Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Qupperneq 14
14
Tilvera
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003
T*>"^Ur
lífiö
Herjólfur á fjalir
Nýtt íslenskt leikrit, Herjólfur
er hættur að elska eftir Sigtrygg
Magnason, verður frumsýnt í
kvöld gömlu birgðahúsi Land-
símans, Sölvhólsgötu 11. Geng-
ið er inn frá Skúlagötu. Þetta er
fyrsta frumsýning Leiksmiðju
Þjóðleikhússins og leikstjóri er
Stefán Jónsson.
Álram veglnn í Salnum
Margrét Stefánsdóttir sópran
og Hrefna Eggertsdóttir píanó-
leikari flytja íslensk sönglög og
erlend söngljóð eftir Hándel,
Brahms, Fauré og Strauss og óp-
eruaríur eftir Mozart og Verdi í
Salnum í kvöld kl. 20.
Bresk samtímalist
Þrír breskir myndlistarmenn
opna sýningu á ljósmyndum,
teikningum og skúlptúrum í
Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39,
kl. 18. Þetta eru Jo Addison,
Hatty Lee og Lucy Newman.
Sýn unglinganna
Sýningin Reykjavík verður
opnuð í dag kl. 17 í Borgarbóka-
safninu í Grófarhúsinu. Þetta er
samsýning átta unglinga sem
hafa lært ljósmyndun í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur.
Ungliðar keppa
Keppni í hársnyrtingu verður á
vegum Intercoiffure á íslandi á
veitingastaðnum NASA í kvöld
undir heitinu TÍSKA. Húsið opn-
að kl. 20 en keppnin hefst kl.
20.30.
Bíófrumsýningar:
Hressb* skólafélagar og harðar löggur
(Jason Patric) sem
hefur verið leystur
frá störfum tíma-
bundið. Hann getur
þó ekki slitið sig frá
máli þar sem ungur
lögreglumaður var
drepinn við störf sín.
Þar nýtur hann
stuðnings, Henrys
Oaks (Ray Liotta)
sem hafði verið félagi
unga lögreglumanns-
ins sem vill hefna fé-
laga síns. Þeir rekja
morðið inn í dýpsta
hring eiturlyfjasala
og þar komast þeir að
upplýsingum sem
koma þeim verulega
á óvart. Rannsókn
þeirra á svo eftir að
taka nokkrar stefnur
þar til komið verður
að óvæntum endi.
Narc hefur vakið
athygli og fengið góð-
ar viðtökur hjá gagn-
rýnendum. Hún hef-
ur einnig verið verð-
launuð á kvikmynda-
hátíðum. Leikstjóri
, Joe
Camahan, sem
einnig er handritshöfunur,
mun næst leikstýra Mission
Impossible 3.
Old School
Old School er ærslafull
gamanmynd. Myndin fjall-
ar um þrjá skólafélaga.
Mitch (Luke Wil-
son), Frank
City by the Sea
Robert De Niro í hlutverki lögreglumannsins
Vincents LaMarca.
(Will Ferrell) og Beanie (Vince
Vaughn) sem eru að komast á
fertugsaldurinn og eru í mikilli
sálarkreppu. Þeir vilja ekki eld-
ast, ekki taka á sig ábyrgð og eru
óánægðir með lífið og tilveruna.
Eiga þeir félagar þá ósk heitasta
að vera aftur komnir í áhyggju-
laust skólalífið. Þegar einn
þeirra flyst í hús við skólann
ákveða þeir að hverfa aft-
til skólaáranna og halda
partí. Það lukkast svo vel
félagamir ætla að halda
þessum nýfengna, frjálsa
lífsmáta áfram. Það reynist
ekki svo einfalt þegar upp er
staðið.
Þeir sem standa að gerð Old
School, leikstjóri, framleið-
endur og handritshöfúndar,
höfðu áður gert Road Trip og
má sjá margt líkt með þessum
tveimur myndum. -HK
Jarc
íay Liotta
leikur lög-
reglumann
inn Henry
Oak sem
leitar
hefnda.
Old School
Skólafélagarnir þrír í brúökaupi eins þeirra. Taliö frá vinstri:
Will Farrell, Luke Wilson og Vince Vaughn.
undir fölsku flaggi
meðal eiturlyfja-
neytenda og sölu
manna eitur-
lyfja. Aðal-
persónan
er Nick
Tellis
City by the Sea
Það er stórleikarinn Robert De
Niro sem fer með aðalhlutverkið
í sakamálamyndinni City by the
Sea. Leikur hann þekktan lög-
reglumann sem eltist við hættu-
legan morðingja. Faðir hans var
tekin af lífi fyrir mannsrán og
núna stendur hann frammi fyrir
þeirri hræðilegu staðreynd að
hans eigin sonur hefur framið
morð. Rannsókn hans leiðir
hann á æskuslóðir hans og
þar rifjast upp fyrir honum
að örlög fóður hans hafa haft
afgerandi áhrif á hegðun
hans gagnvart eigin syni.
