Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Page 31
FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ2003 DVSPORT 31
Stoltur og
ánægður
„Hafði rætt við
erlenda þjálfara"
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ sagðist í samtali við DV-
Sport, rétt eftir að hafa tilkynnt
um ráðningu Ásgeirs og Loga
sem þjálfara íslenska landsliðs-
ins næstu tvö árin, hafa rætt
við nokkra erlenda þjálfara í
lok maí, þegar hann var við-
staddur úrslitaleik Meistara-
deildar Evrópu á Old Trafford í
Manchester. Leikurinn var háð-
ur í lok maí og var Eggert á
leiknum sem fulltrúi UEFA, en
þar situr hann í framkvæmda-
stjórn.
„Ég var búinn að skoða fullt af
mönnum og ég ræddi við 2-3 menn í
Manchester. Ég þekki auðvitað orðið
fullt af þekktum þjálfurum í gegnum
starf mitt hjá UEFA svo að ég notaði
tækifærið og talaði á þeim leik við
nokkra aðila."
- Geturðu nefnt einhver nöfn íþví
sambandi?
„Nöfn vil ég ekki gefa upp á þessu
stigi. Ég vil hafa það í samráði við þá
menn sem um ræðir svo það valdi
þeim ekki óþægindum.
- Eru þetta nöfn sem almenningur
kannast við?
„Já, þetta eru þekkt nöfn.
Gott þjálfarapar
Eggert segir þetta samstarf Loga og
Ásgeirs leggjast mjög vel í sig- annars
hefði hann ekki lagt það til við stjóm
sambandsins að fara þess leið.
„Ég vissi það alveg og hafði sagt að
það yrði erfitt að finna hæfan erlend-
an þjálfara sem sætti sig við þau laun
sem við væmm tilbúnir að borga
honum. Það hefur sýnt sig að Logi og
Ásgeir uppfylla hvor annan mjög vel
og þeir em sterkir hvor á sínu sviði.
Árangurinn sýnir að þarna er á ferð
„Ég held að það væri
mjög gott fyrír íslenska
knattspyrnu að fá
strauma erlendis frá og
að sú skoðun sé fyrir
hendi hjá stjórninni
hvað framtíðinna varð-
//
ar.
gott þjálfarapar,“ sagði Eggert en ít-
rekaði þó að það væri Ásgeir sem
hefði síðasta orðið, þrátt fyrir að
þarna fæm tveir landsiiðsþjálfarar og
hvorugur sé titlaður aðstoðarmaður
hins.
„Þetta er svolítið eins og sænska
uppskriftin. Þar hafa verið tveir
landsliðsþjálfarar í langan tíma og
það hefur gefist vel,“ sagði Eggert.
Leitað erlendis síðar?
„Óskastaðan hefur alltaf verið, ef
hægt væri, að ráða íslenskan þjálfara.
Hins vegar held ég líka að það væri
mjög gott fyrir fslenska knattspyrnu
að fá strauma erlendis frá. Og ég held
að sú skoðun sé enn fyllilega fyrir
hendi hjá stjóminni hvað framtíð-
inna varðar."
- Hvemig bmgðust Ásgeir og Logi
við þegar þú baðst þá um að taka
starfið að sér til frambúðar?
„Bara mjög vel og þeir vom strax
tilbúnir til viðræðna. Við kláruðum
þetta á mjög skömmum tíma, hitt-
umst á mánudaginn fyrst og síðan
gengum við frá þessu í morgun (í
gær). Ég hef fylgst með í þessu starfi
og sé ekki betur en þeir hafi tekið
þetta mjög traustum tökum. Ég bind
miklar vonir við þá," segir Eggert að
lokum. vignii@dv.is
„Ég er bæði ánægður og É-
stoltur yfir því að hafa fengið
tækifæri til að koma að þessu
aftur," sagði Logi Ólafsson,
annar íslensku landsliðsþjálf-
aranna, í samtali við DV Sport
gær. Eins og margir kannski
muna var Logi landsliðsþjálf-
ari í um eitt og hálft ár eftir að
hafa tekið við af Ásgeiri EIí-
assyni í ársbyrjun 1996. Einu
og hálfu ári síðar var Logi rek-
inn úr starfi sínu - einmitt eftir
tap gegn Litháen, sem sigur
vannst á í undankeppni EM j*
fyrir skömmu.
