Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Side 24
24 TILVERA FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ2003 íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 Stórafmæli 85 ára_______________________ Elín Siguröardóttlr, Miöleiti 7, Reykjavík. Jón Bergmann Guðmundsson, Breiö, Varmahlíö. Marta M. Jóhannsdóttir, Hvassaleiti 30, Reykjavík. Þorkell Helgason, Hlíðarvegi 45, Siglufiröi. SO-áia_______________________ Benedikt Björnsson, f Aratúni 38, Garöabæ. Elínborg Siguröardóttir, Unnarbraut 4, Seltjarnarnesi. Ósk Hallsdóttir, Tinnubergi 6, Hafnarfiröi. 75 ára_______________________ Baldur Skarphéölnsson, Borgarbraut 65, Borgarnesi. Kristín Árnadóttlr, Litlahvammi 4, Húsavík. Matthildur BJörnsdóttir, Suöurgötu 4a, Keflavík. 70 árg_______________________ GunnarJóhannesson, Sambyggö 12, Þorlákshöfn. Örn Kristjánsson, Fífuhvammi 35, Kópavogi. 60 ára_______________________ » Guöjón Skarphéölnsson, Staöastaö, Snæfellsbæ. Katrin Hermannsdóttir, Gauksási 65, Hafnarfiröi. Reynir Kristjánsson, Þrastarási 44, Hafnarfirði. Sara Eliasdóttir, Stórateigi 25, Mosfellsbæ. 5.0ára_______________________ Elnar Eyjólfsson, Breiövangi 1, Hafnarfiröi. Gunnlaugur Nielsen, Skógarlundi 10, Garöabæ. Hulda Guöný Ásmundsdóttlr, +• Lindarbergi 8, Hafnarfiröi. Jón Ólafsson, Ljósalandi 21, Reykjavík. Kolbrún Björnsdóttir, Skeiöarvogi 101, Reykjavík. Kristín Erla Gústafsdóttlr, Jakaseli 23, Reykjavík. Lilja Jónsdóttlr, Sævangi 53, Hafnarfirði. María Arnflnnsdóttlr, Skipagötu 5, Akureyri. Ómar Jónasson, Engihjalla 11, Kópavogi. Siguröur Hreinsson, Valbraut 6, Garði. Sverrir Hans Konráösson, Kjarrmóum 36, Garöabæ. 40 ára_______________________ Anna Marie Bæk Rosgaard, Hálsaseli 12, Reykjavík. Ásgelr Elíasson, Hófgerði 28, Kópavogi. Bjargey Magnúsdóttlr, Arnarkletti 18, Borgarnesi. Guðfinna Auðunsdóttir, Heiöarseli, Egilsstööum. Guörún Ármannsdóttir, Hólalandi 6, Stöövarfiröi. Laufey Flnnbogadóttir, Noröurvangi 40, Hafnarfiröi. Ólafur Birgisson, Botnahlíö 14, Seyöisfiröi. Ólöf Gísladóttir, Eyrarholti 7, Hafnarfiröi. Óskar Kristlnsson, Njarðarholti 7, Mosfellsbæ. Sverrir Sverrisson, Bragavöllum 8, Keflavík. AuglýsingaM auglysingar@dv.is 550 5000 Fimmtug: Árný Erla Svei n bj ö rnsdótti r Össur Skarphéðinsson össur Skarphéðinsson, alþingis- maður og formaður Samfylkingarinn- ar, fagnar fimmtíu ára afmæli sínu í dag og eiginkona hans, Árný Erla Sveinbjörnsdóttir, doktor í jarðfræði, á morgun. Össur og Ámý efna til mót- töku á Kjarvalsstöðum í kvöld klukkan 20.30. Þangað eru allir vinir og vel- unnarar velkomnir til að samgleðjast formannshjónunum á þessum tíma- mótum. Starfsferill Össurar Össur fæddist í Reykjavík 19.6. 1953. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1973, B.Sc.