Auk Roberts De Niros leika í
Mest sótta kvikmyndin í síðustu
viku, The .Matrix Reloaded, á
sjálfsagt enn eftir að fá mikla að-
sókn um helgina. Þeir sem vilja
sjá nýjar kvikmyndir geta valið
úr þremur kvikmyndum sem
frumsýndar verða um helgina.
Tvær þeirra, Narc og City by the
Sea, eru löggumyndir í harðari
kantinum og sú þriðja, Old
School, er ærslafull gamanmynd
um skólafélaga sem vilja endur-
lifa gömlu góðu dagana.
City by the Sea Frances Mc
Dormand, James Franco, Eliza
Dsuku og William Forsythe.
Leikstjóri er Michael Caton-Jo-
nes (The Jackal, Rob Roy) sei
áöur hefur leikstýrt Robert DeN-
iro. Var það í This Boy’s Life.
Narc
Narc er sakamálmynd í anda
The French Connection og
Serpico og eru aðalpersónumar
lögreglumenn sem stafa í fíkni-
efhdadeild og eru oftar en ekki
SUMARDJAMM?
aysleeper
Þrostur 3000
Svali
Heiðar Austmann
Kiddi Bigfoof ‘
DJ Ding Dong
BONUSViDEO
Leigðu fjðrar vídeóspólur og keyptu
fjorar Coke flöskur f Bónusvídeó
- og þð fœrðu miða ó Sumardjamm Coca Cola, Bðnusvídeó og FM957
Stormy Weather:
Góðar viðtökur
í Cannes
Nýjasta kvikmynd Solveigar
Anspach, Stormy Weather, sem
er franskt-íslenskt verkefni, var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í fyrrakvöld, að viðstödd-
um leikstjóra og leikurum mynd-
arinnar. Var myndinni og að-
standendum hennar fagnað í lok-
in. Dómar hafa nú birst og eru
þeir flestir lofsamlegir. Einn gagn-
rýnandinn, sem er hrifinn af
myndinni, hefur þó ekki mikla trú
á henni á almennum markaði.
Hann segir hana verða vinsæla í
sjónvarpi og með réttri meðhöndl-
un eigi myndin eftir að gera það
gott í þeim kvikmyndageira sem
sinnir listrænum kvikmyndum.
Stormy Weather gerist í fyrstu á
meginlandi Evrópu. Síðan færist
sögusviðið yfir til Vestmannaeyja.
Aðalpersónur eru tvær konur, sál-
fræðingiu- sem hefur haft sjúkling
undir höndum sem enginn veit
hver er. Hún telur sig vera að ná í
gegn til konunnar þegar í ljós
kemur að hún er íslensk. Sendi-
ráðið í París tekur málið í sínar
hendur og er hún flutt til heim-
kynna sinna í Vestmannaeyjum.
Sálfræðingurinn, sem ekki vill
sleppa tökum á henni, fylgir henni
——................
Sálfræöingurinn og sjúkllngurlnn
Didda Jónsdóttir og Elodie Bouchez
í hlutverkum sínum.
eftir. í Vestmannaeyjum kemur í
ljós að konan er gift móðir og hef-
ur alltaf átt við geðræn vandamál
að stríða og hefur hún áður látið
sig hverfa. Sálfræðingurinn tekur
nú til við konuna þar sem frá var
horfið.
Gagnrýnandinn sem vitnað var
í fyrr ber sérstakt lof á leik Diddu
Jónsdóttur, betur þekkt hér á
landi sem skáldkonan Didda, og
segir að hvort sem hún sé lokuö
inni í sér eða í ofsafengnum reiði-
köstum þá sé leikur hennar nátt-
úrlegur og öruggur.
Auk Diddu leika í Stormy
Weather Elodie Bouchez, Ingvar
Sigurðsson og Baltasar Kormákur,
sem einnig er einn framleiðenda
myndarinnar. -HK
Tttanlc
Kafbátur kemur niöur aö flakinu.
Draugar
undirdjúpanna
í Cannes hefur heimildakvikmynd-
in The Ghost of Abyss, sem gerð er
af James Cameron, vakið mikla
athygli en hann hefur ekki leikstýrt
leikinni kvikmynd frá þvi hann leik-
stýrði mest sóttu kvikmynd allra
tíma, Titanic, árið 1998. Um gerð
heimildamyndarinnar, sem lýsir ferð
leiðangri niður að flaki Titanics, seg-
ir Cameron: „Hugmyndin að Ghost of
the Abyss kom eftir að ég hafði lokið
við Titanic. Ég notaði fríið til köfun-
ar og fór að leiða hugann að því að
fara með leiðangur niður að flakinu
og sýna almenningi hvernig væri um
borð í Titanic og um leið hvemig slík
ferð er farin og sýna einnig myndir
sem til eru af sölum Titanic áður en
skipið fór sína fyrstu og síðustu ferð.
Við fórum niður að flakinu áður en
ég hóf gerð Titanic en þessi ferð var
allt öðruvísi."
Ghost of the Abyss er til í tveimur
útgáfum 3D og svo 33 mlllimetra. Það
er sérstaklega í 3D sem myndin verö-
ur áhrifamikil. Stutt er síðan hún var
tekin til sýningar í Bandaríkjunum
og hefúr hún notið miklla vinsælda.