Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Side 25
FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ2003 TILVERA 25
Spurning dagsins: Hvað hræðistu mest?
Guðlaugur Rafnsson:
Konuna mína.
Margrét Garðarsdóttir, 12 ára:
Ég hræðist mest þjófa.
Jóhann Garðarsson, 9 ára:
Myrkrið.
Kristín A. Skúladóttir nemi:
Perverta.
Rannveig Magnúsdóttir nemi:
Pöddur.
Erlingur Ari Brynjólfsson, 13 ára:
Kóngulær, þær eru ógeð.
*
<
Stjörnuspá
Gildir fyrir föstudaginn 20.jún(
VV \la\nsbemn(20.jan.-18.febr.)
Sýndu vini þínum tillitssemi
og hafðu gát á því sem þú segir. Ekki
gefa ráð nema að þú sért viss í þinni
sök. Kvöldið verður ánægjulegt.
LjÓnÍð (23.júli-22.d
Ættingi sem þú hefur ekki
séð lengi hefur samband við þig með
einhverjum hætti. Breytingar verða á
vinnustaðnum.
H
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
Þú ert dálítið utan við þig í
dag og tekur ekki vel eftir því sem fer
fram í kringum þig. Láttu krefjandi
verkefni bíða þar til þú ert betur
upplagður.
Meyjan (23.ágúst-22.sept.)
Dagurinn virðist líða hægt
og þú átt erfitt með að einbeita þér
að vinnu þinni fyrri hluta dagsins.
Kvöldið lofar góðu varðandi félags-
lífið.
Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Félagslífið hefur ekki verið
upp á marga fiska undanfarið en nú
fer að lifna yfir því.Vinir þínir eru þér
mikilvægir þessa dagana.
Nautið (20.april-20.mai)
Þú hefur ef til vill gert þér
ákveðna mynd af atburði sem þú bíð-
ur eftir. Þú ættir að hætta öllu slíku
því annars verður þú fyrir vonbrigð-
um.
VogÍn (23.sept.-23.okt.)
Þér verða á einhver smá-
vægileg mistök í dag og átt erfitt
með að sætta þig við þau. Þú jafnar
þig fljótlega þegar þú sérð hve lítil-
væg mistökin voru.
Sporðdrekinn (24.oia.-21.niv.)
Vertu á verði gagnvart
keppinautum þínum á öllum sviðum.
Þú leggur metnað þinn í ákveðið
verk en ættir að huga að fleiri svið-
um.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Fyrri hluta dags býðst þér
í byrjun dagsins og þú sérð fram á að einstakt tækifæri í vinnunni við ein-
það raski öilum degnum. Það er þó hvers konar skipulagningar eða
engin ástæða til að örvænta. breytingar. Þetta gæti haft í för með
sér breytingar til hins betra fyrir þig.
IJ
Tvíburarnirri;. maí-21.júní)
Eitthvað óvænt kemur upp á
/
Krabbinn (22.júni-22.júií)
Vertu þolinmóður við þá
sem þú umgengst í vinnunni í dag.
Það borgar sig því að þú gætir þurft
á hjálp að halda síðar við að leysa þín
verkefni.
£
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Fjölskyldan skipar stóran
sess hjá þér um þessar mundir og ef
til vill verður eitthvað um að vera á
næstunni hjá þínum nánustu.
Krossgáta
Lárétt: 1 sker, 4 ólykt, 7
fótmál, 8 gína, 10 þjöl, 12
ótta, 13 fjallaskarð, 14
mjög, 15 rökkur, 16 vaxa,
18hæst,21 hengilmænu,
22 vogrek, 23 loddara.
Lóðrétt: 1 námsgrein, 2
tré,3 refur,4 bókfell, 5
óvissu, 6 fjör, 9 kjánar, 11
virki, 16 hópur, 17 beiðni,
19 spor, 20 veðrátta.
Lausn nedst á silunni.
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvítur á leik!
Það stendur yfir mikið stórmót í
Frakklandi og hér sjáum við Adams
þjarma að Kortsnoj. Judit Polgar
vann þarna stórkostlega skák á móti
Joel Lautier sem bíður laugardags-
ins, sannkallað listaverk.