„Maður veit alltaf að þetta er
harður og erfiður bransi og
það er alltaf gott að geta feng-
ið að koma að hlutum og reyna
að gera betur en maður hafði
gert áður, og kannski að leið-
rétta einhverja hluti," segir
Logi, sem mun ekki taka við
annarri þjálfarastöðu meðan
hann er við stjórnvölinn hjá
landsliðinu.
„Það er alveg klárt að ég tek
ekki við öðrum störfum sem
tengjast knattspyrnu á meðan
ég er við störf hjá KSÍ. Það er
ekki heimild fyrir því í þessum
samningi," bætti Logi við að
lokum.
vignir@dv.is
Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari:
Ertilbúinn
„Það er mjög gott að hafa
klárað þetta núna og við er-
um mjög sáttir við að fá að
stjórna liðinu út und-
ankeppni HM," sagði Ásgeir
Sigurvinsson, annar hinna
nýráðnu þjálfara íslenska
landsliðsins. Samningur Ás-
geirs og Loga Ólafssonar
gildir út undankeppni HM og
því munu þeir félagar verða
við stjórnvölinn hjá landslið-
inu næstu tvö árin hið
minnsta.
Ekki er hægt að segja að ráðning
Ásgeirs komi mikið á óvart þrátt
fyrir að KSÍ hafi lagt mikla áherslu á
að nýtt blóð væri nauðsynlegt í ís-
lenska landsliðshópinn - og það
væri líklegast að fá erlendis frá.
Tveir sigrar, annar sem kom eftir
einhverja bestu frammistöðu
landsliðsins í langan tíma, var
greinilega nóg til að sannfæra for-
ráðamenn KSI um að Ásgeir og Logi
væru réttu mennirnir í starfið.
„Ég býst við því að Skot-
ar vinni heimaleiki sína
gegn Færeyingum og
Litháum og það þýðir
að við verðum að vinna
annan leikinn gegn
Þjóðverjum."
Ásgeir tjáði DV Sporti að framtíð-
arráðningin hefði ekki komið hon-
um sjálfum á óvart. „Það var talað
um að taka einn leik fyrir f einu og
sjá sfðan til um hvert framhaldið
yrði. En þetta gekk vel hjá okkur í
þessum tveimurleikjum og við vor-
um reiðubúnir að halda áfram,"
sagði Ásgeir og bætti við að mark-
miðið væri enn það sama og þegar
gengið var frá tímabundnu ráðn-
ingunni eftir að Atli Eðvaldsson lét
af störfum.
„Það var að fá helst níu stig út úr
leikjunum þremur og sjö stig væru
einnig ásættanleg. Tveim er lokið
og þar hafa fengist sex stig. Ég held
að við þurfum að fá sex stig í viðbót
í þessum þremur leikjum sem eftir
eru. Þýskaland náði ekki að vinna
Skota og ég býst fastlega við því að
Skotar vinni heimaleiki sína gegn
Færeyingum og Litháum. Þeir
verða þá með 14 stig sem þýðir að
við verðum að vinna annan leikinn
gegn Þjóðverjum."
„Við munum gera þetta
saman en ég hefsamt
sem áður lokaorðið."
- Hvernig verður verkaskiptingu
ykkar Loga háttað?
„Þetta gengur út á samstarf okkar
á milli og við munum gera þetta
saman. Ég hef samt sem áður loka-
orðið en við förum sameiginlega yf-
ir hvað okkur finnst í sambandi við
leikkerfi, mannaval, æfingar og allt
slíkt.
Skynjarðu hina margumtöluðu
pressu sem fylgir landsliðsþjálf-
arastarfinu eftir þessi góðu úrslit í
fyrstu leikjunum?
„Nei, ég get ekki sagt það. Við
vinnum eftir ákveðnum reglum og
markaðssetningu. Leikmenn eru
jákvæðir með þetta sem við erum
að gera. Við setjum okkur það að
við vinnum Færeyjar en þá eru eft-
ir tveir leikir við Þjóðverja sem við
ættum ekki að taka mörg stig af.“
- Hver er staðan á Guðna Bergs-
syni og Eyjólfi Sverrissyni. Munuð
þið halda áfram að þrýsta á þá fé-
Iaga að klára undankeppnina?
„Já, já,“ sagði Ásgeir kíminn á
svip og hélt áfram: „Við munum
halda áfram að vera í sambandi við
þá. En það verður ekki fyrr en eftir
að Guðni er búinn í sfnu fríi. Ég hef
heyrt að Eyjólfur sé eitthvað byrj-
aður að æfa með Fylki og við mun-
um að sjálfsögðu halda þessu til
streitu.
vignir@dv.is
\