Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Síða 27
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ2003 TILVERA 27
j
Frá hofundi „Training Day
kemur kynngimagnaður
loggutryllir meö hinum svala
Kurt Russel.
/Vs
KUÁT RUSSÉ.L
ARKBLUE
li m
HOWTO LOSE A GUY IN 10 DAYS: Sýnd kl. 5.45,8og 10.15.
OLD SCHOOL: Sýnd kl. 6 og 8.
NÓI ALBINÓI:
Sýnd kl. 6.
VALERIA GOUNO
Sýnd kl.6,8 og IO.B.i.12 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl.8 og 10.
AJJFABAKKI
Þessi frábæra grínmynd er frá fram
leiðandanum Jerry Bruckheimer
sem hefur gert smellina Arma-
geddon, Pearl Harbor,
The Rock og Conair
Sýnd kl.5.50,8 og 10.15.POWEHSÝNING. Sýnd kl.6,8 og 10.
BRINGING DOWN THE HOUZE:
THE MATRIX RELOADED;
SAMBiO
Sýnd kl. 3.45,5.50,8 og 10.15. 8-L12 ára. BRINGING DOWN THE HOUZE: Sýnd kl.3.45,5.50,8og 10.15.
THE MATRIX RELOADED: | Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. KANGAROO JACK: Sýnd kl.4,6,8 og 10.
SKÓGARLÍF: | Sýnd m.lsl.tali kl.4. JOHNNY ENGLISH: Sýnd kl.3.45.
KRINGLAN TS 588 0800 ÁLFABAKKI TS 587 8900
K-
V
FJÖLMIÐLAVftKTIN
Sigurður Bogi Sævarsson
skrifar um fjölmiöla
Sjálfhverfa
og skrýtið skegg
Ekki laust við að mér þyki formúlan
f sjónvarpsþáttum Gísla Marteins vera
orðin þreytt. Einn aðalviðmælandi,
gjarnan stjórnmálamaður, og sfðan
kemur ósjaldan leikari. Yfirleitt er fólk
í báðum stéttum hrikalega sjálfhverft
og lítt spennandi viðmælendur.
Hlakka til að sjá næsta þátt - vonandi
verða þar ný og fersk efnistök.
Sá væni drengur, Þorfmnur Ómars-
son, er að detta í sama pytt. Finnst
alltaf vera sama fólkið í vikulokaþátt-
um hans. Listaspírur, fjölmiðlungar
og framagosar. Hvað finnst karlinum
á eyrinni um þjóðmál og helstu fréttir
vikunnar? Eða óþekktu fiskvinnslu-
konunni. Bi'ð eftir að heyra slíkan þátt.
Fín músík á Rás 1 eftir hádegi á
föstudag þegar ég þurfti að bruna
austur fyrir fjall. Ró minni var raskað í
Skíðaskálabrekkunni á Hellisheiði
þegar HalldórÁsgrímsson skaust fram
úr mér á ráðherrajeppanum. Var með
farsímann í annarri hendinni. Hann
beygði inn í Hveragerði. Ætli hann
hafi verið að flýta sér til að kaupa ís í
Eden eða skoða apann hjá Michelsen,
eins og eitt sinn var mest spennandi í
bænum undir Kömbum.
Reykholtspresturinn með skrýtna
skeggið var með útvarpsmessuna á
sunnudag. Talaði um sjálfhverfu
mannsins og hvatti fólk til að gera
greinarmun á því sem það væri og
ætti. Slíkt væri þó í lagi ef menn
gleymdu ekki Guði. Góð ræða hjá Geir
Waage.
&
STJÖRNUGJÖF DV
★ ★★★
Nói albínói
Respiro ★★★
Identity ★★★
X-Men 2 ★★★
They ★ ★Á
Agent Cody Banks ★★■k
Johnny English ★★-i
Tricky Life ★★i
Anger Management ★★
2 Fast 2 Furious ★★
Kangaroo Jack ★★
Matrix Reloaded ★★
Bringing Down
the House ★ ★
How to Lose a Guy
in 10 Days ★i
Old School ★
Michael Chiklis leikur aðalhlutverkið ííhe Shield:
Leiðin á toppinn
þyrnum stráð
Stöð 2 sýnir í kvöld hinn
margverðlaunaða sakamála-
þátt, The Shield, sem gerist í
Los Angeles og fjallar um
sveit lögreglumanna sem
virðist hafa nokkuð frjálsar
hendur. Þrátt fyrir að vera
laganna verðir eru þeir engir
kórdrengir og beita öllum
ráðum til að ná árangri.
Aðalsöguhetjan er Vic Mackey,
harðsvíraður náungi sem getur ver-
ið tvöfaldur í roðinu. Tilteknir yfír-
menn líta Vic og nánustu félaga
hans í löggunni hornauga og gruna
þá um að þiggja mútur og margt
fleira miður gott. Þeir vilja hreinsa
lögguna af þessum ósóma en það
reynist hægara sagt en gert.
I hlutverki Vics Mackeys er Mich-
ael Chiklis, sem var lítt þekktur
áður en hann tók að sér þetta hlut-
verk. Chiklis hafði að vísu leikið eitt
aðalhlutverkið í vinsælli sjónvarps-
seríu, The Commish, en ferill hans
hafði þegar á heildina er litið verið
þyrnum stráð.
Það hefði mátt ætla að
lukkuhjólið færi að snú-
ast Chiklis í hag þegar
hann hreppti aðalhlut-
verkið í Wired sem
byggð var á ævi John
Belushi. Svo varþó
ekki.