Keppni í skák er talin upprunnin í
Lausn á krossgátu
Persíu, nánar tiltekið í Bagdad fyrir
um 1000 árum þó menn deili um
uppruna hennar. Annars er því hald-
ið fram í breskum blöðum í fullri al-
vöru að forseti FIDE, Kirsan Iljums-
hinov, hylmi yfir sjálfum Saddam
Hussein! Þeir Kirsan og Saddam voru
(eru?) miklir vinir og Saddam
Hussein bauðst til að halda heims-
meistaraeinvfgið f skák á milii
Kramniks og Kasparovs árið 2000.
Stórmeistarinn Raymond Keene
heldur þessu blákalt fram.
Hvítt: MichaelAdams (2723).
Svart: Viktor Kortsnoj (2632).
Enghien les Bains, Frakklandi (4),
16.06.2003.
28. e6 g6 29. Be5+ Kg8 30. c4 1-0
Svartur er illa beygður eftir 30. Re7
31. Rd6 eða 30. Rb4 31. e7
51107'Jei6l‘>|S9ZL
'ja6 91 'sue>|s u 'JB|ne 6 'dej g 'eja s 'iuaujeöjad p 'i|eqjne>)S £ 'dso z 'Bbj i :u3jqoi
gnjj zz '!>|3J 77 'eu?is iz 'Jsja 81
'B9j6 9i 'uinq st 'Jeje ÞL '1!M £L '66n Jl 'dsej ot 'ede6 8 'J9J>|s / 'jsad p ‘soy i :jjsjei
Myndasögur
Hrollur
Eyfi
Andrés önd
Margeir
Af helgum dögum og rauðum
Það er svo sem að bera í bakka-
fullan lækinn að tala um lokanir
verslana á helgidögum eftir fárið
sem upphófst þegar lögreglan
skellti 10-11 og Europris í lás á
hvítasunnudag. En eftir að ég áttaði
mig á því að þessir hlutir tengjast
einkalífi mínu segi ég, eins og hús-
mæðurnar í Vesturbænum, ég get
bara ekki orða bundist.
Konan mín vinnur nefnilega í
heilbrigðisgeiranum og þurfti að
vinna umræddan hvítasunnudag
og varð ekkert vör við að lögreglan
kæmi og lokaði hennar vinnustað.
Hún hugsaði sér hins vegar gott til
glóðarinnar þar sem þetta hlyti að
vera „rauður dagur", þ.e. dagur á
borð við jóladag og nýársdag þar
sem sérstakt helgidagaálag gilti og
launaumslagið myndi bólgna
hressilega út af þeim sökum. Raun-
in er hins vegar önnur því hún
komst nefnilega að því að þessi há-
heilagi hvítasunnudagur er ekki í
hópi „rauðra daga" á hennar
vinnustað þrátt fyrir að lögregla
hafi gengið milli versiana og séð til
þess að einungis væri hægt að
kaupa mjólk í sjoppum þann dag-
inn.
En þar með er sagan einungis
hálfsögð. Eins og flestir tóku eftir
var 17. júní nú í vikunni og enn
þurfti konan að sinna skyldum sín-
um og vinna á meðan aðrir létu sig
rigna niður í skrúðgöngu - þó ekki
allir því 17. júní var hægt að bregða
sér í fjölda verslana á höfuðborgar-
svæðinu án þess að hitta þar fyrir
lögregluna í vígahug. En viti menn,
17. júní telst rauður dagur á vinnu-
stað konunnar minnar! Misræmið
er þarna mjög athyglisvert þar sem
helgir búðardagar teljast ekki rauð-
ir dagar og ekki þarf að loka búðum
á rauðum dögum. Mig langar eig-
inlega til að nota tækifærið og biðja
lögregluna um að rannsaka þetta
og helst skella sér upp á launadeild
heilbrigðisstofnana hér í bæ og
bæta álagi við vinnuskýrslur þeirra
sem unnu á hvítasunnudag.