-prófi í líffræði við HÍ1978, og doktorsprófi við bresku Hafrann- sóknastofnunina árið 1983. Össur stundaði sjómennsku á yngri árum. Hann var ritstjóri Þjóðviljans 1984-87, var lektor í lífeðlisfræði við HÍ 1988, var aðstoðarforstjóri Reykvískrar end- urtryggingar 1989-91, var alþm. Reyk- víkinga fyrir Alþýðuflokkinn 1991-99 og fyrir Samfylkinguna frá 1999. Hann var jafnframt umhverfisráðherra 1993-95, ritstjóri Alþýðublaðsins 1997 og ritstjóri DV 1997-98. Össur var forseti Listafélags MR 1972-73, varaformaður Stúdentaráðs 1975-76 og formaður 1976-77, átti sæti í miðstjórn Alþýðubandalagsins 1985-87 og framkvæmdastjórn 1985-86. Hann var formaður iðnaðar- nefndar Alþingis 1991-93, formaður heilbrigðis- og trygginganefndar Al- þingis 1995-1999 og formaður þing- flokks Alþýðuflokksins 1991-93. f Þingvallanefnd síðan 1995. Össur hef- ur gegnt formennsku í Samfylking- unni frá stofnun flokksins í maí 2000. Starfsferill Árnýjar Árný er fædd 20.6. 1953. Hún er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1973, lauk B.Sc.-prófi í jarð- fræði frá Háskóla Islands 1978 og doktorsprófi í jarðefnafræði frá há- skólanum í Austur-Angliu, Englandi, 1984. Árný starfaði sem jarðfræðingur við jarðhitadeild Orkustofnunar 1984-1985, varð sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans 1986 og síðar vísindamaður við sömu stofnun. Hún hefur verið stofustjóri jarðeðlisfræðistofu Raunvísindastofn- unar síðan 2000. Árný hefur verið stundakennari við jarðfræðiskor Há- skólans frá 1988. Árný var í stjórn Jarðfræðafélags ís- lands 1986-88. Hún átti sæti í tón- leikanefnd Háskólans 1987-89. Var formaður Starfsmannfélags Raunvís- indastofriunar Háskólans 1987-1991 og fulltrúi starfsmanna í stjóm Raun- vísindastofnunar Háskólans 1987-1991. Fjölskylda Össur og Árný eru búsett á Vestur- götu 73. Dætur þeirra eru Birta Marsil- ía, f. 18.9.1994; Ingveldur Esperansa, f. 20.10.1998. Systkini Árnýjar em: Ingveldur, f. 19.3. 1948, námsráðgjafi og ensku- kennari við Kvennaskólann í Reykja- vík, gift Jóni Sigurðssyni og eiga þau þrjú börn; Hjörleifur, f. 11.12. 1949, deildarstjóri þýðingardeildar Norður- ljósa, kvæntur Ingibjörgu Sólrúnu Gfsladóttur, fyrrverandi borgarstjóra og núverandi borgarfúlltrúa, og eiga þau tvo syni; Ágústa, f. 3.6.1951, arki- tekt hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, gift Magnúsi S. Magnússyni og eiga þau tvö böm. Árný er dóttir Sveinbjarnar Einars- sonar, f. 24.4. 1919, fyrrv. kennara, og Huldu Hjörleifsdóttur, f. 13.7. 1925, fyrrv. starfsmanns við skólaathvarf. Þau búa að Hjarðarhaga 26 í Reykja- vík. Systkini Össurar em Magnús, f. 4.7. 1955, skólastjóri Sálarrannsóknarskól- ans; Sigurður, f. 7.2.1958, rafvirki„0 og á hann þrjú börn. Sambýliskona hans er Jóna M. Jónsdóttir; Jóffíður, f. 18.7. 1959, búsett í Skaftholti í Gnúpverja- hreppi; Halldóra, f. 10.6.1968, doktor f vistfræði í Stokkhólmi, gift Frey Bark- arsyni. Halldóra á eina dóttur. Foreldrar Össurar em Skarphéðinn Össurarson, f. 30.7.1916, frá Keldudal í Dýrafirði, fyrrv. framkvæmdastjóri f Reykjavík, og k.h., Valgerður Magnús- dóttir, f. 16.8.1928, húsmóðir og fyrrv. kvenskátahöfðingi. Ætt Skarphéðinn er sonur Össurar, bú- fræðings á Hóli í Bolungarvík, bróður Guðmundar, skipamiðlara í Reykjavík. Össur var sonur Kristjáns, b. í Hauka- dal í Dýrafirði, Össurarsonar og Ragn- heiðar Pétursdóttur. Móðir Skarphéðins var Jófríður Ágústa Gestsdóttir, b. á Skálará í Keldudal í Dýrafirði, föðurbróður Friðjóns Skarphéðinssonar, fyrrv. dómsmálaráðherra