Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Side 2
2 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ2003
DV Bingó
®Það er komið
bingó á 1-röðina
svo nú er komið
að því að spila N-
röðina. Önnur tal-
an í N-röðinni er 37.
Ferð fyrir tvo með Iceland Ex-
press til London eða Kaup-
mannahafnar er í boði.
Munið að samhliða einstök-
um röðum er allt spjaldið spilað.
Verðlaun fyrir allsherjarbingó er
vikuferð til Portúgals með Terra
Nova Sól. Spilað er í allt sumar
og því áríðandi að gleyma ekki
bingóspjaldinu í skúffunni eða á
töflunni. Verið með í DV-bingó.
EFNI BLAÐSINS
Matvara hefur lækkað
- innlendar fréttir bls. 4
Varnarsamningur gildir
- innlendar fréttir bls. 6
Gegn vísindaveiðum
- innlendar fréttir bls. 8
Gósentíð vasaþjófa
- Neytendur bls. 10
Taugatrekkjandi Gríma
-Tilvera bls. 16-17
Andóf gegn klerkum
- Erlendar fréttir bls. 12-13
Bíó og sjónvarp
-Tilverabls. 26-27
Becham gleður Madrid
-DVSport bls.30
Ásgeir og Logi stjórna
- DV Sport bls. 31
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Öli Björn Kárason
RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020
- AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar:
auglysingar@dv.is.- Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstraeti 94,simi:462 5000,
fax:462 5001
Setning og umbrot: Útgáfuféiagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i
stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá
eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Óhætt að leika sér
LEIKSTAÐUR: Heimilistíkln
Týra í Akbraut laetur sér fátt
um finnast um álagablett-
inn Kæsi og leikur sér þar
ótt og títt, að sögn eigand-
ans og bóndans á staðnum,
Daníels Magnússonar.„Þetta
hefur ávallt verið vinsæll
leikstaður," segir Daníel.
„Börn sem heimsækja bæ-
inn leika sér þar mikið og
hefur enginn hlotið mein af.
Systursonur minn kom
meira að segja óskaddaður
úr slæmri byltu sem hann
hlaut þegar hann lék sér í
hólnum einn daginn."
Það er því útlit fyrir að
huldufólkið í Kæsi fagni fé-
lagsskapnum.svo lengi sem
vistarverum þeirra sé ekki
spillt.
Keyrði á Ijósastaur
ÓHAPP: Jeppi
hafnaði utan vegar
við Miklubraut á
sjötta tímanum í
gær.Ökumaðurinn
virðist hafa misst
stjórn á bílnum
með þeim afleið-
ingum að hann
keyrði á Ijósastaur
og þeyttist síðan út
fyrir veginn.
Ljósastaurinn lagð-
ist undir bílinn. Að
sögn lögreglu
slapp ökumaðurinn
ómeiddur úr
óhappinu.Jeppinn
er hins vegar
töluvert mikið
skemmdur eftir
höggið.
I
Álagablettur við bæjarhúsin íAkbrautí Holtum veldur áhyggjum:
Virkjunarframkvæmdir
gætu raskað álfabyggð
Daníel Magnússon, bóndi í
Akbraut í Holtum, hefur bent
Landsvirkjun á að raska ekki
við álagablettinum Kæsi sem
stendur við bæjarhúsin í Ak-
braut. Til stendur að reisa
virkjun á þessum slóðum á
næstu misserum.
Landsvirkjun ráðgerir að virkja
Þjórsá við Núp og mun virkjunin
nýta veitur og miðlanir sem fyrir
eru á vatnasviði Tungnaár og Þjórs-
ár. Dulspekingar hafa bent Lands-
virkjun á að við bæjarhúsin í Ak-
braut í Holtum sé höll sem margir
telja vera bústað álfa og huldufólks.
Ef af virkjanaframkvæmdum verð-
ur mun stöðvarhús virkjunarinnar
rísa mjög nálægt þessum meinta
álagastað og hefur það valdið sum-
um áhyggjum.
Best að láta blettinn vera
„Það er jafnan stórhætta á ferð-
um þegar álagablettum sem þess-
um er raskað af mannavöldum. Á
umræddum stað hafa menn orðið
varir við eitt og annað dulrænt og
því færi best á því að láta blettinn
eiga sig,“ segir Eyjólfur Guðmunds-
son sem þekkir vel til dulrænna
mála sem þessara. Hann segir hól-
inn Kæsi við Akbraut vera álaga-
blett og varar við röskun svæðisins.
„Á umræddum stað
hafa menn orðið varir
við eitt og annað dul-
rænt og því færi best á
því að láta blettinn
eiga sig."