Chiklis, sem fæddist 30. ágúst
1963 í Lowell í Massachusetts, er
ekki beint kvikmyndastjörnulegur í
útliti, sköllóttur, li'till og á það til að
fitna. Yfirleitt hefur hann leikið sér
eldri persónur, enda var hann orð-
inn fullorðinslegur strax á tánings-
aldri. Þegar Chiklis fékk hlutverkið í
The Commish árið 1991var hann
ekki nema 27 ára en lék mann á
milli þrítugs og fertugs. Þá var hann
nokkuð vel í hoidum en tók sig síð-
an á og grenntist heilmikið. Það
þótti ekki passa við hlutverkið og
því þurfti hann að klæðast sérstök-
um fötum í síðustu þáttasyrpunni
sem gerð var 1995.
Chiklis byrjaði að leika í leikhús-
um 13 ára og var fyrsta hlutverk
hans í Romeo og Juliu. Leið hans lá
til New York og þar lék hann lítil
hlutverk og var prófaður í önnur án
þess að fá þau. Það hefði mátt ætla
að lukkuhjólið færi að snúast hon-
um í hag þegar hann hreppti aðal-
hlutverkið í Wired sem byggð var á
ævi John Belushi en svo var þó ekki.
Hollywood vildi ekkert með kvik-
mynd að gera sem fjallaði um sukk-
ið á John Belushi og vinum hans
sem margir hverjir eru ráðandi í
glingurborginni. Chiklis stóð sig
með prýði í myndinni, en allt kom
fyrir eklci, enginn kom að sjá mynd-
ina.
Eftir þessa slæmu reynslu reyndi
Chiklis fyrir sér í sjónvarpi og kvik-
myndum, yfirleitt í smáum hlut-
verkum. Þegar hætt var að gera The
Commish tóku sömu erfiðleikarnir
við aftur og ekkert var f boði fyrir
hann annað en lítil hlutverk í kvik-
myndum og sjónvarpshlutverk sem
vöktu litla athygli.
Þetta breyttist allt með The Shi-
elds og í dag liggja kvikmyndatil-
boðin á borði hans og vinsældir
VERÐLAUNAHAFI: Michael Chiklis á
einni af mörgum verðlaunahátíðum
sem hann hefur sótt á síðustu tveimur
árum.
seríunnar hafa aldrei verið meiri.
Chiklis er handhafi Golden Globe-
verðlaunannna í ár sem besti sjón-
varpsleikarinn og hefur ekki í
hyggju að fara í kvikmyndirnar
strax, lætur sér nægja að njóta þess
að vera á toppnum sem sjónvarps-
leikari, svo lengi sem það varir.
Árið 1992 giftist Michael Chiklis
Michelle Morgan og eiga þau tvær
dætur, Autumn, 10 ára, og Odessa
sem er 4 ára.
Llfíð .eftir
vinnu
Þriðjudagstónleikar
Á þriðju-
dagstónleik-
um í Lista-
safni Sigur-
jóns Ólafsson-
ar í kvöld leik-
ur gítartvíeyk-
ið Duos
Campanas verk eftir spænsk, ítalskt
og íslenskt tónskáld. Tónleikamir
hefjast klukkan 20:30 og standa í *
klukkustund. Duo Campanas var
stofnað árið 2001 af Eric Lammers
og Þórólfi Stefánssyni sem báðir
eru búsettir í Svíþjóð. Duo
Campanas hefur víða komið fram á
tónlistarhátíðum og tónskáld hafa
samið tónverk fyrir þá til flutnings.
Á tónleikunum í Listasafni Sigur-
jóns munu þeir flytja verk eftir
Joaquín Rodrigo, Mario
Castelnuovo-Tedesco, Enrique
Granados og Þorkel Atlason.
Bókmenntaganga
Borgarbókasafn Reykjavíkur
býður borgarbúum og öðrum bók-
menntaunnendum í Jónsmessu-
göngu að kvöldi þriðjudagsins 24. *
júní. Safnast verður saman í aðal-
safni í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
kl. 20:00 og gengið þaðan um mið-
borgina. Tilefnið er afmælisár
safnsins og útkoma vegvísis um
þessar slóðir sem safnið hefur unn-
ið og kemur út á íslensku og ensku
í bæklingaröð Höfuðborgarstofu
sama dag. Leiðsögumenn í göng-
unni verða Jón Karl Helgason og
Jón özur Snorrason bókmennta-
fræðingar sem hafa kynnt sér borg-
ina í bókmenntum frá ólíkum
sjónarhornum. Þá munu þau
Sjón og Steinunn Sigurðardóttir,
sem bæði eiga texta í vegvísinum,
lesa upp úr verkum sínum á „sögu-
slóðum" þeirra. <
Þorpið íViðey
í lcvöld verða leifar þorpsins í
Viðey skoðaðar og merk saga þess
rakin. Þorpið stóð í 36 ár og ásamt
því að hafa mest tæplega 140 íbúa
var þar önnur umsvifamesta höfn
landsins um árabil. Verður ljós-
myndasýning um þorpið f gamla
skólahúsinu skoðuð. Ferðin hefst
með siglingu yfir sundið kl. 19:30
sem kostar 500 kr. fyrir fullorðna.
Lýkur henni með kaffisölu í Viðeyj-
arstofu. Gangan tekur alls um 2
klst.