Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Page 28
28
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003
Sport
DV
kcppni í hverju orði
metur heimavellina í Landsbankadeldmni
KR-völIurinn stendur viö
Frostaskjól, á félagssvæði KR,
inni i miðju íbúðarhverfi. Það er
dálítið farið að þrengja að íslands-
meisturunum á svæðinu og eins
og staðan er í dag eru engin úr-
ræði sjáanleg til að stækka svæð-
ið.
Aðstaða fyrir áhorfendur er
ágæt svo langt sem það nær en
lágreist stúka stendur við aðra
hlið vallarins. KR-ingar eru það
lið sem dregur að sér flesta áhorf-
endur og þegar áhorfendaaðsókn
er komin nálægt meðaltali, sem
var í fyrra 1948 áhorfendur, er
stúkan orðin of lítil. KR-ingar
grípa þá til þeirra ráða að raða
pöllum meðfram vellinum en það
er ljóst að aðstaða áhorfenda þeg-
ar stúkunni sleppir er óviðun-
andi. Það er einnig gaUi við stúk-
una hversu lágreist hún er og yfir-
sýn ekki nægilega góð yflr allan
völlinn. Salemisaðstaða er nægi-
leg en hún er í litlu húsi vestan
við stúkuna, auk þess sem góð að-
staða er í íþróttahúsinu.
Bílastæðamál eru ekki nægilega
góð, þó er malarvöllur þeirra KR-
inga gjaman notaður undir bíla-
stæði. Það er þó engan veginn
nægjanlegt og er mjög algeng sjón
að sjá bíla uppi á gangstéttarbrún-
um víðs vegar í kringum KR-
svæðið. Vallargestir hafa oftar en
ekki orðið fyrir barðinu á lög-
regluyfirvöldum sem stundum
hafa gengið hart fram í að sekta
þá.
Aðstaða leikmanna er nokkuð
góð, klefar era stórir og rúmgóðir
og aðgengi leikmanna að vellinum
er gott.
Aðstaða blaðamanna á KR-velli
er til fyrirmyndar. Hún er efst i
stúkunni og er mjög rúmgóð og út-
sýni út úr henni mjög gott.
Leikvöllurinn sjálfur er mjög
góður um þessar mundir og sem
dæmi um það léku KR-ingar á að-
alvellinum gegn HB í Atlantic Cup
á dögunum, sem eflaust hefur
aldrei gerst áður. Völlurinn er í
sínu besta formi og verður ekki
hægt að kvarta yfir honum. Svæð-
ið býður upp á að KR-ingar geti
fært völlinn eilítið til. Upphitun-
arsvæði fyrir varamenn eru í
góðu lagi fyrir aftan bæði mörkin.
Til að uppfylla þær kröfur sem
UEFA og KSÍ setja fyrir þátttöku í
efstu deild þurfa vesturbæingar
að bæta úr ýmsu. Vegna góðrar
aðsóknar undanfarin ár þurfa KR-
ingar að bjóða upp á 1500 sæti. í
dag era þau hins vegar aðeins um
550 og ljóst að talsverðar breyting-
ar þarf að gera á KR-velli til að
uppfylla þessi ströngu skilyrði
sem KSÍ og UEFA hafa sett.
Það er hins vegar ekki aðeins
að bæta þurfl sætum við heldur
þarf einnig að skipta út þeim
sætum sem fyrir eru þar sem
bökin á þeim era of lág.
KR-vöUup
Einkunnargjöfin Aðstaða áhorfenda íð Leikvöllurinn ð
Aðstaða leikmanna Staða gagnvart staðli 0
Aðstaða blaðamanna ¥3 Heildarstigin 22
Einkunnargjöfin Aðstaða áhorfenda Leikvöllurinn 0
Aðstaða leikmanna & Staða gagnvart staðli ®
Aðstaða blaðamanna æ Heildarstigin ^
a
LHNQSBRNKR
□ EILDIN
Kaplakriki, heimavöllur FH-
inga, hefur verið óbreyttur um
árabil en nú hyggja þeir á fram-
kvæmdir og hafa gert áætlun að
breytingum á svæðinu, þar á
meðal á aðstöðu til knattspyrnu-
iðkunar.
Aðstaða fyrir áhorfendur hefur
þó batnað á undanförnum misser-
um þar sem komið hefur verið fyr-
ir 800 sætum í stúkunni sem varla
getur þó talist fullbyggð. Stúkan
stendur nokkuð hátt og er gott að
sjá yfir úr henni en það verður þó
að teljast galli að hún stendur svo
nærri vellinum að sumir áhorfend-
ur ná ekki að sjá niður á völlinn
næst henni. Á móti stúkunni eru
rúmgóð stæði þar sem vel má sjá
yfir leikvöllinn. Aðkoma að vellin-
um er ágæt þar sem hægt er að
komast að honum úr fjórum áttum
og þá eru bílastæðamál í þokka-
lega góðu lagi. Salernisaðstaða fyr-
ir stúkugesti er mjög góð en hún er
í tengibyggingu á milli stúkunnar
og íþróttahússins.
Aðstaða fyrir leikmenn verður
að teljast með því betra sem gerist
hér á landi. Rúmgóðir klefar
standa þeim til boða og aðgengi
þeirra að vellinum er mjög góð.
Koma þeir til leiks út úr stúkunni
og þar er lítil yfirbygging sem
kemur í veg fyrir áreiti úr
stúkunni.
Aðstaða blaðamanna mætti vera
betri. Hún er efst í stúkunni og er
innandyra. Útsýni úr henni er
nokkuð gott og sést vel yflr völl-
inn. Það er gildir þó það sama um
blaðamenn og áhorfendur að erfitt
er að sjá leikvöllinn næst
stúkunni.
Staðsetning vallarins er ákaflega
skemmtileg. Hann stendur í dálít-
illi lægð þar sem gjarnan er skjól-
sælla en i nágrenninum. Völlurinn
er alls ekki í nægilega góðu
ásigkomulagi þrátt fyrir að vera
nánast alveg nýr. Skipt var um all-
an jarðveg í honum og hann tyrfð-
ur á ný. Áður en þetta var gert var
þessi völlur hins vegar einn sá lé-
legasti á landinu.
Til að uppfylla kröfur KSl og
UEFA sjá Hafnfirðingar fram á all-
nokkrar framkvæmdir í framtíð-
inni. í dag eru eins og áður sagði
um 800 sæti í stúkunni en það
þurfa hins vegar að vera 1000 sæti
á Kaplakrikavelli. Möguleiki er að
setja 200 sæti í stæðin gegnt
stúkunni en að öðrum kosti þarf að
stækka aðalstúkuna á vellinum.
Engin yfirbygging er á núver-
andi stúku en samkvæmt keppnis-
leyfi þurfa FH-ingar að vera með
að a.m.k 500 sæti yfirbyggð. FH-
ingar voru í fyrra með tæplega
þúsund manns að meðaltali á leiki
félagsins.