem teygt hefur anga sína til íslands:
Búast má við fleiri ákær-
um á hendur íslendingum
Ákæra gegn tveimur mönnum,
Þjóöveija og Islendingi, var þingfest
tyrir Héraösdómi Reykjavíkur á
mánudag en mennimir tveir eru
ákæröir fyrir stórfelld fikniefhabrot
þann 7. nóvember 2002. Þjóðveijan-
um er gefið að sök að hafa flutt til
landsins í ágóðaskyni 890 grömm af
amfetamíni og 979 grömm af kanna-
bis frá Þýskalandi sem hann hugðist
afhenda til söludreifmgar hér á landi
en tollverðir fundu efnin falin innan-
klæða á manninum við komu hans til
Keflavíkurflugvallar. íslendingurinn
er ákærður fyrir að hafa tekið þátt í
innflutningi Þjóöveijans með því aö
hafa tekið við pökkum úr hendi hans
á hóteli í Reykjavík sem hann hélt að
innihéldu framangreind fikniefiii en
lögreglan hafði þegar lagt hald á efn-
in og sett gerviefni í staðinn. Menn-
imir era grunaðir um að tengjast
stórum fíkniefnasmyglhring sem hef-
ur teygt anga sína til margra landa.
Þeir sitja nú í gæsluvarðhaldi til 13.
júní nk. Granur leikur á að fikniefn-
um hafi verið smyglað frá Hollandi,
Spáni og Marokkó til Þýskalands og
síðan smyglað þaðan til Noregs og ís-
lands. Málið er enn í rannsókn hjá
lögreglunni á íslandi en er að hluta
til komið í ákærumeðferð. Tveir ís-
lenskir lögreglumenn era nú í Þýska-
landi og taka þátt í yfirheyrslum yfir
Þjóöveijum sem taldir era tengjast
málinu en búið er að handtaka fjölda
manns vegna málsins, m.a. meintan
höfuðpaur fíkniefiiahringsins.
Ákæra fyrir öll brotin í einu
Við þingfestinguna fyrir héraðs-
dómi krafðist veijandi Þjóðveijans
þess aö ákærunni á hendur honum
yrði vísað frá dómi og var krafa hans
tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Þjóðveijinn hefúr viðurkennt
að hafa flutt fíkniefiri til landsins í
alls sjö ferðum sínum hingað en
hann er núna ákærður fyrir eina af
þessum ferðum. Taldi verjandi hans
að samkvæmt lögum um meöferð op-
inberra mála ætti ekki að gefa út
ákæru fyrr en rannsókn máls væri
að fullu lokið. Hann benti á að rann-
sókn hefði að mestu leyti lokið hér á
landi í byrjun árs en að rannsókn-
inni i Þýskalandi væri ekki enn lok-
ið. Hann sagði að mannréttindi
ákærða væra fyrir borð brotin ef sak-
arefhið væri bútað niður og hann
gæti síðan seinna átt von á fleiri
ákærum. Hann sagði að ákæravald-
inu bæri aö ákæra fyrir öll brotin í
einu ef ætlunin væri sú að ákæra
hann fyrir fleiri brot og að allt benti
til að slíkt yrði gert þar sem hann
hefði m.a. játað þau á sig.
Brotið fullrannsakað
Fulltrúi lögreglusfjórans í Reykja-
vik sagði að þótt Þjóðverjinn hefði
játað á sig fleiri brot væra þau ekki
fullrannsökuð. Ákveðið hefði verið
að ákæra fyrir þessa afmörkuðu
sendingu þar sem það mál væri að
fullu rannsakað og ekkert væri því til
fyrirstöðu að dæma fyrst í því í stað
þess aö draga málið á langinn og láta
manninn hanga í lausu lofti. Hann
vitnaði í málverkafolsunarmálið svo-
kallaða en þar krafðist lögmaður
annars sakbomingsins frávísunar
þar sem ekki hefði verið ákært fyrir
öll málverkin í einu heldur hefði
hann veriö sakfelldur árið 1999 fyrir
þijú málverk og síðan ákærður fýrir
fleiri árið 2003. Dómarinn í því máli
féllst hins vegar ekki á frávísunar-
kröfuna, þrátt fyrir að hann teldi
æskilegt að máliö hefði veriö rekið
fyrir dómi í einu lagi þar sem máliö
væri mjög umfangsmikið og ekki
fljótrannsakað.
Samkvæmt upplýsingum DV er
fíkniefhamálið gríðarlega umfangs-
mikið og búist er við að mun fleiri
ákærur verði gefnar út að rannsókn
lokinni og þá jafnvel á hendur fleiri
íslendingum sem nú liggja undir
grun og rannsóknin beinist að. Aðal-
meðferð málsins á hendur mönnun-
um tveimur mun liklega hefjast fljót-
lega í Héraðsdómi Reykjavíkur.
