Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Page 13
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 DV Utlönd 13 Bondevik tekur hótanir al-Qaeda í garö Noregs alvarlega: Ekki talin ástæða til að óttast árás heima fyrir Norsk stjórnvöld taka hótanir al-Qaeda um hryðjuverkaárásir á norska hagsmuni alvarlega en Kjell Magne Bondevik forsætis- ráðherra telur að engin ástæða sé til að óttast heima fyrir. „Norskir ríkisborgarar í útlönd- um, einkum þó í ákveðnum lönd- um, ættu að vera varari um sig. En við teljum að við höfum gert allar nauðsynlegar ráðstafanir í Noregi svo það er engin ástæða til að vera hræddur þar,“ sagði Bondevik í gær, eftir að Noregur var settur á lista hryðjuverkasam- taka Osama bin Ladens yfir lönd sem harðlínumúslímar ættu að beina sjónum sínum að. Arabíska sjónvarpsstöðina al- Jazeera, sem hefur höfuðstöövar sínar í Katar, útvarpaði í gær hljóðupptöku sem sögð var vera frá Ayman al-Zawahri, hægri hönd bin Ladens. Þar hvatti hann til þess að ráðist yrði gegn sendi- ráðum og viðskiptahagsmunum Bandaríkjanna, Bretlands, Ástral- íu og Noregs. Bandaríska utanríkisráðuneyt- ið tilkynnti í kjölfarið að sendiráð- ið í Ósló yrði lokað í dag. Bondevik sagði í viðtali við fréttamann norska blaðsins VG í gærkvöld að norsk stjómvöld hefðu ekki fengið neina viðvörun um hótanimar á hljóðupptökunni sem al-Jazeera sendi í loftið í gær. Kjell Magne Bondevlk Norski forsætisráöherrann segir aö stjórnvöld taki hótanir hryöjuverka- manna al-Qaeda um árásir á norska hagsmuni alvarlega. „Nei, ekki svo ég viti til, og að sjálfsögðu tökum við slíka til- kynningu alvarlega," sagði norski forsætisráðherrann. Ekki er ljóst hvers vegna Noreg- ur var með á listanum yfir skot- mörk al-Qaeda. Norðmenn sendu ekki hermenn til íraks og þeir hafa verið ötulir við að reyna að miðla málum í deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Ýmsir fréttaskýrendur töldu í gær að hryðjuverkamennimir hefðu ruglast eitthvað í landa- fræðinni og í raun átt við Dan- mörku. Dönsk stjórnvöld voru ötulir stuðningsmenn stríðsrekstr- ar Bandaríkjamanna og Breta í írak og fyrir það fékk Anders Fogh Rasmussen klapp á öxlina þegar hann heimsótti Bush Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu fyrir skömmu. Odd Einar Dörum, dómsmála- ráðherra Noregs, sagði fréttastofu norska ríkissjónvarpsins NRK að stjórnin hefði haldið neyðarfundi um málið og fylgdist náið með þróuninni. Og utanríkisráðuneyt- ið fól sendiráðum Noregs að vara öll norsk fyrirtæki með starfsemi erlendis við hugsanlegum árásum. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi al- Jazeera fyrir að senda út hljóð- upptökuna þar sem hún „breiddi bara út meira hatur í heiminum". Powell sagðist ekki vita hvort upp- takan væri ósvikin. Hvatningin á upptökunni þykir fylgja áður þekktu munstri þar sem hún kemur fram skömmu eft- ir hryðjuverkaárásir og þykir til þess fallin aö sá enn frekar fræj- um ótta og skelfingar. a r Viö veitum 15% afslátt af System Professional hárvörum frá Wella á vordögum. TilboSiS gildir til 23 maí. Þönglabakki 1 109-Reykjavík Sími-557 4600 Milljónaútdráttur J 5. flokkur, 20. maí 2003 ® HAPPDRÆTTI ^jjjf HÁSKÓLA ÍSLANDS w vænlegast til vinnings Kr. 1.000.000,- 410B 23761H 596G 28378H 11166B 29310G 14652F 36841F 21510F 42141F Þar sem einvörðungu er dregið úr seídum miðum þarf miðaeigendi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. REliTERSMYND Gætt sér á nautakjöti Jean Chretien, forsætisráöherra Kanada, gæðir sér á nautasteik til aö sýna aö ekkert sé aö óttast þó aö tiifetli um kúariöu hafi komiö upp í Alberta-fylki. ESB rannsakar heilsubrest danskra starfsmanna í Thule Evrópusambandið hefur ákveð- ið að rannsaka hvort dönsk stjóm- völd hafi brugðist 1.200 dönskum starfsmönnum sem unnu við hreinsunarstarf í Thule-herstöð- inni á Grænlandi eftir að banda- rísk sprengjuflugvél með geisla- virk efni um borð fórst þar árið 1968. Danska fréttastofan Ritzau segir að margir starfsmannanna hafi síðan þjáðst af alvarlegum húð- sjúkdómum og krabbameini sem kunni að eiga rætur sínar að rekja til geislunar frá farmi flugvélar- innar. En enda þótt sýnt hafi ver- ið fram á að dánartíðnin hafi ver- ið meiri meðal þessara starfs- manna en annarra hafa dönsk stjórnvöld aldrei viljað rannsaka málið ofan í kjölinn. „Það er mikill sigur fyrir okkur að alþjóðleg stofnun viðurkennir alvarleika vanda okkar,“ segir John Borup, varaformaður sam- taka starfsmannanna. Auglýsendur athugið Sérblað um ferðir innanlands fylgir Magasíni fimmtu- daginn 5. júní - 82 þús. eintök. Meöal efnis: Feröir fyrir fjölskylduna • Tjaldvagnar - fellihýsi - hjólhýsi - húsbílar • Afþreying og skemmtun ■ Hápunktar • Hvaö er aö gerast í sumar? • Útivist • Gönguferðir • Leiösögn • Hestaferöir - bátsferöir - fjalla- og jeppaferöir og margt annaÖ fróðlegt og skemmtilegt. Skilafrestur auglýsinga er 2. júní lbúin að aðstoða ykkur: . s. 550-5734, inga@dv.is 3, b. s. 550-5733, kata@dv.is Aargrét, b. s. 550-5730, margret@dv.is Ransý, b. s. 550-5725, ransy@dv.is Sigrún, b. s. 550-5722, sigruns@dv. is Auglýsingadeild 550 5720

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.