Bóndinn í Akbraut, þar sem hóll-
inn er, hefur þegar girt hólinn af og
gert Landsvirkjun viðvart um
ástandið.
„Manni hefur verið sagt að þetta
sé heilagur staður og þarna hafa
menn orðið varir við sitthvað dul-
rænt í gegnum tíðina. Ég hef nú
ekki upplifað margt sjálfur en mér
var hins vegar ráðlagt af miðli að
girða hólinn af, sem ég og gerði. Ég
hafði hins vegar ekki hugmynd um
hvernig ég ætti að fara að því en
fékk þá strax boð í draumi um
hvemig ég skyldi standa að því. Ég
gerði Landsvirkjun þegar viðvart
um þetta þegar áformað var að
virkja á þessu svæði og mér sýnist
reyndar á þeim teikningum af
framkvæmdunum sem nú eru í
umhverfismati að þar hafi menn
fært áformaða stöðvarhússbygg-
ingu aðeins norðar. Þar með ætti
blettinum að vera borgið og er það
vel,“ sagði Daníel Magnússon,
bóndi í Akbraut.
Hvorki beita né slá
Þótt Daníel hafi ekki orðið var við
neitt dulrænt á sinni tíð hefur hann
þó kynnst afleiðingum álagabletts-
Halda sig fjaerri Kæsi: Kýrnar í Akbraut hafa lært af biturri reynslu að ekki má bíta grasið á álagablettinum Kæsi. Engin hætta er á
slíku lengur þar sem bóndinn á staðnum, Daníel Magnússon, hefur girt hólinn af. ’ DV-myndir GVA
Birtist mér í draumi: „Mér var ráðlagt af miðli að girða álaga- Akbraut í Holtum: Bóndinn í Akbraut, Daníel Magnússon,
blettinn af og birtist mér í draumi skömmu siðar hvernig ég ásamt heimilistíkinni Týru á álagablettinum umtalaða sem
ætti að standa að þeirri framkvæmd," segir Daniel um raf- stendur við bæjarhúsin.
magnsgirðinguna sem umlykur bæði hólinn Kæsi og sjálfan
bæinn.
ins. „Gömul munnmæli segja að
þarna megi ekki beita, slá né nýta á
neinn hátt. Þegar hóllinn var ógirt-
ur kom það fyrir að kýr og ær voru
þar á beit en þær biðu þess jafnan
Munum ekki
„Á þessum stað erum við með
nokkra virkjunarkosti í umhverf-
ismati. Samkvæmt einum þeirra
yrði stöðvarhúsið á milli hól-
anna tveggja, Kæsis og Hamars,"
sagði Guðlaugur Þórarinsson,
verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun,
í samtali við DV um áætlanir
Landsvirkjunar hjá Akbraut. „En
þetta er allt enn í athugun og er
búið að senda mat í Skipulags-
stofnun. Við væntum úrskurðar
þaðan í ágúst. En það hvort
byggt verður á Akbraut eða hin-
um megin við ána kemur í ljós á
næstu misserum."
skaða. í gegnum tíðina hef ég misst
eina kú og 3 til 4 ær auk þess sem
nokkur dýr til viðbótar hafa veikst
illa.“
Daníel bendir á að í jarðskjálft-
raska Kæsi
Guðlaugur hefur heimsótt
Daníel Magnússon, bónda á Ak-
braut, nokkrum sinnum og hef-
ur hann bent Landsvirkjun á að
Kæsir kunni að vera álagablett-
ur. „Þetta kemur ekki oft fýrir en
í slíkum tilvikum er sérstök
áhersla lögð á að raska ekki hól-
um eins o'g Kæsi við fram-
kvæmdirnar. Daníei hefur bent
okkur á hvaða reynslu hann hef-
ur af Kæsi í gegnum búskap sinn
og finnst mér sjálfsagt að taka til-
lit til þess,“ sagði Guðlaugur.
eirikurst@dv.is
anum á Suðurlandi árið 2000 hafi
allt farið af stað í hólnum við hlið
Kæsis, Hamri, en engin röskun
varð á hinum meinta álagabletti.
Hann sé því ekki í vafa um að sitt-
hvað meira búi að baki í sambandi
við hólinn og að mannverurnar eigi
sem minnst að hrófla við honum.
„í gegnum tíðina hefég
misst eina kú og 3 til 4
ær, auk þess sem nokk-
ur dýr til viðbótar hafa
veikst illa."
Ef af framkvæmdum verður hjá
Akbraut mun Daníel þurfa að flytja
bæinn sunnar en hann mun þó
halda landi sínu að mestu. Allt útlit
er því fyrir að álfar og menn geti
áfram búið í sátt og samlyndi á
þessum umdeilda stað.
agust@dv.is / eirikuTst@dv.is