Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Page 14
14 SKOÐUN FINMMTUAGUR 19.JÚNÍ2003
Skilgreind varnarþörf í viðræðum
Tæknileg skilgreining á því hverjar séu
nauðsynlegar lágmarksvarnir íslands hef-
ur hvergi verið sett á blað. Treyst hefur
verið á tvíhliða varnarsamning við Banda-
ríkin annars vegar og veruna í NATO hins
vegar. Fram hefur komið í fréttum DV
undanfarna daga, í kjölfar bréfs Banda-
ríkjaforseta til Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra um varnarsamstarf þjóðanna, að
svo virðist sem Islendingar hafi ekki gert
ráð fyrir að brestur kæmi í það varnarsam-
starf ef miðað er við það sem fram hefur
komið frá stjórnvöldum um varnarmál
undanfarin misseri.
Sérstök greinargerð um mat á varnar- og
öryggismálum þjóðarinnar kom síðast út
á vegum utanríkisráðuneytisins fyrir fjór-
um árum. I henni voru settar fram ýmsar
tillögur, meðal annars um aukna þátttöku
íslendinga í vörnum landsins, en ekkert
vikið að því hvernig bregðast skuli við ef
Bandaríkjamenn dragi úr viðbúnaði hér
umfram það sem íslendingar geta sætt sig
við.
Ástæða þess að hvergi hefur verið vikið
að þessu er sú að íslendingar hafa litið svo
á að varnarsamningurinn feli í sé að
Bandaríkjamenn geti ekki skilgreint ein-
hliða hvað séu fullnægjandi varnir fyrir fs-
land. Islensk stjórnvöld líta svo á að mikil-
Hjá hinu verður varla horft að ís-
lendingar taki sjálfir aukinn þátt í
vörnum landsins enda liggur í loft-
inu að Bandaríkjamenn vilja fækka
varnarliðsmönnum. Þegar kemur
að þeim óhjákvæmilegu breyting-
um verður að ganga út frá skil-
greindri varnarþörf landsins.
vægi landvarna hér hafi ekki minnkað á
undanförnum árum. Þótt hvergi sé að
finna skilgreiningu á nauðsynlegum lág-
marksvörnum hefur þó komið fram að
stjórnvöld hér telja að núverandi viðbún-
aður varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sé
lágmarksviðbúnaður.
I blaðinu í dag kemur fram, samkvæmt
upplýsingum sendiráðs Bandaríkjanna á
íslandi, að Bandaríkin muni standa við
skuldbindingar sínar um að sjá fyrir vörn-
um íslands samkvæmt varnarsamningn-
um frá 1951. Þótt ljóst sé að bandarísk
stjórnvöld breyti ekki varnarsamningnum
einhliða hefur áður komið fram að þau
vilja breytingar á varnarsamstarfinu. Und-
ir þær breytingar hljóta íslensk stjórnvöld
að búa sig í þeim viðræðum um varnar-
samstarfið sem boðaðar hafa verið. Áður
en þær viðræður hefjast hljóta Islendingar
að ganga frá skilgreiningu á varnarþörf
landsins, mannafla og búnaði til að sinna
þeirri þörf.
Ganga verður út frá því að varnarsamn-
ingurinn gildi áfram og niðurstaða við-
ræðna þjóðanna verði með þeim hætti að
báðir aðilar gangi sáttir frá borði. Eðlilegt
er að bandarísk stjórnvöld hugi að við-
búnaði hér miðað við aðstæður í breytt-
um heimi en um leið er það nauðsyn okk-
ar þjóð að vel verði séð fyrir vörnum
landsins. Þótt hérlendis hafi alltaf staðið
deilur um veru varnarliðsins er óhætt að
fullyrða að með árunum hafi sátt aukist
um þessa skipan varnarmála og veru okk-
ar í bandalagi vestrænna þjóða, NATO.
Hjá hinu verður varla horft að íslending-
ar taki sjálfir aukinn þátt í vörnum lands-
ins enda liggur í loftinu að Bandaríkja-
menn vilja fækka varnarliðsmönnum.
Þegar kemur að þeim óhjákvæmilegu
breytingum verður að ganga út frá skil-
greindri varnarþörf landsins. Með góðum
undirbúningi fýrir væntanlegar viðræður
leggjum við í senn drög að áframhaldandi
tryggum vörnum okkar um leið og við
leggjum okkar af mörkum til traustra
varna vestrænna þjóða.
Fyrsta stjórnarskrá Evrópusambandsins
SÖGULEGUR ÁFANGI: Valery Giscard d'Estaing hefur stýrt ráðstefnunni um framtið
Evrópu þar sem til eru orðin drög að fyrstu stjórnarskrá Evrópusambandsins.