og afabróður Guð- mundar Pálmasonar jarðeðlisfræð- ings. Gestur var sonur Jóns, b. í Stóra- Galtardal á Fellsströnd, Þorgeirssonar og Halldóru, systur Þórðar á Breiða- bólstað, langafa Friðjóns Þórðarsonar, fyrrv. dómsmálaráðherra, og Gests, föður Svavars sendiherra. Valgerður, móðir Össurar, er dóttir Kristins Magnúsar, bifreiðarstjóra í Reykjavík, Halldórssonar, trésmiðs í Reykjavík, Þorsteinssonar, b. á Austur- velli á Kjalarnesi, Kaprasíussonar. Móðir Magnúsar var Gíslína Péturs- dóttir, b. á Bala á Kjalamesi, Kristjáns- sonar, af Fremra-Hálsætt, en meðal frændfólks Össurar af þeirri ætt em Styrmir Gunnarsson ritstjóri, Valur Valsson bankastjóri, Guðrún Helga- dóttir, rithöfundur og fyrrv. alþm., Magnús Hreggviðsson, framkvæmda- stjóri Frjáls framtaks, og Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður og móðir rithöfúndanna Illuga og Elísabetar Jökulsbama, auk Hrafns, rithöfundar og forseta skákfélagsins Hróksins. Sjötugur: Björn Pálsson Björn Pálsson Ijósmyndari, Víðilundi 4 í Garðabæ, er sjötugur í dag. Starfsferill Bjöm er fæddur og uppalinn á fsafirði til 1946 en þá flutti hann til Reykjavíkur. Fór í Ingimarsskólann. Björn var á sjó frá 1951 til 1957 þeg- ar hann hætti í kjölfar slyss. Hann lærði ljósmyndun og hefur starfað við það síðan. Björn var trúnaðarmaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur og sat fjölda ASÍ-þinga. Hefur setið í Sjó- mannadagsráði frá 1967. Sat í stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar og Bessastaðahrepps og var for- maður þess 1982-1985. Formaður fulltrúaráðs sama félags 1985-1992. Ritstýrði Görðum, blaði Sjálfstæð- isflokksins í Garðabæ, 1984-2000. Sat í skólanefnd Tónlistarskólans í Garðabæ og situr nú í nefnd um málefni eldri borgara. Björn var forseti Kiwanisklúbbsins Heklu 1988-1989 og ritstjóri Safnaðar- blaðs Garðasóknar frá 2002. Fjölskylda Björn kvæntist 1.10.1960 Sigur- laugu Björnsdóttur, starfsmanni Pósts og síma, f. 3.7. 1930. Foreldr- ar hennar: Björn Árnason bif- reiðarstjóri og Guðfinna Sigurðar- dóttir, húsmóðir í Hafnarfirði. Börn Bjöms og Sigurlaugar em Páll, f. 12.1. 1961, sagnfræðingur í Reykjavík, Guðfinna, f. 24.12. 1964, sjúkraþjálfari í Garðabæ, gift Bjarn- steini Þórssyni kerfisfræðingi og eiga þau 3 börn. Systkini Björns em Garðar, fv. skipherra, f. 22.4. 1922, kvæntur Lilju Jónsdóttur. Þau eiga 2 börn. Hannes, ljósmyndari í Reykjavík, f. 9.10. 1924, Áróra, fv. bankastarfs- maður, f. 29.4. 1926, gift Hafsteini Jónssyni verkamanni. Foreldrar Björns em Páll Hann- esson, f. 18.5. 1896, d. 28.1. 1956, skipstjóri og Ásta Kristjánsdóttir, f. 28.1. 1896, d. 8.6. 1986. Þau bjuggu á ísafirði og svo í Reykjavík. Ætt Ásta var dóttir Kristjáns Gísla- sonar, kaupmanns á Sauðárkróki, og Vilhelmínu Hjaltadóttur, systur Magnúsar Hjaltasonar, skálds á Þröm. Páll var sonur Hannesar Jónssonar, útvegsbónda í Hnífsdal, og Guðbjargar Pálsdóttur, Símon- arsonar, bróður Bjarna, föður Markúsar, fyrsta skólastjóra Stýri- mannaskólans. Björn og eiginkona hans, Sigur- laug, verða erlendis á afmælisdag- inn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.