-EKÁ
Krakkar í sumarskapl
Krakkar úr Hamraskóla skelltu sér í bæjarferö í gærmorgun og nutu þess aö spássera um miöbæinn í góöa veörinu milli annarra erinda. Ferö í ísbúöina er
náttúrlega ómissandi viö svona tækfæri enda fátt meira hressandi en einn svalandi meö dýfu. Afmyndinni aö dæma virtist ísinn falla vel í
kramiö hjá krökkunum.
Tryggingafélag sýknaö af bótakröfu:
Sagðist hafa neytt áfengis til aO Hna þjáningar
Héraðsdómur Suðurlands sýkn-
aði í gær Vátryggingafélag íslands
af bótakröfu konu sem hafði lent í
bílslysi í nóvember árið 2000. Hún
haföi misst stjórn á bifreið sinni í
beygju á leiðinni frá Flúðum að
Selfossi með þeim afleiðingum að
bifreiðin fór út af veginum og valt.
Konan, sem var í bilbelti, fótbrotn-
aði og rifbeinsbrotnaöi, auk þess
sem hún tognaöi á mjööm og á
brjósthrygg. Áfengi mældist í
blóði hennar en hún sagðist hafa
fengið sér áfengi eftir slysið til
þess að lina þjáningarnar. Sagðist
hún hafa skriðið út um brotinn
glugga á bílnum en hefði svo
skriðið aftur að bílnum þar sem
hún hefði vitað af áfengi þar og
náð í þrjár til fjórar bjórdósir og
rauðvínsflösku. Hún hefði síðan
skriðið sömu leið út aftur og
drukkið vínið. Lögreglumaðurinn
sem kom fyrstur á vettvang sagði-
hins vegar að allir lausamunir í
bifreiðinni hefðu greinilega þeyst
úr bifreiðinni við slysið, þar á
meðal áfengið. í niðurstöðu dóms-
ins segir að óumdeilt sé að konan
hafi neytt áfengis nóttina áður og
að framburður hennar um áfeng-
isneyslu sína eftir slysið hafi ver-
ið misvísandi og reikull. Því séi
algerlega ósannað að hún hafi
neytt áfengis í kjölfar slyssins.
Samkvæmt niðurstöðu blóðrann-
sóknar hafi hún verið óhæf til að
aka bifreiðinni og þar sem myrk-
ur hafi verið og ísing var á vegin-
um hafi hún sýnt af sér stórkost-
legt gáleysi með því að aka bifreið-
inni undir áhrifum áfengis við
þessar aðstæður.
-EKÁ
Ungir jafnaðarmenn:
Bingitta Haukdal
fái fálkaorðuna
Ungir jafnaðarmenn í Reykja-
vík, ungliðahreyfing Samfylk-
ingarinnar, telja að ef allt geng-
ur eftir og Birgitta Haukdal
sigrar í evróvisjónkeppninni á
laugardag þá eigi tafarlaust að
veita henni stórriddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir
telja að Birgitta sé glæsilegur
fulltrúi hinnar íslensku þjóðar á
erlendri grund. Hún hafi verið
heilbrigð fyrirmynd æskulýðs-
ins og sinnt jöfhum höndum for-
vörnum gegn reykingum og
kynningu á íslenskri súkkulaði-
framleiðslu. Að þeirra mati er
Birgitta engri lík og og hyggjast
þeir senda skriflega tilllögu til
orðuritara um að hún fái hið
minnsta riddarakross, hver sem
úrslit keppninar verði. Þeir
hvetja forsetann að líta til for-
dæmis kollega sinna í ná-
grannalöndunum og benda á að
Englandsdrottning hafi til að
mynda í auknum mæli kosið að
heiðra þekkt fólk úr heimi kvik-
mynda, íþrótta og popptónlistar.
-EKÁ
Þóra Berglind
bakaði besta
brauðið
Þóra Berglind Magnúsdóttir
varð sigurvegari í Nemakeppni
Komax í brauðbakstri sem
fram fór í Vetrargarðinum í
Smáralind 15. maí. Þar kepptu
til úrslita fjórir nemar við bak-
aradeild Hótel- og matvælaskól-
ans í Kópvogi, þau Björgvin
Richter, Kökubankanum, Jón
Karl Stefánsson, Breiðholtsbak-
aríi, Þóra Berglind Magnúsdótt-
ir, Myllunni-Brauð, og Örvar
Amarsson, Árbæjarbakaríi.
Björgvin Richter varð í öðru
sæti og Jón Karl Stefánsson og
Örvar Amarsson í 3.^1. sæti.
Að keppninni stóðu Hveiti-
myllan Komax ehf., Hótel- og
matvælaskólinn í Kópavogi,
Landssamband bakarameistara
og Klúbbur bakarameistara.
-hlh
Sigurvegarinn
Þóra Berglind Magnúsdóttir meö
verölaun sem hún hlaut fyrir sigur í
Nemakeppni Kornax í brauöbakstri.