KJALLARI
Eiríkur Bergmann Einarsson
stjórnmálafræSingur
Tillögur að nýrri stjórnarskrá
fela í sér minni breytingar á
eðli og uppbyggingu Evrópu-
sambandsins en ætla mætti
af fréttaflutningi. Ljóst er að
Evrópusambandið mun
áfram byggjast á frjálsu sam-
starfi fuílvalda ríkja.
Evrópusambandið hefur verið í sí-
felldri þróun og mótun eftir því sem
aðildarríkjum hefur fjölgað og sam-
starfinu fleygt fram til nýrra sviða.
Nýlega skiluðu fulltrúar á sérstöku
málefnaþingi um framtíð Evrópu af
sér tillögum sem ráðherraráð ESB
tekur svo afstöðu til á næsta ári.Á yf-
irborðinu virðast sumar tillögur
framtíðarráðstefnunnar fela í sér
róttækar breytingar á starfsemi ESB
en svo er þó ekki þegar betur er að
gáð. Til að mynda er hér um mun
minni breytingu að ræða en varð
með Maastricht-sáttmálanum árið
1992. Flestar tillögurnar taka hins
vegar á vandamálum sem Evrópu-
sambandið hefur lengi átt við að etja
og fela miklu frekar í sér endurskil-
greiningu á því sem þegar er til stað-
ar heldur en að um nýja þætti sé að
ræða.
Sáttmáli verður stjórnarskrá
Lagt er til að ný grundvallarlög
taki við af fyrri sáttmálum ESB, sem
falli um leið úr gildi, og að vfsað
verði til þeirra sem stjórnarskrár
ESB. Hart var deilt um þetta atriði
þar sem margir álíta að hugtakið
stjórnarskrá tilheyri grundvallarlög-
um ríkja en eigi ekki við um sáttmála
sem samtök ríkja gera með sér. Þrátt
fyrir að fyrsta stjórnarskrá ESB sé nú
í augsýn er ekki um neina grundvall-
arbreytingu að ræða á eðli og starf-
semi Evrópusambandsins, heldur er
aðeins verið að skipta um nafn á fyr-
irbæri sem þegar er til staðar. Það
sem áður var kallað sáttmáli heitir
nú stjórnarskrá.
„í tillögunum er nú gert
ráð fyrir að það verði al-
menn regla að taka
ákvarðanir með auknum
meirihluta og að sam-
hljóða samþykki þurfi
aðeins þar sem sérstak-
lega er kveðið á um það.
Það er mikill munur á því
að ná fullkominni mála-
miðlun milli tuttugu og
fimm ríkja heldur en þeg-
ar ríkin voru aðeins sex."
Forseti ráðherraráðsins
Gerð er tillaga um að ráðherraráð-
ið, þar sem fulltrúar ríkisstjórna ESB
koma saman, kjósi sér forseta og að
kjörtímabil hans verði tvö og hálft
ár. Sami aðili getur ekki setið fleiri
en tvö kjörtímabil. Hingað til hafa
ríkin skipst á formennsku í ráðherra-
ráðinu á sex mánaða fresti og utan-
rfldsráðherra formennskuríkisins
verið í forsvari. Þessi tíðu umskipti
hafa staðið í vegi fyrir nauðsynleg-
um stöðugleika í starfi ráðherraráðs-
ins og hefur það þótt sérstaklega
erfítt eftir því sem aðildarríkjunum
hefur fjölgað. Hlutverk aðildarríkj-
anna breytist ekki við þessa nýju til-
högun en verkstjórn verður í hönd-
um kjörins forseta sem um leið verð-
ur andlit ráðherraráðsins út á við.
Utanríkisráðherra
í tillögunum er gert ráð fyrir að
ráðherraráðið kjósi utanríkisráð-
herra ESB f samstarfi við fram-
kvæmdastjómina. Utanríkisráð-
herrann tekur þá yfir hlutverk sem
nú er í höndum tveggja aðila; annars
vegar utanrfldsmálastjóra fram-
kvæmdastjórnarinnar (sem nú er í
höndum Chris Patten) og hins vegar
háttsetts utanríkismálafulltrúa ráð-
herraráðsins (sem nú er í höndum
Javiers Solana). Ædunin er að auka
samstarf aðildarríkjanna í ýmsum
utanríkismálum en þau munu eftir
sem áður hafa óskorað neitunarvald
í utanríkismálum.
Framkvæmdastjórn og þing
Framkvæmdastjómin er skipuð af
embættismönnum og á að vera
óháð aðildarríkjum. Við núverandi
skipan tilnefnir hvert smærri rfkj-
anna einn fulltrúa í framkvæmda-
stjórnina en stóm ríkin tilnefna tvo
hvert. Að óbreyttu færi fjöldi fram-
kvæmdastjóra yfir þrjátíu samanlagt
eftir stækkun, sem þykir illviðráðan-
legt. Nú er gert ráð fyrir að hvert að-
ildarríki fá aðeins einn fulltrúa frá
árinu 2009. Þá munu aðeins fimmt-
án framkvæmdastjórar af tuttugu og
fimm hafa atkvæðisrétt í einu, sem
mun færast með jöfnum hætti á
milli ríkjanna. Jafnframt er gert ráð
fyrir að auka til muna vægi Evrópu-
þingsins við lagagerð.
Ákvarðanataka
Evrópusambandið hefur á um-
Iiðnum áratugum smám saman ver-
ið að færa tilhögun ákvarðanatöku
frá samhljóða ákvörðunum og yfir í
að ákvarðanir séu teknar með aukn-
um meirihluta, enda sífellt erfiðara
að komast að samhljóða niðurstöðu
eftir því sem ríkjum fjölgar. í tillög-
unum er nú gert ráð fyrir að það
verði almenn regla að taka ákvarð-
anir með auknum meirihluta og að
samhljóða samþykki þurfi aðeins
þar sem sérstaklega er kveðið á um
það. Það er mikill munur á því að ná
fúllkominni máiamiðlun milli tutt-
ugu og fimm ríkja heldur en þegar
ríkin voru aðeins sex.
Skattar
Skattlagningarrétturinn tilheyrir
grundvallarhugmyndum um fúll-
veldi ríkja, en nokkuð hefur verið
rætt um samræmingu á afmörkuð-
um sviðum skattamála innan ESB.
Fallið er frá slíkum hugmyndum.
Nálægðarreglan
Rækilega er hnykkt á nálægðar-
reglunni sem miðar að því að tak-
marka valdsvið ESB og kveður á um
að Evrópusambandið eigi ekki að
fást við þætti sem eru auðleysanleg-
ir innan landamæra aðildarríkjanna.
Úrsögn úr ESB
Þótt enginn hafi efast um að þátt-
taka ríkja í ESB byggðist á frjálsu vali
hefur hingað til ekki verið til nein
formleg aðferð fyrir ríki til að segja
sig úr Evrópusambandinu og því
hefði það getað skapað nokkur
vándræði ef eitthvert aðildarríkj-
anna hefði lýst einhliða yfir úrsögn.
Nú er gert ráð fyrir sérstöku ferli þar
sem aðildarríki getur sagt sig úr
samstarfinu með sérstökum úrsagn-
arsamningi.
Ólafur Darri
og loforðið
Ólafur Darri Ólafsson þakkaði
óvænt Einari Baldvin Árnasyni
þegar hann tók við Grimunni
fyrir bestan leik í aukahlut-
verki.„Hann er betri leikari en
ég," sagði Ólafur Darri og
þjóðin skildi hvorki upp né
niður,enda Einar Baldvin
þekktur fyrir snilli í handbolta
en fráleitt leiklist.En skýringin
á þessum dularfuilu ummæl-
um er tíu ára gamalt loforð.
Þeir félagar léku fyrir um ára-
tug saman atriði á árshátíð
Menntaskólans í Reykjavík,
nánar tiltekið grínsenu eftir
John Cleese. Ekki vildi betur til
en svo að Ólafur Darri mundi
varla stakt orð í hlutverki sínu
en Einar Baldvin bjargaði at-
riðinu með snilldarlegum
spunaköflum. Eftir sýninguna
lofaði Ólafur Darri Einari því
að ef hann yrði leikari (sem
ekkert benti þá til) og ef hann
einhvern tímann ynni til ein-
hvers konar verðlauna á þeim
vettvangi myndi hann taka
fram að Einar Baldvin væri
betri leikari. Þetta loforð efndi
hann sem sagt um áratug síð-
ar, á sviði Þjóðleikhússins á
mánudagskvöldið var.
Ólafur Darri Óiafsson.
Álíka líklegt
KR-klúbburinn hélt á dögunum
upp á 10 ára afmæli sitt með
miklum gleðskap.Aðalræðu-
maður kvöldsins var sjónvarps-
maðurinn og Vesturbæingur-
inn Gísli Marteinn Baldursson.
Gísli Marteinn er uppalinn (
Breiðholti og fjallaði því í ræðu
sinni um tungumálaörðugleika
og ýmis önnur vandræði sem
hefðu fylgt þv( að setjast að (
nýjum heimi og gerast KR-ing-
ur. Sagði þetta stórt skref, sem
hann hefði heldur ekki búist
við að taka. Raunar sagði hann
að ef einhver hefði spáð því
fyrir áratug að hann ætti þetta
eftir hefði hann svarað að
bragði.að það væri álíka líklegt
og að Ellert B. Schram færi (
framboð fyrir Samfýlkinguna!
Þetta þótti mörgum KR-ingum
mjög fyndið.